Morgunblaðið - 24.02.1977, Page 24

Morgunblaðið - 24.02.1977, Page 24
24 MOHdUNBLAÐ.IÐ, FIMMTUDAOUR 24. FEBRUAR 1977 Stjórn Félags Islenzkra bókaútgefenda. ljósm: 01. K.M. r Arlegur bókamark- aður opnar í dag - Enginn skip- stjóri hleður. . Framhald af bls. 44 skipstjóri, sem verið hefur með það lengi og enginn skip- stjórnarmaður hleður svo skip sitt í dag að hann sjái þvt ekki borgið til lands. í brælu drekk- hleður heldur enginn skip sitt. Veðurspár eru og orðnar það glöggar í dag, að á þeim er unnt að byggja mikið. Gagnrýnin á loðnunefnd er ekki sanngjörn. Ef loðnunefnd verður á einhver skyssa, þá er það ekki henni að kenna, þvi að þá er ljóst að hún hefur fengið rangar upplýsingar frá bræðsl- unum. Ef bræðslurnar fara eft- ir þeim reglum, sem þeim eru settar, er engin hætta á að loðnunefnd gefi upp vitlausar upplýsingar. Hún hefur marg- sýnt það að hún gerir öllum jafnhátt undir höfði. í sam- bandi við aflaskýrslur sagði Gísli að tilgreina ætti, hve skip- in eru stór, sem koma með afl- ann að landi. Það væri nauðsyn- legt til þess að koma I veg fyrir misskilning um ofhleðslu. Gísli sagði að skip sitt, Jón Finnsson, væri yfirbyggt, Við það kvað hann skipið bera mun meira og sjálfur sagðist hann ekki hefði trúað því hve miklu munaði um það hve skipið bæri meiri afla. Þess vegna getur yfirbyggður bátur án þess að hættan aukizt, hlaðið meir. Yfirbyggður bátur með lunn- ingu í kafi er ólíkt betur stadd- ur en óyfirbyggður bátur sem er á skammdekki í veltingi. Gisli saði ennfremur að lag skipsins hefði sitt að segja, hvort þau eru mikið niðurskor- in um miðjuna og hafa góða enda. Hafa þau þá miklu meiri möguleika á að verja sig í sjó. Að lokum sagði Gísli, að hann teldi brýna þörf á því að Siglingamálastofnunin herti eftirlit með því að kjölfesta báta væri nægileg svo að van- hleðsla ætti sér ekki stað. — Múlafoss Framhald af bls. 44 Skipstjóri erGústaf Siemsen. Skipið, sem sigldi á Múlafoss, Lys Point, er lítið strandferðaskip í eigu norska skipafélagsins Lys- line í Osló. Skipstjóri þess heitir John Sandvík. r — Avísanamálið Framhald af bls. 44 viðtals um annað en rannsókn á breiðum grundvelli. Hrafn Braga- son og aðstoðarfólk hans hafa haldið áfram rannsókn á vissum þáttum málsins. — Lekir ofnar Framhald af bls. 2 leið og sódanum er bætt út I vatnið, hækkar ph-gildi vatns- ins. Aukið sýrugildi vatnsins vegur upp á móti calsíumklóríð- innihaldi þess. Sýrustig vatns- ins á Seltjarnarnesi er nú 8,5, en þarf að verða 9,5 eins og er í vatni Hitaveitu Reykjavlkur. Mun sýrustigið í vatninu á Sel- tjarnarnesi verða hækkað upp í 9,2. Erum við að vonast til þess, að þessar aðgerðir lagfæri þessa vankanta, sem komið hafa fram, sagði Sigurgeir Sig- urðsson bæjarstjóri. Sigurgeir sagði, að nýlega hefði verið tekið saman; hve mikil brögð hefðu verið af því að ofnar hafi farið að leka. Frá áramótum eru þekkt um 30 til- felli. Hins vegar kvað hann menn verða að gera sér grein fyrir því, að heildarfjöldi ofna á Seltjarnarnesi er 12 til 15 þúsund. Við ofnana er gert í áhaldahúsi bæjarins. Engar bil- anir hafa orðið á gömlu pott- ofnagerðinni. Hins vegar eru það þunnir stálofnar, sem bilað hafa. öruggt ráð við þessu er forhitun, en hún er misdýr. Eftir nokkra mánuði ætti að vera komin í ljós reynslan af þessum aðgerðum Hitaveitu Seltjarnarness. STJÓRN Félags fslenzkra bókaút- gefenda boðaði til blaðamanna- fundar i gær í kjallara Iðnaðar- mannahússins við Hallveigarstíg. Tilefnið var, að nú er að hefjast í 17. sinn hinn árlegi bókamarkað- ur, sem fimmtíu islenzkir bókaút- gefendur standa að. Örlygur Hálfdánarson, formað- ur félagsins, sagði að á markaði þessum