Morgunblaðið - 17.02.1977, Síða 5

Morgunblaðið - 17.02.1977, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. FEBRUAR 1977 5 Leikrit vikunnar kl. 20.00: Biðstöð 13 LEIKRIT vikunnar í út- varpinu er að þessu sinni eftir íslenzkan höf- und, Örn Bjarnason. Leikstjón er Þorsteinn Gunnarsson og með helztu hlutverk fara þau Hjalti Rögnvaldsson, Sigurður Karlsson, Róbert Arnfinnsson, Helga Stephensen og Jón Sigurbjörnsson. Flutningur leiksins tekur áttatíu mínútur. Leikritið heitir ..Biðstöð 13". Það gerist á afvötnunarhæli, þar sem drykkjusjúklingar eru til meðferðar, einnig dópistar og taugasjúklingar. Sem sagt allt það fólk, sem vill feta leið- ina til baka, eins og höfundur sjálfur kemst að orði. Þangað kemur ungur maður, Ari að nafni. Hann kynnist brátt öðr- um vistmönnum, sem eru mis- jafnlega á vegi staddir, og er það honum dýrmæt reynsla að hlusta á frásagnir þeirra. Lækn- ar og hjúkrunarliðar koma einn- ig við sögu. Fólk hefur gert sér ýmsar hugmyndir um slika staði, kannski misjafnlega rétt- ar, en ef það getur dregið lær- dóm af þvi, sem lýst er i leikrit- inu má segja að tilgangi höf- undar sé náð. Örn Bjarnason er fæddur árið 1948 og er ættaður frá Akur- eyri. Hann hefur fengizt við visnasöng um margra ára skeið og smásögur og Ijóð eftir hann hafa verið flutt i útvarpinu. Þetta er fyrsta leikrit höfundar sem flutt er opinberlega. Þorsteinn Gunnarsson. sjö fermetrar að stærð. Klefarn- ir eru málaðir i skærgrænum litum og lýstir með ..fluoresent- Ijósum", vægast sagt mjög kuldalegir. Ég held að ég yrði alla vega vitlaus á að dvelja i einum slíkum klefa. Meðan þetta fangelsi var ætlað öðrum föngum en gæzluvarðhalds- föngum voru í því tvær álmur, það er að segja fyrir kvenfólk og svo önnur fyrir karlmenn. Þá var sá hátturinn á, að i kvennaklefunum voru klæða- skápar en karlar urðu annað- hvort að henda fötum sínum i gólfið eða koma þeim fyrir á stól. Við Andrea ætlum i þessum þætti að leitast við að lýsa fangelsinu eins og það er í dag. Meginspursmálið í þessum þætti verður umræða um með- ferð fanga almennt. í þvi skyni verður rætt við fangaverði í Siðumúlafangelsinu, það kem- ur að sjálfsögðu ekki til greina að ræða við fangana sjálfa, þar sem þeir eru í algerri einangr- un, fá hvorki að lesa dagblöð né hlusta á útvarp, við fórum heldur ekki einu sinni fram á að fá að ræða við þá. Það, sem við spyrjum þessa fangaverði aðal- lega um, er hver réttur fangans sé gagnvart þeim, til dæmis ef upp kemur misrétti á milli þess- ara tveggja aðila En reglugerð sú sem finnst um meðferð fanga er orðin tuttugu ára göm- ul eða síðan 1957. Þessar spurningar hafa að sjálfsögðu vaknað mikið til vegna þeirra ásakana, sem á fangaverði hafa verið bornar ! sambandi við meðferð á föngum en þar sem málið er enn í rannsókn tel ég ekki rétt að fjalla um það frekar að sinni," sagði Gísli. „í næsta þætti þeirra Andreu og Gísla verður fallað um mál í framhaldi af þessu, rætt verðu við ungan mann, sem á að baki langan eiturlyfjaferil svo og af- brotasögu. Verður sá þáttur á dagskrá fimmtudaginn 24. febrúar. Jón Sigurbjörnsson. Hjalti Rögnvaldsson. Róbert Arnfinnsson Nýja tékkafyrir- komulagið hefur haft bætandi áhrif HIÐ nýja fyrirkomulag tékkaviðskipta og inn- heimtu vanskilatékka hef- ur gefizt vel var samdóma álit þriggja bankamanna, sem Mbl. sneri sér til í gær. Þeir tóku þó fram að ekki væri komin nægilega mikil reynsla á þessa ný- skipan til að unnt væri að fullyrða um áhrif hennar til langs tíma. Guðmundur Guðmundsson, deildarstjóri ávisanadeildar Landsbankans, sagði að enda þótt tæpast væri komin nægilega mikil reynsla á hið nýja fyrirkomulag virtist það þó vera mjög til bóta og fólk sýndi meiri aóhaldssemi í meðferð tékkana. 