Morgunblaðið - 17.02.1977, Side 42

Morgunblaðið - 17.02.1977, Side 42
42 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGURJ7. FEBRÖAR 1977 Ahugi og hlýhugur landsmanna mun hjálpa landsliðsmönn- unum í Austurríki - SAGÐIJANUSZ CERWINSKI — ÉG hef trú á að íslenzka lands- liðið standi sig það vel i keppninni í Austurríki, að það öðlist þátt- tökurétt í A heimsmeistarakeppninni i Dan mörku að ári, sagði Jnusz Cerwinski landsliðsþjálfari á fundi með fréttamönnum i gær, en islenzka landsliðið heldur utan til keppninnar i Austurriki n.k. sunnudag. Mun það leika tvo æfingaleiki i Austurriki áður en sjálfur slagurinn hefst, en sem kunnugt er leika íslendingar i riðli með Portúgölum og Austur- þjóðverjum. Tvö þessara landa komast síðan áfram i milliriðil, þar sem fjögur lönd keppa siðan um að komast áfram i úrslitakeppn- ina. — Það hjálpar islenzka landslið inu tvimælalaust mjög mikið hversu mikill og almennur hand- knattleiksáhugi er rikjandi hér á íslandi, sagði Janusz. — Leik- menn landsliðsins gera sér grein fyrir þessu, og það hjálpar þeim til þess að leggja sig alla fram i keppninní í Austurriki og ná þeim árangri sem þjóðin væntir af þeim. í Austurríki lýkur verkefni Jan usar Cerwinski með islenzka landsliðið, a.m.k. i bili. Sigurður Jónasson, formaður Handknatt leikssambands íslands, sagði á umræddum blaðamannaf undi Í gær, að HSÍ myndi leggja mikið kapp á að reyna að fá Janusz til áframhaldandi starfa, ekki sizt ef svo vel tækist til að okkar liði tækist að komast áfram i heims meistarakeppninni. — Við vissum það þegar Janusz kom hingað að hann væri frábær þjálfari, sagði Sigurður, — en við gerðum okkur hins vegar ekki grein fyrir því, hversu frábær þjálfari hann var fyrr en hann fór að vinna með liðinu okkar. Og það sem meira er — Janusz er einnig góður félagi, litillæti og kurteisi situr í fyrirrúmi hjá honum, og því óhætt að taka undir þau orð sem fram komu í leiðara Dagblaðsins fyrir skömmu að hann væri sennilega vinsælasti gesturinn sem gisti ísland um þessar mundir. Ég vildi raunar segja að hann sé einn af beztu gestunum sem við höfum fengið. HSÍ mun leggja á það mikið kapp að fá Janusz til áframhaldandi starfa, en hann hefur hins vegar ekki viljað gefa okkur ákveðin svör. Vill bfða og sjá hvað setur í keppninni í Austurriki EKKI NÓG BARÁTTA Rætt var við Janusz Cerwinski um leiki íslenzka landsliðsins við pólska meistaraliðið SLASK, en sem kunnugt var árangur okkar manna fremur slakur í þeim leikj- um, sérstaklega til að byrja með. — Þetta á sér eðlilegar skýr- ingar, sagði Janusz. Leikmenn íslenzka liðsins voru orðnir þreytt- ir, og einnig kom fram sú tilhneig- ing hjá þeim eftir sigurleiki við Pólverja, Tékka og Vestur- Þjóðverja, að unnt væri að sigra póslka liðið, án þess að leggja sig fram. Þetta orsakaði baráttuleysi í liðinu og varð þvi að falli f leikjun- um gegn SLASK. Eftir tvo tapleiki gegn SLASK ræddum við málin, og gerðum okkur grein fyrir þvf að enginn leikur vinnst baráttulaust. í kjölfar þess náðist svo upp betri barátta í leiknum f Hafnarfirði, en verið hafði f tveimur fyrri leikun- um, og f tveimur síðustu leikjun- um við SLASK var baráttukraftur og sigurvilji aftur kominn f fslenzka liðið. Ég viðurkenni að fslenzku leikmennirnir hafa átt erfiða daga við æfingar og leiki að undanförnu, en taldi nauðsynlegt að láta þá leika dag eftir dag. í keppninni f Austurrfki getur farið svo að við verðum að leika 5 leiki á 8 dögum. Slfkt er vitanlega gffurlega erfitt, en ég hef trú, að fslenzku leikmennirnir geti staðist það álag. ÓTTAST TAUGASLAPPLEIKA Þegar Janusz var að því spurður hver hann teldi vera veikustu hlið fslenzka landsliðsins, svaraði hann því til, að hann óttaðist mest, að leikmennirnir yrðu slappir á taug- um f leikjunum f Austurrfki. Þar væri álagið mikið og til mikils að vinna. Það hjálpaði samt að mæta Portúgölum fyrst, og gætu okkar menn ef til vill yfirunnið skrekkinn f þeim leik. Janusz var einnig að þvf spurð- ur, hvort hann hygðist tefla okkar Framhald á bls. 28 Viggó Sigurðsson skorar fyrir landsliðið í leiknum gegn SLASK í fyrrakvöld. Ljósm Mbl. Kr. ÓI Yngri leikmennirmr sáu um að SLASK fór ekki ósigrað LANDSLIÐINU tókst Ioks að bera sigurorð af pólska félagslið- inu SLASK i fimmtu viðureign liðanna á