væru bækur við allra hæfi, svo sem þjóðlegur fróðleik- ur, ævisögur, bæði þýddar og ís- lenzkar, barnabækur, alþýðufróð- leikur, islenzkar skáldsögur og ljóð og þýddar skáldsögur. Þá eru einnig á markaðinum ritsöfn og heildarútgáfur höfunda, sem eru á venjulegu verði. Á markaðinum eru hundrað tölusett eintök, árit- uð af Gunnari Gunnarssyni af — Gefur aldrei upplýsingar að fyrra bragði Framhald af bls. 2 spurt væri og þá aðeins um afla. Gylfi sagði að Morgunblaðið þyrfti t.d. ekki að fá hjá loðnu- nefnd, hverjir væru aflahæstir, þar sem Fiskifélag íslands gæfi út skýrslur um slíkt. Gylfi kvað ummæli Kristbjarn- ar ef til vill eiga sér annan að- draganda en einmitt þessar frétt- ir, sem hann væri að setja út á. „Hann er búinn að vera í orða- skaki við okkur í nefndinni meira og minna í vetur, þegar hann hef- ur verið úti,“ sagði Gylfi Þórðar- son, „og hefur m.a. haft í hót- unum vegna þess að við höfum ekki viljað setja á flutningastyrki, þegar hann hefur óskað. Er þetta sjálfsagt orsökin og hefur hann þarna séð kjörið tækifæri til þess að ná sér niðri á okkur. Hins vegar veit Kristbjörn það örugg- lega sjálfur að við gefum ekki upp neitt um afla einstakra skipa.“ í lokin sagði Gylfi að blöð mættu fara sér allmiklu hægar, þegar þau væru að reikna eitt- hvað út, svo sem eins og aflahlut, aflaverðmæti og útflutningsverð- mæti eða eitthvað slíkt. — Amalrik Framhald af bls. 1. lægra settan franskan embættis- mann, sem vinnur að undirbún- ingi að þátttöku Frakka í Belgrad- ráðstefnunni. „Sovézk yfirvöld eru óttaslegin yfir afstöðu Carters, Bandaríkja- forseta", sagði Amalrik I viðtali við blaðið Le quotidien de Paris. „Þeim væri það ánægja að finna vopn gegn frumkvæði bandariska forsetans, einhvers konar tróju- hest, sem gæti skapað ágreining. Svo virðist sem þeir hafi fundið þetta vopn í persónu Valery Giscard dEstaings.“ Hann benti á, að sovézki sendi- herrann í Paris hefur einmitt af- hent Giscard bréf þar sem stað- fest er að Brezhnev, leiðtogi sovézka kommúnistaflokksins, heimsæki Frakkland fyrir 1. júlí. „Heimsóknin er nokkurs konar sykurmoli, sem Giscard fær fyrir sögu Borgarættarinnar, svo og fimmtiu eintök af Aftankuli eftir Jakob Thorarensen, einnig árituð og tölusett. örlygur sagði að fólk hefði stundum kvartað yfir þvi að verð bóka á markaði þessum væri ekki nógu lágt. Hins vegar væri þvi nú svo háttað, að margar bækur þyrfti að binda inn áður en þær væru settar á markaðinn og kost- aði það lágmark 300 krónur. Vinnulaun frá þvl að markaður þessi hófst hafa sautjánfaldazt, hins- vegar hefði verð bókanna vart tvöfaldazt. Bókarmarkaðurinn opnar í dag og stendur til 5. marz. Opið verð- ur frá kl. 9 — 6 alla virka daga, nema á föstudögum er opið frá kl. 9 — 22 og á laugardögum frá kl. 9 — 16. að kljúfa vestræna samstöðu í mannréttindamálum og vanda- málum andófsmanna." Amalrik sagðist ætla að halda kröfum sín- um um að fá að hitta Giscard vegna þess að hann tryði enn á hið gamla slagorð Frakka „frelsi, jafnrétti og bræðralag". Leiðtogi franskra kommúnista, Georges Marchais, sagði i dag að mótmæli Amalriks væru afskipti af frönskum stjórnmálum og ýttu undir árásir hægri sinna á kommúnistaflokka. En Robert Fabre, leiðtogi hins vinstrisinn- aða Róttækaflokks, réðst á Giscard d’Estaing fyrir að neita að hitta Amalrik, og spurði af hverju franski forsetinn for- dæmdi skerðingu mannréttinda í öllum öðrum hlutum heimsins en Sovétríkjunum. Talsmaður forsetahallarinnar sagði, að pólitískum flóttamönn- um eins og Amalrik væri frjálst að láta I ljós skoðanir sínar í Frakklandi en þeir gætu ekki á eigin spýtur ákveðið fundi með forseta lýðveldisins. Álitið