Morgunblaðið - 11.01.1977, Blaðsíða 21
20
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. JANUAR 1977
Valur sigraði erkHjandann Fram
ERKIFJENDURNIR í íslenzkum kvennahandleik undanfarin af, Fram og
Valur mættust f 1. deild Islandsmðtsins á laugardaginn. Að venju var um
jafna viðureign að ræða en Valsstúlkurnar voru sterkari á endasprettinum og
tryggðu sér tveggja marka sigur, 11:9, og þar með tvö dýrmæt stig. En víst er
að oftast áður hafa þessi tvö félög sýnt betri handknattleik en I þetta skipti.
Manni virðist fslenzkur kvennahandknattleikur vera f lægð um þessar mund-
ir, áhuginn fyrir honum er alla vega f lágmarki eins og sézt bezt á þvf, að
einungis 15 manns keyptu sig inn í Laugardalshöllina til að sjá viðureign
þessara tveggja beztu handknattleiksliða kvenna undanfarin ár.
Leikurinn var afspyrnulélegur í byrjun, taugaveiklun hrjáði bæði liðin og
hver vitleysan rak aðra. Meðal annars fóru tvö vítaköst forgörðum á fyrstu
mfnútunum, fyrst skaut Björg Guðmundsdóttir, Val, í þverslá úr víti og stuttu
sfðar varði Sigurbjörg Valsmarkvörður vítakast Oddnýjar Sigsteinsdóttur. Þar
var ekki fyrr en á 12. minútu að ísinn var brotinn. Þá skoraði Guðríður
Guðjónsdóttir fallegt mark og kom Fram yfir 1:0. Valsstúlkurnar svöruðu
fljótlega fyrir sig og komust síðar yfir 3:2. En Framstúlkurnar gerðu þrjú
síðustu mörk hálfleiksins og höfðu því yfir 5:3 í hálfleik.
Framstúlkurnar gerðu fyrsta mark seinni hálfleiks og var staðan þá orðin
6:3. Miðað við framvindu leiksins fram að þessu, átti maður ekki von á öðru en
Framstúlkurnar myndu hafa vinninginn. En svo fór ekki, Valsstúlkurnar tóku
sig heldur betur á og tókst smám saman að saxa á forskot Fram. Með hverju
marki sem þær skoruðu efldust þær bæði í vörn og sókn. Skoruðu þær þrjú
síðustu mörkin í leiknum á 10 síðustu mínútum hans, og á sama tíma börðust
þær grimmileg í vörninni og tókst að koma f veg fyrir að Framstúlkurnar
skoruðu. Endaði leikurinn 11:9, og íslandsmeistarar Fram máttu bíta í það
súra epli að tapa.
Valsstúlkurnar sýndu í þessum Ieik að það þarf ekki að gefa upp vonina þótt
illa líti út í um tíma. Umskiptin vilja vera skjót i íþróttum, eins og átti sér stað
í þessum leik. Þær léku illa til að byrja með en þegar þær fóru að eygja
sigurvon efldust þær mjög og börðust grimmt. Náðu þær sfnum bezta leikkafla
í lokin og má segja að þær hafi barizt vel fyrir þessum sigri.
Hjá Val voru þær beztar Ragnheiður Lárusdóttir, Harpa Guðmundsdóttir og
Sigurbjörg markvörður, en Ágústa Dúa Jónsdóttir kom sterkt út f lokin.
Valsliðið er skipað sterkum einstaklingum en samt hefur maður oft áður séð
sterkara Valslið en þetta. Sigrúnar Guðmundsdóttur er greinilega saknað, en
þessi okkar bezta handknattleikskona á seinni árum mun eiga við meiðsli á
strfða.
Það sama má segja um Framliðið, maður hefur oft séð það sterkara en að
þessu sinni og lokakaflinn var herfilegur. Langbeztan leik áttu þær Guðríður
Guðjónsdóttir, Bergþóra Ásmundsdóttir og Kolbrún markvörður. Guðríður er
ein sú skotfimasta í islenzkum kvennahandknattleik um þessar mundir, en
hana skortir hreyfanleik.
