Morgunblaðið - 24.02.1977, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 24.02.1977, Blaðsíða 44
\H;IASIN(.ASIMI\N ER: 22480 IHortsiinbliilii!) FIMMTUDAGUR 24. FEBRÚAR 1977 Múlafoss stórskemmdur eft- ir árekstur við norskt skip Engin slys á mönnum - Ovíst í gærkveldi hvort nædist ad draga Múlafoss til hafnar ÁREKSTUR varð í gærkveldi milli Múlafoss, skips Eimskipafélags Islands h.f., og norska skipsins Lys Point í Kattegat eða Jótiandshafi. mitt á milli Halmstad í Svíþjóð og Grená í Danmörku. Norska skipið sigldi inn í miðja bakborðshlið Múlafoss og skömmu eftir áreksturinn kom mjög mikil slagsíða á hann. Engin slys urðu á skipverjum, sem eru 11 en þeir fóru allir eftir áreksturinn um boð í norska skipið, sem í gærkveldi, er Morgunblaðið fór í prentun, var að draga Múlafoss inn til Ilalmstad. Var þá allt í óvissu um það, hvort Múlafoss myndi hafa það inn til hafnar. Spassky ( stellingu kúluvarp- ara að kasta hraunmola ( Prestavík ( nýja hrauninu ( Eyjum ( gær. Ljósmyndir Mbl. Sigurgeir (Eyjum. Hort hinn vígalegasti ( hraun- varpi ( Eyjum ( gær, en ekki fara sögur af því hvor skák- meistarinn hafi haft betur ( hraunvarpinu. Sjá myndir á bls 23 Múlafoss, skip Eimskipafélags tslands. Veiðarfæri Gyllis ólögleg: Skipstjórinn hlaut 210 þúsund kr. sekt MÁL skipstjóra Flateyrar- togarans Gyllis, sem við at- hugun varðskipsmanna reyndist vera með ólögleg veiðarfæri að veiðum norð- ur af Kögri, var í gærdag afgreitt með dómsátt hjá bæjarfógetanum á ísafirði. Hlaut skiptstjórinn 210 þúsund kr. sekt. Það var í fyrrakvöld, að varð- skipsmenn könnuðu útbúnað veiðarfæra nokkurra íslenzkra togara, sem voru að veiðum úti af Kögri. Fóru varðskipsmenn fyrst um borð í bæði Guðbjart IS og Hrönn RE og reyndust veiðarfær- in í báðum tilfellum vera reglum samkvæmt. Þá var farið um borð í Gylli frá Flateyri og við mælingu á möskvastærð á vörpu þessa tog- ara kom í ljós, að þar voru 140—145 millimetrar í möskva 1 stað 155 millimetra, eins og lög- legt er. Varðskipið fylgdi togaranum inn til Isafjarðar, þar sem mál skipstjórans var tekið fyrir hjá bæjarfógetaembættinu og af- greitt með dómsátt eins og áður er getið. Varðskipsmenn fóru einnig i gær um borð í belgíska togarann De Haai og könnuðu þar veiðar- færi og samsetningu afla. Veiðar- færin reyndust reglum sam- kvæmt og þorskurinn i aflanum var yfirleitt stór eða um 70 sm. Þá var einnig farið um borð i fær- eyskt loðnuskip hér á miðunum og kannað hvort sild væri i aflan- um, en svo reyndist ekki vera. Múlafoss var að koma frá Gautaborg, þar sem hann hafði skilað mestu af þeim varningi, sem hann var með og var hann á leið til Kaupmannahafnar, er áreksturinn varð um kl. 20 i gær- kveldi. Þoka var á þessum slóðum og sigldi norska skipið, sem lestar um 700 smálestir (Múlafoss lestar um 2.200 smálestir), beint inn í bakborðshlið hans. Stefni norska skipsins er svokallað persustefni þ.e.a.s. neðan við sjólínu er mikil kúla, sem við áreksturinn gekk inn í undirlest Múlafoss. Hann hallaðist mikið á stjórnborð eftir áreksturinn og var augljóst að mikill sjór var kominn í skipið. Ljósavélar voru enn í gangi eftir áreksturinn. Engin slys urðu á mönnum við áreksturinn en áhöfnin var skömmu eftir áreksturinn flutt yfir í Lys Point. Viggó Maack, skipaverkfræð- ingur Eimskipafélagsins, sagði. er hann var spurður um það, hvort hætta væri talin á því að skipið sykki, að um