Morgunblaðið - 24.02.1977, Side 30
30
MORGL'NBLAÐIÐ, FIMMTLDAOLR 24. FEBRÚAR 1977
Malbik, salt og
negldir hjólbarðar
Breytt prófa- og skólaskipan:
Fyrsti árgangur lýkur loka-
prófi úr grunnskóla í vor
Blaðinu hefur borizt eftirfarandi
frá Rannsóknarstofnun
byggingariðnaðarins:
í dagblöðum í vetur hefur verið
deilt nokkuð um það, hvort sé
vænlegra í baráttunni við hálk-
una, salt eða negldir hjólbarðar.
Deiluaðilar skiptast í tvo hópa og
sýnist sitt hvorum. Þessu greinar-
korni er ekki ætlað að skera úr
um það hvor hópurinn hafi rétt
fyrir sér, heldur einungis að
vekja athygli á nokkrum stað-
reyndum, sem e.t.v. mættu stuðla
að málefnalegum skoðanaskipt-
um i þessari deilu.
Kostnaður við
notkun negldra
hjðlbarða
Samkvæmt erlendum heimild-
um entist malbik á góðri undir-
byggingu í 15—20 ár áður en
negldir hjólbarðar komu til sög-
unnar. Með tilkomu þeirra styttist
endingartiminn þar í 5—7 ár að
umferð óbreyttri.
Að líkindum er endingarhlut-
fallið enn óhagstæðara i Reykja-
vik bæði vegna þess að veturinn
er langur og hundraðshluti þeirra
sem aka á negldum hjólbörðum er
mjög hár, var 90—95% veturna
1974 og 1975 skv. talningu gatna-
málastjórans í Reykjavík.
Nú er svo komið að viðgerðir á
götum Reykjavikur vegna slits af
völdum negldra hjólbarða kosta
árlega um 200 millj. króna. Við
þetta bætist kostnaður bileigenda
vegna neglingar á hjólbörðum. Sá
kostnaður var varlega áætlaður
um 120 millj. kr. á ári. Samanlagð-
ur kostnaður við notkun negldra
hjólbarða er því um 320 millj. kr.
á ári i Reykjavík einni.
Áhrif negldra
hjólbarða á
umferðaröryggi
Myndin er byggð á rannsókna-
niðurstöðum frá Canadian Safety
Council. Þar kemur fram að
negldir hjólbarðar veita um 13%
meira hemlunarviðnám á ís rétt
undir frostmarki heldur en snjó-
hjólbarðar. Á blautu ma 1 biki og is
i miklu frosti er mismunurinn
óverulegur, og er negldum hjól-
börðum i óhag. Á myndina vantar
hemlunarvegalengdir á blautum
is, en íniðurstöðum rannsóknar-
innar kemur fram að hemlunar-
viðnámið breytist mjög lítið frá
-1° Ctil +1°C.
Slit á malbiki af völdum
negldra hjólbarða kemur að veru-
legu leyti fram sem hjólför. Þau
hafa neikvæð áhrif á umferðar-
öryggi á tvennan hátt. Annars
vegar er meiri hætta á að ökumað-
ur missi stjórn á bílnum í djúpum
og kröppum hjólförum en á sléttu
malbiki. Hins vegar getur
núningsmótstaðan milli hjólbarða
og malbiks horfið með öllu ef ekið
er á miklum hraða i vatnsfylltum
hjólförum.
Að síðustu má nefna skemmdir
á vegmerkingum. Gangbrautir og
varúðarlinur eru oft málaðar á
malbik. Þessar merkingar slitna
mjög fljótt burtu þar sem umferð
á negldum hjólbörðum er mikil,
og hefur það að sjálfsögðu nei-
kvæð áhrif á umferðaröryggið.
Notkun salts
Víða erlendis er matarsalt og
skyld efni notuð í stórum stil til
að bræða snjó og ís af götum. Á
þennan hátt greiðir saltnotkun
fyrir umferð, og hvað umferðar-
öryggi snertir er hemlunarvega-
lengd á malbiki aðeins 1/5 eða
minna af hemlunarvegalengd á Is,
hvort heldur bíllinn er á snjóhjól-
börðum eða negldum hjólbörðum.
