Morgunblaðið - 17.02.1977, Page 26

Morgunblaðið - 17.02.1977, Page 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. FEBRUAR 1977 HVAÐ mótar pólitískar hugmyndir ungs fólks?. . . Hvaða gildi hefur hugmynda- fræði stjórnmálaanna fyrir ungt fólk?. . . Spurningar sem þessar leita oft á hug manna, þegar rætt er um þátttöku ungs fólks í stjórnmálastarfi. Við báðum fimm félaga Heimdall- ar að svara fyrrnefndum spurningum og jafnframt því hvers vegna viðkomandi hefði gegnið í Heim- dall og hvar þau vildu staðsetja Sjálfstæðisflokk- inn í hinu pólitíska litrófi. Fara svör þeirra hér á eftir: „Ungt fólk tekur tillit til skoðana Heimdallar" — Rósa Hilmarsdóttir, 18 ára nemi í Verzlunarskóla Islands • Þróunin í alþjoðamálum síðustu áratufíi held óg að hafi öðru fremur mótað pólitískar skoðanir mínar og þar sem Heimdallur berst fyrir skoðunum og hugsjónum sem öðrum fremur sam- rýmast mínum skoðunum þá gekk ég í félagið og tók þált i starfinu. Heimdallur gegnir bezt hlutverki sínu með því að beita sér fyrir stjórn- málaf ra'ðslu, fundahöldum og útgáfu- starfsemi. Með því gerir hann þeim er áhuga hafa kleift að fylgjast með því, sem er að gerast í þjóðfélaginu á hverj- um tíma og breiðir jafnframt út skoð- anir sínar. Og ég verð félaginu og hug- sjónum þess bezt að gagni með því að taka þátt í starfseminni og kynna skoð- anir félagsins út á við. Hvað viðvíkur áhrifum Heimdallar út á \ íð og áhrifum lélagsmanna á stjórn og ályktanagerð félagsins, þá er, hvað það fyrra snertir, óhætt að segja, ef dæma má af því umtali og þeirri athygli er ályktanir Heimdallar hafa vakið að undanförnu, að almenningur, og ekki sízt ungt fólk, tekur tillit til og veitir athyglí skoðunum félagsins. Ályktanir þess falla ekki í grýttan jarð- veg. Unt áhrif félagsmanna á ákvarð- anatöku og gerðir stjórnarinnar er erf- iðara að dænta, en þó held ég að áhuga- samir félagsmenn hafi alltaf mögu- leika á því að koma skoðunum sínum á framfæri og hugðarefnum sínum í framkva'md. „Heimdallur ötulasta baráttuhreyfingin gegn kommúnismanum" — Sigurbjörn Magnússon, 17 ára nemi í Menntaskólanum i Reykjavík 0 Stjórnmálaskoðanir mínar hafa ekki hvað sízt mótazt af lestri mann- kynssögu og íslenzkrar stjórnmálasögu. Við þetta bættist svo lestur dagblaða og þá um leið spurnir af því hvernig hinar ýmsu hugmyndafræðistefnur reyndust í veruleikanum á hinum ólíkustu stöð- um jarðarinnar. Þar er stjórnmálaáhuginn var mikill var næsta skrefið að ganga í eitthvert stjórnmálafélagið til að móta frekar skoðanir mínar og finna góðan jarðveg fyrir þær. Eg valdi Heimdall því að Heimdallur er sterkasta og virkasta lýðræðis- og frjálshyggjuhreyfing ungra manna á íslandi og um leið ötul- asta baráttuhreyfingin gegn kommún- ismanum og útbreiðslu hans. Heimdallur getur eins og áður sagði skapað jarðveg fyrir skoðanir mínar og áhuga. Heimdallur gefur mér gott ' tækifæri til þess að fylgjast með þjóð- félagsumræðu með fundahaldi og út- gáfustarfsemi. Utgáfustarfsemin er ákaflega þýðingarmikil og mættí gjarn- an auka hana í tilefni 50 ára afmælis- ins. Heimdallur skapar mér einnig tækifæri til þess að afla mér góðrar þekkingar með fundum, leshringjum og fyrirlestrum. Einnig getur Heim- dallur veitt þjálfun og æfingu í ræðu- mennsku. I