Morgunblaðið - 31.03.1977, Side 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. MARZ 1977
Áskorendaeinvígin í skák
Korchnoi er
hársbreidd
frá sigri
ENN eitt tilþrifalítið jafntefli
varð upp á teningnum þegar
þeir Korchnei og Petrosjan
tefldu 11. einvígisskák sina í
gær. Nú má þvi segja að
Korchnoi sé aðeins hársbreidd
frá sigri i einviginu, því honum
nægir jafntefli á laugardaginn
þegar síðasta skákin verður
tefld.
Petrosjan mun þó áreiðan-
lega leggja allt í sölurnar til að
jafna metin í síðustu skákinni,
því varla á hann ánægjulega
heimkomu fyrir höndum ef
hann tapar fyrir „föðurlands-
svikaranum".
Hvitt: Viktor Korchnoi
Svart: Tigran Petrosjan
Kataiónsk byrjun
1. c4 — eG, 2. g3 — d5, 3. Rf3 —
Rf6, 4. Bg2 — Be7, 5. d4 —
0—0, 6. Rbd2 — b6, 7. 0—0 —
Bb7, 8. b3 — Rbd7, 9. Bb2 — c5,
10. Hacl — Hc8, II. e3 — dxc4,
12. Rxc4 — IIc7, 13. De2 — cxd,
14. Rxd4 — Bxg2, 15. Kxg2 —
a6, 16. e4 — Db8, 17. Rd2 —
IIxcl, 18. Hxcl — Db7, 19. f3 —
Rc5, 20. Rc4 — Hc8, 21. Re5 —
Bf8, 22. Dc2 — a5, 23. a3 —
He8, 24. Rec6 — Rfd7, 25. e5 —
Rb8, 26. Rxb8 — Hxb8, 27. b4
— Jafntefli.
framhaldinu má hann þakka
fyrir jafntefli í biðstöðunni.
Hvítt: Lev Polugaevsky
Svart: Henrique Mecking
Ilrottningarindversk vörn.
1. d4 — Rf6, 2. c4 — e6, 3. Rf3
— b6, 4. g3 — Bb7, 5. Bg2 —
Be7, 6 0-0 — 0-0, 7. Rc3 — Re4,
8. Rxe4 (Polugaevsky hefur
greinilega aðeins verið á hött-
unum eftir jafntefli. Annars
hefði hann leikið hér 8. Dc2 eða
8. Bd2) — Bxe4, 9. Rel —
Bxg2, 10. Rxg2 — d5, 11. Da4 —
Dd7, 12. Dxd7 — Rxd7, 13. cxd5
— exd5, (Á Reykjavfkurskák-
mótinu í haust létu þeir
Antoshin og Tukmakov hér
staðar numið og sömdu um
jafntefli) 14. Bf4 — Bf6, 15.
Hfdl — c5, 16. Be3 (Eftir 16.
dxc5 — Rxc5, 17. Hd2 — Hfd8,
yrði staka peðið á d5 meiri
styrkleiki en veikleiki) —
Hfd8, 17. Rf4 — Rf8, 18. dxc5
— d4, 19. Bd2 — bxc5, 20 Hacl
— Be7, 21. Rd3 — Rd7, 22. e3?!
(Eðlilegra virðist 22. b3 og
reyna síðan að ráðast gegn
peðinu á c5) — Hac8, 23. exd4
— cxd4, 24. Hxc8 — Hxc8, 25.
Kfl — f6, 26. Hcl — Hxcl, 27.
Bxcl — Kf7, 28. b3 (Peðið á d4
virðist víð fyrstu sýn veikleiki,
en greiður aðgangur svarta
kóngsins að miðborðinu tryggir
honum a.m.k. jafntefli) — Ke6,
29. Ke2 — g5, 30. Bd2 — Kd5,
31. Bb4 — Bxb4, 32. Rxb4+ —
Kc5, 33. Rd3+ — Kd5, 34. g4 —
Re5, 35. f3 (Eftir 35. Rxe5 —
fxe5, hefur svartur unnið peðs-
endatafl vegna þess að hann
hefur valdað frípeð) — Rc6, 36.
Rf2 — Rb4, 37. a3 — Rc2, 38.
Re4 — Ke5, 39. a4 — Rb4, 40.
Rc5 — Kd6, 41. Rd3
Mecking
mun berjast
til þrautar
Lev Plugaevsky telfdi stíft til
jafnteflis með hvítu i 11.
einvígisskák sinni við Mecking
sem tefld var i gær.
Sovézki stórmeistarinn
leitaði mjög eftir uppskiptum
og gaf jafnvel andstæðingi
sínum frumkvæðið í því skyni.
Polugaevsky þótti þó fyrst um
sinn standa heldur betur en
eftir uppskiptaærsl hans í
Hér fór skákin í bið. Þó að
jafntefli séu líklegustu úrslitin
er það greinilega svartur sem
er sóknaraðilinn vegna betri
peða- og kóngsstöðu.
