Morgunblaðið - 24.02.1977, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. FEBRUAR 1977
25
Ve8‘te'",li: Eldri lánakostnaður og
halli fyrri áætlana þungbær
— Þingmenn telja áætlunina skerða vegaframkvæmdir
Aukið átak t
vegagerð
mjög brýnt
Halldór E. SigurKsson. samgóngu-
ráðherra. mælti fyrir samgönguáætlun
áranna 1977 — 80 1 sameinuðu þingi
sl þriðjudag Áætlunin er gerð til fjög-
urra ára, en hana ber að endurskoða
eftir tvö ár. Ráðherra sagði að tekjur
vegaáætlunar hækkuðu um 26% I
krónum talið á árinu 1977. miðað við
fyrra ár. sem þýddi. að heildar fjárhæð-
in hefði svipað framkvæmdagildi og á
fyrra ári. miðað við verðlagshækkun
milli áranna
Ráðherra sagði tekjuáætlun vega-
mála hafa orðið fyrir áföllum síðan
1965. þ e. svokallaðir markaðir tekju-
stofnar Verðhækkun benzinskatts í
söluverði benzíns hefði lækkað úr
51.9% 1973 125% 1977
Miðað við verðlag ársins 1977, og
að inn í dæmið séu tekin útgjöld rikis-
sjóðs vegna vaxta. verðbreytinga og
afborgana af lánum til vegagerðar. hafi
framlög til vegamála orðið svo á
undangengnum árum: 1971 7.2 millj-
arðir, 1973 8.7 milljarðir, 1975 6 9
milljarðir og 1977 6.9 milljarðir Sé
dæmið sett upp prósentvis og útgjöld
vegna vegamála 1971 lögð til grund-
vallar sem 100, verði vegafé 1977
96% og 1978 101%.
Ráðherra gat þess að greiðslur
vegna lána til vegamála hefðu aukizt
mjög á liðnum árum. Árið 1972 hefðu
vextir og afborganir, með verðtrygg-
ingu aðeins numið 100 m.kr. en árið
1977 hins vegar hvorki meira né
minna en 1.300 m.kr. Auk þess þyrfti
rikissjóður nú að greiða upp halla, sem
orðið hefði á vegaáætlun fyrri ára. sem
næmi hundruðum milljóna króna.
Hvort tveggja þetta drægi verulega úr
framkvæmdagetu nú. og væri megin-
ástæða þess. að framkvæmdir yrðu nú
minni en æskilegt værí.
í sambandi við lántökur á vegaáætl-
un 1 977 og 1978 sagði ráðherra. að á
þeim árum yrði notuð heimild i lögum
um norður- og austurveg um happ-
drættisskuldabréf allt að 1000 m.kr.
Samkvæmt lögunum færi 60% fjár-
hæðarinnar til vegarins Reykjavík —
Akureyri en 40% Reykjavik — Egíls-
staðir. „Þetta þýðir að sjálfsögðu,''
sagði ráðherra, „að nýta verður af
þessu fé i þær nýbyggingar, sem unnið
verður að á þessum landsvæðum, eins
og t d. brúargerð yfir Borgarfjörð og
fleiri verkefni, Holtavörðuheiði og
áframhald á veginum kringum Blöndu-
ós og einnig austur ''
Hlutur vegaviðhalds I heildarfjárnýt-
ingu fer vaxandi á kostnað nýfram-
kvæmda. Af þvi fjármagni sem fer til
nýframkvæmda fer 80% til stofnbrauta
og 20% til þjóðbrauta.