Mörk Vals: Ragnheiður Lárusdóttir 4(2v), Harpa Guðmundsdóttir 3, Ágústa
Dúa Jónsdóttir 2, Björg Guðmundsdóttir 1 og Björg Jónsdóttir 1.
Mörk Fram: Guðríður Guðjónsdóttir 5(lv), Bergþóra Ásmundsdóttir 2,
Oddný Sigsteinsdóttir 2(lv).
Dómarar voru Björn Kristjánsson og Óli Olsen og dæmu þeir ágætlega. —SS.
Þórsstúlkurnar
sigruðu Víking
KVENNALIÐ Þórs á Akureyri virðist ætla að spjara sig vel f 1. deildinni.
Fyrir jól kom liðið suður og gerði sér lftið fyrir og sigraði FII. Og á
laugardaginn kom Þór suður til Reykjavfkur á nýjan leik. Lék liðið hér tvo
leiki um helgina, sigraði Vfking á laugardaginn og tapaði naumlega á
sunnudaginn fyrir Ármanni.
Reyndar má segja að Þórsstúlkurnar hafi verið jafnnálægt því að tapa stigi
til Víkings og ná stigi af Ármanni. Þór hafði yfirhöndina allan leikinn á móti
Víkingsstúlkunum, þegar þessi tvö lið mættust íLaugardalshöllinni á laugar-
daginn. Þegar minna en 10 mínútur voru eftir var staðan 12:7 Þórsstúlkunum i
vil en á þessum síðustu minútum fór allt í baklás hjá Þor á sama tíma og
Víkingsstúlkurnar sóttu mjög í sig veðrið. Náðu Víkingsstúlkurnar að skora 6
mörk á móti 2 hjá Þórsstúlkunum, staðan var orðin 14:13 og allt gat gerst. En
fleiri urðu mörkin ekki og það rikti að vonum gleði í herbúðum Þórs í leikslok.
Lokastaðan sem sagt 14:13 eftir að staðan hafði verið 6:4 í hálfleik, Þórsstúlk-
unum í vil.
Gæði handknattleiksins, sem liðín sýndu, voru vægast sagt f lágmarki.
Uppistaðan í báðum liðum eru ungar og reynslulitlar stúlkur, sem vafalaust
eiga eftir að taka miklum framförum ef þær leggja rækt við íþróttina. Lið Þors
hefur á að skipa betri skyttum en Víkingsliðið og einnig var markvarzla liðsins
betri. Auður Dúadóttir stóð í markinu allan tímann og varði vel, og aðrar
athuglisverðar leikkonur hjá Þór voru þær Soffía Hreinsdóttir, sem hefur alla
tilburði til að verða hörku vinstrihandarskytta og Magnea Friðriksdóttir, en
hún var grimm bæð í í vörn og sókn. Hjá Vikingi var Ástrós Guðmundsdóttir
markhæst, en flest marka hennar voru úr vftum. Mikið skyttuefni er í liði
Víkings, Inga Bernódusdóttir. Hún var í strangri gæzlu allan tímann og
skoraði aðeins eitt mark. Spilið er lipurt hjá Víkingi, en ógnun lítil. Bæði lið
léku þokkalegasta varnarleik.
Svipmynd frá leik Vfkings og Þórs. Jóhanna Magnúsdóttir reynir að brjótast
f gegnum vörn Þórs. Fjær má sjá Ingu Bernódusdóttur.
Mörk Vfkings: Ástrós Guðmundsdóttir 6(4v), Heba Hallsdóttir 2, Ragnheið-
ur Guðmundsdóttir 2, Anna Björnsdóttir 1, Inga Bernódusdóttir l(lv) g
Jóhanna Magnúsdóttir 1.
