Morgunblaðið - 25.11.1976, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. NÓVEMBER 1976
37
FLESTIR sem lesa þessa fyrir-
sögn munu hugsa: Ekki kemur
okkur það við, hvenig ekið er
og drukkið f Englandi. Kasta
svo blaðinu eða fletta á næstu
siðu.
Samt má margt læra af því
sem hér er sagt I örfáum orð-
um, sem eru úr visindalegri
skýrslu, sem lögð var fram á
heimsráðstefnu í Helsingfors
öðrum þjóðum og þá einkum
kirkjunnar mönnum til ihugun-
ar.
Og um leið var spurt: Hvað er
nú til ráða? Ekki geta þær þjóð-
ir, sem eins er ástatt fyrir haft
þessa upplýsingar að engu.
Slys, skaði og skömm, sem
alþjóð hrjá hversdagslega eru
málefni, sem snertir alla. Það
skal tekið fram, að hér standa
ekki allir ökumenn jafnt að
vígi.
Leigubílstjórar eru taldir aka
langbezt og öruggast og sama
gildir um ökumenn strætis-
vagna og langferðabifreiða.
Hins vegar verða slys og
árekstrar mest hjá unglingum
og skemmtiferðafólki á einka-
bifreiðum.
Kannski er þetta eitthvað líkt
hér á tslandi. Minnsta kosti
gætum við mikið af því lært.
Tölur þær og skýrslur, sem
farið er eftir og lagðar vour
fram eru síðan í april mánuði I
vor 1976.
' Hlutfallstala ökumanna, sem
bana hafa beðið eða valdið
dauðaslysum i umferð undir
áhrifum áfengis, er hærri nú en
nokkru sinni fyrr.
Kostnaður við umferðarslys,
greiddur úr vasa almennings,
þar sem áfengi er slysavaldur,
nemur nú yfir 100 milljónum
punda árlega.
Hefur sá kostnaður skatt-
greiðenda verið reiknaður út
hér á landi?
Þjóðarneyzla áfengis i
Englandi jókst um 39% á árun-
um 1968 til 1974. Og sé aðeins
unga fólkið og drykkja þess tek-
in með er hlutfallið miklu
hærra. Samhliða og og í jöfnu
hlutfalli við þessa áfengis-
neyzlu hafa sjúkdómar og
afbrot sem rekja má til þessara
orsaka, aukizt.
Þjóðþingið hefur nú tekið
þessi vandamál til umræðu og
íhuguð er lagabreyting um
hærra aldurstakmark þeirra,
sem áfengi mega kaupa og
breyttan lokunartíma á knæp-
um og veitingahúsum.
Tiltölulega fáir ökumenn,
sem aka drukknir eru mestu
slysavaldar í umferðinni.
Helmingur allra dauðsfalla
milli 15 og 24 ára aldurs verða f
umferðaslysum og áfengi er
þar svo að segja alltaf orsökin.
England hefur enn þá varizt
vió
gluggann
eftirsr. Arelíus Níelsson
Akstur
og
drykkja
i
Englandi
fýknilyfjum öðrum en alkóhóli
svo vel, að tiltölulega fá slys
verða rakin til þeirra.
Af völdum hass og marjuana
eru nálægt eitt hundrað slys
árlega þessi fimm ár. En til
samanburðar eru nær 50
þúsund slys með áfengi sem
aðalorsök.
Sömu skýrslur birta nokkrar
niðurstöður rannsókna um
samband afbrota og áfengis-
neyslu. Þar kemur í ljós að
mestur hluti glæpa og þó sér-
staklega ofbeldisafbrota:
Misþyrmingar, nauðganir og
morð, eða um 80%, orsakast af
áfengisneyzlu og eru framin í
ölæði.
Heimsókn í Stafford-fangelsi
leiddi I ljós f viðtali við fangels-
isstjóra og fangaverði að sama
hlutfall eða nær 80 af hundraði
fanganna þar frömdu afbrot sfn
f ölæði:
Skýrslu þessari lýkur með
þessum tölum: Yfir 100 þúsund
afbrot f Englandi og Wales
voru rakin til áfengisneyzlu ár-
ið 1974. Auk þess 58 þús.
eingöngu f sambandi við akstur
og umferð: Sfðan er bætt við.
Þessi afbrot eru samt áreiðan-
lega þrefalt fleiri en þessaV töl-
ur segja, gætu verið fimm'sinn-
um fleiri.
Mörg afbrot sannast aldrei.
Önnur eru ekki rakin til orsaka
eða látin óátalin.