Ráðherra itrekaði að markaðar tekjur
til vegamála hefðu rýrnað verulegga
Einnig hefðu greiðslur rikissjóðs vaxið
mjög vegna skuldasöfnunar, sem
kæmu að nokkru móti tekjum rikis-
sjóðs af umferð, en þar væri söluskatt-
ur fyrirferðarmestur Sú stefnubreyting
væri i þessari áætlun, að hlutur við-
haldsfjár væri aukinn á kostnað ný-
bygginga Ennfremur væri veruleg
aukning sýsluvegafjár, I mjólkurflutn-
ingafyrirgreiðslu og til aksturs skóla-
barna i strjálbýli Ráðherra sagðist
gjarnan viljað hafa rýmra fjármagn til
vegamála Hins vegar væri um aukn-
ingu fjár að ræða. þegar alls væri gætt,
einkum á árinu 1 978
Vegaframkvæmdir
skornar niður
Geir Gunnarsson (Abl) sagði m a .
að sýnt væri nú, þegar vegaáætlun
kæmi loks fram seint og um síðir, að
skera ætti verulega niður allar vega-
framkvæmdir I landinu. Fjárveiting til
nýrra vegaframkvæmda á árinu 1974
nam 1633 m.kr. Fjárveiting á árinu
1977. sem væri jafngild fjárveitingu
1974 í raun, þyrfti að vera 4527
m.kr. en ekki 2.260 m.kr., eins og hér
er lagt til. Framkvæmdir við nýja þjóð-
vegi á yfirstandandi ári eiga því að
nema aðeins 49.9% af hliðstæðum
framkvæmdum 1974 Framkvæmda-
rýrnun miðað við sl ár væri nær 30%.
Þingmaðurinn sagði heildártekjur
ríkissjóðs af umferðinni, innflutnings-
gjald, tollar af benzini, toilar af bifreið-
um, söluskattur o fI., nema 8150
m.kr. á árinu 1977. Framlög ríkissjóðs
til Vegasjóðs væri hins vegar aðeins
2079 m.kr. Þarna væri því um að
ræða 6071 m.kr. mismun, nettóhagn-
að í ríkissjóð, sem væri nær þreföld sú
upphæð, sem verja ætti til fram-
kvæmda við nýja þjóðvegi á árinu
Vegaframkvæmdir væru einn stærsti
þáttur í framkvæmd raunhæfrar
byggðastefnu. Samdráttarstefna ríkis-
stjórnarinnar kæmi því hvað þyngst
niður á hagsmunum landsbyggðarinn-
ar.
Afleiðing efna-
hagserfiðleika
Halldór Ásgrímsson (F) sagði Ijóst
að minna fjármagn væri nú til ráðstöf-
unar til nýframkvæmda i vegagerð —
að verðgildi. Rangt væri að tala um að
ríkissjóður hrifsi til sin vegafé. þegar
um söluskatt af benziní væri að ræða
Þar væri um tekjur að ræða, sem
rikissjóður þyrfti til annarra hluta
Markaðir tekjustofnar til vegamála
hefðu lækkað úr 43% i 25% af benzin-
verði Ef verja ætti söluskattstekjum i
rikara mæli til vegagerðar. þyrfti til að
koma viðtækur sparnaður annars stað-
ar t ríkiskerfinu. Tillögur um þann
sparnað hefðu enn ekki komið fram
Þingmaðurinn sagði erfitt og nær
óvinnandi verk að skipta tiltæku fjár-
magni millí nauðsynlegra fram-
kvæmda Þvi kæmi mjög til athugunar
að afla Vegasjóði meiri tekna og væri
vonandi að þingmenn gætu staðið
saman að slikri gjörð Hins vegar væri
það rétt stefna að leggja þyngri áherzlu
á viðhald vega Hörmulegt væri að sjá
nýja vegi grotna niður vegna viðhalds-
skorts. Þá lagði þingmaðurinn áherzlu
á samgönguáætlun fyrir Austurland,
sem hann gerði grein fyrir i itarlegu
máli
Hi8 gullna tækifæri
Helgi F. Seljan (Abl) sagði m.a. að í
vegamálum ætti hver ríkisstjórn sitt
gullna tækiíæri til að sýna alvöru um
raunhæfa byggðastefnu. En andhverfa
réttrar byggðastefnu hefði hvergi birzt l
skýrara Ijósi en í þessari vegaáætlun.
— Hann lagði áherzlu á þá stefnu-
mörkun að vegir I snjóahéruðum hefðu
forgang í framkvæmdum
Helgi taldi nýframkvæmdir mundu
dragast saman um 25 — 30% frá
fyrra ári Að auki ætti að verja til einnar
stórframkvæmdar 1/4 til 1/5 :f öllu
f ramkvæmdafénu.