dag á sér stað í skólum, vinnustöð- um og hvar sem fleiri en tveir eru saman komnir mikil moldvörpustarf- semi kommúnista, er leitast við að grafa undan lýðræðinu. Ég held því að ungt hugsandi fólk hljóti að leita álits og skoðana sterkasta andkommúnista- aflsins á Islandi, auk þess sem það fólk er þátt tekur í störfum félagsins hverju sinni á eftir að móta stefnu stærsta stjörnmálaflokks landsins síðar meir. Ef við spyrjum okkur sjálf að því hvaða tilgangi það þjónar að vera fé- lagi í Heimdalli má raunar svara því með öðrum spurningum: Vilt þú hafa áhrif á umhverfi þitt? Er þér sama hvernig þjóðfélagi þú lifir í? Viltu hlúa aðlýðræðinu? Með veru þinni í félag- inu ertu um leið þýðingarmeiri þegn í þjóðfélaginu. Og með veru þinni í Heimdalli hefur þú aðstöðu til aó leggja góðu málefni lið og vinna að framgangi áhugamála þinna. „Lífshamingjuna er ekki að finna í gömlum skruddum Karls Marx" — Sighvatur Karlsson, 18 ára nemi í Menntaskólanum við Tjörnina 0 Mótun minna pólitísku viðhorfa hef- ur ráðist að mestu af sannfæringu minni og að sjálfsögðu umhverfi mínu. Frelsi einstaklingsins í þjóðfélaginu á að vera óskert og réttindi hans gagn- vart öðrum einstaklingum virt í hví- vetna. F’instaklingurinn verður að vera frjáls og jákvæður í lífsskoðunum sín- um og hafa rétt til að byggja sjálfur upp hinn sígilda píramída lifs síns og hafna síðan eftir eigin skoðunum og gerðum á þeim stað sem þær kunna að bera hann í þjóðfélaginu. Heimdallur styður það þjóðfélags- form er við nú búum við og hefur einfalda, skiljanlega stefnuskrá, sem ég berst fyrir því það er margt í því þjóðfélagi er við nú búum í er mætti betur fara. Við unga kynslóðin, sem höfum heyrt talað um og lesið um síðustu tvær heimsstyrjaldir og sjáum hversu fór fyrir þeim þjóðum er stóðu upp eftir þessar styrjaldir með kennisetningar Karls Marx við stjónvölinn í stað frels- isins, getum ekki sætt okkur við að slíkt gerist einnig hér. Það fólk hér á landi er þessum kenningum hefur ánetjast finnst mér skorta sagnfræði- lega og þá um leið raunsæja mynd af veruleikanum. Það bregður fyrir sig tilvitnunum i stað eigin orða og virðist trúa því í einfeldni sinni að einhverja lífshamingju sé að finna í gömlum skruddum Karls Marx. Sjálfstæðisflokkurinn er öðrum flokkum fremur fulltrúi þess þjóð- skipulags er ég trúi á, enda er hamn í raun flokkur allra stétta. Hann er þess umkominn að gera mér fremur kleift að lifa sem nytsamir þjóðfélagsþegn í frjálsu þjóðfélagi og geta komið skoð- unum minum á framfæri eftir eigin óskum og þörfum. „Það þýðir ekki lengur að þegja" — Olafur Sverrisson, 17 ára nemi i Menntaskólanum í Reykjavík 0 Hvað er það sem mótar st jórnmála- skoðanir fólks? Yfirleitt held ég að uppeldi eigi stóran þátt í þeirri mótun. í mínu tilfelli er það þannig að gegnum árin hafa foreldrarnir óneitanlega haft mikil áhrif. En ég er svo heppinn að foreldrar mínir hafa litt reynt Viljandi að hafa áhrif þar á, svo við getum sagt að ég hafi sjálfur mótað mínar stjórn- málaskoðanir með tilstyrk ýmissa þó. Þegar ég ákvað því að ganga í stjórn- málafélag var Heimdallur hið eina sem byggði á þeim hugsjónum er ég aðhyll- ist. Með blómlegu starfi hjá Heimdalli má fá fleiri til liðs við það og í gegnum þá starfsemi