Morgunblaðið - 18.11.1976, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 18.11.1976, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. NOVEMBER 1976 29 — Borgarstjórn Framhald af bls. 16 Framkvæmdir við bækistöð Hitaveitunnar hafa géngið samkv. áætlun. Reykjavfkurhöfn I endurskoðaðri framkvæmda- áætlun Reykjavíkurhafnar, sem lögð var fyrir hafnarstjórn 7. maí 1976 var um 100 m.kr. fjárvöntun, sem ekki hefur tekizt að brúa með lántöku. Var þannig ekki unnt að gera ráð fyrir fyllingarfram- kvæmdum við II. áfanga Sunda- hafnar eða gerð hafnarbakka við Grófarfyllingu, nema með lán- töku. Að öðru leyti hafa fram- kvæmdir hafnarinnar verið að mestu 1 samræmi við áætlun, þ.m.t. við 1. áfanga Sundahafnar, Grófarfyllingu, gatnagerð o.fl. f Vesturhöfn, við grjótnám og oliu- stöð, þá hefur slitlag á hafnar- bakka í Sundahöfn ekki verið lagt. Að lokinni skýrslu borgarstjóra lagði Kristján Benediktsson fram tillögu þess efnis að borgarstjóri gerði borgarfulltrúum grein fyrir því í lok hvers framkvæmdatíma- bils og þá að hausti hvernig fram- kvæmdir hefðu gengið. Borgar- stjóri sagði að sér væri bæði ljúft og skylt að veita slíkar upplýsing- ar, hann var því hlynntur tillög- unni. Hún var síðan samþykkt samhljóða. Það skal tekið fram að við afgreiðslu tillögunnar var leit- að afbrigða til að fá hana á dag- skrá. ______ _ ______ — Sjötugur Framhald af bls. 26 Þrátt fyrir náin kynni af Tryggva Hjálmarssyni þá hef ég þó ekki komið auga á nema einn umtalsverðan galla, verður sú gallafæð að teljast með ólikind- um. En galli Tryggva er sá, að hann skuli totta þennan árans pfpustert sinn — en árans er ljót- asta orðið sem hann notar, á hverju sem gengur. Ekki er það samt ætlun mín að fara fram á það við Tryggva vin minn að hann hætti að totta þenn- an pípustert, nei, það sé fjarri mér, enda hefði hann þá lítið að gera með öll þessi flottu tæki, sem tilheyra faginu, svo sem pípu- statív og reykingaborð, sem hann nú hefur meðtekið sem afmælis- gjafir. Svo óska ég Tryggva Hjálmars- syni innilega til hamingju með 'S Morgunblaðið óskareftir blaðburdarfólki AUSTURBÆR Skipholt 2—50 Háteigsvegur VESTURBÆR UTHVERFI Blesugróf Langholtsvegur 71 — 108. Neshagi Miðbraut Upp^„g„ /símg 3M08 WERZALIT SÓLBEKKIR og handriöslistar l Werzalit þarf ekkert viðhald er auðvelt að þrífa og er sérstaklega áferðarfallegt. WERZALIT SÓLBEKKIR fást í marmara, palisander og eikarlitum. WERZALIT HANDRIÐSLISTAR fást í moseeg lit. Afgreiðsla í Skeifunni 19 Werzalit er góð fjárfesting. *¥ TIMBURVERZLUNIN VOLUNDURhf. Klapparstíg 1. Skeifan 19. Simar 18430 — 85244 afmælisdaginn, og bið honum allrar farsældar á óliðnum árum. Og ég vona að hann afsaki þetta ávarp mitt — illa framsett og fátæklegt. Bið ég nú alla viðstadda að rísa úr sætum og hrópa ferfalt húrra fyrir afmælisbarninu. Valdimar Krist jánsson, Sigluvfk. — íslenzk stórútgerð Framhald af bls. 12 um og t.d. var keyptur raf- magnsmotor fyrir ræsingu véla frá Equador. Það tæki var flutt til Keflavikur og kynnt flug- virkjunum þar. Þá þurfti t.d. að útvega að- flugskort á Medina, en þau reyndust ekki til, þar sem alltaf er heiðskírt þar og ávallt um sjónflug að ræða. Þá þurfti að senda menn út og suður til þess að fylgjast með ýmsum