Helgi ræddi sérstaklega ýmsar
landshlutaáætlanir í vegagerð, einkum
Austurlandsáætlun — og sagðist
vænta þess, að staðið yrði við bindandi
samkomulag við þingmenn kjördæmis-
ins um tilteknar vegaframkvæmdir í
kjördæminu.
Þingmaðurinn rakti ítarlega efnis-
atriði nýrra vegalaga, sem hann hefði
ekki verið sáttur við í einu og öllu, en
væru þó viðunandi samkomulagsleið
og tryggðu hag landsbyggðar betur en
ýmsar aðrar hugmyndir, sem þá hefðu
verið uppi.
Hann minnti og á lögin um sérstaka
fjáröflun. markaða Norður- og Austur-
vegi, sem fjölluðu beinlínis um sér-
staka skiptingu ákveðins innlends láns
(happdrættisláns) til þessara fram-
kvæmda.
NorSur- og
Austurvegur
Eyjólfur KonráS Jónsson (S) gerði
lögin um happdrættislán til Norður- og
Austurvegar að umtalsefni. í vegaáætl-
un væri tekjuöflun vegna lánsfjár færð
ósundurliðuð Æskilegra hefði verið að
sundurliða þá fjárhæð. Hann minnti á
yfirlýsingu á Alþingi frá fyrra ári, sém
fæli i sér, að a.m k. 850 m.kr. færu til
þessara framkvæmda. þ.e. 350 m.kr.,
sem lánaðar hefðu verið í annað á sl
ári, en lofað endurgreiðslu á 1977,
auk nýs 500 m.kr. útboðs í raun þyrfti
fjárhæðin hærri að vera því visSulega
hefði verðgildi fjármagnsins rýrnað frá
því á sl. ári. Eyjólfur vitnaði til gildandi
laga um happdrættislánið. þar sem
segir: „Fjármunir. sem inn koma fyrir
sölu happdrættisskuldabréfa, skulu
renna til Vegasjóðs og skal þeim varið
að % hlutum til að greiða kostnað við
gerð Norðurvegar milli Akureyrar og
Reykjavfkur og Vi hluta til að greiða
kostnað við gerð Austurvegar milli
Reykjavikur og Egilsstaða."
Það fari þvi ekki milli mála að skylt
sé að veita umræddu fjármagni, 2000
m.kr., til umræddra framkvæmda á
tilteknu tímabili. Vitnaði hann og tii
greinargerðar með viðkomandi frum-
varpi, þar sem skýrt kemur fram að
þrátt fyrir sérstaka fjáröflun, skuli ekki
skerða fjármagn á vegaáætlun til
Norðurlands. í því efni visaði hann
ennfremur til framsögu með frumvarp-
inu. þar sem m.a. er vitnað til sam-
stöðu i fjárhags- og viðskiptanefnd um
það. að slik séröflun fjármagns til
meiriháttar verkefna i vegagerð eigi sér
stað, án þess að skipting vegafjár á
vegaáætlun raskist.
Ég tel þvi vafasama lögskýringu hjá
samgönguráðherra, að eitthvað af
þessum fjármunum, sem nú er út
boðið. skuli renna til svokallaðrar
Borgarfjarðarbrúar. en ákvörðun um
Borgarfjarðarbrú var tekin áður en
frumvarpið um happdrættislánið varð
að lögum Án þess að ég lasti þá
framkvæmd út af fyrir sig, var það, að
ég hygg. ekki meining þingmanna, að
afla með umræddum lögum um
Norðurveg fjármagns til Brúargerðar
yfir Borgarfjörð
Ég tel. sagði þingmaðurinn, að þvi
er varðar Norðurveg, að megináherzlu
beri að leggja á það að fullgera veginn
á Holtavörðuheiði, á Öxnadalsheiði. að
bæta veginn í Norðurárdal og vegi i
Skagafirði. Þar eru vegir enn slæmir
t.d. á Önundarfj.hálsi, sem að sögn
vegamálastjórnar var versti vegar-
kaflinn á öllum hringveginum á sl.
