Morgunblaðið - 24.02.1977, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAC.UR 24. FEBRUAR 1977
17
árangurs. Hóta þeir að enn verði
mótmælunum áfram haldið, og er
ekki að vita hvaða brögðum
verður beitt.
Andstæðingarnir eru úr öllum
stjórnmálaflokkum, allt frá
ihaldsömustu flokksmönnum
kristilegra demókrata yfir f rót-
tæka kommúnista, og ber þeim
ekki alltaf saman um baráttuað-
ferðir, eins og gefur að skilja.
Hefur það nokkuð dregið úr
áhrifum mótmælanna, og stund-
um sundrað fylkingunni. Þannig
var það um sfðustu helgi, að and-
stæðingarnir skiptust f tvær fylk-
ingar, og efndi önnur til mótmæla
í Itzehoe, en hin f Brokdorf. Bygg-
ingarsvæðið í Brokdorf líktist
helzt vfggirtu landi, þvf þar hafði
verið komið upp vegartálmunum
og gadavfrsgirðingum, en innan
girðinganna voru um 6.000
lögreglumenn, búnir vopnum,
brynvörðum bifreiðum, þyrlum
og öflugum vatnsdælum til að
sprauta á mannfjöldann, ef á
þyrfti að haida.
1 nágrenni Brokdorf stöðvaði
lögreglan fjölda bifreiða, sem
fluttu andstæðinga kjarnorku-
versins til mótmælafundarins, og
hriti af farþegunum hnffa, kylfur
og táragas, sem bersýnilega átti
að beita gegn lögreglunni. Eins
og fyrr segir kom ekki til átaka f
þetta skiptið, en í fyrri mótmæla-
aðgerðum hafa hundruð manna
— bæði úr röðum lögreglu og
mótmælenda — hiotið meiðsl f
átökum.
Hvernig svo sem áframhaldið
verður við Brokdorf, má búast við
að mótmælin færist eitthvað
suður á bóginn, þvf héraðsstjórn-
in f Neðra Saxlandi fhugar nú að
leggja til landsvæði undir
geymslu geislavirkra úrgangs-
efna. Þar er ætlunin að grafa úr-
gangsefnin djúpt f jörðu, en enn
ekki ákveðið nákvæmlega hvar.
Kjarnorku-andstæðingarnir telja
að takist þeim að koma f veg fyrir
að geymsla fáist undir úrgangs-
efnin, sé slagurinn unnin.
Hún neyðist til
0 Lafði Spencer-Churchill, ekkja sir Winstons
Churchills, fyrrum forsætisráðherra Bretlands,
neyðist nú til að selja málverk, húsgögn og
silfurmuni úr búi þeirra hjóna til að greiða
húsaleigu, hjúkrunargjöld og annan framfærslu-
kostnað. Er þetta haft eftir sonarsyni hennar,
Winston Churchill, sem er þingmaður eins og
afinn var. Sagði hann ástæðurnar fyrir fjárhags-
vanda ömmunnar væru verðbólga, miklir skattar
og álögur, og minnkandi tekjur af fjárfestingum.
„Ég er viss um að afi hefur álitið sig hafa séð
vel fyrir framtíð hennar, en enginn hefði þá
getað spáð fyrir um verðbólguna, skattlagning-
una og minnkandi gildi peninga í heild," sagði
Churchill.
„Eins og allir aðrir, sem aldraðir eru orðnir,
verður amma mín að horfast I augu við fram-
færslukostnað, sem hefur meiren tvöfaldazt, og
tekjur, sem fara rýrnandi Hún á þetta sameigin-
legt með milljónum annarra, aðallega öldruðum,
sem þurfa að lifa á sparifé."
SirWinston Churchill andaðist i febrúar 1 964,
og lét þá eftir sig eignir, sem námu 266.054
sterlingspundum, en af þeirri upphæð tók skatt-
heimtan 109.093 pund. Þriðjung eftirstöðv-
anna fékk svo ekkjan, en % skiptust milli barn-
anna fjögurra.
Lafði Churchill býr i leiguibúð við Hyde Park i
London, en ibúð þeirra hjóna við Hyde Park
Gate var seld eftir lát seir Winstons. Einu tekjur
lafðinnar fyrir utan vexti af fjárfestingum eru
eftirlaun frá rikinu, sem nema 1 5 30 pundum á
viku, eða tæplega fimm þúsund krónum á viku.
Fyrir fimm árum voru samþykkt ný lög i Bret-
landi um að greiða skuli ekkjum ráðherra og
þingmanna sérstök eftirlaun, en þeirra hlunn-
inda nýtur lafði Churchill ekki, þvi lögin verka
ekki aftur fyrir sig
„Leiga hennar hefur rúmlega tvöfaldazt á þeim
1 2 árum, sem liðin eru frá því hún flutti," sagði
Winston Churchill, „og auk þess þarf hún nú að
greiða fyrir hjúkrun. Hún þarf að hafa hjúkrunar-
konu hjá sér á næturnar, og hefur þurft þess allt
frá þvi hún datt og slasaðir fyrir nokkrum árum.