Mörk Þórs: Sofffa Hreinsdóttir 8 (5v), Magnea Friðriksdóttir 3, Sigríður
Sigurðardóttir 2, Steinunn Einarsdóttir 1 mark.
Dómarar voru Jón Friðsteinsson og Gunnlaugur Hjálmarsson og áttu þeir
rölegan dag.
.... en reynsluleysi varð þeim að falli gegn Armanni
SEGJA má með sanni að reynsluleysið hafi kostað Þórsstúlkurnar stig á móti
Ármanni f Laugardalshöllinni á sunnudaginn. Staðan var jöfn, 10:10, aðeins
30 sekúndur eftir og Þórsstúlkurnar með boltann. I stað þess að láta tfmann
líða, var reynt ótfmabært skot sem mistókst og æsingurinn í Þórsstúlkunum
var svo mikill að helmingurinn af liðinu gleymdi að hlaupa f vörnina.
Ármannsstúlkurnar brunuðu upp og Guðrún Sigurþórsdóttir tryggði Ármanni
sigur, 11:10, með marki 15 sekúndum fyrir leikslok.
Þessi leikur var eins og aðrir leikir, sem undirritaður sá í 1. deild kvenna um
helgina, af lakari gerðinni. Þórsstúlkurnar voru ekki eins sprækar og í fyrri
leiknum gegn Víkingi og lið Ármanns er ekki nema svipur hjá sjón miðað við
undanfarið ár. Nokkrir af máttarstólpum þess hafa hætt iðkun handknattleiks
og ungar stúlkur eru komnar í þeirra stað.
Þórsstúlkurnar höfðu yfir til að byrja með, skoruðu tvö fyrstu mörkin. En
síðan kom ekkert mark hjá þeim i langan tíma á meðan Ármann skoraði fimm,
og í hálfleik var staðan 5:3. Seinni hálfleikurinn var miklu jafnari og hefði
jafntefli verið réttlátust úrslit. Þórsstúlkurnar höfðu til þess alla möguleika að
ná öðru stiginu eins og að framan greindi, en glopruðu tækifærinu á hinn
klaufalegasta hátt.
Guðrún Sigurþórsdótir, helsta skytta Ármanns, var í strangri gæzlu allan
leikinn. Lék hún inn á línu og náði ser ekki á strik fyrr en I seinni hálfleik,
þegar hún gerði 5 mörk. Var Guðrún bezt í liði Ármanns ásamt Magneu
Magnúsdóttur markverði. Þá átti Erna Lúðvíksdóttir ágætan leik. Hjá Þór var
Soffía Hreinsdóttir mest ógnandi, en hennar var vel gætt. Þórsstúlkurnar léku
mikið inn á línuna og fengu mörg vítaköst og nýtti Anna Halldórsdóttir þau
flest. Þá má nefna þær Magneu Friðriksdóttur og Auði Dúadóttur hjá Þór, en
þær áttu báðar góðan leik.
Mörk Ármanns: Guðrún Sigurþórsdóttir 8 (lv), Erna Lúðviksdóttir 3 (lv),
Anna Gunnarsdóttir 2, Sigríður Brynjólfsdóttir 1 mark.
Mörk Þórs: Anna Halldórsdóttir 6(5v), Soffía Hreinsdóttir 2, Magnea
Friðriksdóttir 2 mörk.
Grétar Vilmundarson og Jón Hauksson hlupu í skarðið fyrir einhverja
dómaraskussa, sem ekki mættu til leiks, og dæmdu þeir félagar alveg
prýðUega.
—SS.
