Morgunblaðið - 25.11.1976, Side 37

Morgunblaðið - 25.11.1976, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. NÓVEMBER 1976 37 FLESTIR sem lesa þessa fyrir- sögn munu hugsa: Ekki kemur okkur það við, hvenig ekið er og drukkið f Englandi. Kasta svo blaðinu eða fletta á næstu siðu. Samt má margt læra af því sem hér er sagt I örfáum orð- um, sem eru úr visindalegri skýrslu, sem lögð var fram á heimsráðstefnu í Helsingfors öðrum þjóðum og þá einkum kirkjunnar mönnum til ihugun- ar. Og um leið var spurt: Hvað er nú til ráða? Ekki geta þær þjóð- ir, sem eins er ástatt fyrir haft þessa upplýsingar að engu. Slys, skaði og skömm, sem alþjóð hrjá hversdagslega eru málefni, sem snertir alla. Það skal tekið fram, að hér standa ekki allir ökumenn jafnt að vígi. Leigubílstjórar eru taldir aka langbezt og öruggast og sama gildir um ökumenn strætis- vagna og langferðabifreiða. Hins vegar verða slys og árekstrar mest hjá unglingum og skemmtiferðafólki á einka- bifreiðum. Kannski er þetta eitthvað líkt hér á tslandi. Minnsta kosti gætum við mikið af því lært. Tölur þær og skýrslur, sem farið er eftir og lagðar vour fram eru síðan í april mánuði I vor 1976. ' Hlutfallstala ökumanna, sem bana hafa beðið eða valdið dauðaslysum i umferð undir áhrifum áfengis, er hærri nú en nokkru sinni fyrr. Kostnaður við umferðarslys, greiddur úr vasa almennings, þar sem áfengi er slysavaldur, nemur nú yfir 100 milljónum punda árlega. Hefur sá kostnaður skatt- greiðenda verið reiknaður út hér á landi? Þjóðarneyzla áfengis i Englandi jókst um 39% á árun- um 1968 til 1974. Og sé aðeins unga fólkið og drykkja þess tek- in með er hlutfallið miklu hærra. Samhliða og og í jöfnu hlutfalli við þessa áfengis- neyzlu hafa sjúkdómar og afbrot sem rekja má til þessara orsaka, aukizt. Þjóðþingið hefur nú tekið þessi vandamál til umræðu og íhuguð er lagabreyting um hærra aldurstakmark þeirra, sem áfengi mega kaupa og breyttan lokunartíma á knæp- um og veitingahúsum. Tiltölulega fáir ökumenn, sem aka drukknir eru mestu slysavaldar í umferðinni. Helmingur allra dauðsfalla milli 15 og 24 ára aldurs verða f umferðaslysum og áfengi er þar svo að segja alltaf orsökin. England hefur enn þá varizt vió gluggann eftirsr. Arelíus Níelsson Akstur og drykkja i Englandi fýknilyfjum öðrum en alkóhóli svo vel, að tiltölulega fá slys verða rakin til þeirra. Af völdum hass og marjuana eru nálægt eitt hundrað slys árlega þessi fimm ár. En til samanburðar eru nær 50 þúsund slys með áfengi sem aðalorsök. Sömu skýrslur birta nokkrar niðurstöður rannsókna um samband afbrota og áfengis- neyslu. Þar kemur í ljós að mestur hluti glæpa og þó sér- staklega ofbeldisafbrota: Misþyrmingar, nauðganir og morð, eða um 80%, orsakast af áfengisneyzlu og eru framin í ölæði. Heimsókn í Stafford-fangelsi leiddi I ljós f viðtali við fangels- isstjóra og fangaverði að sama hlutfall eða nær 80 af hundraði fanganna þar frömdu afbrot sfn f ölæði: Skýrslu þessari lýkur með þessum tölum: Yfir 100 þúsund afbrot f Englandi og Wales voru rakin til áfengisneyzlu ár- ið 1974. Auk þess 58 þús. eingöngu f sambandi við akstur og umferð: Sfðan er bætt við. Þessi afbrot eru samt áreiðan- lega þrefalt fleiri en þessaV töl- ur segja, gætu verið fimm'sinn- um