fram- kvæmdum I sambandi við leigu- flugið, nokkrir fóru t.d. til New York til að fylgjast með frá- gangi vélanna, aðrir þurftu að fara til Nígeríu og Saudi Ara- biu og svo var það heimavinn- an, eins og t.d. skipulagnin læknisskoðunar fyrir fluglið- ana, útvegun vegabréfa og vinnuleyfis og t.d. vasaljósa fyrir áhafnir. Að kvöldlagi verður fólk að lýsa sér sjálft ef það ætlar að fara á milli húsa f Kano og að ýmsu verður að hyggja. Engin sjúkrahús eru í Kano, en ein flugfreyjan, Sveinbjörg Gunnarsdóttir, er hjúkrunar- kona og mun hún sjá um slika aðstoð. Þá þurfti að athuga bún- inga og annað slíkt. Til að mynda verða pils stúlknanna að vera i sfðara lagi til þess að brjóta ekki velsæmisreglur við- komandi landa og ráðlegt er að allir séu i einkennisbúningum ef vel á að ganga, því þeir aðilar sem undir er að sækja taka mikið tillit til veglegra bún- inga. Vatnsaustur um borð Flugið sjálft fer þannig fram að auk 5 flugfreyja um borð eru tvær aðstoðarstúlkur, sem eru túlkar. ÍJtbýtt er matarpökkum til farþeganna en aðaldrykkur farþeganna á leiðinni mun vera vatn. Segja má að flugfreyjurn- ar þurfi að standa í stöðugum vatnsausti til farþeganna á leið- inni. Gefur ðteljandi möguleika f flugrekstri Pílagrímaflugið er frumraun Loftleiða í sambandi við það að hasla sér völl í leiguflugi með farþega á alþjóða vettvangi. Astæðan til þess að farið var út f þetta flug er sú að verkefni hefur vantað fyrir flugvélar Loftleiða yfir vetrartimann bæði hvað snertir nýtingu á vélakosti og mannafli. Vegna þessara leiguflugsamninga, beinlinis, var t.d. framlengdur samningur við 30 flugfreyjur I haust og flug sem þessi gefa óteljandi möguleika i auknum flugrekstri og betri nýtingu félagsins. Um þessar mundir eru Flugleiðir með 5DC-8 þotur á sinum snærum og aðeins stuttan tíma sumarið 1973 var félagið með eins margar vélar í gangi. Fram til þessa hefur reksturinn verið umsvifamest- ur yfir sumartímann, en nú er hann meiri en á þeim tíma. Þegar flutningi farþega frá Kano til Jedda lýkur sfðari hluta nóvember, verður 10 daga hlé á ffugi áður en fólkið verð- ur flutt til baka. Loftleiðir gátu sér mjög gott orð í vöruflutningnum á þess- um vettvangi s.l. ár og sérstak- lega mun heimamönnum hafa fallið vel að íslenzka stafsfólkið kom mjög eðlilega fram við það, en sliku á það síður að venjast af fólki frá hinum ..sið- menntaða" heimi.----á.j. Landshlutasamtök og hyggðastefna RÁÐSTEFNA S.U.S. á Hellu laugardaginn 20. nóvember n.k. efnir Samband ungra Sjálfstæðismanna til ráðstefnu um landshlutasamtök og byggðastefnu. Dagskrá: Ráðstefnan sett ( kl. 1 0.00) LANDSHL UTASAMTÖK Ræður. Steinþór Gestsson alþingismaður Jón Gauti Jónsson sveitarstjóri. BYGGÐASTEFNA Ræður: Sverrir Hermannsson alþingismaður Þorsteinn Pálsson ritstjóri. HÁDEGIS VERÐUR •jc Umræðuhópar starfa Almennar umræður Afgreiðsla ályktana 'Jt Ráðstefnuslit (um kl. 1 7.00) ^ Ráðstefnustjóri: Helgi Hólm Þeir sem hafa hug á að sækja ráðstefnuna eru beðnir að tilkynna þátttöku fyrir kl. 1 8.00 fimmtudaginn 1 8 nóv. n.k. í síma 82900. Þátttökugjald m/hádegisverði kr. 1000.— s.u.s. OPNUM Á MORGUN FÖSTUDAG í AUSTURVERI, Háaleitisbraut 68 Bóka- og sportvöruverzlunin ASTUND

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.