Morgunblaðið - 24.02.1977, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 24.02.1977, Blaðsíða 28
28 MOK(iUNBLAÐlÐ, FIMMTUDAOUK 24. FEBRUAR 1977 ..Idnkynning í Kópavogi - Iónkynning í Kópavogi — Iðnkynning í Kópavogi f vélasalnum, en hann er einna stærsti salurinn, jafnstór lagernum. Stærð hans er 63x21 metri. Sjá má leiðslurnar sem liggja frá vélunum, en f gegnum þær fer spónasogið og ryk eftir stóru rörunum í loftinu, niður I kjallarann og hreint loft skilar sér sfðan aftur, þannig að ekki tapast neinn hiti. Trésraiðjan Víðir iif. heimsótt voru um 90% en eru nú 35%. Nú, lánafyrir- greiðsla er lítil, við getum minnt á að það er hægt að fá um 80% kaupverðs togara lánað en iðnlánasjóður lánar ekki nema um 50% af kaupverði véla og um lán til húsnæðis fyrir iðnaðinn eru engar reglur til. Eins og er hafa gömlu atvinnuvegirnir sem þegar hafa fengið langan tíma til uppbyggingar betri aðstöðu til lána, bæði fjárfestingarlána og afurðalána en iðnaðurinn. Varðandi uppbyggingu íslenzkra fyrirtækja er það að segja að þau skortir almennt mjög mikla tæknilega þekkingu og útbúnað til að standast samkeppni frá erlendum fyrirtækjum. í Noregi t.d. eru til fyrirtæki á útkjálkum sem fá greiddar um 2,— kr. norskar á tímann fyrir hvern starfs- mann, og er þetta gert til að styrkja þessi fyrirtæki til að flytja iðnaðarvörur út. Llfsbaráttan stendur um að standast þessa samkeppni, bæði hvað varðar innflutning hingað og um erlenda markaði. Okkar sjónarmið er að byggja fyrirtækið upp á eins fullkominn og hagkvæman hátt og mögulegt er og flytja út. Innanlandsmarkaðurinn Guðmann Héðinsson setur plötur f dflaborinn og Bragi Arason tekur við þeim. Þessi bor getur borað mæti f enda plötunn- ar og ofan og neðan á hana, borar allt sem þarf að bora f borðstofuhúsgögnunum f einu lagi. Byrjadi með 6 menn eru nú yfir 60 TRÉSMIÐJAN Víðir h.f. sem er til húsa við Smiðjuveg 2 f Kópavogi er án efa ein sú stærsta hérlendis og hefur hún nú um eins árs skeið verið starfrækt i nýju húsnæði sem reist var yfir starfsemina í Kópavogi. Guðmundur Guðmundsson, forstjóri Vfðis, rekur nú stutt- lega sögu trésmiðjunnar: — Viðir hefur verið rekinn sem hlutafélag frá árinu 1945, en ég byrjaði árið 1930 með smáverkstæði, fyrst á Ljósvallagötu en síðar við Víðimel. Verkstæðið stækkaði smám saman og störfuðu 6^—8 menn við framleiðsluna. Þegar við fluttum verkstæðið inn á Laugaveg var stofnað hlutafélag um reksturinn, árið 1945, og hefur smáfjölgað starfsmönnum síðan. — Fyrir rúmu ári síðan fluttum við svo hingað í Kópavoginn Er þetta um 7.300 fermetra húsnæði alls, en um 6.300 fermetrar eru notaðir við framleiðsluna Hér starfa nú 65 menn auk skrifstofufólks, sem enn er við Laugaveg, en við ráðgerum að flytja skrifstofuna hingað fljótlega Verzlunin verður hins vegar áfram við Laugaveg- inn. Það er alveg lágmark að hafa hér 65 menn í vinnu, aðstaða er fyrir 120 manns og það þyrfti að nýta hana betur. Og frá þessu barst talið að samkennisaðstöðu íslenzks iðnaðar gagnvart innflutingi og hafði Guðmundur eftirfarandi um hanaaðsegja: — Að undanförnu hafa tollar verið lækkaðir á öllum iðnaðarvörum frá Eftalöndum og er það samkvæmt samningum við Efta og átti að veita iðnaðinum 10 ár til að byggjast upp og aðlagast þessum tollalækkunum. Árið 1 980 eiga tollar af iðnaðarvörum að vera alveg felldir niður, þeir Jóhannes Kristjánsson matar þykktarhefilinn á stólfótum. Það tekur ekki langan tfma að hefla talsvert marga stólfætur. Þessi vél framkvæmir ein 10 atriði, sagar f endanleg- ar stærðir, kantlfmir, sagar sfðan af endunum , pússar kantinn og flötinn, ásamt brúnunum, gerir sem sagt fjölmörg atriði sem hefur áður þurft að framkvæma með mörgum handtökum. er ekki svo stór að hægt sé að framleiða einhæfa vöru til sölu hérlendis, við verðum að leita markaða erlendis. — En það er ekkert hlaupið að því að ná erlendum markaði það þarf bæði mikið fjármagn og margháttaða fyrirgreiðslu. Það tók Finna t.d. 5 ár að komast inn á markað. Félag íslenzkra húsgagnaútflytjenda er samband 12 aðila sem vinnur að kynningu á íslenzkum vörum og leitar markaðar erlendis og það hafa verið seld ýmiss konar húsgögn í Kaupmannahöfn. Einnig hafa verið seld skrifstofuhúsgögn til Skotlands og við vonumst til að geta selt til Bandaríkjanna bæði skrifstofu- og svefnherbergishúsgögn, en nú er verið að leita fyrir sér um sölu þar, sagði Guðmundur Guðmundsson forstjóri Víðis að lok- um. Síðan var gengið um verksmiðjuna og var það sonur hans, Ólafur sem sýndi hvernig fram- leiðsla húsgagna fer fram, en hún fer fram í einum fimm sölum. Þegar gengið er um vinnusalina í Trésmiðjunni Víði má sjá að þar hefur verið lagt allt kapp á hagræðingu og vélvæðingu í einum salnum er lager og þaðan fer efnið í sögunarvélar og svo í hverja vélina á fætur annarri, spónlagningarvél, kantlimingarvél o.s.frv., allt eftir þvi hvað verið er að smíða Áður en hafist er handa er reiknað út hvaða efni þarf i hverja tegund húsgagna og verkið skipulagt og síðan framkvæmt lið fyrir lið unz tilbúinn er skápur, borðstofuborð, stóll, eða nánast hvað sem er. Nú er t.d verið að vinna að stóru verki, innréttingum í húsnæði sem verið er að reisa fyrir verkamannabústaðina i Breiðholti i Reykjavik. Það skiljast enn betur orð Guðmundar um hagræðingu og stærQ markaðarins er þetta mikla húsnæði er skoðað, það hlýtur að þurfa stóran markað þegar hægt er að framleiða svo mikið. Að öðru leyti verður ekki farið út I lýsingar hér, en myndirnar látnar tala sínu máli.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.