Morgunblaðið - 03.12.1976, Qupperneq 40
Demantur M
æðstur eðalsteina
(§ull Sc ^tlfttr
Laugavegi 35
FÖSTUDAGUR 3. DESEMBER 1976
t gærkvöldi var frumsýnd í Þjóðleikhúsinu ballettsýning undir
stjórn rússneska ballettmeistarans Natalie Konjus. önnur sýning
verður f kvöld. Þessa mynd tók Friðþjófur af þeim Auði Bjarna-
dóttur og Erni Guðmundssyni, úr Islenzka dansflokknum á æfingu
fyrr í vikunni. Ljósm. Fríðþjófur
Geirfinnsmálið:
Grunur um aðild
eða yfirhylmingu
— Gæzluvardhald framlengt um 60 daga
GÆZLUVARÐHALDS-
VIST nýjasta fangans í
Geirfinnsmálinu var f gær-
kvöldi framlengt um 60
daga. Birgir Þormar full-
trúi við sakadóm Reykja-
vfkur kvað upp úrskurð-
inn. Umræddur maður,
sem er hálffertugur Reyk-
vfkingur, hafði setið f
gæsluvarðhaldi f 20 daga
vegna rannsóknar Geir-
finnsmálsins, og rann
gæzluvarðhaldsúrskurður-
inn úr f nótt.
Birgir Þormar sagði í samtali
við Morgunblaðið í gærkvöldi, að
ýmislegt hefði komið fram við yf-
irheyrslur yfir manninum undan-
farna daga. Orðrétt sagði Birgir:
„Það leikur sterkur grunur á því
að maðurinn hafi gerst sekur um
refsiverða háttsemi f sambandi
við hvarf Geirfinns. Þessi grunur
byggist ekki eingöngu á fram-
burði þeirra ungmenna, sem setið
hafa inni í sambandi við þetta
mál.“
Birgir Þormar sagði, að margt
væri óljóst um hugsanlega aðild
umrædds manns að málinu, hvort
um væri að ræða beina aðild eða
yfirhylmingu. Myndin hefði
skýrst í yfirheyrslum að undan-
förnu og hefði þótt nauðsynlegt
að framlengja gæzluvarðhaldið í
þágu rannsóknar málsins. Væri á
þessu stigi ekkert hægt að segja
frekar, en fram kemur hér í frétt-
inni.
Fanginn gerði enga athuga-
semd við gæzluvarðhaldsúrskurð-
inn í gærkvöldi og kærði hann
ekki en eins og komið hefur fram
f fréttum kærði hann fyrri gæzlu-
varðhaldsúrskurðinn.
Bráðabirgðatölur Fiskifélags íslands:
Bretar náðu 52 til 53
þús. tonnum af þorski
Allt bendir til að
árskvóta sinn á 9
FISKIFELAG íslands áætlar að
afli Breta 11 mánuði þessa árs á
tslandsmiðum, eða þar til þeir
þurftu að hætta veiðum vegna
Oslóarsamningsins, sé um 70
þúsund lestir og er þá átt við afla
upp úr sjó. Þar af eru 53 til 54
þúsund lestir af þorski. Gæti þar
þó einhverju skakkað til eða frá,
þar sem hér er um áætlaðar
bráðabirgðatölur að ræða. Sam-
kvæmt eldri samningi máttu
Bretar veiða á Islandsmiðum 130
þúsund tonn á ári.
Már Elfsson fiskimálastjóri
sagði í viðtali við Morgunblaðið í
gær að þetta væri heldur meiri
Færeyingar fylli
mánuðum
afli en gengið hefði verið út frá í
byrjun, en það stafar fyrst og
fremst af þvf að aflabrögð urðu
miklu betri hjá öllum togurum á
íslandsmiðum f júlí og ágúst og
jafnvel einnig í september.