fleiri. Mörg afbrot sannast aldrei. Önnur eru ekki rakin til orsaka eða látin óátalin. Framhald á bls. 31 „Einingin” í Hvol- hreppi 50 ára Blaðinu hefur borizt eftirfarandi frá Hvolsvelli: I sumar héldu kvenfélagskonur f Hvolhreppi upp á fimmtíu ára afmæli kvenfélagsins „Einingin“ með ferðalagi austur f Skaftafells- sýslu. Kvenfélagið er stofnað 4. júlf 1926 og í fyrstu stjórn þess sátu: Ástríður Thorarensen, Móeiðarhvoli, formaður, Sigríður E. H. Nikulásdóttir, Þórunúpi, ritari og Ragnheaður Einarsdóttir, sýslumannsfrú á Efra Hvoli, gjaldkeri. A afmælisárinu voru þessar konur gerðar að heiðursfélögum: Ástrfður Thorarensen frá Móeiðarhvoli, Margrét Sæmunds- dóttir frá Hvolsvella og Danfella Jónsdóttir frá Króktúni. Þá færðu kvenfélagskonur ungri stúlku sem varð fyrir slysi, myndarlega fjárhæð, og Stórólfs- hvolskirkju færðu þær, fyrir nokkrum dögum, kr. 100.000,- f orgelkaupasjóð, en ákveðið er að kaupa nýtt hljóðfæri í kirkjuna. Til kirkjunnar hafa oft á undan- förnum árum komað góðar og kærkomnar gjafir frá kvenfélags- konum. Ekki hafa þær gleymt slysa- varnasveitinni Dagrenningu. Björgunarsveitarmennirnir eiga vandaðan ullarfatnað frá kven- félagskonum. Konurnar hafa ekki haft hátt um margvisieg störf að menning- ar og mannúðarmálum f sveitinni sinni. Samt hafa þær unnið af •þrautseigju og lagt mörgum góð- um málum lið, þótt ekki hafi alltaf verið ausið úr digrum sjóð- um, en góðan vilja og fórnfýsi hefur aldrei vantað. Stjórn kvenfélagsins „Einingin" skipa nú: Kristín Guðmundsdóttir, Stórólfshvoli, formaður, Erla Jónsdóttir, Hvols- velli, gjaldkeri og Helga Þor- steinsdóttir, Hvolsvelli, ritari. Nú þegar margs konar félags- skapur er að lognast út af er starf- semi kvenfélagsins hér með blóma, og ellisjúkdómar óþekktir. Ungar konur ganga jafnt og þétt á kvenfélagið „Einingin“ og starfa með hinum eldri félagskonum af dugnaði og með gleði. ATT ÞU HEFILBEKK? TILVAUN JÓLAGJÖF. TAKMARKAÐAR BIRGÐIR. GUNNAR ASGEIRSSON HF. AKUREYRI — REYKJAVÍK. BYGGINGAVÖRUVERZL. KÚPAV0GS EFUÐ STYRKASTA STJÓRNMÁLAAFUÐ Sjálfstæðisfélögin í Reykjavík INNTÖKUBEIÐNI Ég undirritaður óska hér með að gerast meðlimur i: I | Landsmálafélaginu Verði, sambandi félaga Sjálfstæðis- manna í hverfum Reykjavíkur: I | Félagi Sjálfstæðismanna í Nes- og Melahverfi ] Félagi Sjálfstæðismanna í Vestur-og Miðbæjarhverfi □ Félagi Sjálfstæðismanna í Austurbæ- og Norðurmýri □ Félagi Sjálfstæðismanna í Hlíða-og Holtahverfi ö Félagi Sjálfstæðismanna í Laugarneshverfi 01 Félagi Sjálfstæðismanna í Langholti □ Félagi Sjálfstæðismanna í Háaleitishverfi □ Félagi Sjálfstæðismanna í Smáíbúða- Bústaða- og Foss- vogshverfi 0] Félagi Sjálfstæðismanna í Árbæjarhverfi □ Félagi Sjálfstæðismanna í Bakka- og Stekkjahverfi d] ^élagi Sjálfstæðismanna í Fella- og Hólahverfi ö Félagi Sjálfstæðismanna í Skóga- og Seljahverfi □ Heimdalli, samtökum ungra Sjálfstæðismanna (16—35 ára) l l Hvöt, félagi Sjálfstæðiskvenna I l Málfundafélaginu Óðni Reykjavík_____19____ Undirskrift Fullt nafn: Heimilisf.: -slmi:. Fæðingard. og ár: Staða: _______ Nafnnúmer: Vinnust./sími: Sendist: Skrifstofu Fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna I Reykjavlk Bolholti 7, slmar 82900 — 82963.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.