Morgunblaðið - 25.11.1976, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. NÓVEMBER 1976
21
Skattalækkun
í V -Þýzkalandi?
Sýrlendingar
herflokka til
Bonn, 24. nóvember. Reuter.
HELZTU efnahagsráðunautar
vestur-þýzku stjórnarinnar lögðu
til í dag að hrundið yrði i fram-
kvæmd vfðtækri áætlun sem
hljóðar upp á 3 milljarða marka
um umbætur f efnahagsmálum.
George Bush
Bush
hættir
Washington, 24. nóvember. AP.
GEORGE Bush tilkynnti í dag
að hann mundi segja af sér
sem yfirmaður CIA 20. janúar,
þegar Jimmy Carter verður
settur inn f forsetaembættið.
Hann hét Carter fullum stuðn-
ingi þar til hann tæki við for-
setaembættinu, en gaf enga
skýringu á ákvörðun sinni.
Bush gaf Carter skýrslu um
starfsemi CIA á heimili hans í
Plains i Georgíu fyrir helgi og
vildi ekkert um það segja
hvort um það hefði verið rætt
að hann héldi starfinu áfram.
Carter hefur ekki gefið til
kynna hvern hann velji eftir-
mann Bush.
Bush tók við starfi sinu 30.
janúar af William Colby sem
hafði haldið uppi vörnum fyrir
CIA í rannsóknum sem þing-
nefndir gerðu á starfsemi
leyniþjónustunnar. Hann varð
sendiherra hjá Sameinuðu
þjóðunum 1970 og i Kfna i
september 1974.
— segir Newsweek
FREGNIR hirtast um það f nýút-
komnum tölublöðum vikutfmarit-
anna Newsweek og Penthouse, að
nýlega hafi Sovétmenn eyðilagt
bandarfskan gervihnött og laskað
annan með „laser“-geisla. Banda-
rfska vernarmálaráðuneytið vfs-
aði frétt Penthouse á bug í gær,
en minntist ekki á frásögn News-
week.
1 Newsweek — fregninni segir ,
að annar gervihnötturinn hafi
hætt að senda boð til jarðar þar
sem Sovétmenn hafi beint að hon-
um „laser“-geisla yfir Indlands-
hafi. Um leið hafi geislinn skolliö
á öðrum gervihnetti og hafi sá
eyðilagzt. Hafi atburður þessi átt
sér stað fyrri hiuta árs 1976. Hafi
Sovétmenn með árásinni á gervi-
hnettina verið að árétta afstöðu
sína til samningsins við Bandarík-
in um takmörkum vígbúnaðar frá
1972. Þá segir Newsweek, að
Bandaríkjastjórn hafi ekki viljað
greina frá þessum atburöi opiri-
berlega af ótta við harkaleg við-
brögð almennings, sem hefðu get-
að haft áhrif á gang afvopnunar-
viðræðnanna við Sovétmenn.
Fulltrúi varnarmálaráðuneytis-
ins sagði í tilefni af frétt Pent-
house, að ekker't lægi fyrir, sem
renndi stoðum undir það, sem þar
kæmi fram, en hins vegar væri
ráðuneytinu kunnugt um tilraun-
ir Sovétmanna með „laser“-vopn
snemma á þessu ári. Hann skýrði
Samkvæmt áætluninni á að
örva efnahagsllfið með þvf að
veita atvinnufyrirtækjum og lág-
launafólki skattafvilnanir, auka
rfkisframlög til rannsókna f þágu
atvinnuveganna og gera ráðstaf-
anir til að draga úr atvinnuleysi.
Ráðunautarnir eru venjulega
kallaðir „vitringarnir fimm“ og
Hans Friedrichs efnahagsmála-
ráðherra sagði i yfirlýsingu að
tillögur þeirra væru i aðalatriðum
í samræmi við efnahagsstefnu
stjórnarinnar. Hann hætti þvi við
að ríkisstjórnin mundi að sjálf-
sögðu kynna sér tillögurnar ræki-
lega.
Hins vegar sagði Friedrichs að
ráðunautarnir og rikisstjórnin
væru sammála um að rangt væri
að breyta hinni almennu stefnu i
efnahagsmálum til þess eins að ná
fram tímabundinni aukningu
eftirspurnar og framleiðslu.
Ráðunautarnir lögðu á það
áherzlu í skýrslu sinni að stjórnin
yrði að hafa strangt eftirlit með
rikisútgjöldum ef hún ákvæði að
hrinda tillögunum I framkvæmd.