Þetta kemur fram á myndinni.
Á hinn bóginn hefur saltið
einnig sina ókosti. Fyrir utan
kostnað við kaup og dreifingu
eykur salt ryðskemmdir á bifreið-
um. Hversu mikil aukning er, fer
eftir loftslagi. 1 þurru og hreinu
lofti getur ryðmyndunin tvö-
faldast skv. erlendum heimildum.
Við sjó og þar sem loftslag er rakt
og saltmengað er aukning ryð-
myndunar af völdum saltdreif-
ingar talin lítil.
Óbeint ýtir saltnotkun yndir slit
á götum, þar sem umferð á negld-
um hjólbörðum er mikil. Orsökin
er sú að blautt malbik slitnar
nokkru hraðar en þurrt.
Af blaðaskrifum að dæma virð-
ist sú skoðun algeng að salt leysi
upp asfalt. Þetta er ekki rétt. Svo
enn sé vitnað i erlendar rann-
sóknir, sýna þær að salt veldur
ekki skemmdum á gallalausu mal-
biki. Þess má geta að The Asphalt
Institute I Maryland hefur fram-
kvæmt umfangsmikla rannsókn á
áhrifum salts á malbik. Eftir sex
mánaða prófanir með hitastigs-
sveiflum kringum frostmark og
söltun til að bræða Is af sýnunum
sáust engin merki um flögnun,
steinefna- eða asfalttap og sýnin
höfðu engu tapað i burðarþoli.
Prófanir á asfaltinu sýndu að það
hafði engum breytingum tekið.
Gagnaðgerðir
Eins og nefnt var I upphafi hef-
ur notkun negldra hjólbarða
verulgan kostnað I för með sér. Á
meðan ekki liggja fyrir áform um
að leggja þá niður, er því ekki um
annað að gera en að brynja
göturnar gegn þeim eftir beztu
getu.
Gatnadeild Reykjavikurborgar
og Vegagerð ríkisins hafa í sam-
einingu lagt fram allmikið fé til
rannsókna á malbiki í Reykjavík
Framhald á bls. 33
AÐ UNDANFÖRNU hefur verið
unnið að breytingum á skipan
náms í barna- og gagnfræðaskól-
um í þeim tilgangi að koma á 9
ára samfelldum grunnskóla I
samræmi við ákvæði laga nr.
63/1974.
Megin breytingarnar felast i
þvf að iandspróf miðskóla sem
tekið hefur verið upp úr 9. bekk
fellur niður svo og gagnfræðapróf
sem tekið hefur verið upp úr 19
bekk. Á sfðustu árum hafa nálægt
90% hvers árgangs tekið annað-
hvort þessara prófa en nokkur
hluti hættir alltaf námi, af ýms-
um orsökum, þegar skyldunám-
inu lýkur með 8. bekk (unglinga-
próf).
I stað áðurnefndra prófa kem-
ur lokapróf grunnskóla sem allir
nemendur taka upp úr 9. bekk.
Árið 1974 var gerð áætlun um
það hvernig breytingunni skyldi
komið á. Samkvæmt henni voru
starfræktar sérstakar landsprófs-
deildir f sfðasta sinn skólaárið
1975— 1976 og 4. bekkur gagn-
fræðastigs (gagnfræðapróf) f sfð-
asta sinn 1976—1977. Sama ár
voru gefin út drög að námskrá
handa 7., 8. og 9. bekk sem voru
við það miðuð að þeir nemendur
sem hófu nám f 7. bekk haustið
1974 tækju lokapróf grunnskóla
vorið 1977.
1 lok þessa skólaárs útskrifast
þvf fyrsti árgangurinn sem tekur
lokapróf úr grunnskóla og jafn-
framt sfðasti hópur gagnfræðinga
og geta þessir nemendur hafið
nám á framhaldsskólastigi næsta
haust.
t framhaldi af þessum breyt-
ingum hefur ráðuneytið gefið út
reglur um próf og vitnisburði f
grunnskóla og 10. bekk skólaárið
1976— 1977 og reglur um inntöku
nemenda f framhaldsskóla að
loknu námi f grunnskóla. Fara
þessar reglur hér á eftir en þær
voru birtar f dreifibréfum nr. 19
og 20/1976.