er þó, að ástæða forsetans sé sú að hann vilji ekki spilla sambúð Frakk- lands og Sovétrfkjanna með þvi að hitta Amalrik. Lögreglan hefur ekki viljað gefa skýringu á því af hverju hún handtók Amalrik og leyfði honum svo aftur að taka sér stöðu við forsetahöllina. Aðgerðir Amalriks hafa vakið mikla athygli i Frakklandi. í gær- kvöld kom hann fram í sjónvarpi þar sem hann ræddi við Marchais um málefni andófsmanna í Sovét- rfkjunum og afstöðu yfirvalda þar. í dag lýsti hann þvi svo yfir að Marchais væri sjálfstæðari gagnvart Brezhnev en Valery Giscard d’Estaing. Talsmaður vestur-þýzku stjórn- arinnar sagði i dag að Amalrik gæti ekki hitt Helmut Schmidt, en hann fengi fund með Hans- Jtirgen Wischnewski, aðstoðarut- anríkisráðherra. Sovézka fréttastofan Tass sagði í dag frá handtöku Amalriks og kvað hana hafa verið vegna „alvarlegra óspekta á almanna- færi.“ Rifjaði Tass upp, að Amalrik hefði verið rekinn frá Sovétrikjunum og að vestræn blöð hefð.u lýst honum sem boð- bera mannréttinda. Ekki sagði í frétt Tass, sem prentuð var i dag- blaðinu Izvestia og lesin í fréttum Moskvuútvarpsins, af hverju Amalrik var við forsetahöllina. — Beitir EBE Framhald af bls. 1. stjóri samtakanna, sagði að ís- lendingar vildu halda góðu sambandi við EBE-rikin og eiga aðgang að mörkuðum þar. Benti hann á, að íslendingar hefðu tvöfaldað viðskipti sln við bandalagið á síðasta ári og að það keypti nú 20% af fiskút- flutningi íslendinga. Kvað hann það furðulegt, að þrátt fyrir þessar staðreyndir virtist það ómögulegt fyrir fram- kvæmdanefndina að ná þó ekki væri nema nauðungarsam- komulagi til að draga úr mestu erfiðleikunum i brezkum hafnarborgum. „Málin eru komin út fyrir alla skynsemi," sagði Laing. „Islendingar taka allt en gefa ekkert...“ — Carter Framhald af bls. 1. „grimmdarleg morð“, og sagði að hann hefði einnig haft orð á þvi að pólitiskir fangar væru einnig í Suður-Kóreu, Kúbu og öðrum ríkjum Suður-Ameriku. Carter ftrekaði á öðrum blaða- mannafundinum, sem hann held- ur síðan hann varð forseti, að allir þeir, sem hafa undirritað Helsing- forssáttmálann, hefðu skuldbund- ið sig til að virða mannréttindi. Fyrr í dag hafði utanrfkisráðu- neytið gagnrýnt óvenju harðlega atburðina í Uganda. Carter fjall- aði um þá hugmynd að fram færi alþjóðleg rannsókn á þeim og lýsti stuðningi við tillögu Breta um að Sameinuðu þjóðirnar létu málið til sin taka. Carter var margspurður um starfsemi leyniþjónustunnar CIA, og lagði hann áherzlu á nauðsyn þess að leynd hvíldi yfir ýmsum athöfnum hennar. Kvað hann það geta skaðað öryggi Bandarikj- anna og sambúð við önnur lönd ef ýmis verk hennar yrðu gerð opin- ber. Kvaðst hann hafa áhyggjur af því hve margir hefðu aðgang að leyniskjölum stofnunarinnar, sem yllu hættu á upplýsingaleka. Carter vildi ekki fjölyrða um einstök verkefni CIA, en sagðist hafa látið gera rannsókn á starf- semi leyniþjónustunnar og hefði ekkert komið í ljós, sem gæfi til kynna, að hún hefði farið út fyrir ramma laganna. — Skákeinvígin Framhald af bls. 21 þau verða ekkert I líkingu við það þegar Fischer malaði Taimanov og Larsen i þeirri keppni, sem var undanfari sig- urferðar hans til Reykjavikur árið 1972. Ýmis tækifæri hafa þó gefizt til þess undanfarin tvö ár að fylgjast með taflmennskun þeirra, sem nú hittast um helg- ina, og á grundvelli þess má reyna að geta sér til um úrslit. Reynsluleysi Horts í einvigis- skákum gefur vísbendingu um að það valdi honum erfiðleik- um I fyrstu skákunum, enda þótt hann sé frábær skák- maður. Sigurvegari í einvígi Larsens og Portisch verður sennilega hinn síðarnefndi, þar sem leik- ur Larsens er fremur misjafn. Keppni þeirra