12 MARKA FYRIRHAFNARLAUS SIGUR KR
KR vann ákaflega auðveldan sigur í leik sínum við Breiðablik í 1. deildar
keppni kvenna í handknattleik sem fram fór í Ásgarði í Garðbæ á sunnudag-
inn. Það var aðeins fram i miðjan fyrri hálfleik, sem Breiðabliksstúlkurnar
héldu í við KR, en siðan var nánast aðeins um eitt lið að ræaða — KR
stúlkurnar fengu að gera það sem þeim sýndist og úrslitin urðu í samræmi við
það 21—9. Óhætt er að fullyrða að ekkert nema fall 2. deild blasir nú við
Breiðabliksliðinu, enda virðist áhugi stúlknanna í algjöru lágmarki. Þannig
var ekki nema ein eða tvær til skiptanna í þessum leik, og sumar súlkurnar
sem léku leikinn út virðast nánast byrjendur í íþróttinni.l
Staðan í hálfleik í leiknum á sunnudaginn var 9—6 fyrir KR og í seinni
hálfleiknum skoruðu Breiðsbliksstúlkurnar aðeins 3 mörk gegn 12 mörkum
KR.
Beztar hjá KR f leik þessum voru þær Hjördís Sigurjónsdóttir og Hansína
Melsteð, og báru þær af öðrum stúlkum á vellinum. Einna skást hjá Breiða blik
var Sigurborg Daðadóttir.
Mörk Breiðabliks: Sigurborg Daðadóttir 5 og Ása Alfreðsdóttir 4.
Mörk KR: Hjördfs Sigurjónsdóttir 7, Hansína Melsteð 6, Hjálmfríður
Jóhannsdóttir 3, Sigrún Sigtryggsdóttir 2, Svava Sigtryggsdóttir 1, Jónína
Ólafsdóttir 1 og Olga Jónsdóttir 1.
—stjl.
MORGUNBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 11. JANÚAR 1977
21
Frá pressuleiknum. Á myndinni til vinstri vippar Björgvin knettinum yfir örn Guðmundsson pressuliðsmarkvörð en á myndínni til hægri
eigast þeir Ólafur Einarsson og Konráð Jónsson við.
ENN MARGIR ÁGALLAR SEM LAG-
FÆRA ÞARF HJÁ LANDSLIÐINU
LANDSLIÐIÐ sigraði pressuliSið I
handknattleik I seinni leik liðanna að
þessu sinni, en sá leikur Upt fram I
Laugardalshöllinni á sunnudags-
kvöldið. 27—18 fyrir landsliðið
urðu úrslit leiksins. eftir að landslið-
ið hafði haft 5 marka forystu I hálf-
leik 15—10. Eftir atvikum verður
ekki annað sagt en að þessi sigur
landsliðsins hafi verið of stór.
Ósamæft pressulið fof illa með góð
tækifæri I leiknum, misnotaði t.d.
tvö vltaköst. og a.m.k. fimm hraða-
upphlaup, sem gáfu góð færi, fóru I
suginn. Munurinn á liðunum sem
börðust I Laugardaslhöllinni á
sunnudagkvöldið var þvl ekki eins
mikill og tölurnar segja til um, þótt
auðvitað ætti hann að hafa verið það
og jafnvel meiri.
dÞvi miður verður að segjast að
Islenzka landsliðið virkaði ekki nógu
sannfærandi I pressuleikjunum tveim-
ur — á föstudagskvöld og sunnudag-
kvöld. Hjá liðinu voru of margir
augljósir ágallar. flestir hinir sömu og
komu svo glögglega fram I landsleikj-
um við Dani á dögunum Það er til að
mynda ekki nógu gott að fá á sig
18—20 mörk I leikjum þar sem and-
stæðingurinn er ekki sterkari en
pressuliðið var. Hvað verður þá þegar
— JANÚS hefur sfefnt að því, allt
frá þvf að hann hóf að búa
fslenzka landsliðið undir B-
heimsmeistarakeppnina f Austur-
rfki, að fá hingað pólskt lið sfð-
ustu æfingavikuna fyrir utanferð-
ina, og nú er allt útlit fyrir að það
muni takst, sagði Birgir Björns-
son, formaður landsliðsnefndar, f
viðtali við Morgunblaðið.