Samtök atvinnurekenda i
Vestur-Þýzkalandi tóku vel í til-
lögurnar en létu í ljós vafa um að
skattalækkanirnar sem lagt væri
til að atvinnufyrirtæki fengju
Framhald á bls. 31
Bardagar á
landamærum
Kambódíu
Bankok, 23. nóvember. Reuter.
MARGIR kambódfskir hermenn
hafa fallið f átökum við thai-
lenzka landamæraverði f Suðaust-
ur-Thailandi að sögn talsmanns
lögreglunnar f Bangkok f dag.
Barizt var í héraðinu Hat Lek f
fylkinu Trat við Síamsflóa. Thai-
lenzku landamæraverðirnir nutu
stuðnings þriggja varðbáta i átök-
unum og enginn féll úr liði þeirra
aó sögn lögreglunnar.
Haft er eftir yfirmanni thai-
lenzka landgönguliðsins, Sophon
Suyarnsettakorn aðmírál, að oft
hafi slegið í brýnu milli Thailend-
inga og Kambódiumanna í Hat
Lek vegna landamæraágreinings.
frá því, að Bandaríkjamenn ynnu
nú að rannsóknum á því hvernig
hægt væri að eyða gervihnöttum.
Newsweek segir, að enda þótt
fregnum af þessum atburðum sé
vísað á bug, þá liggi fyrir sann-
anir um að atburðurinn hafi átt
sér stað. Vitnað er i ummæli
Donald Rumfields varnarmála-
ráðherra þar sem hann segir, að
gervihnettirnir hafi laskazt af
völdum geislunar frá gasbruna í
Sovétríkjunum, en blaðið bendir
Beirút, 24. nóvember. Reuter
SVRLENZKA herliðið f Lfbanon
hefur ákveðið að senda fámenna
herflokka til hafnarborgarinnar
Tyros f Suður-Lfbanon nálægt
landamærum Israels samkvæmt
heimildum f Beirút f dag.
öðrum ráðstöfunum verður lfk-
lega frestað þar til fyrir liggja
niðurstöður viðræðna sem fara
fram milli Araba og tsraels-
manna fyrir milligöngu Banda-
rfkjamanna.
Um 50 hermenn verða líklega
sendir til Tyros til þess að leggja
undir sig höfnina þar, sennilega i
þessari viku.
Israelsmenn hafa sagt að þeir
muni ekki sætta sig við að fjöl-
mennt sýrlenzkt herlið verði sent
til Suður-Libanons. Þeir óttast
einnig að skæruliðar Palestinu-
manna hefji að nýju árásir frá
stöðvum i Suður-Líbanon.
á að sú geislun sem hér sé um að
ræða hafi verið 9 til 10 þúsund
sinnum meiri en hugsanlegt sé
hefði orsökin verið þess eðlis, sem
Rumsfield vilji vera láta. Þá segir
blaðið, að Bandaríkjamenn vinni
nú að gerð tækja til að beina með
„laser“-geisla að óvinveittum
geimförum, auk þess sem ratin-
sóknir á því hvernig hægt sé að
verja gervihnetti gegn slíkum
geislum séu nokkuð á veg komn-
ar.
Bandariska utanrikisráðuneyt-
ið segir að það fylgist náið með
ástandinu í Suður-LIbanon og hef-
ur beðið alla aðila að sýna varúð.
Róm, 24. nóvember. Reuter.
MINNIHLUTASTJÓRN kristi-
legra demókrata á Italfu hefur
orðið fyrir svo sterkum þrýstingi
frá hægrimönnum að stjórnmála-
fréttaritarar f Róm vilja ekki úti-
loka st jórnarkreppu og nýjar
kosningar á næstunni.
Atlögur gegn stjóninni er undir
forystu hægrimannsins Massimo
de Carolis frá Milano er berst
fyrir þvi.því að draga úr áhrifum
kommúnista og hefur fengið tals-
vert fylgi á Norður- og Mið-ltaliu.
Þeirri skoðun vex stöðugt fylgi i
flokki kristilegra demókrata að
Giulio Andreotti sé alltof eftir-
látssamur við kommúnista og Car-
olis hefur fært sér þessa óánægju
í nyt.
Carolis og stuðningsmenn hans
vilja endurvekja stjórnarsamstarf
kristilegra demókrata og sósía-
lista, en sósialistar vilja ekki
ganga til stjórnarsamstarfs án
samkomulags við kommúnista.