jafn mörgum dögum í Laugardalshöllinni á þriðjudags- kvöldið. Urslit leiksins urðu 19:17 fyrir landsliðið, en í leikhléi leiddu Pólverjarnir með einu marki 10:9. Fjórir af sterkustu leikmönnum landsliðsins voru ekkert notaðir á þriðjudaginn. GÚÖÁR GJAFIR FRÁ þvi var skýrt á blaðamannafundi HSÍ i gær, að sambandinu hefðu borist að gjöf frá bæjarfélögum og einstaklingum peningar að upphæð um 1,5 milljónir króna. Sagði Sig urður Jónsson, formaður HSÍ, að þessi framlög myndu reynast ómetanleg fyrir HSÍ. Sagt verður nánar frá þessum gjöfum t blaðinu á morgun, en geta má þess að í gær- kvöldi ákvað bæjarstjórn Hafnar fjarðar að færa HSÍ 200.000,- kr. að gjöf. sem sérstakan þakklætisvott til landslíðsíns vegna frábærrar frammi- stöðu þess að undanförnu. Jón fyrirliði Karlsson, Ölafur markvörður Benediktsson og Við- ar fyrrum landsliðsþjálfari Sím- onarson eru allir lítillega meiddir og voru því ekki notaðir og Geir Hallsteinsson var alveg hvíldur í leiknum. Við hlutverkum þessara kappa tóku yngri mennirnir i lið- inu og þeir, sem minna hafa verið notaði að undanförnu. Áttu þeir Gunnar Einarsson, Þorbergur Aðalstéinsson og Viggó Sigurðs- son allir mjög góðan leik og má reyndar segja að Þorbergur hafi í þessum leik slegið í gegn með landsliðinu. Fyrri hálfleikurinn var nokkuð jafn og í hálfleik 10:9, en Pól- verjarnir voru þó yfirleitt á und- an til að skora. I byrjun seinni hálfleiksins komst landsliðið með mjög góðum kafla í 14:11, en þá tók kappinn Klempel til sinna ráða og jafnaði leikinn á ný með þremur mörkum. Var Klempel í gæzlu Viggós Sigurðssonar nær allan leikinn, en var hvíldur þennan kafla og tókst Bjarna Guðmundssyni ekki að hafa eins góðar gætur á Klempel og Viggó. Síðustu minútur leiksins voru mjög spennandi og munaði aðeins einu marki þegar tvær mínútur voru eftir. Pólverjar reyndu skot, sem Gunnar varði. Landsliðið hóf sókn, sem endaði með vitakasti en Þorbjörn misnotaði það. Aftur fengu Pólverjarnir boltann, en misstu hann og enn var dæmt á þá vítakast og tókst íslenzka liðinu að skora, þannig að sigur var f höfn, 19:17, og Slask fór ekki ósigrað af landi héðan. , Eins og áður sagði voru þeir sterkastir i þessum leik Gunnar i markinu, sem varði allan leikinn mjög vel, Þorbergur sem var pott- urinn og pannan í spilinu allan leikinn og mjög ógnandi og Viggó Sigurðsson sem gætti Klempels mjög vel, átti góðar sendingar á Björgvin, en var nokkuð óhepp- inn með skot sin í leiknum — þrjú stangarskot. Þá má ekki gleyma Björgvin Björgvinssyni, sem allt- af stendur fyrir sínu, sama á hverju gengur. Mörk landsliðsins: Þorbergur 6, Þorbjörn 5, Björgvin 3, Ólafur 2, Ágúst 2, Viggó 1. Markhæstir í liði Slask voru Klempel með 6 mörk og Sokolowski með 5 mörk. Björn Kristjánsson og Óli Olsen dæmdu leikinn allvel. —áij. Reykjavlkurmeistarar Fram I handknattletk kvenna. asamt þjáltara slnum GuSjóni Jónssyni og Jóni FriSsteinssyni, formanni handknattleiksdeildar félagsins. FRAMSTÚLKURNAR urðu Reykjavíkurmeistar- ar í meistaraflokki kvenna á þriðjudaginn er þær sigruðu Val í hreinum úr- slitaleik með 11 mörkum gegn 8. Sigur Framstúlkn- anna var sanngjarn í þess- um leik og var Iiðið aldrei undir í leiknum. Þrjú lið urðu efst og jöfn í Reykja- víkurmótinu hjá kvenfólk- inu í haust, Iið KR auk Fram og Vals. Þurfti því aukakeppni milli þessara þriggja liða, KR tapaði báðum leikjum sínum og Fram vann sfðan Val á þriðjudaginn eins og áður sagði. Framliðið náði þriggja marka forystu í leiknum á þriðjudaginn með 2 mörkum Guðriðar og marki Jóhönnu áður en Valsliðinu tókst að svara. I leikhléi var munurinn þó aðeins eitt mark, 4:3 Fram í vil. Valur jafnaði síðan fljótlega í byrjun seinni hálfleiksins, 5:5, en þá kom aftur góður kafli hjá Fram og staðan varð 10:6. Liðin skiptust síðan á um að skora og lauk leiknum með 11:8 sigri Fram. Oddný, Guðríður og Jóhanna voru atkvæðamestar i liði Fram I leiknum. Oddný gerði 3 mörk, Jóhanna og Guðriður 2 hvor, Kristín og Bergþóra 1 hvor. Ragn- heiður Blöndal gerði 3 mörk Vals, Harpa og Björg Jónsdóttir 2 hvor, Halldóra 1 mark. Oddný, Guð- rfður og Ragnheiður misnotuðu vítaköst í leiknum. — áij. FRAMSTÚLKURNAR URÐU REYKJAVÍKURMEISTARAR: Unnu erkinvininn Val með þriggja marka mun

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.