Próf og vitnisburðir
í grunnskóla og
10. bekk skólaárið
1976—1977.
Vitnisburður skóla
Nemendum í 1.—9. bekk grunn-
skóla skal gefinn vitnisburður í
hverri grein sem þeir leggja
stund á og kennd er reglulega i
skóla, eða undir stjórn hans um-
sjón, um lengri eða skemmri tima.
Miða skal við að vitnisburðurinn
sýni sem best það hlutfall skil-
greindra námsmarkmiða sem
nemandinn hefur tileinkað sér.
Einkunn:
1« Nemandi hefur náð 95% — 100%
námsmarkmiða
9 Nemandi hefur náð 85% — 94%
námsmarkmiða
8 Nemandi hefur náð 75% — 84%
námsmarkmiða
7 Nemandi hefur náð 65% — 74%
námsmarkmiða
6 Nemandi hefur náð 55% — 64%
námsmarkmiða
5 Nemandi hefur náð 45% — 54%
námsmarkmiða
4 Nemandi hefur náð 35% — 44%
námsmarkmiða
3 Nemandi hefur náð 25% — 34%
námsmarkmiða
2 Nemandi hefur náð 15% — 24%
námsmarkmiða
1 Nemandi hefur náð 0% — 14%
námsmarkmicða
1 stað einkunnar má nota um-
sögn í 1.—7. bekk. Er mælt með
notkun umsagna í neðri bekkjum
grunnskóla. Ekkert er þvi til
fyrirstöðu að nota einkunnar og
umsagnir samhliða.
Umsagnir skulu vera stuttar en
greinargóðar og gefa m.a. til
kynna stöðu nemenda i viðkom-
andi námsgrein svo og framfarir
og ástundun.
Vitnisburð má byggja á prófi,
sem haldið er i lok skólaárs eða
námsáfanga, og/ eða frammistöðu
nemenda á námstímanum þ.m.t.
sérstök verkefni sem þeir hafa
fengið til úrlausnar.
Heimilt er að gefa vitnisburð
fyrir skólasókn en gæta skal þess
að óviðráðanlegar ytri aðstæður
t.d. veikindi um lengri eða
skemmri tima, sérstakar heimilis-
ástæður o.s.frv., hafi ekki áhrif á
vitnisburðinn.
Ekki skal reikna meðaleinkunn
nemenda.
Samræmd próf.
3. og 6. bekkur.
Samræmdum prófum i 3. og 6.
bekk er fyrst og fremst ætlað að
veita skólum upplýsingar um
stöðu nemenda sinna í viðkom-
andi greinum miðað við skil-
greind námsmarkmið og miðað
við aðra nemendur í landinu sem
eru á sama námsstigi. Þá verða
niðurstöður þessara prófa einnig
til afnota fyrir fræðsluyfirvöld
eftir þvi sem ákveðið kann að
verða og lög heimila.
Ekki er gert ráð fyrir að niður-
stöður prófanna séu færðar sér-
staklega á skírteim nemenda eða í
einkunnabækur þeirra heldur
ber að líta á þær sem einn þeirra
þátta sem kennarar hafa til hlið-
sjónar þegar þeir gefa nemendum
vitnisburð i viðkomandi grein.
8. bekkur (Unglingapróf)
Einkunnir í samræmdum grein-
um skal gefa í heilum tölum frá 1
til 10 og skulu þær færðar sér-
staklega á skírteini nemenda.
Skólum er heimilt að gefa aðra
einkunn í sömu greinum og miða
hana þá t.d. við þá námsþætti sem
samræmd próf gefa minnstar
upplýsingar um. Ekki skulu hald-
in sérstök lokapróf i þessu skyni.
Engin einkunn á unglingaprófi
telst falleinkunn og eru hér með
felldar úr gildi eldri reglur um
þetta efni.