vori. Það var meining flutningsmanna
að Norðurvegur yrði fyrst og fremst
byggður upp eins og það er kallað, en
jafnframt hafizt handa við bundið slit-
lag Slik uppbygging þarf fyrst og
fremst að ná til snjóþyngstu
héraðanna. Varðandi bundið slitlag
þarf heldur ekki að miða allt við lögn
útfrá Reykjavik, heldur við fjölförnustu
vegarkaflana, þó fjær liggi.
Blönduós—
Skagaströnd.
stofnbraut.
Páll Pétursson (F) tók undir orð
Eyjólfs varðandi ráðstöfun
happdrættisfjár samkvæmt sérstökum
lögum um Norður- og Austurveg Páll
fór viðurkenningarorðum' um Vega-
gerðina sem fyrirmyndarrikisstofnun
„En ég gaeti nú samt hugsað mér að
vald þingsins mætti vera meira og
betur tryggt" i þessum málaflokki Páll
sagði ekki óeðlilegt. með hliðsjón af
aðstæðum, þó vegaáætlun kæmi
síðbúin til þings. Hún væri og þröng.
miðað við óskir og góðan vilja manna.
en með hliðsjón af efnahagsað-
stæðum, horfir myndin máske öðru
visi við
Póll lagði áherzlu á að lita yrði á
veginn Blönduós- Skagaströnd sem
stofnbraut, Ég sé hann hins vegar ekki
á stofnbrautalistanum. Hann vitnaði til
ákvæða i vegalögum um frávik frá
meginreglu um ibúafjölda. þar sem um
er að ræða tengingu kaupstaða eða
kauptúna, sem mynda samræmda
heild frá atvinnulegu og félagslegu
sjónarmiði" Svo væri i þessu efni um
Skagaströnd og Blönduós
Rýrnun ný-
framkvæmda 30%.
Stefán Valgeirsson (F) fjallaði á vitt
og breytt um vegaáætlun og lands-
hlutaáætlanir í samgöngumálum. sér-
staklega á Norðurlandi Hann taldi
framkvæmdafé skv vegaáætlun u.þ b
30% rýrara að verðgildi en á sl. ári,
þ.e. til stofnbrauta og þjóðbrauta.
Þingmaðurinn taldi nær frágangssök
að skipta þessu fjármagni, svo viðun-
andi væri, nema að nokkur hundruð
milljóna króna fengjust til viðbótar.
sem launfé eða eftir nýjum fjáröflunar-
leiðum.
Margt óráðið
í þessu plaggi.
Sigurlaug Bjarnadóttir (S) taldi
margt óráðið í vegaáætlun, sem erfitt
væri að glöggva sig á. fyrr en eftir
skoðun og meðferð í fjárveitinganefnd
Hún fagnaði aukinni áherzlu. sem lögð
væri á vegaviðhald én uggandi væri
hún um framgang nýrra verkefna. Hún
lagði áherzlu á nýjar leiðir til tekjuöfl-
unar fyrir Vegasjóð. sem fremur bæri
að huga að en erlendum lántökum sem
virtust nægar fyrir.
Sigurlaug vék sérstaklega að verk-
efnaþörf á Vestfjörðum g minnti á veg
yfir Breiðadalsheiði. milli ísafjarðar og
Önundarfjarðar, á Óshliðina. veg yfir
Önundarfjörð og yfir Dýrafjörð
SíSbúin
vegaáætlun.