Tillögum Healeys
kuldalega tekið
London, 30. marz.
VERKALÝÐSFÉLÖG á Bretlandi
hafa tekið kuldalega I tillögu
brezku stjórnarinnar I fjárlögun-
um, sem lögð voru fram I gær, um
skattalækkanir gegn því að verka-
lýðsfélögin haldi aftur af sér í
eitt ár til viðbótar með kaupkröf-
ur. Sumir stjórnmálafréttaritarar
telja viðbrögð verkalýðsleið-
toganna við fjálögunum gefa til
kynna að lítil von sé til þess að
samkomulag um lágar kaup-
hækkanir náist.
Joe Gormley, leiðtogi samtaka
námaverkamanna, sagði við
fréttamenn í dag að tillaga
stjórnarinnar væri hrein kúgun,
þvi að með því að tengja skatta-
lækkunartillöguna loforðum 11,8
milljóna verkafólks í brezka
alþýðusambandinu væri verka-
fólkið sett i hlutverk vondu
mannanna, ef það ekki féllist á að
takmarka kaupkröfur sínar.
Hugh Scanlon, formaður samtaka
vélvirkja, sagði að ekki kæmi til
greina að verkalýðsfélögin yrðu
sett I þá aðstöðu, sem fjárlögin
stefndu að.
Gildandi launasamkomulag
rennur út 31. júlí n.k. en skv. eru
launahækkanir á árinu
takmarkaðar við 4 stérlingspund
á viku og brezka stjórnin segir að
nauðsynlegt sé að sýna áfram-
haldandi aðhald til að hamla gegn
verðbólgunni, sem í dag er um
16,2% á ársgrundvelli. í fjárlaga-
frumvarpi sinu bauð Healey fjár-
málaráðherra 1,7 milljarða
sterlingspunda skattalækkun
gegn þvi að kaupkröfum yrði
haldið innan hófsamra marka, en
ekki var sagt hver þau mörk ættu
að vera. Bendir stjórnin á að með
því að halda launahækkunum
niðri s.l. tvö ár hafi tekist að
minnka verðbólguna um helming,
úr 32% í 16%.
Verkalýðsleiðtogar hafa hins
vegar sagt að útilokað sé að hægt
verði að takmarka launahækkanir
eitt ár í viðbót, verðhækkanir haíi
verið gífurlegar og þeir séu undir
miklum þrýstingi frá launþegum
um viðunandi hækkanir.
Frá þinghaldinu I gær — Bjarni K. Bjarnason, borgardómari I forsæti. Vinstra megin á myndinni eru
Kjartan Gunnarsson, stefnandinn, og lögmaður hans Jón Steinar Gunnlaugsson en hægra megin sést í
baksvipinn á Inga R. Helgasyni lögmanni stefndu.
Málið um lögmæti
SFHI-aðalfundarins
dómtekið í gær
MIKLAR deilur risu sem kunn-
ugt er meðal stúdenta við Háskóla
tslands í sambandi við aðalfund
Stúdentafélags Háskóla íslands.
Snerust deilur þessar aðallega
um lögmæti aðalfundar félagsins
23. marz 1976 en á þeim fundi
urðu mikil átök og var Kjartan
Gunnarsson Iaganemi kjörinn
formaður félagsins. Urslitum
þessa fundar viidi fráfarandi
stjórn SFHl og stuðningsmenn
hennar ekki hlíta og boðuðu því
til nýs aðalfundar 1. apríl 1976.
Fundarboðendur fullyrtu að
þar eð dagskrá aðalfundarins 23.
marz hefði verið breytt með dag-
skrártillögu væru samþykktir
hans ólögmætar. Stjórnin sem
kjörin hafði verið á fundinum
taldi dagskrárbreytingarnar hins
vegar löglegar og hefði hin nýja
stjórn tekið við völdum strax að
afloknum kosningum. Af þessum
sökum og til að vernda rétt félags-
manna taldi hin nýkjörna stjórn
sig knúna til að leggja lögbann
við fundinum sem fráfarandi
stjórn boðaði 1. apríl 1976. Var
það iögbann lagt af fógetarétti
Reykjavíkur 1. april 1976 og var
síðan höfðað mál í bæjarþingi
Reykjavikur til staðfestingar
þessu lögbanni, eins og gert er ráð
fyrir lögum samkvæmt. Þetta
staðfestingarmál var sótt og varið
i bæjarþingi Reykjavíkur í gær.
Dómari í málinu er Bjarni K.
Bjarnason borgardómari.
Lögmaður stefnenda, Kjartans
Gunnarssonar og stjórnar hans,
var Jón Steinar Gunnlaugsson
hdl. en stefndu Garðars Mýrdals
o.fl. Ingi R. Helgason hrl.