— Þegar Janus Cerwinski fór
heim í jólafrí sitt hafði hann sam-
band við Salsk- meistaralið Pól-
verjanna sem lék við FH i
Evrópubikarkeppni meistaraliða
— og höfðu þeir mikinn áhuga á
að koma hingað og dvelja við æf-
ingar með islenzka landsliðinu í
vikutíma. Með Slask-liðinu munu
væntanlega koma hingað nokkrir
pólskir landsliðsmenn úr öðrum
félögum, þeirra á meðal sennilega
hinn frægi markvörður pólska
landsliðsins, Gancia, sem að
margra dómi er nú bezti hand-
knattleiksmarkvörður heimsins.
harðari og betri andstæðingi er mætt
Þeir misnota ekki færi sln sem pressu-
liðið gerði I leikjunum, og þvl þarf
meira til þess að vmna þá Hitt er jafn
augljóst að sumt er Islenzka landsliðið
farið að gera ágætlega — jafnvel eins
vel og það hefur bezt gert áður
Það sem vekur hvað mest vonbrigði
með landsliðið er hversu leikur þess er
einhæfur „Taktik" eða „keyrslur" liðs-
ins eru ákaflega fáar og tiltölulega
auðvelt að sjá við þeim Oft var sáralltil
ógnun I spili liðsins. og einu sinni I
leiknum á sunnudagskvöldið fékk það
meira að segja dæmda á sig töf Það
sem öðru fremur bjargað 9 marka sigri
yfir pressuliðinu á sunnudagskvöldið
var einstaklingsframtak nokkurra leik-
manna og tilburðir þeirra, rétt eins og I
leiknum á föstudagskvöldið Vafalaust
á Landsliðið eftir að ná þvi betur sem
það er að æfa I sóknarleiknum, en
spruningin er hvort það verður I tæka
tið Eftir pressuleikina núna sækirefinn
því miður meira að en áður.
Varnaleikurinn er eftir sem áður
aðalhöfuðverkurinn. og sem fyrr grein-
ir geta lansliðsmenn ekki þakkað
varnarhæfni sinni það að þeir fengu
ekki til muna fleiri mörk á sig I leiknum
á sunnudagskvöldið Þar var um að
kenna klaufaskap og fljótfærni pressu-
— Það er tvímælalaust ómetna-
legt fyrir íslenzka landsliðið, ef af
þessari heimsókn geti orðið, sagði
Birgir Björnsson, — það sem
íslenzka landsliðið mun skorta á
þessum tíma er keppni við erlend
lið, og við gætum varla fengið
betra lið til slíkra æfinga en
Slask. Þá eru einnig möguleikar á
að Janus fengi að hafa hönd I
bagga með hvernig þetta lið leik-
ur gegn okkar liði, og þannig væri
t.d. unnt að finna svör við ýmsu
sem við vitum að Austur-
Þjóðverjarnir búa yfir.
Sem kunnugt er, lcika íslend-
ingar í C-riðli keppninnar I
Austurríki ásamt Austur-
Þjóðverjum og Portúgölum. Tvö
lið úr þessum riðli komast áfram í
undanúrslit og mæta þar tveimur
efstu liðunum úr D-riðli, en þau
lið verða að öllum líkindum frá
Noregi og Spáni. Birgir var að því
spurður hvaða ráðstafanir hefðu
verið gerðar til þess að „njósna"
um lið Noregs og Spánar.
liðsmanna Oft opnaðiast vörn lands-
liðsins alltof illa, og yfirleitt virtist of
mikið fum og pat á leikmönnum Það
er þó ekkert efamál að Ólafur H. Jóns-
son kemur til að að styrkja vörnina
verulega mikið Ólafur virtist ekki taka
ýkja mikið á I leiknum á sunnudags-
kvöldið, en eigi að slður voru þau ekki
mörg mörkin sem komu I gegnum
hann Ólafur er greinilega líkamlega
sterkari en nokkru sinni fyrr — sann-
kallað tröll. og með meiri samæfingu
hans og annarra landsliðsmanna ætti
nýting hans að geta verið enn betri en
líun var I þessum leikjum Hitt er
einnig áberandi að Ólafur virðist skotr-
agari en hann var hér I gamla daga. —
reyndi tæpast að skjóta að utan jafnvel
þótt hann fengi tækifæri til þess.
