Morgunblaðið - 03.12.1976, Síða 15

Morgunblaðið - 03.12.1976, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. DESEMBER 1976 Efnt til samkeppni um kirkjubygg- ingu í Breiðholti I ÁKVEÐIÐ hefur verið að efna til samkeppni um teikningu á kirkjubyggingu f Breiðholti með- al arkitekta. Það er sóknarnefnd Breiðholtssóknar, sem hefur starfað f mörg ár og kirkjubygg- ingarnefnd sömu sóknar, sem standa fyrir samkeppninni. Dómnefnd skipa Sigurður E. Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri, Björn Björnsson, prófessor, Kristinn Sveinsson, byggingarmeistari, Helgi Hafliða- son, arkitekt, Hilmar Ólafsson, arkitekt og er Ólafur Jónsson, framkvæmdastjóri, trúnaðarmað- ur nefndarinnar. Boðuðu áðurnefndir til blaðamanna- fundar í gær; Kirkjunni hefur verið valinn staður f svonefndri Mjódd, (við gatnamót Reykjanesbrautar og Breiðholtsbrautar) þar sem er áætluð þjónustumiðstöð fyrir byggðinga I Breiðholti. Eins og kunnugt er skiptist Breiðholt allt í þrjú hverfi, Breiðholt eitt, tvö og þrjú. Breiðholt eitt, er þegar full- byggt með sex þúsund fbúa. TR vill ekki semja við erlendar þjóðir Á félagsfundi Trésmíðafélags Reykjavíkur var samþykkt eftir- farandi tillaga: „Félagsfundur Trésmíðafélags Reykjavíkur, haldinn að Hallveigarstíg 1 23/4 1976, skorar á rfkisstjórn og Alþingi að semja ekki frekar við erlendar þjóðir um veiðar í íslenskri fiskveiðilög- sögu.“ AUGLÝSINGASÍMtNN ER: áíp22480 I JR*r0unbI«tiit» I Breiðholti eru stafandi tveir prestar og er sr. Lárus Halldórs- son, prestur f Breiðholti eitt. Upp- haflega var ætlunin að byggja eina kirkju fyrir öll hverfin, en horfið frá þvf, þar eð fbúafjöldi í Breiðholti er nú þegar milli sextán og sautján þúsund. En alls er gert ráð fyrir tuttugu og fimm þúsund f framtíðinni. Aherzla er verður lögð á að kirkjubygging sú, sem samkeppn- in stendur um verði með yfir- lætislausu sniði, einföld í fram- kvæmd og ekki kostnaðarmeiri en hóflegt megi teljast. Fjáröflunar- nefnd Breiðholtssóknar hóf störf í haust. Er nefndin m.a. með happadrætti á Volvo bifreið og verður gengið í hús f vikunni og seldir miðar. Arkitektafélag Islands, sem í eru eitt hundrað meðlimir hefur fengið bæklinga til útbreiðslu, þar sem sett eru viss skilyrði um kirkjubygginguna, annars kvað dómnefndin að arkitektar fengju nokkuð lausar hendur. Tekið er fram að kirkjusalurinn eigi að rúma þrjú hundruð manns í sæti. Auk allra venjulegra kirkjuat- hafna, skal höfð f huga notkun kirkjunnar til hjómleika og helgi- leika. I kirkjunni á einnig að vera fundarsalur fyrir ýmsa félagslega starfsemi safnaðarins, undirbún- ing barna og fleira. Verðlaunafé er samtals kr. 1.4 milljónir. Verða veitt þrenn verð- laun og verða 1. verðlaun ekki lægri en 600 þúsund krónur, — Þar að auki er dómnefnd heimilt að kaupa tillögur fyrir allt að 200 þúsund krónur. Frestur til að skila tillögunum er til 31. mars, 1977 og ber að skila þeim til trúnaðarmanns dómnefndar Ólafs Jenssonar, Kjartansgötu 2, Reykjavík,. Hann hefur einnig með höndum afhendingu keppnisgagna og veitir allar nán- ari upplýsingar. Allar vörur á Hagkaupsverði Sykur 95.—kg í fjögurra kgpokum Opið til 10 í kvö/d og 6 á morgun L SKEIFUNNI15IISÍMI 86566 15 Þroskaþjálfonemar halda kökubazar NEMENDUR Þroskaþjálfaskóla tslands halda kökubasar f húsa- kynnum dagheimiliins að Lyngási, Safamýrí 5 á morgun, laugardag. Kökubasarinn er haldinn til efl- ingar ferðasjóði nemendafélags- ins, en afráðið er að nemar fari f náms- og kynningarför til Dan- merkur áður en þeir ljúka fullnaðarprófi, sem tekur þrjú ár. Telja þeir mikilvægt að islenzkir þroskaþjálfar eigi þess kost að + 1 sfðustu viku var opnuð ný verzlun að Hverfisgötu 74, Uppsetningaverzlunin. Þar er á boðstólum allt sem þarf til uppsetningar og frágangs á handavinnu. Þá er selt þar allt til skermasaums og mikið úrval er af púðaflaueli. Einnig er seld gjafavara, svo sem antik-dúkar. Verzlunin er opin daglega frá 10—18 og laugardaga frá kl. 10—12. kynnast stefnumótun og stafsemi vegna vangefinna þar sem mál- efni þeirFa eru komin f betra horf en hér á landi. Kökubasarinn hefst kl. 14.00 á morgun. Myndin sýnir vinnu nemenda. Könnun á dag- vistarmálum í Hafnarfirði Jafnréttisnefnd Hafnar- fjarðar hefur i samvinnu við jafnréttisnefndir í Kópavogi, Garðabæ og Nes- kaupstað ráðist í að fram- kvæma félagslega könnun á viðhorfum fólks til ýmissa jafnréttismála. Sendir voru út um 1000 könnunarlistar og skiluðu 710 svörum. Nú er verið að vinna úr könnuninni en henni hafa stjórn- að félagsfræðingarnir Þorbjörn Broddason og Kristinn Karlsson. Nú er að fara af stað starfs- hópur á vegum jafnréttisnefndar- innar sem hyggst vinna að athug- un á dagvistarmálum í Hafnar- firði, athuga hver sé þörfin í þess- um efnum og hvað sé nauðsynlegt að gera til að mæta þeirri þörf. Guðrfður Óskarsdóttir og Margrét Halldórsdóttir veita starfshóp- num forstöðu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.