Lögmaður stefnenda tók fyrst
til máls í þinghaldinu og rakti
fyrst þann aðdraganda málsins
sem getið er hér á undan. Síðan
fór hann almennum orðum um
fundarhöld og fundarsköp og
vakti athygli á því að auglýsing á
ákveðinni dagskrá, sem ekki ætti
að vikja frá, þ.e. ekki ætti að taka
fyrir önnur mál á fundinum en
auglýst væru, væri fyrst og fremst
til þess að tryggja rétt þeirra fél-
agsmanna, sem ekki mættu á
fundinum. Hins vegar væri fund-
armönnum sjálfum og jafnvel
fundarstjóra upp á sitt eindæmi
heimilt að breyta röð dagskrár-
liða, þ.e.a.s. að afgreiða málin
ekki endilega í þeirri röð er aug-
lýst væri. Benti lögmaðurinn á að
slíkar breytingar væru algengar á
félagsfundum. Einnig væri það
algjörlega ljóst í þessu máli, þar
sem um var að ræða aðalfund
Stúdentafélagsins, sem ótvírætt
hefði æðsta vaid í öllum málefn-
um félagsins, að fundarmönnum
hefði verið heimilt að breyta röð
dagskrárliða. Hlutverk og eðli
aðalfundarins og vald hans I mál-
efnum þessa félags, sem og að-
alfunda almennt tæki ekki alveg
af skarið um að fundarmönnum
væri heimilt að hagræða röð dag-
skrárinnar. Benti lögmaðurinn
t.d. á að á aðalfundum Orators,
félags laganema, væri það algengt
aó röð dagskárliða væri breytt,
jafnvel þótt mun skýrari ákvæði
væri um röð dagskárliða i Iögum
Orators en í lögum Stúdentafél-
agsins. Af þessum ástæðum sagði
lögmaður stefnenda að auðséð
væri að krafa stefnenda um að
aðalfundurinn 23. marz 1976 yrði
dæmdur löglegur ætti að ná fram
að ganga. Niðurstaða sem lyti að
því að fundarmönnum aðalfunda
væri óheimilt að breyta röð dag-
skárliða, væri fráleit og færi al-
gerlega i bága viö almennan skiln-
Austurland:
SVÆÐISMÓTI Austurlands í
skák 1977, sem fram fór á Reyðar-
firði, er nýlokið. Þátttakendur
voru 32. t eldri flokki tefldu 7, en
I yngri flokki 25.
Röð efstu manna varð þessi:
1 eldri flokki: 1. Gunnar Finns-
son Eskifirði, 6 v. af 6 mögu-
legum. 2. Jón Baldursson Eski-
firði 3V4 v. 3. Hafsteinn Larsen
Reyðarfirði 3 v.
I yngri flokki: 1. Garðar Bjarna-
son Reyðarfirði 5Ví v. af 7 mögu-
ing og framkvæmd fundarhalda
hér á landi.
Lögmaður stefndu, Ingi R.
Helgason hrl. tók til máls að lok-
inni ræðu Jóns Steinars Gunn-
laugssonar og gerði hann fyrst
grein fyrir þvi að átökin í þessu
félagi væru fyrst og fremst milli
þess sem hann vildi nefna vinstri
menn og hægri menn. Rakti hann
að félagið hefði 1975 verið lagt
niður en endurreist af stefndu í
þessu máli 16. apríl 1975. Ingi
kvað fundinn 23. marz hafa verið
löglega boðaðan en sum fundar-
störfin verið ólögmæt vegna sam-
þykkta félagsins, jafnframt sem
stefnendur málsins hefðu á fund-
inum brotið almenn fundarsköp.
Allar breytingar á röð dagskár-
liða hefðu verið ólögmætar. Dag-
skrárröðunin væri til þess að
tryggja réttláta og sanngjarna
meðferð mála.
Að loknum frumræðum lög-
manna tóku þeir báðir til máls
aftur og stóð málflutningurinn
nánast samfellt frá kl. 14 til 17.30
í gær. Málið var siðan dómtekið
og er dóms að vænta i þespu deiiu-
máli stúdenta um lögmæti aðal-
fundar Stúdentafélags Háskóla
íslands einhvern næstu daga.
/
legum. 2. Guðbergur Reynisson
Reyðarfirði 4lA v. 3. Georg Páls-
son Reyðarfirði 4 v.
Að lokum fór fram hraðskák-
mót. Þátttakendur voru 20.
Röð efstu manna var þessi: 1.
Trausti Björnsson Eskifirði 17 v.
af 18 mögulegum. 2. Jóhann Þor-
steinsson Reyðarfirði 15 v. 3.
Gunnar Finnsson Eskifirði 12 v.
Skákstjóri var Trausti Björns-
son.
32 þátttakendur í
svæðamóti í skák