Fara öll eftirlaunin í þann aukakostnað."
Lafði Spencer-Churchill hefur nú ákveðið að
selja tvö málverk eftir sir Winston, og þrjú önnur
málverk úr búi þeirra. Verða málverkin fimm
boðin upp hjá listaverkasölu Christies i London á
föstudag i næstu viku
Lafði Churchill
Feðgin
á þingi
1 ÞINGKOSN-
INGUNUM I
Danmörku I
fyrri viku jók
flokkur mið-
demókrata
mjög fylgi sitt,
eins og fram
hefur komið I
fréttum. Bætti
flokkurinn við
sig sjö þing-
sætum, fékk
ellefu menn
kjörna, en
hafði f jóra.
Meðal þeirra, sem
endurkjöri, var formaður
flokksins, Erhard Jacobsen, og
meðal nýkjörinna þingmanna
var dóttir hans, Mimi
Jacobsen. Mimi Jacobsen er 28
ára, og hefur starfað sem
aðstoðarkennari við Kaup-
mannahafnarháskóla, auk þess
sem hún hefur átt sæti f bæjar-
stjórn Gladsaxe.
1 kosningunum fengu mið-
demókratar rétt rúmlega 200
þúsund atkvæði, eða 6,4%, en
höfðu f kosningunum f jánúar
1975 66.165 atkvæði eða 2,2%.
Ekki er sag-
an þó öll sögð
með þessum
tölum, þvf
kosnningarnar
1975 voru sér-
lega óhagstæð-
ar flokknum. t
kosningunum
1973 fékk
flokkurinn
rúmlega 236
þúsund at-
kvæði, eða
7,8%, og 14
menn kjörna.
Konráð. Skildu svo glaðir. Það
væri notalegt ef minnstu fyrir-
tækin í landinu, heimilin mættu
troða eins og Sambandið fjármun-
um f hina og þessa sjóði, hvort
sem þeir heita nú varasjóðir eða
eitthvað enn ffnna, og heila
klabbið frádráttarbært til skatts.
Svavar er jafnan áberandi vel
heima i þeim málaflokkum sem
hann lætur tilleiðast að ræða —
og það má vera sljór maður sem
misskilur málflutning hans — en
seint mun ég skilja lokaorð hans f
þessum þætti, ósk hans um aukin
umsvif Sambandsins i smásölu-
verzlun í Reykjavfk. Stórrekstur
ýmiskonar hæfir Sambandinu vel
og það framleiðir vandaðar vörur.
Um smásölu gilda allt önnur lög-
mál. Þar þjóna mennverzlun, þar
sem eigandinn er sjálfur á vett-
vangi eða næstu grösum, er ólíkt
persónulegri og geðþekkari
höndlun en stórverzlanir sem eru
í eigu einhvers fjarlægs massa
sem heitir Samband eða sölusam-
band og hýst er i apparati sem
heitir tölva og ungar að kvöldi til
úr sér hagvaxtarniðurstöðum lið-
ins dags, enda virðist gangverkið I
innanbúðarfólki stórverslananna
oft í einkennilegu lamasessi. Það
bregst ærið oft við viðskiptavini
sem hverju öðru önæði sem á ríð-
ur að losa sig við hið bráðasta.
Ég á heima utanborgar — en
skipti samt við verslun í Aðal-
streætinu, hún sendir heim — og
um langan veg er að fara með
vöruna til mfn; kostar samt ekki
nema hundrað krónur. Þess eru
dæmi að sendibifreið verzlunar-
innar hafi bilað. Menn halda
kannski að kaupmaðurinn fari þá
í sfmann og segi mér að hann
komi ekki pöntuninni til mín.
Ónei, hann labbar sig að vísu að
símanum — til að hringja á leigu-
bfl — undir vöruna.
Það er sem ég sæi samvinnu-
hreyfinguna standast reykvfskum
smásölukaupmönnum snúning.
Það vantar ekki fleiri stórverslan-
ir — með vélbrúðum innanborðs
— f Reykjavík. Það er nóg að
Sambandið á hálfa Akureyri. Við
hérna fyrir sunnan viljum hafa
dálftið annan hátt á hlutunum.
MAL MALANNA:
FIMMTtU BJÓRKRAR
Jón Sólnes gerði sér lítið fyrir f
tilefni áfengislagafrumvarpsins
nýja og boðaði breytingartillögu
þess efnis að heimilað yrði að
brugga og selja drykkjarhæfan
bjór í landinu. Þingmanninum
reiknaðist svo til að einar fimmtíu
bjórkrár vantaði i Reykjavík.
