Morgunblaðið - 03.12.1976, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 03.12.1976, Blaðsíða 1
281. tbl. 63. árg. FÖSTUDAGUR 3. DESEMBER 1976 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Utanrlkisráðherra Kína sviptur starfí Peking, 3. desember (föstudag). Reuter. UTANRlKISRAÐHERRA Kfna, Chiao Kua-hua, hefur verið rek- inn og sendiherra Kfna hjá Sameinuðu þjððunum, Huang Hua, hefur verið skipaður utan- rfkisráðherra f hans stað. Fréttastofan Nýja Kfna sagði að fastanefnd afþýðuþingsins hefði Metlán Kaupmannahöfn, 2. desm- ember. NTB. KNUT Heinesen, fjármálaráð- herra Dana, undirritaði í dag samning um stærsta lán sem danska rfkið hefur tekið — 400 milljón dollara frá um 40 af helztu böndkum heims — til að treysta gjaldeyrisvarasjóð landsmanna. embættismenn sem hafa verið spurðir um hann hafa sagt að hann sé veikur. Kunnugir segja að brottvikning Chiaos sýni vafalftið að ásakanir gegn honum séu alvarlegar. Chiao Kua-hua (t.v.)og Huang Hua „einróma samþykkt" að skipa Iluang og reka Chiao. Chiao er 68 ára gamall og hefur verið gagnrýndur að tjaldabaki fyrir meint samstarf við ekkju Maos og fjóra stuðningsmenn hennar. Hann hefur ekki verið ásakaður opinberlega en talið er að hann verði meðal annars sakaður um hentistefnu. Chiao hefur ekki sézt opin- berlega sfðan hann tók á móti nýskipuðum sendiherra Mongolíu 11. nóvember. Kínverskir Brezk nefnd til Brussel London, 2. desember. AP. Reuter NEFND hrezkra fiskifræðinga fór til Briissel sfðar f vikunni til viðræðna um útfærslu fiskveiði- lögsögu bandalagsrfkjanna f 200 mflur. Tilfögur þeirra og staðan f viðræðum bandalagsins og lslendinga verða sfðan ræddar á ráðherrafundi bandalagsins 14. desember. Brezkir togaramenn efast þó um að bandalaginu takist að fá Islendinga til að leyfa þeim að hefja aftur veiðar á íslandsmið- um eftir brottför þeirra þaðan í gær. Þeir segja að þeir hafi almenningsálitið á íslandi alltof mikið á móti sér. Tom Nielsen, einn af leiðtogum félags yfirmanna á togurum I Hull, sagði skömmu áður en togararnir sigldu út úr 200 mílna lögsögunni við Island: „Auðvitað erum við öskuvondir, en við Framhald á bls. 2 Gegn kvóta EBE Briissel, 2. desember. Reut- er. BRETAR, og Irar hafa lagzt gegn tillögum Efnahagsbanda- lagsins um kvótaskiptingu inn- an hinnar nýju 200 mflna fisk- veiðilögsögu bandalagsins á næsta ári. Stjórnarnefndin gekk end- anlega frá tillögunum f morg- un og þær voru bornar fram á fundi fastafulltrúanna seinna um daginn. Þar er ekki tekið tillit til kröfu Breta og Ira um allt að 50 mflna einkalögsögu og sex til 12 mflna landhelgi höfð til hliðsjónar. Framhald á bls. 22 Nokkrir aðrir ráðherrar eru taldir sæta gagnrýni, en hingað til hefur enginn verið opinberlega settur af. Huang Hua kom til New York fyrir nokkrum dögum. Hann er reyndur diplómat og því hefur verið spáð f nokkra daga að hann tæki við af Hua. Nýja Kína sagði að fastanefnd þingsins hefði lokið störfum í gær. Hún hefur fundað siðan á mánudag. Enn er ekki ljóst hvort tilkynnt verður um fleiri mannaskipti. Fiskverð helzt hátt næsta ár Washington, 2. desember. AP. BANDARlSKA viðskiptaráðu- neytið sagði f dag að Ifklegt væri að hátt fiskverð mundi haldast talsvert langt fram á næsta ár og það væru góðar fréttir fyrir Islendinga. Ráðuneytið sagði að það væru ekki sfður góðar fréttir fyrir tslendinga að þróunin hefði stefnt til minnkandi inn- flutnings. Ráðuneytið segir f skýrslu sem birtist f „Commerce America" að ef nýjum kaup- Framhald á bls. 