Þjóðverjar eru nú með annað ár
í samning, þar sem samningsár
þeirra er frá 28. nóvember til 28.
nóvember. Til eru tölur um afla
þeirra til októberloka. Er heildar-
afli þeirra þá orðinn 52.200 lestir
upp úr sjó og þar af 2.700 tonn af
þorski. Er þetta tímabilið frá 1.
desember í fyrra til októberloka
eins og áður er sagt.
Samkvæmt samningi mega
Vestur-Þjóðverjar veiða á ári 60
þúsund tonn, þar af 5 þúsund
tonn af þorski. Sagði Már Elísson,
að hann gerði ekki ráð fyrir því að
þeir næðu þorsk-kvótanum.
Samsetning aflans er mest karfi
og ufsi, og dálítið af grálúðu. Már
Framhald á bls. 22
ASÍ-þing:
Úrsögn úr
NATO —
brottför
varnarliðs
Fjárhagsáætlun Reykjavíkur fyrir 1977:
Óbreyttar reglur við
álagningu útsvars
Lagabreytingar nauðsynlegar vegna hækkunar fasteignamats
Fjárhagsáætlun Reykja-
víkurborgar fyrir árið 1977
var lögð fram á fundi
borgarstjórnar Reykja-
víkur í gær og fylgdi
borgarstjóri henni úr hlaði
með ftarlegri ræðu um
er borin út með
blaðinu f dag.
fjármál borgarinnar.
Helztu þættir f fjárhags-
áætlun borgarinnar fyrir
næsta ár eru þessir:
% Heildartekjur borgar-
sjóðs á næsta ári eru
áætlaðar 9,9 milljarðar
króna, sem er 17,9%
hækkun frá áætlaðri
útkomu þessa árs.
0 Rekstrarútgjöld borgar-
innar á næsta ári eru
áætluð 7,3 milljarðar og
hækka um 31,6%.
0 Áætlað er að verja til
gatna- og holræsamála
1,7 milljörðum króna,
sem er 28,2% hækkun
frá fjárhagsáætlun yfir-
standandi árs.
• Framlög til svonefndra
eignabreytinga, þ.e. til
framkvæmda og ýmissa
annarra þarfa, nema 2,6
milljörðum króna sem
er 15,6% hækkun frá
gildandi fjárhags-
áætlun.
• Ef nýbygging gatna og
holræsa (sem talin eru
með rekstrarútgjöld-
um) er tekin sérstak-
lega ásamt fram-
kvæmdalið eignabreyt-
inga kemur í Ijós að
áætlað er að verja til
verklegra framkvæmda
á næsta ári 3.2
milljörðum króna eða
um 32,2% af heildarút-
gjöldum borgarsjóðs.
A miðopnu Morgunblaðsins í
dag er birtur lokakafli ræðu
þeirrar, sem Birgir Isleifur
Gunnarsson borgarstjóri flutti er
fjárhagsáætlunin var lögð fram.
HELZTU TEKJUR
_______BORGARINNAR_________
Aðaltekjustofn borgarinnar eru
útsvörin og er gert ráð fyrir, að
Framhald á bls. 22
— vísað til nefndar
með 306 atkv. gegn 49
SNARPAR umræður urðu á
þingi Alþýðusambands tslands
f gærdag er fjallað var um
viðaukatillögur við stefnuskrá
ASÍ. Þessar tillögur voru aðal-
lega um brottför bandarfsks
hers frá lslandi, úrsögn
Islendinga úr NATO, þjóðnýt-
ingu og ákveðnar aðgerðir ASI
gegn stóriðju á tslandi.
Var þessum tillögum og
öðrum breytingartillögum vís-
að til milliþinganefndar og
sambandsstjórnar að lokinni
skriflegri atkvæðagreiðslu.
Féllu atkvæði þannig að 306
fulltrúar greiddu atkvæði með
því að vfsa tillögunum til milli-
þinganefndar, 49 voru á móti,
3 seðlar auðir og 1 ógildur.
Framhald á bls. 22