Morgunblaðið - 25.11.1976, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. NÓVEMBER 1976
15
ÁRLEGUR aðalfundur
Alþjóðasamtaka fisk-
mjölsframleiðenda
(IAFMM) var haldinn í
Höfðaborg í Suður-
Afríku dagana 29. októ-
ber til 5. nóvember s.l.
Fundur þessi var f jölsótt-
ur og voru fulltrúar 15
helztu fiskmjölsfram-
leiðslu- og mjölkaupa-
landa á honum. Meðal
þeirra, sem sátu fundinn,
voru þrír íslendingar,
þeir Jón Reynir Magnús-
son framkvæmdastjóri
Sildarverksmiðja ríkis-
ins, Haraldur Gíslason
framkvæmdastjóri Fisk-
mjölsverksmiðjunnar i
Vestmannaeyjum og
Gunnar Petersen fram-
kvæmdastjóri Bernhards
Petersens h.f. í Reykja-
vik.
— Á þessum fundum,
sem haldnir eru árlega,
og þá til skiptis í aðildar-
löndum IAFMM, reyna
menn að gera sér grein
fyrir þróun mála á mjöl-
mörkuðunum og hvernig
þau standa. Þá er reynt
að gera sér í hugarlund
hver eftirspurnin og
mjölframleiðslan verður
á komandi ári.
Þá er um leið rætt um
efnahagsmálin í heimin-
um, því þeirra áhrifa
gætir ekki síður i þessari
atvinnugrein en öðrum,
sagði Jón Reynir
Verð
a mjoli
ætti að
haldast
jafnt á
næsta
ári
LJ6sm.Mbl.:RAX
eggjaframleiðslubúa, en hins
vegar minna til notkunar i
kvikfjárrækt.
Perú er enn langstærsti fisk-
mjölsframleiðandi í heiminum
og framleiddi á s.l. ári um 690
þús. lestir af mjöli, Morðmenn
komu í öðru sæti með 325 þús.
tonn og S-Afríka með 225 þús.
lestir. Á Islandi voru þá fram-
leiddar um 100 þús. lestir. Að-
ildarríki samtaka útflutnings-
landanna (FEO) eru alls 6, þ.e.
Angóla, Chile, Perú, Noregur,
S-Afríka og Island. Mjölfram-
leiðsla þessara rfkja er talin
hafa verið um 1560 þús. lestir á
s.l. ári, en önnur ríki eru talin
hafa framleitt um 400 þús. lest-
ir af mjöli, þannig að heildar
fiskmjölsframleiðsla heimsins
á s.l. ári var um 1960 lestir.
— Það kom okkur mikið á
óvart að koma til S-Afríku,
sagði Jón Reynir. Áður en við
þremenningarnir fórum að
heiman, áttum við helzt von á
að koma i eitthvert styrjaldar-
riki, eftir öllum þeim blaða-
skrifum sem verið hafa um
landið að undanförnu. En ég
verð að segja, að ég hef varla
komið í elskulegra land. Frétta-
flutningurinn virðist allur hafa
verið á einn veg, og gæti ég bezt
trúað að meiri ófriður hafi ríkt
á götum Reykjavikur, heldur
en nokkurn tima I Höfðaborg,
þann tfma, sem ég dvaldi þar.
S-Afríka er útaf fyrir sig ekki
miklu yngra riki en Bandarik-
in, og virðast ibúar landsins
vera mjög friðelskandi og af-
burða gestrisnir, og mun ég
aldrei trúa að þeir geri sér að
leik að vera i stríði við einn né
neinn, og virðist menning vera
á mjög háu stigi.
— Við heimsóttum m.a.
Rannsóknastöð fiskiðnaðarins i
S-Afríku, sem er talin með
fremstu rannsóknastöðvum í
— segir Jón Reynir Magnússon framkvæmdastjóri
SR, sem er nýkominn af fundi fiskmjölsframleiðenda
Magnússon fram-
kvæmdastjóri Síldar-
verksmiðja ríkisins þeg-
ar Morgunblaðið ræddi
við hann um för hans á
aðalfundinn.
— Menn voru sammála um
það á fundinum, sagði Jón
Reynir, að það verð sem nú
fæst fyrir fiskmjöl muni hald-
ast og að framboð og eftirspurn
eftir mjöli muni verða i jafn-
vægi á næsta ári. Hingað til
hafa þessir fundir alltaf snúizt
mikið um mjölframleiðslu
Perúmanna, og oft á tiðum hafa
spár þeirra byggzt á of mikilli
bjartsýni. Hins vegar kom það
fram hjá helztu sérfræðingum
nú, að framleiðslan í Perú muni
ekki hafa eins mikil áhrif á
heimsmarkaðinn á næstu árum
og fram til þessa, sagði Jón.
Það kom fram hjá Jóni, að
mjölnotkun hefur aukizt í
heiminum á siðustu árum.