Það er landsliðinu tvímæla laust
mikið áfall að Árni Indriðason getur að
öllum llkindum ekki leikið með þvi I
komandi landsleikum og I heims-
meistarakeppninni. Má mikið vera ef
hann er ekki einmitt sá leikmaður sem
liðið sárlega vantar En það er llka
jafnvist að fyrir utan landsliðið standa
nú mun betri varnarleikmenn en eru I
þvi Þar ber t.d að nefna Bjarna Jóns-
son Hann er greinilega sterkari og
útsjónarsamari varnarleikmaður en
flestir þeirra sem skipa landsliðið Má
— Tveir af væntanlegum and-
stæðingum okkar I B-keppninni,
Austur-Þýzkaland og Noregur,
taka þátt í hinni svonefndu
Baltickeppni, og hefur Janus
gegnið frá því að Pólverjar, sem
einnig keppa í þessu móti taki
leiki þeirra upp á myndsegulband
og munum við væntanlega fá það
er Pólverjar koma hingað til
tveggja landsleikja í janúar. Dag-
ana 27.—29. janúar fer svo fram
handknattleiksmót í Frakklandi
þar sem þátttakendur verða Pól-
land, Frakkland, Holland og
Spánn og hefur nú verið afráðið
að Janus fari og sjái a.m.k. tvo
leiki Spánverja i þessu móti. Mun
hann væntanlega fara til Frakk-
lands 28. janúar og koma aftur 31.
janúar. Með þessu móti ættum við
að fá allgóða vitneskju um helztu
andstæðinga okkar í B-keppninni,
en að auki hefur Janus gert ráð-
stafanir til þess að fá frekari upp-
lýsingar frá löndum sínum, sem
taka þátt I umræddu móti.
mikið vera ef ekki væri hyggilegt að fá
Bjarna til liðs við landsliðið, og þá helzt
á kostnað þeirra leikmanna sem verma
bekkinn meira og minna hjá liðinu. —
Virðast vera I þvl algjör aukanúmer
Svo vikið sé að gangi leiksins á
sunnudagskvöldið. þá náði landsliðið
strax góðri forystu — komst I 6— 1 og
stðan 10—4 Pressuliðinu tókst siðan
að minnka muninn I þrjú mörk undir
lok hálfleiksins er staðan var 1 3— 10.
en landsliðið skoraði slðan tvö slðustu
mörkin og hafði 5 mörk yfir I hálfleik
15—10
í seinni hálfleik var leikurinn mjög
jafn til að byrja með. og um hann
miðjan var staðan 18—15 Þá kom
mjög slæmur kafli hjá pressuliðinu,
Dauðafæri voru misnotuð æ ofan I æ
og ekki einu sinni skorað úr vitaköst-
um Skoraði landsliðið hvorki fleiri né
færri en sex mörk I röð og staðan var
þar með orðin 24—15 og úrslitin
ráðin Nokkurt ios komst á leikinn
undir lokin Landsliðið lék þá um tlma
„maður á mann'' vörn. og ekki óskyn-
samlegt hjá þvi að bregða sliku fyrir
sig. þar sem ekki er ótrúlegt að sllkt
geti komið upp I komandi landsleikj-
um En þar hafði liðið ekki árangur
sem erfiði og liðin skiptust á að skora
Eins og I leiknum á föstudagskvöldið
var það Geir Hallsteinsson sem bar
höfuð og herðar yfir félaga slna I
landsliðinu Geir er greinilega I geysi-
lega góðu formi um þessar mundir.
léttur og harður af sér Verði Geir I
þessum ham, þegar mest þarf á að
halda má ætla að hann verði erfiður
viðureignar fyrir hvern sem er. í lands-
liðinu áttu einnig báðir markverðirnu
afbragðsgóðan leik á sunnudagskvöld-
ið, sérstaklega þó Gunnar Einarsson,
sem var inná allan seinni hálfleikinn
Tókst honum að loka marki slnu algjör-
lega um tima Þá átti Ólafur H.
