Morgunblaðið - 03.12.1976, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 03.12.1976, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. DESEMBER 1976 39 RÆTT VIÐ ELLERT SCHRAM vel sótt og bæði áhugi og ánægja ríkjandi. Ég er sannfærður um að þetta starf á eftir að skila rfkuleg- um árangri, fyrr en sfðar. Þá var Eflert spurður álits á þeim ummælum dr. Yuri, að væn- legra hefði verið til árangurs fyrir landsliðið að leika ákveðnari sóknarleik f leikjum sínum við Holland og Belgfu. — Það kemur mer raunar ekki á óvart að um þetta skuli vera deilt, sagði Ellert, og það má örugglega færa fyrir þvf rök að við hefðum átt að leika öðru vfsi en við gerðum. En framhjá hinu er ekki hægt að lita, að við höfum notað sömu leikaðferðina f lands- leikjum okkar tvö undanfarin ár, og hún hefur skilað góðum árangri. Það er tiltölulega stutt sfðan að fslenzka landsliðið lék mjög skipulagslaust. Ef um eit- thvert skipulag var að ræða, þá var það f þá átt að leika sóknar- knattspyrnu og reyna að skora mörk hjá andstæðingum. Við þekkjum þá sögu, að oft fór svo að við skoruðum ekki, en fengum mörg mörk á okkur. Landsliðið missti trú á sjálft sig og knatt- spyrnan varð ekki hátt skrifuð. Á þessu hefur orðið mjög mikil breyting — ef til vill mest vegna þess að leikaðferðin er skynsam- lega útfærð. Hitt tel ég þó algjört aðalatriði i máli þessu að eftir að stjórn Knattspyrnusambandsins tekjuafgangur. Ellert var að þvf spurður hvort hann teldi hið opin- bera veita fþróttahreyfingunni nægjanlegan stuðning. — Það er af og frá að svo sé, sagði Ellert. Aðstoð hins opinbera vað fþróttahreyfinguna er smán- arleg. Má til dæmis um það nefna að KSÍ sem velti 30 milljónum króna á árinu fékk aðeins styrk að upphæð 900 þúsund krónur, auk nokkurs styrks sem sambandið fékk vegna fræðslustarfsins. Þetta er ekki nema dropi f hafið. Það hefur verið styrkur okkar hversu vel menn hafa unnið og skipt á sig verkefnum. Afkoma KSI byggist að mestu leyti á að- sókn að landsleikjunum, og er þar nánast um happdrætti að ræða hverju sinni, og fer m.a. eftir veðri og vindum hvort við fáum vinninginn eða ekki. Frammi- staða landsliðsins hefur hins veg- ar orðið til þess að áhugi áhorf- enda hefur aukist gífurlega mikið og aðsókn að leikjum við Hollend- inga og Belgíumanna var mjög góð. Hins vegar var t.d. mjög lftil aðsókn að leiknum við Luxem- burgara, sennilega vegna þess að fólk taldi þá ekki verðuga and- stæðinga. Sýnir það eitt út af fyr- ir sig hversu áhangendur knatt- spyrnufþróttarinnar eru orðnir kröfuharðir til landsliðsins okkar. — Hvað er til ráða hjá fþrótta- hreyfingunni til þess að auka Nokkrir sljórnarmanna KSI bera saman bækur sfnar. Frá vinstri: Hilmar Svavarsson, Jens Sumarliðason, Árni Þorgrfmsson, Gylfi Þórðarson og Helgi Daníelsson. tók ákvörðun um að ráða lands- liðsþjálfara, þá varð hún að treysta honum og láta starf hans afskiptalaust. Hann varð að hafa vald til þess að taka ákvarðanir og standa og falla sfðan með þeim. Bæði ég og aðrir höfðum svo okk- ar skoðanir á þvf hvaða menn hefði átt að velja í liðið og hvernig það hefði átt að leika. — Verður Tony Knapp endur- ráðinn sem landsliðsþjálfari? — Það er svo með íþróttaþjálf- ara að það kemur að þvf að nauð- synlegt er að skipta um. Þjálfar- inn er þá búinn að brenna sig út gagnvart liðinu og liðsmennirnir búnir að nýta það bezta sem frá þjálfaranum getur komið. Þvf verðum við nú að velta því fyrir okkur hvort þessi tfmi sé kominn hjá íslenzka landsliðinu. Eg trúi þvf, að enn geti Tony Knapp gefið okkur mikið og full ástæða sé til þess að kanna hvort hann sé til- búinn að koma hingað aftur næsta sumar. Með þvf myndi hann ljúka því verki sem nú stendur raunverulega yfir enn þá — undankeppni heimsmeistara- keppninnar. En inn í þetta bland- ast auðvitað margt, eins og t.d. hvort hann gerir það háar kaup- kröfur að við ráðum ekki við það. En hvort sem það verður Tony Knapp eða einhver annar, þá er það skoðun mín að nauðsyn beri til þess að ráða landsliðsþjálfara f fullt starf. Knattspyrnusamband lslands er nær eina sérsamband ISt sem ekki berst f bökkum fjárhagslega. Velta sambandsins á árinu var um 30 milljónir króna og nokkur skilning valdhafa á fjárþörf sinni? — Nú f seinni tfð hefur það tíðkast að halda uppi þrýstingi og hóta mótmælum eða verkföllum og þannig hafa margir náð sfnu fram. Iþróttahreyfingin hefur ekki gripið til slfkra aðgerða og er ég þeim ekki hlynntur. Ef til vill er það vegna þessarar hógværðar að íþróttahreyfingin hefur ekki fengið meiri aðstoð. Mfn skoðun er sú, að fþróttahreyfingin eigi eftirleiðis sem hingað til að axla sem mest af sfnum byrðum sjálf, en hið opinbera verði hins vegar að veita þann stuðning sem unnt sé að halda uppi lágmarksstarfi. Það eru óspart gerðar kröfur til fþróttamanna okkar, þegar þeir eru að keppa við útlendinga og víst er að ekki skortir skammirn- ar ef illa gengur. Þá er aldrei tekið tillit til aðstæðna. Meðan það er krafa þjóðarinnar að fþróttamenn okkar keppi við er- lenda fþróttamenn og standi sig geta íþróttamennirnir og þeir sem vinna að málefnum iþróttanna gert þá kröfu á móti að þeir fái stuðning. Það situr ef til vill ekki á Knattspyrnusambandi tslands að kvarta, en ég verð að segja það eins og er að það liggur við að maður verði feiminn þegar maður sér hvernig aðstaðan er hjá hlið- stæðum samböndum á Norður- löndum, að maður tali nú ekki um önnur Evrópulönd. Þar er fjöl- mennt starfslið sem vinnur að þeim verkefnum sem við reynum að leysa með sjálfboðaliðsstörf- um, og auk þess er svo þjálfari á hverjum fingri. U ^RlS/iy 0 OÖA/ii i D yRTUfr ooMoeRRA BSSfSss- “ Rf>A pEVSOft lO’SSSssr fVSssSsas

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.