Framhald á bls. 31
„Einingin” í Hvol-
hreppi 50 ára
Blaðinu hefur borizt eftirfarandi
frá Hvolsvelli:
I sumar héldu kvenfélagskonur
f Hvolhreppi upp á fimmtíu ára
afmæli kvenfélagsins „Einingin“
með ferðalagi austur f Skaftafells-
sýslu. Kvenfélagið er stofnað 4.
júlf 1926 og í fyrstu stjórn þess
sátu: Ástríður Thorarensen,
Móeiðarhvoli, formaður, Sigríður
E. H. Nikulásdóttir, Þórunúpi,
ritari og Ragnheaður Einarsdóttir,
sýslumannsfrú á Efra Hvoli,
gjaldkeri.
A afmælisárinu voru þessar
konur gerðar að heiðursfélögum:
Ástrfður Thorarensen frá
Móeiðarhvoli, Margrét Sæmunds-
dóttir frá Hvolsvella og Danfella
Jónsdóttir frá Króktúni.
Þá færðu kvenfélagskonur
ungri stúlku sem varð fyrir slysi,
myndarlega fjárhæð, og Stórólfs-
hvolskirkju færðu þær, fyrir
nokkrum dögum, kr. 100.000,- f
orgelkaupasjóð, en ákveðið er að
kaupa nýtt hljóðfæri í kirkjuna.
Til kirkjunnar hafa oft á undan-
förnum árum komað góðar og
kærkomnar gjafir frá kvenfélags-
konum.
Ekki hafa þær gleymt slysa-
varnasveitinni Dagrenningu.
Björgunarsveitarmennirnir eiga
vandaðan ullarfatnað frá kven-
félagskonum.
Konurnar hafa ekki haft hátt
um margvisieg störf að menning-
ar og mannúðarmálum f sveitinni
sinni. Samt hafa þær unnið af
•þrautseigju og lagt mörgum góð-
um málum lið, þótt ekki hafi
alltaf verið ausið úr digrum sjóð-
um, en góðan vilja og fórnfýsi
hefur aldrei vantað.
Stjórn kvenfélagsins
„Einingin" skipa nú: Kristín
Guðmundsdóttir, Stórólfshvoli,
formaður, Erla Jónsdóttir, Hvols-
velli, gjaldkeri og Helga Þor-
steinsdóttir, Hvolsvelli, ritari.
Nú þegar margs konar félags-
skapur er að lognast út af er starf-
semi kvenfélagsins hér með
blóma, og ellisjúkdómar óþekktir.
Ungar konur ganga jafnt og þétt á
kvenfélagið „Einingin“ og starfa
með hinum eldri félagskonum af
dugnaði og með gleði.
ATT ÞU
HEFILBEKK?
TILVAUN JÓLAGJÖF.
TAKMARKAÐAR BIRGÐIR.
GUNNAR ASGEIRSSON HF.
AKUREYRI — REYKJAVÍK.
BYGGINGAVÖRUVERZL. KÚPAV0GS
EFUÐ STYRKASTA STJÓRNMÁLAAFUÐ
Sjálfstæðisfélögin í Reykjavík
INNTÖKUBEIÐNI
Ég undirritaður óska hér með að gerast meðlimur i:
I | Landsmálafélaginu Verði, sambandi félaga Sjálfstæðis-
manna í hverfum Reykjavíkur:
I | Félagi Sjálfstæðismanna í Nes- og Melahverfi
] Félagi Sjálfstæðismanna í Vestur-og Miðbæjarhverfi
□ Félagi Sjálfstæðismanna í Austurbæ- og Norðurmýri
□ Félagi Sjálfstæðismanna í Hlíða-og Holtahverfi
ö Félagi Sjálfstæðismanna í Laugarneshverfi
01 Félagi Sjálfstæðismanna í Langholti
□ Félagi Sjálfstæðismanna í Háaleitishverfi
□ Félagi Sjálfstæðismanna í Smáíbúða- Bústaða- og Foss-
vogshverfi
0] Félagi Sjálfstæðismanna í Árbæjarhverfi
□ Félagi Sjálfstæðismanna í Bakka- og Stekkjahverfi
d] ^élagi Sjálfstæðismanna í Fella- og Hólahverfi
ö Félagi Sjálfstæðismanna í Skóga- og Seljahverfi
□ Heimdalli, samtökum ungra Sjálfstæðismanna (16—35
ára)
l l Hvöt, félagi Sjálfstæðiskvenna
I l Málfundafélaginu Óðni
Reykjavík_____19____
Undirskrift
Fullt nafn:
Heimilisf.:
-slmi:.
Fæðingard. og ár:
Staða: _______
Nafnnúmer:
Vinnust./sími:
Sendist:
Skrifstofu Fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna I Reykjavlk Bolholti 7, slmar 82900 — 82963.