Morgunblaðið - 17.02.1977, Page 19

Morgunblaðið - 17.02.1977, Page 19
V „Mér virðist starf annarra ungpólitiskra samtaka vera af- ar litið, sérstaklega þó ungsam- taka þeirra stjórnmálaflokka sem eiga fulltrúa á Alþingi. Þetta er að mörgu leyti slæmt. Ég er ekki í vafa um það, að virkari pólitískar umræður og pólitiskt starf ungs fólks ætti sér stað, ef hin samtökin störf- uðu betur en þau gera nú. Þau samtök sem auk okkar halda uppi nokkru starfi eru aðallega nokkrir sértrúarsöfnuðir ungra kommúnista. Staða okkar er því sterkari en oft áður, hvað þetta varðar." Telur þú heppilegt að hafa sérstök stjórnmála- félög ungs fólks? Mundi unga fólkið ekki komast fyrr til áhrifa ef það starfaði innan flokkanna sjálfra? ,,Þó að ungt fólk í stjórnmála- flokkum starfi i sérstökum félögum, þá starfar það líka innan flokkanna. Stjórnmála- starfsemi á fyrst og fremst að vera fólgin í því að bera fram til sigurs, ákveðnar skoðanir í þjóðmálum. Stjórnmálafélög ungs fólks berjast fyrir skoðun- um þess fólks sem í félögunum eru, þau eru vettvangur fyrir unga fólkið til að koma fram með, móta og bérjast fyrir skoð- unum sínum. Ef þessi félög væru ekki tii, þá tel ég að erfiðara væri fyrir ungt fólk að láta til sin heyra, þannig að eftir því væri tekið. Ég tel líka að fleira ungt fólk komi til starfa i stjórnmálum þegar það höfur sn eigin félög. Margt af því fólki sem eru félagar í Heimdalli mundi ekki vera félagar í Sjálfstæðisflokknum, ef Heimdallur eða sambærilegt félag ungs sjálfstæðisfólks væri ekki starfandi. Ungt fólk sem hefur því hag af þvi að hafa sérstök átjórnmálafélög og stjórnmálaflokkarnir hafa það líka.“ I hverju er starf Heim- dallar aðallega fólgið? „Starf Heimdallar er aðallega fólgið í ýmiss konar fundar- starfsemi, þar sem tekin eru til umræðu ýmis þjóðfélagsmál. Þá eru alltaf starfandi nefndir, leshringir og starfshópar sem taka til meðferðar ákveðin mál. Félagið gengst lika fyrir margs konar fræðslustarfsemi, þá helst námskeiðum um ræðu- mennsku, fundarsköp, félags- málastarf og stjórnmál. í fyrra var byrjað að gefa út á nýjan leik sérstakt málgagn „Gjallar- horn“, en það er fjórblöðungur, sem miðað ver við að komi út SJÁ NÆSTU SÍÐU „Viljum réttláttþjóð- félag er bygg- iráemkafram- taki og frelsi borgaranna ” _ Rœ„ DiS Jón Magnússon, formann Heimdallar % AÐ KVÖLDI 16. febrúar 1927 komu saman í Kaupþingsalnum i Eimskipafélagshúsinu f Reykjavík 32 menn og var tilefni fundar þeirra að stofna félag ungra manna, sem fylgdu thalds- flokknum að málum. Á þessum fundi var félagið Heimdallur stofnað og þar kjörin fyrsta stjórn félagsins. Við samruna Ihaldsflokksins og Frjálslynda flokksins ( Sjálfstæðisflokkinn 1929 varð Heimdallur félag ungra sjálfstæðismanna i Reykjavfk. 1 gær voru þvf 50 ár liðin frá stofnun Heimdallar. # NtJVERANDI formaður Heimdallar er Jón Magnússon. Jón hefur um langt skeið verið einn helsti forystumaður ungra sjálfstæðismanna. Hann hefur setið f stjórn Heimdallar og Sam- bands ungra sjálfstæðismanna og setið f miðstjórn Sjálfstæðis- flokksins sl. 4 ár. Formaður Heimdallar hefur Jón verið frá f október 1975. Jón Magnússon er lögfræðingur að mennt og rekur eigin lögfræðiskrifstofu auk þess að sinna kennslustörfum við Ármúlaskóla. t tilefni af 50 ára afmæli Heimdallar var Jón inntur eftir starfsemi félagsins og helstu baráttumálum um þessar mundir. Fyrst var Jón spurður, hvaða tengsi væru á milli Heimdallar og Sjálfstæðisflokksins? „Heimdallur er hluti af Sjálf- stæðisflokknum. Skipulag flokksins er þannig, að einung- is með því að ganga í eitthvert félag sjálfstæðisfólks tengist fólk Sjálfstæðisflokknum. Félögin