Hafi hann heill mælt. Það eru
einmitt fimmtíu bjórkrár sem
vantar, vistlega staði á jarðhæð og
góða glugga þannig að maður geti
gengið úr skugga um fyrirfram
hvaða viðmælendur manni standi
til boða innan dyra, notalegir
staðir án glymskratta þar sem
menn geta litið inn á heimleið úr
einhæfri vinnu og hitt náungánn
að máli yfir ölkrús. íslendingar
eru hættir að talast við — nema
þá helst fullir á öldurhúsum um
helgar og tjáningarþörf heillrar
viku er þá einum um of — en
sókn á slíka staði er venjulegum
launþegum — svo sem opinberum
starfsmönnum — fjárhagslega of-
viða. Hvorugt gott. Það er rúm-
helga daginn íslenska sem þarf að
lífga; bjórkrárnar verða fljótlega
að eins konar klúbbum, öllum
opnum þó, þar sem hver og einn
getur gengið að þvi fólki visu sem
hann langar að eiga sálufélag við
hverju sinni, korter eða hálftfma f
senn. Menn sem ella myndu
aldrei talast við eru tilbúnir að
gera það yfir krús af öli, vitandi
að þeir geta horfið af vettvangi
þegar þeim sýnist — og verður
gott af; sálin mettast oftar en hitt.
Fólk verður vísara hvert um ann-
ars hagi, skilur náungann betur.
Þetta sjá allir heilskyggnir menn.
Svona staðir hamla gegn firringu
— og mér er næst að halda að
íslendingar séu firrtastir þjóða
norðan fimmtugasta og fimmta
breiddarbaugs. Þungbúnari þjóð
en tslendinga á rúmhelgum degi
held ég að leitun sé að . Langtím-
um saman bjóða dagarnir ekki
uppá neina veðurfarslega umbun,
góðviðri kannski sosum eina eykt
á viku þegar best lætur, þörfin
fyrir samneyti við annað fólk en
heimilisfólk hleðst upp — og fer
svo úr böndunum um helgar. Veð-
urfarið hér kemur langtimum
saman f veg fyrir að menn staldri
við á förnum vegi og skiptist á
orðum — og almenn bílaeign
vgjdur því að heil ár geta liðið svo
að vel málkunnugt fólk, sem gam-
an og gagn hefur af því að hittast,
sjáist nema í svip gegnum bfl-
rúðu.
Vel mætti skylda væntanlega
bjórkráreigendur að hafa smá-
rétti á boðstólum, sjávarrétti ým-
iskonar. Ég gleymi aldrei þannig
krá sem ég heimsótti daglega um
nokkurra vikna skeið að sumar-
lagi fyrir mörgum árum þegar ég
grúskaði i British Museum I Lon-
don. Þarna gafst manni færi á að
mæla enn máli yfir glasi án þess
að sitja uppi með þá. Allir urðu
einhvers vísari.
Framhald á bls. 31
Skortir veltufé í
fyrirtækinu?
Stjórnunarfélag íslands gengst fyrir námskeiði í
BIRGÐASTÝRINGU 3.—4. mars n.k. Kennt verður
báða dagana frá kl. 15.00—19.00.
Á námskeiðinu verða þessi atriði m.a. tekin fyrir:
Aðferðir til að minnka fjármagn í birgðum.
Birgðabókhald.
Tölva eða spjaldskrá.
Hvaða möguleika gefur tölva?
Hvenær er nóg að nota spjaldskrá?
Skortur og afl^iðing hans.
Ástæðan fyrir því að veltufé er gf skornum skammti er oft sú, að of
mikið fjármagn er bundið í birgðum. Þetta námskeið er því tilvalið fyrir
þá, sem vilja kynna sér hvaða leiðir færar eru til þess að ná besta
mögulegum árangri með takmörkuðu fjármagni.
Leiðbeinandi er Halldór Friðgeirsson, verkfræðingur.
Námskeiðsgjald er kr. 6500 - (20% afsláttur til félagsmanna)
Eyðublaðatækni
Stjórnunarfélag íslands gengst fyrir námskeiði í eyðu- )
blaðatækni dagana 28.2—4.3 n.k. Námskeiðið
stendur yfir frá kl. 15.00 til 19.00 og er samtals 15
klst.
Þessir þættir verða teknir fyrir:
Efni Letur
Setning Pappírsstaðlar.
Teikning og gerð eyðublaða.
Á námskeiðinu verður kynnt hvernig ná megi meiri árangri með minni
tilkostnaði með samræmingu og réttri notkun eyðublaða. Námskeiðið
er því tilvalið fyrir þá sem eru að taka í notkun nýja gerð eyðublaða eða
hafa í huga að endurskoða þau. Eins fyrir þá sem vinna að gerð
eyðublaða hjá prentsmiðjum.
Þátttökugjald er kr. 1 2.500 - (20% afsl. til félagsmanna)
Skráning þátttakenda i síma 82930.
Stjórnunarfélag íslands *