9. bekkur. (Lokapróf grunn-
skóla).
Einkunnagjöf á samræmdum
prófum verður hlutfallsleg og
verður miðað við 5 stiga kvarða,
A, B, C, D og B þar sem A er besta
einkunn og E lakasta.
Einkunnina A hljóta 7% nem-
enda
Einkunnina B hljóta 24% nem-
enda
Einkunnina C hljóta 38% nem-
enda
Einkunnina D hljóta 24% nem-
enda
Einkunnina E hljóta 7% nem-
enda
Prófin verða dæmd eingöngu af
prófanefnd. Stefnt verður að því
að skólum berist niðurstöður
prófanna innan 6 vikna frá því að
úrlausnirnar berast nefndinni og
er skólum þá heimilt að tilkynna
nemendum niðurstöður þeirra.
Öllum nemendum i 9. bekk er
skylt að taka samræmd próf ef
óviðráðanlegar orsakir ekki
hamla, að mati skólastjóra og
trúnaðarmanns.
Sjúkrapróf verða ekki haldin.
Umsóknir um framhaldsnám frá
þeim nemendum sem ekki tóku
samræmd próf skulu sendar við-
komandi framhaldsskóla og
prófanefnd. Verða þær metnar á
grundvelli skólaeinkunna og um-
sagnar þess skóla sem nemandinn
kemur úr.
Enginn einkunn á lokaprófi úr
grunnskóla telst falleinkunn.
10. bekkur. Gagnfræðapróf.
Framkvæmd samræmdra prófa
verður með svipuðum hætti og
vorið 1976. Einkunnagjöf verður
þó ekki hlutfallsleg þar sem að-
eins hluti árgangsins tekur þessi
próf.
Miðað verður við einkunnastig-
ann til 10 og aðeins gefið í heilum
tölum.
Ekki er gertráð fyrir neinni
breytingu á einkunnagjöf skól-
anna frá því sem verið hefur.
Inntaka nemenda
í framhaldsskóla
að loknu námi
f grunnskóla
Ráðuneytið hefur ákveðið eftir-
farandi um inntöku nemenda í
framhaldsskóla:
I. Nemandi sem lýkur námi í
grunnskóla hefur rétt til að hefja
nám í framhaldsskóla ef hann
hefur hlotið A, B eða C f sam-
ræmdum greinum og einkunnina
4 eða hærra í skólaprófsgreinum.
Eftirfarandi frávik eru þó
heimil:
a) D í tveimur samræmdum
greinum en engin skólaeinkunn
undir 4.
b) D í einni samræmdri grein og
ein skólaeinkunn undir 4.
c) Engin samræmd einkunn lægri
en C en tvær skólaeinkunnir und-
ir 4.
II. Nemandi sem lokið hefur
gagnfræðaprófi hefur rétt til að
hefja nám f framhaldsskóla ef
hann hefur hlotið einkunnina 4
eða hærra bæði I samræmdum
greinum og skólaprófsgreinum.
Eftirfarandi frávik eru þó
heimil:
Blautt nalbik , gg. Sandborxnn ís ’. <-1°CI ,, 1 ■ , Hrmnn ís
2 Sn jó-
* ■ i ‘ " 1 + <83 o_, i ' <-28 Cl Hreinn ís
hjólbarðar 1 • / <-i°o
i / i / >1 i / ==t 70' / 1 / / r-( m '
2 Negldir hjólbaróar
1 x 137 * '
' 1 ' / r“64'
4 Negldir hjólbaróar
1 < 163 > ,
1 • 1 t 1 1 • 1
2 Hjolbarðar á keöjum
‘ J -nn( (1 fet = 0.3 m)
1
1 1 1 1 1
0' 10O' 200' 300' 400' 500'
Henlunarvegalengd við 5(j kra/klst
HEMLUNARVEGALENGD VIÐ MISMUNANDI AÐSTÆÐUR
(Myndin er úr Meddelelse nr. 44, Veglabora-
toriet, Oslo)
Framhald á bls. 33