1 sama streng tók Valur Vals- son, aðstoðarbankastjóri Iðnaðar- barvkans. Hann kvaðst ekki geta sagt annað en nýskipan þessara mála hefði gefizt vel til þessa og litið væri um það að tékkar væru yfirdregnir og vanskilatéttar kæmu fram. Valur tók það þó fram, að tékkamisferli hefði aldrei verið tiltakanlegt vanda- mál hjá Iðnaðarbankanum. Stefán Þormar, deildarstjóri ávisanadeildar Búnaðarbankans, sagði að náumast væri komin nægileg reynsla á hið nýja fyrir- komulag til að greina mætti áhrif þess til langS’ tíma, auk þess sem um svipað leyti hefði komið til hækkun á ávisanaeyóublöðum. sem jafnan hefði sín áhrif. Taldi hann hækkunina m.a. hafa haft þau áhrif að dregið hefði úr tékkanotkuninni og þá Sérstak- lega úr útgáfu smátékka en áhrif hins nýja fyrirkomulags væru KVENNADEILD Slysavarna- félags tslands í Reykjavík efnir árlega til merkjasölu og veróur hún að þessu sinni næsta föstu- dag 18. febrúar. 1 tilefni dagsins sendir deildin borgarbúum svo- látandi ávarp: „Kæru Reykvikingar, Á föstudaginn kemur verður hinn árlegi merkjasöludagur Kvennadeildar Slysavarnafélags ótvírætt þau, að fólk sem lent hefði einu sinni í þvi að fara yfir á reikningi sínum og þurft að greiða þann kostnað sem því fylgdi, gætti sín betur í framtíð- inni. íslands í Reykjavík. Það er ein- læg ósk kvennadeildarinnar, að Reykvíkingar taki merkjasölunni vel og styðji þannig SVFI i starfi. Allur ágóði merkjasölunnar renn- ur til 'styrktar slysavarna og björgunarstarfsins og ætlum við öll að setja metnað okkar i að leggja okkar skerf að mörkum til þess að búa björgunarsveitirnar um allt land sem beztum búnaði. Um leið og þið kaupið merki kvennadeildarinnar leggið þið fram ykkar skerf til þess að svo megi verða. Reykvíkingar hafa ávallt sýnt Kvennadeild SVFI mikla velvild og stuðning og vonast hún eftir að svo verði enn. Við biðjum for- eldra að hvetja börn til þess að selja merkin og sjá til þess að þau verði vel klædd. Merkið kostar kr. 100 og fá börnin sölulaun auk þess sem 20 söluhæstu börnin verða verðlaunuð sérstaklega. Með fyrirfram þakklæti, Kvennadeild Slysavarnafélags íslands í Reykjavík.“ Ávarp til Reykvíkmga ÞAÐ BESTA FRÁ HINGAÐ TIL Umsagnir nokkurra áhugamanna og atvinnumanna um STILL PHOTOGRAPHS ★ Það þarf ekki að hafa mörg orð um hljómplótu Magnúsar Sigmundssonar. Hún er að minu mati það vandaðasta sem islenskur Ijómlistarmaður hefur gert til þessa A plotunni má heyra allt frá einföldum melódíum til laga með þungum strengjasveitar útsetningum En það er sama hvar borið er niður, alls staðar situr vandvirknin og leitin að fullkomnun i fyrirrúmi Bestu lög: Blue Jean Queen, The party is over og Still photographs Oagblaðið 22 des Asgeir Tómasson ^... Nx. ★ Þrælgóð plata, unnin af alúð og vandvirkni. Til hamingju Magnús. Besta lag Blue Jean Queen Bjórgvin Halldórsson ★ Að venju sýnir Magnús á sér nýja hlið Þessi plata sýnir svo ekki verður um villst . að Maggi er meðal okkar bestu hljómlistarmanna Sigurður Garðarsson ★ Ég óska Magga innilega til hamingju. þvi þetta er tvimælalaust ein allra \ Tk- skemmtilegasta og best gerða plata sem komið hefur út á Isiandi Pétur Kristjánsson. Paradis FALKIN N SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.