mynda því flokkinn. Þó að Heimdallur sé skipulagslega hluti Sjálfstæðisflokksins, þá hefur félagið samt fullt svig- rúm til að marka sína eigin stjórnmálastefnu, jafnvel þó að hún sé ekki í fullu samræmi við stefnu Sjálfstæðisflokksins." En fjármálaleg tengsl? Þvf hefur verið haldið fram að Heimdallur fái verulegan fjárstuðning frá Sjálfstæðisflokkn- um? „Ef því er haldið fram, að Heimdallur fái fjárstuðning frá Sjálfstæðisflokknum, þá er það rángt. Heimdallur hefur hins vegar skrifstofuherbergi i misjafn í gegnum árin, en segja má að hann sé nokkuð góður núna, ekki þó svo að að skilja að félagið eigi digra sjóði. Við mið- um við það að félagið sé ekki rekið með tapi, það hefur tek- ist, en eingöngu með þvi að miða félagsstarfið við áætlaðar tekjur. Fjölmargar hugmyndir sem kosta útgjöld komast því ekki í framkvæmd." Er Heimdallur alltaf sammála Sjálfstæðis- flokknum? „Hvað grundvallarstefnu varðar, þá er Heimdallur sam- mála flokknum. Ef svo væri ekki gæti félagið ekki verið hluti af honum. Við erum þó á öndverðum meiði við stefnu flokksins f’sumum málum, en það sem við erum óánægðastir með, er það, að okkur finnst að stefnu flokksins, sem mörkuð er á landsfundum og flokks- ráðsfundum, sé ekki fylgt nægjanlega vei á Alþingi og i ríkisstjórn. Ég lít á það sem hlutverk ungra sjálfstæðis- manna að marka á hverjum tima skýra stefnu í þjóðmálum, reyna að fá Sjálfstæðisflokkinn til að gera þá stefnu að sinni og siðast en ekki sizt að standa vörð um það, að þeirri stefnu sé fylgt og flokkurinn gefi ekki of mikið eftir þegar stjórnarsam- vinna við aðra flokka kemur til.“ En er þá tekið mark á skoðunum Heimdallar? „Ég held að það sé óhætt að svara þessari spurningu ját- andi. Við vildum þó gjarnan að meira af stefnumálum okkar næði fram að ganga en raun ber vitni. Það er þó alltaf þannig í lýðræðislegum flokki, að skoðanir og þeir sem eru i minnihluta verða að sætta sig við það, en menn skyldu aldrei gleyma þvi, að minnihlutinn í dag getur orðið að meirihluta seinna meir. Þess vegna er al- veg óþarft að láta hugfallast þó að menn komi ekki öllu sínu fram á stundinni. Ef gamlar stjórnmálayfirlýsingar og stefnuskrár Heimdallar eru skoðaðar, þá sézt að mjög mikið af þeim málum sem þar er ályktað um, hafa náð fram að ganga. Oft hefur þó liðið langur timi áður en það gerðist." Hvernig er staða Heim- dallar nú miðað við önn- ur ungpólitfsk samtök? Sjálfstæðishúsinu Valhöll, og hefur afnot af sal í kjallara hússins fyrir félagsstarfsemi. Það er það eina, sem e.t.v. væri hægt að benda á sem stuðning frá flokknum í þessu sambandi, en ég leyfi mér þá að benda á, að Heimdallarfélagar unnu mikið starf við byggingu Val- hallar og lögðu fram töluverða fjármuni til byggingarinnar, auk þess sem að Félagsheimili Heimdallar í gömlu Valhöll var selt og allt andvirði var lagt í nýja húsið. Heimdallarfélagar hafa því lagt meira í Sjálf- stæöishúsið en þeirri aðstöðu nemur sem ég minntist á hér að framan." En hvaðan fær félagið þá peninga til að halda uppi félagsstarfi? „Með útgáfu auglýsingablaða . og félagsgjöldum. Fjárhagur félagsins hefur verið nokkuð STJÓRN HEIMDALLAR 1976—1977 — Fremi röð frá vinstri: Rósa Hilrnarsdóttir, Björn Hermannsson varaform., Jón Magnússon formaður, Júlfus Hafstein gjaldk. og Gústaf Níelsson ritari. Aftari röð frá vinstri: Þorsteinn Sigurðsson, Ingi Arason, Sigurður Sigurðsson, Hreinn Loftsson frkv.stj., Árni B. Eiríksson, Árni Sigfús- son og Skafti Harðarson. Heimdellingar skoða húsakynni Alþingis undir leiðsögn Jóhanns Hafstein. Skemmtikvöld f hinu nýja Sjálfstæðishúsi, Valhöll

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.