kynist fólk með svipaðar skoðanir innbyrðis og styrkir hvert annað í trúnni og nemur hvert af öðru og gerir það hæfara til að koma skoðun- um sínum á framfæri út á við. Heimdallur er jafnframt afl unga fólksins innan Sjálfstæðisflokksins og í gegnum hann getur það komið skoðun- um sínum á framfæri og reynt að hafa áhrif á stefnu hans. Við getum a.m.k. reynt okkar bezta tíl að draga forystu- menn flokksins út úr þeim glerhýsum er þeir hin síðari ár hafa byggt um sig. Það að vera félagi í Heimdalli þjónar þeim tilgangi að vinna hugsjónum sín- um fylgi, sem í sumum tilfellum falla saman við stefnu Heimdallar. „Fæst orð hafa minnsta ábyrgð," segir mál- tækið, en það gengur ekki lengur að meirihluti þjóðarinnar sýni stjórnmál- um lítinn sem engan áhuga, sitji og þegi, þ.e. skipi klappliðið. Nei, það þýð- ir ekki lengur að þegja. það er okkur að kenna ef ráðamenn þjóðarinnar vaða í villu, það er okkar að benda á agnúana ef einhverjir eru. „Frumskylda hvers einstaklings að kynna sér málin" — Olafur Garðarsson, 17 ára nemi í Verzlunarskóla lslands 0 Ég held að það sé ekki neinn ákveð- inn punktur sem öðrum fremur hefir mótað mínar pólitísku skoðanir, en þó eru nokkur atriði, sem ég tel vert að minnast á. Þau eru: lestur bóka og blaða, skólagangan og síðast en ekki sízt ferð mín til Ungverjalands 1968, þar sem maður gat tínt vélbyssuskot úr veggjum húsanna, mönnum með myndavélar, t.d. föður mínum, var ógn- að með byggustingjum og almenningur allur bjó við stórlega skert mannrétt- indi. Stefnuskrá Heimdallar var og er í samræmi við minn þankagang og mér fannst það einfaldlega vera það minnsta er ég gæti gert fyrir útbreiðslu hugsjóna minna að ganga í Heimdall. Auk þess tel ég það skyldu hvers manns er býr við lýðræðisþjóðskipulag að hafa nokkra þekkingu á þjóðmálum til þess að geta veitt stjórnendum nægi- legt aðhald og áttað mig á málum líð- andi stundar. Og þá þekkingu tel ég að Heimdallur geti veitt mér. Samfara því gefst mér tækifæri á að koma skoðun- um mínum á framfæri, kynnist fólki með svipuð áhugamál og skoðanir og get byggt upp þekkingu mína á þjóð- málum með þátttöku í t.d. stjórnmála- námskeiðum, klúbbfundum og fleiru slíku. Auk þess höfum við aðgang að pólitísku bókasafni og er það vissulega gagnlegt. Hagsmunamál ungs fólks er nokkuð sem Heimdallur hefur látið til sín taka. Ungt fólk stefnir hátt, það keppist við að mennta sig og koma sér upp þaki yfir höfuðið. Byggingarsamvinnufélag ungs fólks, Byggung, var upphafiega stofnað af framtakssömum félags- mönnum og stjórn Heimdallar og hefur þátttakan í því félagi verið aðdáunar- verð. F3n aðalbaráttumálið held ég að sé nú eins og alltaf hin endalausa leit að hamingjunni og hvort Heimdallur get- ur gert meira á því sviði en að hafa óbein áhrif er erfitt að segja til um. í dag er Heimdallur stærsta stjórn- málafélag ungs fólks og verður svo vafalaust um nokkra framtíð, áhrif fé- lagsins og út á við og innan Sjálfstæðis- flokksins hljóta’ því að vera nokkur. Heimdaliur er það afl innan flokksins sem gefur hvað mestan gaum þeim hugsjónum sem flokkurinn í orði fylgir og hjá félaginu er lítið um það að hagsmunir ýmiss konar séu farnir að flækjast fyrir hugsjónunum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.