Jónsson einnig ágætan leik á sunnu-
daginn
Pressuliðið bar þess óræk merki að
það var gjörsamlega ósamæft Einmitt
þess vegna glötuðust mörg .góð færi
og mistök urðu I vörninni Var raunar
mesta furða hversu harða mótstöðu þvi
tókst að sýna landsliðinu á köflum
Bjarni Jónsson var bezti leikmaður
pressuliðsins — rak slna menn áfram I
vörninni og var auk þess hættulegur I
sóknarleiknum Varla vafi að hann átti
fremur heima I bláa búningnum en
hinum hvita Þá komst Sigurbergur
Sigsteinsson vel frá leiknum á sunnu-
daginn. einkum I vörninni. svo og Páll
Björgvinsson sem greinilega er þó
ekki i eins góðu formi og hann var t d
I fyrravetur Athygli vakti hjá pressulið-
inu ungur piltur úr 3-deildar liði HK,
Hilmar Sigurgislason Þar er mikið efni
á ferðinni
Mörk lansliðsins skoruðu Geir
Hallsteinsson 5, Ólafur Einarsson 5
(1 v). Jón Karlsson 4 (2v), Björgvin
Björgvinsson 4, Viggó Sigurðsson 3,
Ólafur H Jónsson 2. Ágúst Svavarson
2, Þorbergur Aðalsteinsson 1
Mörk Pressuliðsins: Bjarni Jónsson
4. Hörður Sigmarsson 4 (2v). Jón
Pétur Jónsson 3 (1v), Páll Björgvins-
son 2. Konráð Jónsson 2. Hilmar
Sigurglslason 2. —Stjl.
SLASK mun aðstoða víð
undirbúning landsliðsins
- JANUS FER TIL FRAKKLANDS í „NJÚSNAFERÐ"
KA sótti 2 stig
til Keflavíkur
KEFLVÍKINGAR sýndu sinn bezta
leik I 2. deildar keppni islands-
mótsins Ihandknattleik á laugar-
daginn er KA-liðið frá Akureyri
mætti þeim I iþróttahúsinu I
Njarðvlk. Þrátt fyrir það urðu
Keflvlkingarnir að þola ósigur
21 — 31, eftir að staðan hafði
verið 10—8 fyrir KA I hálfleik.
Eru Keflvlkingarnir enn eina liðið
sem ekki hefur hlotið stig I 2.
deildar keppninni til þessa. og
verða að teljast llklegir fallkandi
datar I 3. deild, enda sennilega
ekkert liðanna sem leika I 2.
deild sem býr við eins erfið skil-
yrði og þeir.
Beztu menn Keflavlkurliðsins I
þessum leik voru þeir Einar Ás-
björn markvörður og Þórir Sigfús-
son. í heild lék Keflavlkurliðið
skynsamlega og lét knöttinn
ganga ágætlega. Hins vegar eru
enn of miklir ágallar hjá liðinu til
þess að það geti vænst árangurs.
Bezti maður KA liðsins var Ár-
mann Sverrisson, en Sigurður
Sigurðsson, Guðmundur Lárus-
son og Jóhann Einarsson áttu
einnig góðan leik.
MAÐUR LEIKSINS: Ármann
Sverrisson, KA.
MÖRK KEFLAVÍKUR: Þórir
Sigfússon 5, Grétar Grétarsson
4, Guðmundur Jóhannesson 4,
Einar Leifsson 3. Magnús Garð-
arsson 3. Gunnar Sigtryggsson 2.