Sighvatur Björgvinsson (A) sagði
vegaáætlun siðbúna. eins fleira frá
núverandi rikisstjórn. en slikt skapaði
vandkvæði fyrir þá, sem undirbúa
þurfa framkvæmdir i vegagerð Það,
hve seint áætlunin kæmi fram, hafi
menn afsakað með þvi, að rikisstjórnin
væri að kljást við fjáröflunarvanda.
sem réttlætti drátt á framlagningu. En
sá vandi væri enn óleystur er áætlunin
loks kæmi fram. Ljóst væri að stefnt
væri að beinum framkvæmdasam-
drætti, ef mið væri haft af verðbólgu-
þróun milli ára. Þingmaðurinn sagðist
sakna þess, eins og áætlunin væri úr
garði gerð, hvort og þá hvert tillit væri
tekið til sérstakra landshlutaáætlana.
og ennfremur, að ekki er tekið fram.
hvert er það fé. sem aflað er til sérverk
efna að lögum
Þingmaðurinn sagði að skv lög-
unum um Austur- og Norðurveg. væru
500 m kr. ætlaðar árlega til fram-
kvæmdanna Hins vegar hafi komið
fram i ræðu ráðherra að afla eigi 1000
m kr með sölu happdrættisskulda-
bréfa skv. þessum lögum Sú grun-
semd læðist að manni að þessi tvöföld-
un sé gerð til þess að afla fjár til
brúargerðar yfir Borgarfjörð, því að svo
undarlega vill til, að það fé. sem þarf til
að kosta ráðgerðar brúarframkvæmdir
þar, er því sem næst sú sama fjárhæð
áætlaður sala happdrættisbréfa. vegna
Norður- og Austurvegar, er látm
hækka um
Heils árs vegir.
Ólafur G. ÞórSarson (F) sagðist
ekki ætla fjalla um sérfræðileg heiti.
eins og stofnbrautir, þjóðbrautir og
sýsluvegi Mestu máli skipti að sem
viðast væru til staðar heils árs vegir,
sem þjónuðu þörfum viðkomandi
byggða, og viðkomandi landslaga. s.s
um grunnskóla. um heilbrigðis-
þjónustu, um mjólkurframleiðslu
o.sv frv Skólakerfið og heilsugæzlu-
kerfið væn háð því að hægt væri að
veita eðlilega þjónustu. sem vetrar-
vegir hindruðu oft. Hann benti og á að
það kostaði 25 00 kr að flytja
mjólkurlitra með flugvél vestur á firði.
sem gert hefði verið, sem aftur áréttaði
þörf í vegagerð þar. þannig að svæðið
geti verið sjálfu sér nógt í þessu efni
Það kom fram i máli Eyjólfs Kon-
ráðs, sagði Ólafur, að hægt er að
sanna með óyggjandi rökum. að það
sé þjóðhagslega hagkvæmt að stór-
auka fé til vegaframkvæmda i þessu
landi Þegnarnir þurfa. ef það er ekki
gert. að borga ótaldar fjárhæðir. m.a
vegna aukins viðhalds á farartækjum.
og vegna hægari framleiðsluþróunar.
sem háð er samgöngum Það er að
visu mjög mælt gegn erlendum lán-
tökum. nú sagði Ólafur. einkum i
„æðstu stofnun landsins, Seðla-
bankanum." Þaðan koma þó djarf-
tækar . ráðleggingar um erlendar
skuldir, ef aðrar framkvæmdir eiga i
hlut Ég tel rétt að láta reyna á það á
þessu þingi. hvort ekki er meirihluti
fyrir þvi að verja meira fjármagni til
vegamála. m a. með þvi að setja inn
heimildir til lánsfjártöku. innanlands
og erlendis Ólafur rakti siðan fram-
kvæmdaþörf i vegagerð á Vestfjörðum *
Hann lauk orðum sinum svo: „Ég er i
hópi þeirra manna, sem telja, að það
sé fullkomlega réttlætanlegt að verja
mun hærri fjárhæðum til vegagerðar
en hér er lagt til hvort sem það er gert
með innlendum eða erlendum lán-
tökum eða auknum sköttum Dýrustu
skattarnir og mesta byrðin, sem við
leggjum á komandi kynslóð i þessu
efni er það að hafast litið að í þessum
málum."
niwncmiwnci
Þjóðvegakerfið er dýrt fámennri þjóð í strjálbýlu landi — en
hins vegar „æðakerfi" framleiðslueininga um gjörvallt land
og félagsleg nauðsyn.