Morgunblaðið - 25.11.1976, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 25.11.1976, Blaðsíða 10
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. NÓVEMBER 1976 10 Hestamannafélagið Gustur Kópavogi Gustsfélagar Munið skemnntifundinn í kvöld í félagsheimili Kópavogs kl. 20.30. Erindi: Rölt um á Rangár- bökkum, Guðmundur Jósafatsson. Myndasýning frá mótum sumarsins, Guðlaugur Tryggvi Karlsson. Tamningastöð verður starfandi í vetur frá ára- mótum. Þeir sem ætla að koma hestum í tamningu í vetur hringið í síma 20808. Gustur. Sími 53590 Til sölu Garðavegur 2ja herb risíbúð i eldra timburhúsí. Hagstætt verð. Brekkugata 2ja herb. nýstandsett kjallaraíbúð í steinhúsi Ræktuð lóð. Hagstætt verð. Álfaskeið 2ja herb. ca. 55 fm. íbúð á jarðhæð í fjölbýlishúsi. Sér inngangur. Þvottahús í íbúðinni. Bílskúrsréttur. Laus fljótlega. Hringbraut rúmgóð 3ja herb. íbúð á 1. hæð í þribýlishúsi. Góðar innretting- ar. Bílskúrsréttur. Eyjabakki 3ja herb. rúmgóð íbúð á 1. hæð í fjölbýlishýsi. Viðarklæðningar. Sérstaklega vönduð íbúð. Hjallabraut 3ja herb. rúmgóð á 1. hæð í fjölbýlishúsi. Fullfrágengin lóð. Brekkugata 3ja herb. efri hæð í tvíbýlishúsi. Fallegt útsýni, ræktuð lóð. Bílskúrsréttur. Breiðvangur ný, svo til fullgerð 4ra herb. endaíbúð á 4. hæð í fjölbýlishúsi. Mikið útsýni. Uppsteypt bílgeymsla. Ásbúðartröð falleg 130 ferm. sérhæð ! tvíbýlishúsi. Vandaðar innrett- ingar. Fallegt útsýni. Falleg ræktuð lóð. Bílskúrsréttur. Hellisgata eldra einbýlishús ca. 90 ferm. á einni hæð. Ný uppgert að mestu. Góðar geymslur ! kjallara. Frágengin lóð. Bílskúrsréttur. Hagstætt verð. Heiðvangur 1 40 ferm. svo til fullbúið vandað einbýlishús. Lóð fullfrágengin. Tvöföld bílgeymsla Mjög skemmtileg eign. Hef kaupanda að 5—6 herb. nýlegri ibúð ásamt bílgeymslu. Sunnuvegur Tveggja hæða nýstandsett ein- býlishús. Falleg ræktuð lóð. Ingvar Björnsson hdl. Strandgötu 11. Austurstræti 7 Símar: 20424—14120 Heima: 42822—30008 Sölustj. Sverrir Kristjánss. Viðsk.fr. Kristj. Þorsteinss. Við Háaleitisbraut mjög vönduð ca. 75 fm fm 2ja herb. ibúð á jarðhæð. íbúðin er mjög vel innréttuð og umgengin. Hentar sérstaklega vel fyrir eldri hjón (stór stofa). Við Arnarhraun góð 2ja herb. ibúð i litið niður- gröfnum kjallara. íbúðin getur verið laus 1. des. n.k. Við Laufvang ca 100 fm 3ja herb. íbúð á 3. hæð. endaibúð. Harðviður i loft- um. Góð teppi. Þvottaherbergi og búr innaf eldhúsi. í sameign er gufubað, smiðaherbergi. leik- herb o.fl. Við Eskihlíð ca 94 fm 3ja herb. ibúð i smið- um i blokk við Þóroddsstaði íbúðinni verður skilað fullbúinni 1.7'77. án teppa. Við Álfaskeið efri hæð í tvíbýlishúsi ca. 100 fm 4 herbergi, allt sér. Laus strax. Verð aðeins kr. 9.1 milljón. Við Álfheima góðar 4ra herb. íbúðir. Við Meistaravelli rúmgóð 4ra herb. íbúð á 4. hæð. Verð kr. 10.5 millj. íbúðin getur verið laus fljótt. Við Dunhaga mjög góð 4ra—5 herb. íbúð á 2. hæð. Laus 1 5. febr. n.k. Verð 12.7 millj. Útborgun 8.5 millj. Við Breiðvang, Hafn. til sölu 4ra herb. íbúð um 100 fm, íbúðin er rúmlega tilbúin undir tréverk. Laus strax. í Seljahverfi fokhelt raðhús kjallari og 2 hæð- ir ca. 80 fm hver hæð. Steypt loftplata. (Ekki bratt þak). Góð kjör, sé samið strax. Einbýlishús óskast í Vesturbæ eða á Seltjarnarnesi. Einnig kemur til greina, grunnur eða lengra komið Upplýs- ingar í síma 23591 17900[^ Fasteignasalan Túngötu 5 Róbert Árni Hreiðarsson, lögfr. Jón E. Ragnarsson, hrl. EF ÞAÐ ER FRÉTT- NÆMTÞÁERÞAÐÍ MORGUNBLAÐINU Einbýlishús óskast Höfum kaupendur að einbýlis- húsum í Kópavogi og Reykjavík. Höfum auk þess kaupendur að öllum gerðum húseigna. Hringið strax og kynnið yður aðrar eignir á skrá. Jólasundmót öryrkja hefst í dag: Frá æfingu