Morgunblaðið - 31.03.1977, Side 46

Morgunblaðið - 31.03.1977, Side 46
Vonir Englendinga glæðast eftir 5—0 sigur I gærkveldi ENGLENDINGAR fengu svo- litla sárabót eftir ófarir í lands- leikjum sfnum I knattspyrnu að undanförnu, er þeir sigruðu Luxemburgara með 5 mörkum gegn engu á Wembley- leikvanginum í London f gær- kvöldi, að viðstöddum 81.000 áhorfendum. Leikur þessi var liður f undankeppni heims- meistarakeppninnar, en Eng- land og Luxemburg leika í öðr- um Evrópuriðlinum ásamt ttalíu og Finnlandi. Með sigrin- um tóku Englendingar forystu f riðlinum, en þeir hafa hlotið 6 stig. Staða þeirra er þó engan veginn eins góð og þeir myndu kjósa, þar sem þeir hafa tapað einum leik — fyrir Itölum, sem eru f öðru sæti f riðlinum með 4 stig eftir 2 leiki. Finnar hafa svo 2 stig eftir 3 leiki, og Luxemburgarar hafa enn ekki hlotið stig, frekar en búizt var við. Eins og vænta mátti var leik- urinn á Wembley mjög ójafn i gær, og Englendingar sóttu nær stanzlaust. Þeim gekk þó illa að finna leiðina f mark Luxem- burgara sem vörðust hetjulega. Eina markið í fyrri hálfleik skoraði fyrirliði Englending- anna, Kevin Keegan, en í seinni hálfleiknum, þegar Luxem- burgaraf tóku að þreytast skor- aði England 4 mörk á aðeins tuttugu mínútna kafla. Trevor Francis reið á vaðið, eftir að Gordon Hill hafði skallað knött- inn fyrir fætur hans, en Ray Kennedy bætti síðan fljótlega þriðja markinu við, og Mick Channon því fjórða og fimmta. Staðan í riðlinum er nú þessi: England ítalía Finnland Luxemburg 4 3 0 1 11—4 6 2 2 0 0 6—1 4 3102 9—7 2 3 0 0 3 2—16 0 Wales — Tékkóslóvakfa 3—0 Þau óvæntu úrslit urðu í leik Wales og Tékkóslóvakíu í sjö- unda riðli undankeppni heims- meistarakeppninnar í - gær- kvöldi, að Wales-búar sigruðu í leiknum 3—0. Sem kunnugt er, urðu Tékkar Evrópumeistarar í knattspyrnu s.l. sumar, og var þeim spáð öruggum sigri í þess- um riðli. Eftir þessi úrslit í gærkvöldi má hins vegar ljóst verða að baráttan i riðlinum verður geysilega tvísýn og spennandi, en auk Wales og Tékkóslóvakíu leika Skotar í honum. Leikurinn fór fram i Wrex- ham og voru áhorfendur að honum um 23.000. Jók það ekki á vonir Wales-búa, að bezti maður liðs þeirra, John Toshack, leikmaður með Liver- pool, gat ekki leikið með vegna meiðsla. Fyrsta mark leiksins kom á 27. mínútu og var það Leighton James sem það skoraði beint úr aukaspyrnu. Má skrifa mark þetta á reikning tékkneska markvarðarins sem var mjög illa staðsettur er James tók spyrnuna. Stóð þannig i hálf- leik 1—0. í seinni hálfleik lögðu Tékkar allt í sölurnar fyr- ir sóknina, og voru oftast með alla sína menn, nema mark- vörðinn, á vallarhelmingi Wa- les. Það átti líka eftir að kosta þá nokkuð, þar sem Wales skor- aði tvivegis úr skyndisóknum í hálfleiknum. Fyrra markið gerði Nick Deacy, varamaður John Toshack, á 65. mínútu, og þriðja markið gerði Leighton James með glæsilegu skoti af um 35 metra færi. Staðan í riðlinum er nú þessi: Wales 2 10 i 3—1 2 Tékkóslóv. 