Carolis hefur sagt að kristilegir
demókratar verði að búa sig undir
erfiðleikatíma. „Það er enginn
senda
Tyros
Þannig hafa Bandarikjamenn tek-
ið að sér að miðla málum milli
tsraelsmanna og Sýrlendinga i
deilum þeirra um Suður-LIbanon.
hægðarleikur að stjórna landi þar
sem hungur rikir og myrkur grúf-
ir. Hugsanlegt er að komið geti til
blóðugra átaka. Hvað sem því líð-
ur þurfum við sterkan flokk, sem
getur barizt,“ sagði hann í viðtali.
226. borg-
arinn á ár-
inu myrtur
Londonderry 24. nóvember. Reuter.
MAÐUR var skotinn til bana i
skrifstofu sinni í Londonderry i
gær. Hann var þekktur kaup-
sýslumaður, Joseph Glover að
nafni, og er 226. óbreytti borgar-
inn sem myrtur er á þessum slóð-
um á árinu. Banamenn mannsins
voru tveir unglingar.
Glover var til skamms tima
gjaldkeri samtaka, sem beita sér
fyrir áframhaldandi sambandi við
Breta.
Framtíð
uSfe. THE OBSERVER
tryggð
Bandariskt oKufélag kaupir bladid, sem verdur óháð áfram
Lundúnum,
24. nóvember. AP — Reuter.
BANDARÍ8KT olfufyrirtæki
hefur fest kaup á hinu virta
brezka helgarblaði The Obser-
ver. Kaupin fóru fram á elleftu
stundu, en að undanförnu hef-
ur blaðið átt f miklum efna-
hagslegum erfiðleikum og hef-
ur jafnvel verið hætta á þvf að
útgáfa þess legðist niður af
þeim sökum. Observer hefur
komið út f 185 ár.
Það var American Atlantic
Richfield Oil Company, sem
keypti 90 af hundraði hluta-
bréfanna f Observer, en í yfir-
lýsingu útgáfustjórnar blaðsins
af þessu tilefni kemur fram, að
kaupin hafi verið gerð til að
tryggja áfram sjálfstæði blaðs-
ins og þá virðingu, sem það
hefur ávallt haft fyrir málefna-
leg og ábyrg skrif.
Observer er helgarblað, óháð
stjórnmálaflokkum, stefna
þess f stjórnmálum hefur jafn-
an verið frjálslynd og róttæk,
og hefur aldrei verið orðuð við
vinstri öfl.
Stjórnarformaður Atlantic
Richfield sagði í dag, að Obser-
ver yrði eftir sem áður óháður,
og kvaðst hann hafa á þvi trú,
að blaðið ætti framundan líf
sem væri að minnsta kosti jafn-
langt og merkt og fortíð þess.
Að undanförnu hafa miklar
bollaleggingar verið um fram-
tið blaðsins. Upplag þess er nú
um 668 þús. eintök, en það hef-
ur minnkað um 60 þúsund á
síðustu 12 mánuðum. Þekktur
ástralskur fjármálamaöur og
útgefandi, Robert Murdoch,
hafði meðal annarra áhuga á
kaupum, en það var fyfst fyrir
10 dögum, að Atlantic Richfield
sýndi áhuga. Tvejr Bandaríkja-
menn taka nú sæti í útgáfu-
stjórninni af hálfu Atlantic
Richfield, stjórnarformaður
fyrirtækisins, Thornton Brad-
shaw, og Douglas Cater,
prófessor og fyrrverandi blaða-
maður. Cater var á sínum tima
ráðgjafi Lyndon B. Johnsons
bandaríkjaforseta, en veitir nú
forstöðu Aspenmenningar-
stofnuninni. Cater átti mikinn
þátt í því að koma á samningum
Atlantic Richfield og útgáfu-
stjórnar Observers.
Breytingarnar á rekstri
blaðsins verða ekki í þvi fólgn-
ar, að útgáfustjórnin fái til um-
ráða ákveðna upphæð sem
greiðslu fyrir hlutabréfin, held-
ur mun Atlantic Richfield
leggja fram það fé, sem þörf er
fyrir, jafnóðum, auk þess sem
fyrirtækið lætur i té aðstoð og
ráðgjöf á sviði stjórnunar.
Sovézkur „laser”-geisli eyddi
gervihnetti og laskaði annan
Kosningar
á Ítalíu?