Morgunblaðið - 03.12.1976, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. DESEMBER 1976
37
i fe f l h I
11 'fi f. í! 5 f.
f
= VELVAKANDI
; SVARAR í SÍMA
Í0100 KL. 10 — 11
FRÁ MANUDEGI
0 Ekki tími fyrir
börnin og hvað
þá kettina
„Ég vona nú að samborgar-
arnir fari að opna augu sín fyrir
því að vera nú ekki að fjölga
heimilisiausum köttum hér í
borginni.
Kettirnir þurfa mikla umönnun
ef þeir eiga að vera til yndisauka
sem þeir geta svo sannarlega
verið ef vel er um þá hirt. En
þegar enginn tími finnst einu
sinni til að annast blessuð börnin,
er ekki að undra þó kisu sé hent
út þegar þurfa þykir — væri nú
ekki mannúðlegra að fara með
dýrið sitt og láta aflífa það á sár-
saukalausan og mannúðlegan
máta hjá dýralækni.
Nú langar okkur í Kattavina-
félaginu til þess að koma upp,
svona með tið og tíma, aðstöðu til
að geyma heimiiisdýr okkar á
meðan tekið er sumarfrí eða mað-
ur þarf að fara frá heimilinu af
einhverjum ástæðum um ein-
hvern tíma Þá væri öruggri að-
hlynningu — og taka það svo aft-
ur heim.
Þetta er þjónusta sem er hrein
nauðsyn og þykir víðast hvar al-
veg sjálfsögð.
Nú höfum við ' raunar fengið
okkar dýraspítala en ekki er nú
sopið kálið þó að í ausuna sé kom-
ið, því að ekki virðist það nú
standa til í nánustu framtíð að við
borgarar getum notið neinnar að-
stöðu þar fyrir dýrin okkar.En
það er nú annar þáttur þessara
mála.
Okkur í kattavinafélaginu lang-
ar nú aðeins til að athuga hvort
ekki sé hægt að gera eitthvað
smátt, svona til að byrja með,
fyrir þessa vihi okkar — og hefur
dottið í hug að riða á vaðið með
þessari aðstoð.
Við förum því fram á dálítinn
fjárstyrk frá ykkur öllum sem
hryggjast af að sjá umkomuleysi
þessara vesalings dýra, bæði ein-
staklingum og starfshópum, at-
hugið hvort þið hafið ekki dálitla
upphæð afgangs til að senda þess-
um félögum okkar, — ekki mundi
það góðverk skemma jólagleði
okkar. Munið að margt smátt ger-
ir eitt stórt.
Upplýsingar í síma 14594.
Félagskona."
Þessir hringdu . . .
0 Fyrir hverja
eru lögin?
Móðir hringdi:
— Það er kannski að bera i
bakkafullan lækinn að vera að
ræða um óskalög sjúklinga, en ég
ætla samt að leggja orð í belg.
Dóttir mín hefur verið á sjúkra-
húsi og hefur hún sent til fjöl-
skyldunnar óskalag í þættinum.
En það er eins og hjá flestöllum
að meðan lagið var leikið var hún
sjálf i rannsókn, litla dóttir henn-
ar í leikskólanum, eldri dóttirin í
skólanum, ásamt öðrum skólasyst-
kynum, pabbinn í vinnu og 'eg var
í innkaupum fyrir heimilið. Sem
betur fer var þó einhver heima
við, litli bróðirinn hjalaði í vöggu
og amma, sem heyrði ekki nógu
vel.
Frábær þjónusta ríkisútvarps-
ins má ekki verða til þess að fjöldi
manna verður verulega óánægður
með að óskalög sjúklinga skuli
haf verið færð yfir á föstudaga, ég
er viss um að ég mæli fyrir munn
margra þegar ég bið um að þessu
verði breytt.
VIKIVAKI
Laugavegi 2
auglýsir
if Urval af gjafavörum
if Snyrtivörur fyrir karlmenn
if Úrval af ódýrum reykjaplp-
um
if Pipustatif — tóbakskrúsir
— piputroSarar
Opið til kl. 22.00 á föstudögum
til kl. 18.00 á laugardag.
Verzlunin Vikivaki,
LAUGAVEGI 2, SÍMI 13341.
★
★
★
★
★
★
Seðlaveski fra Atson
„Ronson" gaskveikjarar
Borðkveikjarar
Mackinstosh's 4 stærðir
Urval af vindlakössum
Úrval af konfektkössum
Nýkomið
Amerískar kuldaúlpur
stuttar og síðar, allar stærðir.
QEísiP
H
SKÁK
/ UMSJÁ MAR-
GE/RS PETURSSONAR
Staðan hér að neðan kom upp f
viðureign Spánverja og Ástralíu-
manna á Ólympíumótinu í Haifa.
Bellon, Spáni, hafði hvítt gegn
Fuller, Astraliu. Fuller, sem hafði
svart og átti leik í stöðunni, tókst
að finna afgerandi leik. Hver var
hann?
B H # m
■ J Xj ■ 1 t A
ii jj H B
tá B Si B jj
JJ ■ Jr Q
H 11
■ f-.'. : §[
34 ... Rxg3+!! Hvítur gafst upp
þvf eftir 35. hxg3 — Hh4+! 36.
gxh4 — Dh2+ er hann mát. I
viðureign íslendinga og Astralfu-
manna tefldi Fuller við Helga
Ólafsson og lauk skák þeirra með
jafntefli.
AUGLÝSINGASÍMINN ER:
22480
|H«r0un(>(aMb
HOGNI HREKKVISI
Enga ketti!
Næstl?
03= SIGGA V/GGA t iiLVltAH
llmvötn og
snyrtivörur frá
þekktustu
merkjum
heims.
Fegrunar
sérfræðingar
aðstoða við
vöruval.
Opið til kl. 10
í kvöld
^HoltsapÓtck snyrtivörudeild
^Langholtsvegi 84 Simi35213