22 Jörgensen Engar kosningar 1 Danmörku að sinni Frá Lars Olsen f Kaupmannahöfn f gær. SAMKOMULAG tókst á sfðustu stundu milli sósfaldemókrata og miðflokkanna f Danmörku svo að ekki þarf að koma til jólakosn- inga. Hins vegar er þvf spáð að efnt verði til kosninga með vorinu. Samkomulagið leiðir til þess að stöðvaðar verða verðhækkanir, hækkanir á húsaleigu og launa- hækkanir vegna ólöglegra verk- falla. t samkomulaginu er gert ráð fyrir: # Verðstöðvun með vissum undantekningum vegna verð- Nýr forseti hefur verið kjörinn í Mexikó, Jose Lopez Portillo, sem tekur við af Luis Echeverria. Hér sést hann ásamt konu sinni, syni og dætrum. hækkana á hráefnum og hálfunn- inni vöru erlendis frá. Hún á að gilda í desember, janúar og febrúar unz nýir samningar verða perðir á vinnumarkaðnum. # Húsaleigustöðvun í þrjá mánuði. # Launahækkanir sem hafa fengizt fram með ólöglegum verk- föllum eru ólöglegar og geta ekki tekið gildi. Allir stjórnmálaflokkar gerðu ráð fyrir nýjum kosningum fyrir einni viku vegna þess erfiða ástands sem hafði skapazt í dönsk- um stjórnmálum I kjölfar margra ólöglegra verkfalla sem stjórnin var mjög treg til að skipta sér af. Minnstu munaði að verkföllin lömuðu allt athafnalíf i Dan- mörku, en þrátt fyrir mikinn þrýsting frá fulltrúum hægri- manna á þingi ákvað Anker Jörgensen forsætisráðherra að Framhald á bls. 2 Utanríkisráðherra Póllands settur af Varsjá, 2. desember. NTB Reuter Utanríkisráðherra Póllands, Stefan Olszowski, sagði af sér I dag og tók við nýju mikilvægi embætti I framkvæmdastjóri. flokksins að sögn talsmanns oólsku stjórnarinnar. Emil ' /ojtaszek umhverf isráðherra tekur við starfi utanrfkisráð- herra. Olszowski hefur verið utanrlkis- ráðherra I fimm ár og heldur sæti slnu I stjórnmálaráði flokksins. Mannaskiptin voru ákveðin á fundi sem var kallaður saman I miðstjórninni i gær til að ræða sfnahagsástandið og gera breyt- ingar á fimm ára áætluninni. Fjárfestingar I þungaiðnaði verða minnkaðar að sögn tals- mannsins, en landbúnaðarfram- leiðsla aukin, byggingar verða auknar og aðrar ráðstafanir verða gerðar neytendum til góða að sögn talsmannsins. Sérstök flokksnefnd vinnur að áætlun um nýtt verðlagskerfi, sem á að taka gildi 1978, en stjórnartalsmaðurinn lagði áherzlu á að verðhækkanir á mikilvægri neyzluvöru yrðu hóf- legar. Áform um stórhækkað mat- vælaverð leiddi til verkfallanna og uppþotanna I Póllandi I sumar og stjórnin varð að draga áformin til baka og lofa áframhaldandi verðstöðvun I minnst eitt ár. I starfi sínu I framkæmvda- nefndinni mun Olszowski llklega fara með hugsjónafræðilega þætti samskipta pólska kommúnista- flokksins við aðra kommúnista- flokka og vestræn ríki. Tilræði spillir friði 1 Líbanon Beirút, 2. desember. AP. Reuter. LlBANSKIR leiðtogar túlkuðu I dag misheppnaða tilraun sem var gerð til að myrða utan- rfkisráðherra Sýrlands, Abdul Halim Khaddam, sem lið ( baráttu fyrir þvl að grafa undan vopnahléi Sýrlendinga ( Líbanon. Leiðtogar kristinna hægrimanna flýttu sér að senda nefnd til Damaskus til að fordæma tilræðið. Víðtæk leit er hafin að mönnunum sem gerðu skotárás á bifreið Khaddams skammt frá Damaskus I gær- kvöldi. Khaddam særðist á hendi í árásinni. Hann hefur verið varaforsætis- og utan- rlkisráðherra I sex ár, er einn nánasti samstarfsmaður Hafez Assads forseta og hefur átt mikinn þátt I tilraununum til að leysa deilumálin I Líbanon. Sumir Palestlnumenn segja Framhald á bls. 22

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.