Korchnois og Petrosjans er einkar tvisýn. Siðast er þeir hittust við tafl- borðið sigraði Korchnoi glæsi- lega með 3W vinningi gegn l'/i, en án efa var ein skýringin sú að Petrosjan veiktist og varð að hætta keppni áður en henni Iauk. Mecking er yngsti skák- maðurinn sem tekur þátt I áskorendaeinvlgi um helgina, og hann mun eiga fullt i fangi með að sigra Polugaievski, en ef honum tekst það verður fróð- legt að fylgjast með viðureign þeirra Korchnois, sem hann beið nýlega lægri hlut fyrir. Hver svo sem áskorandinn verður er ljóst, að Karpov hef- ur sannað að hann er verðugur handhafi heimsmeistaratitils- ins og hann verður enn að telj- ast liklegasti sigurvegarinn I heimsmeistaraeinvíginu að ári. — Innlend Framhald af bls. 20 þar álita að Samband garðyrkju- hænda verði samband innan Búnaðarfélags íslands og Stéttar- sambands bænda, hliðstætt búnaðarsamböndunum, með sömu réttindi og skyldur og fái fulltrúa á þingum þessara aðila. Önnur leið sem nefnd er, er að garðyrkju- bændur segi sig úr lögum við búnaðarsamtökin og hætti jafnframt greiðslum til þeirra en þá leið telja garðyrkjubændur engan veginn æskilega Ráðstafanir til að draga úr sam- drætti á mjólkur framleiðslu Stjórn Búnaðarsambands Eyja- fjarðar hefur sent þinginu tillögu þar sem fjallað er um þá öfugþróun, sem að undanförnu hefur átt sér stað í nautgriparækt, þar sem mjólkurframleiðendum hefur stöðugt farið fækkandi. Bent er á að á svæði BSE hefur þeim fækkað úr 325 1973 í 30 1975 Stjórn BSE telur að í þessu sambandi þurfi að lagfæra eftirfarandi. Reynt verði að finna leiðir til bættra og aukinna lánskjara til bænda og að tekið verði tillit til hins bindandi vinnutíma, sem mjólkurframleiðendur verða að hafa, við verðlagingu á mólk í verðlagsgrundvelli — Bændum veitt aðstoð Framhald af bls. 20 Eins og áður sagði gerir frumvarpið ráð fyrir að kostnaður af störfum að- stoðarmanna greiðist að 2/3 úr ríkis- sjóði og 1 / 3 úr sveitarsjóðum á svæði viðkomandi búnaðarsambands Deilist hlutur sveitarfélaganna eftir tölu bænda í hverju sveitarfélagi. Þær tekj- ur sem koma inn vegna vinnu að- - stoðarfólks þegar það er ekki bundið vegna veikinda eða annarra forfalla komi til frádráttar kostnaði vegna að- stoðarþjónustunnar áður en gjöldum er skipt milli rikissjóðs og sveitarfé- lags. Aðstoðarmenn skulu hafa endur- gjaldslaust fæði og húsnæði hjá við- komandi bónda á starfstíma sínum og einnig greiðir bóndinn nauðsynlegan ferðakostnað. Tekið er fram í greinargerð með frumvarpinu að æskilegt sé að sá eða sú, sem ráðinn er í aðstoðarþjónustu- störf, hafi verulega starfsreynslu í al- mennum bústörfum, þó fyrst og fremst við hirðingu búfjár og einnig gefist aðstoðarfólkinu kostur á sérstökum námskeiðum við bændaskólana. 1 x 2 — 1 x 2 24. leikvika — leikir 19. feb. 1977. Vinningsröð: 201 — 1 11 — 112 — 1 XX 1. VINNINGUR: 10 réttir— Kr. 358.000.00 1276 2. VINNINGUR: 9 réttir ■— kr. 4.200.00 2180 3565 30003 30668 31092+ 31731 32174 2186 3613 30126+ 30668 31092+ 31763+ 32175 2948 4902 30330 30728 31109+ 31770+ 32294 3283 6033 30452 31091+ 31238+ 32027 32356 3313 6709 + nafnlaus 30667 31091+ 31355 32156 40160 40649 Kærufrestur er til 14 marz kl 12 á hádegi Kærur skulu vera skriflegar. Kærueyðublöð fást hjá umboðsmönnum og aðalskrifstofunni Vinningsupp- hæðir geta lækkað, ef kærur verða teknar til greina Vinningar fyrir 24 leikviku verða póstlagðir eftir 1 5 marz. Handhafar nafnlausra seðla verða að framvisa stofni eða senda stofninn og fullar upplýsingar um nafn og heimilisfang til Getrauna fyrir greiðsludag vinninga GETRAUNIR — íþróttamiðstöðin — REYKJAVÍK

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.