Morgunblaðið - 03.12.1976, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 03.12.1976, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. DESEMBER 1976 29 Örn og Örlygur Hárgreiðslustofan Bylgja i nýjum húsakynnum hargreiðslustofan Bylgjan sem var til húsa að Álfhólsvegi 39 i Kópavogi hefur nú flutt starfsemi sfna f nýtt húsnæði að Hamraborg 1 f sama bæ. Hefur stofan einnig opnað snyrtivöruverzlun f þess- um nýju húsakynnum. Eigendur hárgreiðslustofunnar og snyrtivöruverziunarinnar eru þau Jón Gestur Benedikts- son og Heiða Armannsdóttir, og eru þau fremst á meðfylgjandi mynd. Með þeim á þessari mynd er Sigurbjörg Zophanfas- dóttir, sem starfar hjá fyrir- tækinu, en á myndina vantar aðra starfsstúlkuna, Kristrúnu Þórisdóttur. Prestkosningar: Gudfrædinem- ar vilja breytt fyrirkomulag ALMENNUR félagsfundur í Félagi guðfræðinema 29. nóv. 1976 lýsir yfir fullum stuðningi við tillögu 10. kirkjuþings um breytingu á fyrirkomulagi prests- kosninga. Fundurinn lýsir furðu sinni á því, að hið háa Alþingi skuli í þessu máli hvað eftir annað hafa hunzað réttkjörið kirkju- þing hinnar islenzku þjóð- kirkju. Bent skal á, að kirkjuþing sitja leikir og lærðir fulltruar allra þjóðkirkju-safnaða landsins. Þeir hafa umboð sama eðlis og þing- menn hins háa Alþingis. Ný ævintýra- skáldsaga eft- ir Joe Poyer MEÐ BÁLI og brandi nefnist ný skáldsaga, sem út er komin hjá Erni og örlygi. Höfundur er Joe Poyer, en hann nýtur sívaxandi vinsælda vlða um heim fyrir spennandi ævintýraskáldsögur. I sögu þessari segir frá manni nokkrum, sem gengur í lið með Interpool og tekst að hafa upp á helztu tekjulind nýnasistanna i Mið-Evrópu. í bókinni er víða komið við allt frá Mið-Evrópu til kfnversku landamæranna. Barizt er á láði og legi og mönnum veitt eftirför heimsálfanna á milli. Bókin er 222 bls. að stærð. Hún er sett I Prentstofu G. Benedikts- sonar, prentuð I Prentsmiðjunni Viðey h.f. og bundin í Arnarfelli. Káputeikningu gerði Hilmar Þ. Helgason. Ný bók: Faðir minn, skipstjórinn SKUGGSJÁ hefur sent frá sér bókina Faðir minn — skipstjórinn og hefur Ing- ólfur Árnason búið bókina til prentunar. I bókinni segja fjórtán karlar og konur frá feðrum sínum: Kristján Schram skrifar um Ellert K. Schram, Ingólfur Arna- son um Árna Gislason, Guðný Ólaffa Halldórsdóttir um Halldór Kr. Þorsteinsson, Rósa Guðmundsdóttir um Guðmund Guðnason, Páll Pálsson um Pál Pálsson, Frfða G. Ólafs um Gfsla Þorsteinsson, Gísli J. Eyland um Gfsla Jónsson Eyland, Jakob Jakobsson um Jakob Jakobsson, Þorsteinn Jóhannesson um Jóhannes Jónsson, Jón M. Guðmundsson um Guðmund Jóns- son, Viggó E. Maack, um Pétur Andreas Maack, Jónas Þorsteins- son um Þorstein Stefánsson, Hulda Sigurjónsdóttir um Sigur- jón Einarsson og Þorsteinn Gfsla- son um Gfsla Árna Eggertsson. Bókin er sett og prentuð hjá Skuggsjá, en bundin hjá Bók- bindaranum hf. Hún er 280 bls. að lengd og auk þess eru myndir af höfundum og feðrum þeirra í bókarlok. Hópferðir á vægu verði til íslendinga- byggða í Kanada FERÐASKRIFSTOFA Vestur- tslendinga f Kanada og umboðs- aðili hennar hér heima hafa ákveðið að gangast fyrir tveimur ferðum milli Winnipeg og Reykjavíkur á sumri komanda, ef næg þátttaka fæst báðum megin Atlantshafsins. Ferðaskrifstofan i Kanada nefnist Viking Travel, en umboðs- aðilinn hér er nýstofnað félag, sem hlotið hefur nafnið Is-Can, Áætlað er að hér verði um tvær þriggja vikna ferðir að ræða, sú fyrri farin til Kanada 15. júnf, en sú sfðari 14. júlí. Miðað við þau tilboð, sem borizt hafa, er ráðgert að fargjald fram og til baka verði um 57 þúsund krónur. Það voru þeir Stefan J. Stefáns- son og Ted Árnason og eiginkon- ur þeirra, sem stóðu að stofnun Viking Travel, og fyrsta ferðin, sem félagið stóð að, var hópferð til Islands s.l sumar með rúmlega 200 Vestur-Islendinga. Áhugi á gagnkvæmum kynnum Islendinga og Vestur-íslendinga hefur farið mjög vaxandi, eins og sjá má af því að í fyrra fóru um 1.600 manns héðan til Vestur- heims f tilefni af 100 ára búsetu íslenzkra innflytjenda þar. Róm- uðu allir mjög móttökurnar vestra, og margir bentu á að það væri algjör misskilningur að ætla að íslenzk gestrisni væri stað- bundin við gamla Frón. Þjóðræknisfélögin hér og f Winnipeg greiða götu þeirra far- þega í ferðunum tveimur, sem þess óska, til dæmis með gesta- móttökum og aðstoð við að koma ferðalöngunum fyrir á íslenzkum heimilum. Til að auðvelda dreif- ingu upplýsinga um Kanadaferð- irnar hefur félagið Is-Can samið við Sammvinnuferðir, Austur- stræti 12 f Reykjavík og umboðs- menn þeirra um land allt um að sjá um alla afgreiðslu í sambandi við ferðarnar. Rosenthal-verslun við Laugaveginn i 3 iOóe/t/S^ Vió bjóöum yður velkomin í Rosenthal verzlunina, Laugavegi 85. Við sýnum og seljum hinar heimsfrægu postulínsvörur frá Rosenthal, — gullfallegar vörur og gulltryggðar. Verðgildi Rosenthal, sem ■ felst m.a. í því að Rosenthal postulín er aóeins til í fyrsta gæðaflokki, lækkar ekki meó árunum. Þess vegna eru margir, sem fjárfesta í Rosenthal. Enda eru vörurnar listaverk, sem halda alltaf fullu verðgildi. Safnarar um allan heim, safna hinum víófrægu jólaplöttum frá Rosenthal, en færri fá en vilja. Safnaraverð jólaplatta frá árinu 1971 er í dag áætlað kr. 200.000.— væri hægt að fá hann keyptan. Komið og skoðið Rosenthal. Það kostar ekkert að kynna sér möguleikana á Rosenthal safni. Rosenthal — gullfallegar vörur — gulltryggðar. ' r' / ' > , IxeÉs Á. EINARSSON & FUNK

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.