Lönd, sem litið sem ekkert hafa
notað mjöl til þessa, eru nú
farin að nota það i nokkuð rík-
um mæli og má þar nefna Suð-
ur-Amerlkuþjóðir, Iran og
mörg Arabalandanna, en sem
kunnugt er fer fiskimjöl mest i
fóðurblöndu fyrir alifugla og til
heiminum, og ekki sízt á sviði
fiskmjölsframleiðslu. Gætum
við tslendingar örugglega lært
ýmislegt af vinnubrögðum þar.
— Við erum með sérstaka
vísindanefnd starfandi innan
IAFMM og forseti nefndarinn-
ar hefur lengi verið frá S-
Afriku, en lét af þessu starfi
nú, vegna aldurs en við tók
Norðmaður. Starfsmenn við
fiskmjölsframleiðslu og rann-
sóknir i S-Afriku eru ýmist
hvítir eða svartir og gat ég ekki
betur séð en að öllum kæmi vel
saman og væru hinir ánægð-
ustu, sagði Jón Reynir að lok-
um.
„Eg vil hafa mín-
ar konur sjálfur”
Örn og örlygur gefa út sögu Ólafs á
Oddhóli skráda af Degi Þorleifssyni
hlutunum og eitt er vfst að hann
talar engri tæpitungu ( bók sinni.
Hann gerir góðlátlegt grfn að
sjálfum sér og samferðamönnum
sfnum og dregur ekkert undan af
ástarævintýrum sfnum hérlendis
og erlendis.
I bók Olafs á Oddhól segir frá
lestaferðum fyrir tíð bílaaldar,
sjómannslifi á þrælaöld, strit-
vinnu í kolum og saiti á eyrinni i
Reykjavík, svaðilförum i byl og
gaddi yfir fjallvegi, óteljandi
ævintýrum í kvennafans hérlend-
is sem erlendis, langferðum til
suðrænna sólarlanda, búskap og
atvinnuframkvæmdum, fjölda-
morðum í frelsisstriði katalóniu-
manna, gegndarlausri spillingu
hernámsáranna, margbreytileg-
um og stormasömum viðureign-
um við bankavöld. Ævi Ölafs hef-
ur vissulega verið viðburðarík,
auk þess sem hann er gæddur
þeim öfundsverða eiginleika að
sjá ævintýri í hverjum hlut — og
gleðjast yfir því eins og barn.“
Bókin er 194 bls., sett í Prent-
sofu G. Benediktssonar, prentuð i
Prentsmiðjunni Viðey h.f. og
bundin í Arnarfelli h.f. Kápu-
teikningu gerði Hilmar Þ. Helga-
son.
Lauk doktorsprófi
í jurtakynbótum
MAGNA BJARNASYNI var veitt
doktorsnafnbót 28. júnl s.l. fyrir rit-
gerð er hann skrifaði um rannsóknir
á erfðum amínósýrunnar Lysin I
malskornum afbrigðisins Opaque - 2.
Fyrir nokkrum árum uppgötvaðist að
þetta afbrigði hefur inni að halda
mjög hátt magn af Lysin, sem oftast
er skortur I kornmat.
Dr Magni hefur undanfarin ár verið
við nám í landbúnaðarvísindum og
jurtakynbótum við háskólann i Hohen-
heim i Vestur-Þýskalandi.
Aðalprófessor Magna var hinn kunni
jurtaerfðafræðingur dr Pollmer
Magni er sonur Bjarna Walen
Péturssonai1 bústjóra Kópavogshælis
og konu hans Svanborgar Sæmunds-
dóttur vefnaðarkennara. — Hann er
nýgiftur Barböru Baumann, sem er
liffræðingur að mennt frá Hohenheim
háskóla.
Þau hjónin eru á förum til Mexico,
en dr Magni hefur verið ráðinn við
alþjóðarrannsóknastofnunina, sem
Nóbelsverðlaunahafinn dr Normann
Borlaug stofnaði og vinnur við Dr
Borlaug er stundum kallaður faðir
grænu byltingarinnar og hlaut friðar
verðlaun Nóbels fyrir þátt sinn i þeirri
byltingu Magni mun vinna að máis-
rannsóknum, en við þessa stofnun.
sem heitir CIMMYT eru einnig rann-
sóknir á hveiti og byggi. og er þessi
stofnun þekktasta jurtakynbótastöð
heimsins um þessar mundir
Dr. Magni Bjarnason
BÓKAtJTGÁFAN örn og örlygur
hefur sent frá sér bókina „Ég vil
hafa mfnar konur sjálfur“ sem er
saga Ólafs Jónssonar á Oddhóli og
fyrrum I Álfsnesi, sem Dagur
Þorleifsson blaðamaður skráði. I
frétttilkynningu frá forlaginu
segir m.a: „Ólafur bóndi á Odd-
hóli á sér litrika fortið og hefur
komið viða við. Hann er ekki
þekktur fyrir að skafa utan af
TröUabingó
Tröllabingó KR-inga veröur fimmtudaginn 25. nóvember,
í Sigtúni. Húsið opnað kl. 20.00.
Forsala á aðgöngumiðum verður í KR-húsinu við Frostaskjól.
Heildarverðmæti vinninga kr. 700.000, þar á meðal 5 utanlandsferðir.
KR-Tröllin