MÖRK KA: Sigurður Sigurðs-
son 10 (3v). Ármann Sverrisson
9, Guðmundur Lárusson 5, Jó-
hann Einarsson 4, Hörður Hilm-
arsson 1. Hermann Haraldsson 1.
Páll Kristjánsson 1 hh"stjl
Logi Ólafsson reynir gegnumbrot, en Jóhann Einarsson er vel á
verði og nær að stöðva hann.
Reynsluleysi kom
Stjörnunni í koll
MIKIL ákveðni og kraftur Harðar
Hilmarssonar og góð markvarzla
Magnúsar Gauta í KAmarkinu
urðu öðru fremur til þess að KA
fór með sigur af hólmi í leik sínum
við Garðabæjarliðið Stjörnuna á
sunnudaginn. 18—16 fyrir KA
urðu úrslit leiksins eftir að Stjarn-
an hafði haft tveggja marka for-
ystu eftir fyrri hálfleik 10—8. Var
það ekki fyrr en um 7 mlnútur
voru til leiksloka að norðanmönn-
um tókst að ná forystunni, en þá
hreinlega lokaði Gauti marki slnu
og Hörður skoraði síðan þrjú mörk
I röð með harðfylgi sínu.
Leikur þessi var hinn skemmti-
legasti og vel leikinn af báðum
liðum. Hraðinn var mikill og um
tfma var einnig óþarflega mikil
harka f leiknum — harka sem
dómararnir réðu illa við. Þannig
fékk t.d. Magnús Teitsson — einn
bezti leikmaður Sjörnunnar höfuð-
högg f leiknum og gat Iftið verið
með eftir það. Veikti fjarvera hans
greinilega Sjönuliðið.
— Það var ekkert vafamál að
Stjörnuliðið er f gffurlegri framför,
og það er orðið ótrúlega erfitt
viðureignar. Undir lok fyrri hálf-
leiksins lék liðið t.d. þannig vörn,
að það var nánast ómögulegt að
komast f gegn, sagði Hörður
Hilmarsson, fyrirliði KA, eftir leik-
inn.
Gangur leiksins var I stuttu máli
sá að KA komst fjótlega f 4—1,
en um miðjan hálfleikinn hafði
Stjarnan jafnað 4—4. KA komst
sfðan aftur yfir f 8—6 en undir lok
fyrri hálfleiksins lék Stjarnan vörn
eins og hún gerist bezt hjá fslenzk-
um liðum, og KA menn komust
hreinlega ekkert áleiðis. í seinni
hálfleik breytti KA svo sóknarleik
sfnum með þeim árangri á
Stjörnumönnum gekk verr en áður
að verjast, fengu á sig 10 mörk,
en skoruðu aðeins sex sjálfir.
Beztu menn liðanna voru þeir
Hörður Hilmarsson og Magnús
Gauti hjá KA, en einnig áttu þeir
Ármann Sverrisson og þó sérstak-
lega Jóhann Einarsson góðan leik,
en Jóhann er ágætur varnarleik-
maður. Hjá Stjömunni voru beztir
þeir Magnús Teitsson meðan hans
naut við, Magnús Andrésson og
Gunnar Björnsson. Þá varði mark-
vörðurinn, Brynjar Kvaran oft
ágætlega.
Maður leiksins: Hörður Hilmars
son, KA.
Mörk Stjörnunnar skoruðu:
Gunnar Björnsson 6, Magnús
Teitsson 3, Magnús Andrésson 2,
Guðmundur Yngvason 2, Viðar
Halldórsson 2 og Eyjólfur Braga-
son 1.
Mörk KA skoruðu: Sigurður
Sigurðsson 6 (4v). Hörður
Hilmarsson 4, Ármann Sverrisson
4, Jóhann Einarsson 2, Guðmund-
ur Lárusson 1. —stjl.