Morgunblaðið - 25.11.1976, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. NÓVEMBER 1976
41
félk f
fréttum
HANDRIÐA-
PLAST
+ Hér sjáum við þátttakendurna. 66 að tölu, sem tðku þátt I fegurðarsamkeppninni „Miss world“ f
London 18.nðv. s.l. Ungfrú Island er áttunda frá vinstri f miðröðinni.
+ Hvað skyldi Henry drottn-
ingamaður vera að smfða. Jú
hann er að eyðileggja mótið af
hinni frægu jólaskeið 1976 frá
Georg Jensen, svo að öruggt sé
að ekki verði búin til fleiri
eintök af þessari eftirsóttu
jólaskeið.
+ Bretarnir leita sffelft að
konuefni handa Charles rfkis-
erfingja. Sú sem nú er taiað
um sem væntanlegt konuefni
ríkisarfans er hin 22ja ára
Marie-Astrid prinsessa, dóttir
stórhertogans af Luxemburg.
Orðrómurinn fékk byr undir
báða vængi er Elfsabet drottn-
ing og Philip prihs heimsóttu
stórhertogann nýlega. Það er
þó einn galli á gjöf Njarðar,
Marie-Astrid er kaþólsk og
verður þvf að skipta um trú, ef
hún á að geta gifst krónprins-
inum — eða þá að breska þing-
ið breyti 276 ára gömlum
iögum um að sá rfkiserfingi
breskur sem kvænist konu
kaþólskrar trúar, missi réttinn
til rfkiserfða.
+ Danski konunglegi sólodans-
arinn Fredbjörn Bjornsson
hefur dansað ballett f mörgum
kirkjum f Danmörku, án þess
að nokkrar athugasemdir væru
gerðar við það. Hér sést hann
ásamt tveim ballerfnum við
konunglega danska ballettinn
þeim Lis Jeppersen t.v. og
Annemarie Dybdal.
+ Þið munið auðvitað eftir hinni 14 ára rúmensku fimleikastjörn-
unni, Nadia Comaneci, sem vann þrenn gullverðlaun, ein silfur- og
ein bronsverðlaun á Ólympfuleikunum f Montreal. Hún hélt nýlega
blaðamannafund f Bukarest. Að sögn danskra blaðamanna var hún
eíns og vélmenni. Sat eins og hlekkjuð við hliðina á þjálfara sfnum,
Bela Karoly, sem gætti þess að hún segði aðeins það sem henni var
ætlað að segja. Er hún var spurð hvað hún hefði hugsað um á
leiðinni heim eftir sigrana f Montreal. „Ég hugsaði um foreldra
mfna, landið mitt, félagið mitt, vini mfna og þjálfara og alla þá sem
gerðu mér það mögulegt að taka þátt I Ölympfuleikunum," svaraði
Nadia án nokkyrra svipbrigða.
Á myndinni sjáum við hina ungu fþróttakonu (f miðið) ásamt
þjálfara sfnum og vinkonu.
Litir: svartur, grár, gylltur.
-- 40 x 8 mm —
G. S. JÚLÍUSSON,
Sundaborg 21 simi 85755
Nýkomið
Sængurfataefni
Dagatöl
Handktæói
Eldhúsgardínur
Pífustórísar