Morgunblaðið - 24.02.1977, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 24.02.1977, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. FEBRÚAR 1977 Séð frá höfninni og upp í bæinn, þar sem búa tæplega 500 manns. Loðnubræðslan yrði mikil lyftistöng” \*M\n\),i\nA \ sÝYóAa^öA ö wuVv\H\n\\)rSH f\ossita\&\nftk mvuVv$\ ö\ s önöönW — ÍBÚAFJÖLDINN hefur heldur sigið upp á við undanfarin ár og er samkvæmt síðasta manntali 458, sagði Bjarni Aðalgeirsson sveitar stjóri á Þórshöfn er Morgunblaðið rabbaði við hann nyrðra fyrir skömmu síðan. Fyrir allmörgum ár- um voru fleiri fbúar á Þórshöfn, er unnið var við framkvæmdir á Heiðar fjalli Þórshafnarbúar byggja afkomu sína á fiskveiðum og fiskverkun. en eínnig er nokkur atvinna af þjón- ustugreinum. — Það sem okkur Þórshafnarbú um finnst blóðugast er að loðnan skuli vera hérna rétt fyrir utan bæjardyrnar hjá okkur, en við getm ekki brætt loðnu hér enn sem komið er, segir Bjarni sveitarstjóri. — fiski þurfi að berast á land á Þórs höfn á ári til þess að það standi undir sér. — Við höfum tæki til að afla þessa tonnafjölda, en sfðustu tvö árin hefur það ekki tekizt. Á sfðasta ári bárust t.d. aðeins innan við 2000 tonn hingað, en með togarann að veiðum allt árið og þessa aukningu f bátaflotanum, sem varð á sfðasta ári, ættum við að fara langt með að ná þessum afla. — Þetta hefur verið óskaplega dauft tvö sfðustu árin og sú öfluga bátaútgerð, sem hér hefur verið er því miður á undanhaldi. Ég er þó bjartsýnn á að fiskurinn komi aftur á heimamið okkar vegna friðana á stóru svæðum, en rányrkja undan- farinna ára hetur nær þurkað út heimamiðin. GATNAGERÐIN STÆRSTI LIÐUR INN Kvöldið áður en Morgunblaðs menn heimsóttu Þórshöfn hafði fjár- hagsáætlun bæjarins verið sam- þykkt. Áður en vikð er að henni og helztu framkvæmdum á Þórshöfn er rétt að geta þess að f sveitarstjórn sitja fulltrúar flestra stjórnmála- flokka, en aðeins einn listi kom fram við sfðustu kosningar. Þar var ekki stillt upp listum samkvæmt flokka- pólitfk. Sagði Bjami að hann teldi þessa lausn mun heppilegri, þvf flokkspólitfsk átök hefðu iðulega neikvæð áhrif fyrir Iftil byggðarlög. — 1 ár er samkvæmt fjárhags- áætluninni áætlað að 25 milljónir króna fari f gatnagerð og þá aðallega lagningu varanlegs slitlags, heldur Bjami áfram. — 14 milljónir fara til fræðslumála, þar af 10 milljónir f byggingu nýs skóla, sm byrjað verð- ur á f sumar. Stefnt er að þvf að f sumar verði byrjað á byggingu dval- arheimilis fyrir aldraða hér á Þórs- höfn og þá f samvinnu við Sauðanes- hrepp og Svalbarðshrepp. Hér hefur verið starfrækt dagheimili f Félags- heimilinu fyrir 25 börn og hefur það gefizt vel, enda eru húsmæðurnar helzta vinnuaflið f frystihúsinu yfir háveturinn. Næsta sumar verður væntanlega byrjað á byggingu dag- heimilis hér. Bjarni Aðalgeirsson sveitarstjóri. Félagsheimilið Þórsver, þar sem að undanförnu hefur verið rekið dagheim- ili. Verksmiðjan hér, sem er f eigu Hrað- frystihúss Þórshafnar, er ekki full- búin tækjum og vantar nokkra tugi milljóna svo hún geti tekið á móti loðnunni. Það fjármagn hefur ekki fengizt, en við vonum að fyrir næstu loðnuvertfð takist að útvega þetta fé. Framleiðslugeta verksmiðjunnar yrði 300 tonn á sólarhring og vissu- lega myndi muna um slfka verk- smiðju á þessum stað, þegar löndun- arbið er alls staðar. Yfir háveturinn er daufasti tfminn hér og því yrði loðnan okkur mikil lyftistöng. Höfum við reyndar átt viðræður við Vita- og hafnamálastjórn um breytta fram- kvæmdaröð á þeim verkefnum, sem fyrirhugað er að sinna hér. Höfum við góðar vonir um að byrjað verði á dýpkunarframkvæmdum f höfninni, þannig að stór, hlaðin loðnuskip geti siglt hér inn án erfiðleika næsta vetur. BJARTSÝNN Á AÐ FISKURINN KOMI AFTUR Tvö ný skip voru keypt til Þórs- hafnar á síðasta ári, skuttogarinn Fontur og Langanesið, sem er 100 tonna bátur. Nýtt frystihús var tekið f notkun á Þórshöfn á sfðasta ári og segir Bjarni okkur að 4000 lestir af Frá höfninni lengst til vinstri sér á geyma verksmiðjunnar, sem Þórs- Þó svo að nóg pláss sé í bilnum þá er miku skemmtilegra að sitja í kerrunni og láta draga sig um snævi þaktar göturnar. hafnarbúar vona að bræði loðnu strax á næstu vertíð. 17 KANDIDATAR Á 2 ÁRUM — Um heilbrigðismálin er það að segja að hér er kominn vfsir að heilsugæzlustöð í læknisbústaðnum Hér eiga að vera tveir læknar sam- kvæmt lögum, en enn er aðeins einn. Höfum við reyndar haft 17 læknakandidata á tveimur sfðast- liðnum árum, eftir að Úlfur Ragnars- son tók við Kristnesi. Læknirinn þjónar einnig Raufarhöfn, en þar er aðeins hjúkrunarkona og hefur lækn- irinn að minnsta kosti einu sinni þurft að fara héðan til Raufarhafnar á snjósleða f sjúkravitjun. Samgöngumálin eru mikið hags- muna- og baráttumál fyrir fólkið hér um slóðir og finnst okkur að ryðja þyrfti leiðina milli Þórshafnar og Raufarhafnar oftar en tvisvar sinn- um f mánuði. Þyrfti að vera meira samspil milli heilbrigðis- og sam- gönguráðuneytisins um þessa hluti til að tryggja öryggi fólks sem allra bezt. Þá er flugvöllurinn hér fyrir utan aðeins með einni braut og er illa búinn tækjum. Þyrfti bæði að lýsa hann og gera við hann þver- braut, þar sem flugið er stóran hluta ársins okkareina samgönguleið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.