2 10 1 2—3 2 Skotland 2 10 1 1—2 2 írland — Frakkland í Dublin í írlandi mættust írland og Frakkland og var leikurinn liður i undankeppni heimsmeistarakeppninnar. Þessi lönd leika í fimmta Evrópuriðlinum, ásamt Búlg- aríu. Úrslit leiksins í írlandi urðu þau að heimamenn sigruðu með einu marki gegn engu. Maður- inn á bak við þennan sigur var tvímælalaust þjálfari liðsins, Johnny Giles, en hann er einnig framkvæmdastjóri West Bromwich Albion, og leikmað- ur með írska landsliðinu. Markið kom á 10. mínútu eft- ir aukaspyrnu, sem fram- kvæmd var eftir forskrift Giles. Hefur hann notað slíka aðferð hjá W.B.A. og hún stundum borið góðan árangur. Skoraði Liam Brady markið, eftir að þeir Giles og Gerry Daly höfðu leikið knettinum á milli sín. Nokkru síðar munaði litlu að Giles skoraði sjálfur, en þá skaut hann hörkuskoti að marki Frakkanna, en knöttur- inn fór í þverslá og hrökk út á völlinn. Frakkarnir sóttu síðan smátt og smátt i sig veðrið og áttu mun meira í leiknum lengst af. Var það frábær frammistaða markvarðar írlands, Mick Kearns, sem varð öðru fremur til þess að Frökkunum tókst ekki að jafna. Staðan í 5. riðlinum er nú þessi: Frakkland 3 111 4—3 3 írland 2 10 1 1—2 2 Búlgaría 10 10 2—2 1 Skotland í gærkvöldi fór fram annar undanúrslitaleikur skozku bik- arkeppninnar og sigraði þá Rangers Hearts með tveimur mörkum gegn engu og leikur þvi við Celtic eða Dundee í úr- slitum. Celtic lék við Hibernian í úrvalsdeildinni í gær og varð jafntefli 1—1. Partick og Motherwell gerðu einnig jafn- tefli í deildinni, 0—0. KAROLlNA EINNIG MEISTARI VIÐ endurskoðun á stigaútreikn- ingi í fimleikameistaramóti kvenna, sem fram fór um helgina, kom í ljós, að tvær stúlkur höfðu orðið efstar og jafnar í keppninni og deila þær því íslandsmeistara- titlinum í ár. Úrslitin sem fyrst voru gefin upp voru þau, að Berg- lind Pétursdóttir úr Gerplu hefði sigrað með 32.2 stigum, en Karo- lína Valtýsdóttir, Björk, hefði orð- ið önnur með 32,1 stig. Þegar far- ið var yfir stigaútreikninginn að mótinu loknu kom hins vegar í ljós að stig Karolínu var einnig 32,2. Mun hún því einnig hljóta bikar sem sigurlaun í mótinu, og hlutdeild i íslandsmeistaratitlin- um. FYRSTA frjálsíþróttamót ársins utanhúss verður haldið á Kópa- vogsvelli n.k. sunnudag og hefst keppni þar kl. 14.00. Keppnis- greinar verða: langstökk, kúlu- varp, kringlukast og spjótkast karla og kvenna. ÞRÓTTUR BIKARMEISTARI WO toaS ÞRÓTTÚR gerði sér lftið fyrir og sigraði UMFL I úrslitaleik bikar- keppni blaksambandsins 3—0 (15—10, 15—9 og 15—5) og vann þannig ekki aðeins bikarkeppn- ina heldur öll mót sem liðið tók þátt I I vetur og er það ótrúlega góð frammistaða og hefur liðið í vetur algjörlega borið höfuð og herðar yfir önnur lið og nær aldrei verið nálægt því að tapa leik. Þróttar-liðið átti góðan leik i þetta sinn eins og svo oft áður og var ekki í vandræðum með afar slakt og getulftið lið Laugdæla og má segja að Þróttur hafi verið mörgum gæðaflokkum ofar Laug- dælum. Hjá Þrótturum gekk nán- ast allt upp sem reynt var, mót- taka, uppspil og smöss heppnuð- ust vel auk þess sem hávörnin var mjög góð. Um Laugdælina er aðra sögu að segja og var það aðeins Tómas Jónsson