öryrkjanna ásamt foreldrum og aðstoðarfólki f sundlauginni f æfingastöðinni f gær. (Ijósm. Friðþjófur). „Vona aóþaðörvi sem flesta til að koma í sund sér til ánægju og heilsubótar" JÓLASUNDMÓT öryrkja hefst í dag um allt land og reyndar einnig samtímis á hinum Norðurlöndunum. Er ekki að efa að þátttaka verður mikil í þessu fyrsta móti sinnar tegundar hér á landi og öryrkjar allir, hvort heldur þeir eru hreyfilamaðir, blindir, þroskaheftir, vangefnir, heyrnarlausir eða öryrkjar af öðrum ástæðum, taki þátt í þessu móti svo framarlega sem þeir geta. Þátttakan er í rauninni ekki f öðru fólgin en því að vera f vatninu f 5 mfnútur, enga ákveðna vegalengd þarf að synda. Við litum í gærmorgun inn í æfingastöð Styrktarfélags lam- aðra og fatlaðra að Háaleitis- braut 13 og fylgdumst þar með sundæfingu hjá nokkrum ung- mennum úr Hlíðaskóla og ræddum við Jónínu Guðmunds- dóttur forstöðukonu stofnunar- innar. Mikill áhugi var meðal sundmannanna ungu og flestir þeirra voru ákveðnir í að taka þátt í jólasundmótinu og fá við- urkenningarborðann sem allir þátttakendur fá. Við ræddum fyrst við Jónínu Guðmundsdóttur og gefum henni orðið: —Ég vona að þetta sundmót örvi sem flesta ör- yrkja til að koma í sund, sér til ánægju og heilsubótar. Mér finnst tilhögun mótsins skemmtileg og hef þegar orðið vör við að krökkunum finnst þetta mót mjög spennandi, en það eru ekki bara börn, sem eru öryrkjar, og fullorðnir ættu einnig að taka þátt í þessu móti. Til dæmis hreyfilamaðir vita ekki fyrr en þeir hafa reynt það hve miklu auðveldara þeir eiga með hreyfingar í vatni en á þurru, segir Jónína. Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra hefur frá því 1956, eða f 20 ár, boðið félagsmönnum upp á sundaðstöðu. Fyrst að Sjafnargötu 14 í æfingastöð félagsins, en sú laug var mjög lítil, aðeins smápottur, eins og Jónína sagði. Samt sem áður gerði hún sitt gagn. Árið 1968 flutti félagið þessa starfsemi sína að Háaleitisbraut 13 og skömmu síðar var sundlaugin þar tekin í notkun. Aðstaðan í húsnæðinu þar er orðin alltof lítil og verið er að athuga með stækkun hússins þar. Þá má geta þess, að til að undirstrika Viðurkenningarborðinn, sem sendur verður öllum þátttak- endum. enn hve forráðamenn Styrktar- félagsins telja sund og æfingar I vatni gagnlegar, að á sumar- dvalarheimili félagsins í Reykjadal er einnig sundlaug. Kennt er eftir svonefndu ,,Hallewick-kerfi“ i sundlaug- inni að Háaleitisbraut og þeir sem þangað sækja heilbrigði og hollustu eru auk sjúklinga, sem eru i endurhæfingu hjá stofnuninni, börn úr öskjuhlíð- arskóla, Hlíðaskóla, frá Kjarvalshúsi og sjúklingar af Grensásdeild Borgarspitalans. —Aðaltilgangurinn með því að fá öryrkja I vatnið er að fá þá til að hreyfa sig og nota og þroska alla sína vöðva, segir Jónína Guðmundsdóttar. —Það er persónubundið eftir hverj- um einstaklingi hversu vel hon- um gengur að synda eða fljóta og fyrsta skrefið í þessari kennsluaðferð er að öryrkinn kynnist vatninu og verði ekki hræddur við það. Við leggjum mikla áherzlu á að börn séu ung þegar þau fyrst kynnast vatn- inu, en sundið er ekki einungis gagnlegt fyrir börn. Ég get nefnt sem dæmi að liðagiktar- sjúklingur á mun auðveldara með að hreyfa sig í vatni og þar verða allar hreyfingar miklu sársaukaminni, sagði Jónína Guðmundsdóttir að lokum. Að þessu spjalli loknu héld- um við að nýju inn að sundlaug- inni og nú voru nemendurnir, sem að þessu sinni voru úr Hliðaskóla, farnir að leika sér og syngja í lauginni. Ríkti mikil ánægja meðal þeirra og hraust- lega var tekið undir í „Litlu andarungunum", en börnunum til aðstoðar voru foreldrar þeirra og sjúkraþjálfarar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.