það væri ekkert unnt'að fullyrða að svo stöddu. Hins vegar kvað hann allt vera gert til þess að bjarga skipinu, sem unnt væri að gera við þessar aðstæður. Stillt veður var á árekstursstað og búast mátti við að skipunum sæktist ferðin held- ur seint til Halmstad og að þau kæmu þangað jafnvel ekki fyrr en í nótt eða morgun. Múlafoss var smíðaður árið 1967, en Eimskipafélagið keypti hann frá Vestur-Þýzkalandi 1973. Framhald af bls. 34 Sjónvarpið kaup- ir litsendingartæki Afnotagjald af litsjón- varpstækjum inn- heimt með 30% álagi ÁKVEÐIÐ hefur verið að innheimta afnotagjald af litasjónvarpstækjum að þessu sinni með 30% álagi. Jafnframt er ákveðið að verja á þessu ári fé til kaupa á tækjabúnaði fyrir Enginn skipstjóri hleður svo skip sitt að því sé ekki borgið” segir Gísli Jóhannsson skipstjóri á Jóni Finnssyni „ÉG er gjörsamlega á öndverð- um meiði við Hjálmar Bárðar- son siglingamálastjóra um það að loðnuskipstjórar ofhlaði báta sína. Það er enginn, sem þekkir betur skipið en skip- stjórinn, og ég mótmæli því, ef taka á af skipstjóra það ákvörð- unarvald að hann ráði hleðsíu skipsins. Ég veit jafnframt að Hjálmar Bárðarson getur ekki bent á neinn skipstapa. þar sem ofhleðsla hefur verið orsökin, heldur hefur of Iftil kjölfesta valdið slysunum." Þetta sagði Gfsli Jóhannsson, skipstjóri á Jóni Finnssyni, ( samtali við Morgunblaðið f gær. Um það, að loðnunefnd væri komin langt út fyrir sitt verk- svið sagði Gísli að hann teidi það ekki rétt. Þessi þróun sagði hann að væri orðin allgömul og augljóst væri að menn kepptust um að verða fljótir í land til þess að skila aflanum, svo að sem stytztur tími liði, unz þeir gætu komizt á miðin aftur. Fyr- ir þetta væri ekki hægt að gagn- rýna loðnunefnd. Um það sem Hjálmar Bárðar- son sagði að loðnuskipin væru ofhlaðin sagði GIsli að oft vant- aði nægilega kjölfestu i skipin, er þau væru komin með ákveð- inn þunga. Ef kjölfesta væri hins vegar nægileg væri ekkert að óttast. Það á alls ekki að taka það vald af skipstjórnarmönn- um, að þeir fái ekki að hlaða eins og þeir telja unnt. Það þekkir enginn skipið betur en Framhald af bls. 44 dMÍímmáiÉím sjónvarpið til útsendingar f lit. Þetta kom fram f fréttatilkynningu, sem Morgunblaðið fékk í gær senda frá menntamála- ráðuneytinu. í fréttatilkynningunni segir ennfremur að hluti af fram- kvæmdafé Ríkisútvarpsins á þessu ári muni fara til örbylgju- sambands við Norðaustur- og Austurland og til endurnýjunar bráðabirgðastöðva sjónvarps sam- kvæmt fyrri ákvörðun. Þá hefur einnig verið ákveðið að fyrstu tækin vegna útsendingar I lit verði keypt á árinu og hafizt verði handa um byggingu nýrra endur- varpsstöðva sjónvarps. Þá segir I fréttatilkynningunni að tillögur milliþinganefndar um fimm ára framkvæmdaáætlun sjónvarps séu til meðferðar hjá ráðuneytinu. W Avísana- málið bíður vegna anna — ÞETTA mál bíöur hérna, ég hef verið upptekinn ( öðrum málum, sagði Þórður Björnsson, rlkissaksóknari, þegar Mbl. spurði hann i gær um ávisana- málið. Eins og fram kom á sinum tlma, óskaði saksóknari eftir rannsókn málsins á breiðum grundvelli, en Hrafn Bragason, umboðsdómari, endursendi málið og óskaði eftir að ranns’ókninni yrði beint I af- markaðri farveg. Hefur málið slðan legið hjá saksónara, en hann hefur lýst þvi yfir I blaða- viðtölum, að hann sé ekki til Framhald á bls. 24.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.