sem sýndi góðan leik og barðist vel, en aðrir voru langt frá sfnu bezta. Myndin hér að ofan er af Bikar- meisturum Þróttar, ásamt Magnúsi Öskarssyni, formanni félagsins, Jóni Baldvinssyni gjaldkera þess og Óskari Péturs- syni, heiðursfélaga Þróttar, en á myndinni hér til hliðar tekur fyrirliði Þróttar við hamingju- óskum f tilefni sigursins. JÖFN STAÐA VALS OG VÍKINGS, EN FH Á EINNIG ENN MÖGULEIKA NÚ EIGA aðeins þrjú lið möguleika á að hreppa íslandsmeistaratitilinn I handknattleik: Vikingur, Valur og FH. Tvö fyrrnefndu liðin standa best að vigi, en þau eru með 18 stig eftir 11 leiki — hafa aðeins tapað 4 stígum FH er hins vegar með 1 3 stig eftir 10 leiki — hefur tapað 7 stig- Álafosshlaup HIÐ árlega Álafosshlaup fer fram að þessu sinni n.k. laugardag 2. apríl og hefst kl. 14.00. Keppt verður í þremur flokkum karla. Barnaflokkur fyrir þá sem fæddir eru 1964 og síðar, og mun þessi flokkur hlaupa um 3 km, unglingaflokkur fyrir þá sem fæddir eru á árunum 1960—1963, en þessi flokkur hleypur sömu vegalengd, og karlaflokkur, en vegalengdin sem hann hleypur er um 6,3 km. Þá verður einnig keppt í kvennaflokki og hlaupa konurnar 2,9 km. Rásmark er við vegamót Úlfarsfellsvegar, nálægt Korpu. Keppt verður um myndarlega verðlaunagripi sem Álafoss h.f. hefur gefið. Eru keppendur beðn- ir að mæta tímanlega til skráning- ar. um, þannig að möguleiki jslands- meistaranna til þess að verja titil sinn er óneitanlega fremur litill. Bæði toppliðin, Valur og Víkingur, eiga eftir þrjá leiki i deildinni. Víkingar eíga eftir að leika við FH, Fram og Þrótt og Valur á eftir að leika tvo leiki við Fram og FH, Er. það því mjög svipað ..prógram sem liðin eiga eftir, og óhætt að slá þvi föstu að stigin i þessum leik er sýnd veiði en ekki gefin, Vikingar eiga að leika við FH i Hafnar- firði, en Valur á að leika við FH i Reykjavik. Auk leikjanna við Val og Víking eiga FH-ingar eftir að leika við Gróttu og Þrótt. Má búast við að íslands- meistararnir kraski nokkuð örugglega i 4 stig i þeim leikjum. Framhald á bls. 26 Einfcunnagjölln LIÐ VALS: Jón Breiðfjörð Ólafsson 1, Ólafur Guðjónsson 1, GIsli Blöndal 2, Stefán Gunnarsson 2, Jón Pétur Jónsson 4, Jón Karlsson 1, Þorbjörn Guðmundsson 3, Bjarni Guðmundsson 3, Steindór Gunnarsson 2, Jóhannes Stefánsson 2. LIÐ tR: örn Guðmundsson 2, Sigurður Gfslason 2, Sigurður Svavarson 3, Brynjóifur Markússon 4, Vilhjálmur Sigurgeirsson 1, Bjarni Bessason 2, Ágúst Svavarson 2, Sigurður Sigurðsson 2, Björn Guðmundsson 1, Hörður Hákonarson 1. LIÐ VtKINGS: Rósmundur Jónsson 1, Grétar Leifsson 2, Ólafur Jónsson 2, Erlendur Ilermannsson 2, Björgvin Björgvinsson 2, Páll Björgvinsson 3, Ólafur Einarsson 2, Viggó Sigurðsson 3, Magnús Guðmundsson 2, Jón G. Sigurðsson I. Þorbergur Aðai- steinsson 3. LIÐ ÞRÓTTAR: Sigurður Ragnarsson 2, Kristján Sigmundsson 2, Sveínlaugur Kristjánsson 3, Jóhann Frfmannsson 2, Ilalidór Bragason 1, Gunnar Gunnarsson 2, Konráð Jónsson 4, Sigurður Sveinsson 2, Haraldur Jónsson 1, Bjarni Jónsson 2, Sveinn Sveinsson 1.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.