Morgunblaðið - 31.03.1977, Page 48
Al íiLVSINíi ASIMINN KR:
22480
(iLYSINííASlMINN EK:
22480
JHoretmblntiiíi
FIMMTUDAGUR 31. MARZ 1977
Samninganefndir vinnuveitenda og ASt komu saman til fyrsta
samningafundar með sáttasemjara f gær og voru þessar mvndir
teknar við það tækifæri. Þessi fyrsti viðræðufundur snerist aðal-
lega um fyrirkomulag samningaviðræðnanna og ýmis önnur tækni-
leg atriði, en einnig var ákvcðið að hefja viðræður um sérkröfur
einstakra atvinnugreina eða landssambanda verkalýðsfélaganna.
Var ákveðið að halda slfka fundi f dag, á mánudag og þriðjudag, og
er gert ráð fyrir að hin ýmsu landssambönd leggi serkröfur sfnar
fram á þessum fundum.
Svavar
heldur
vatnslita-
mynda-
sýningu í
Bogasal
SVAVAR Guðnason listmálari
ætlar að opna sýningu á vatns-
litamyndum og nokkrum
krftarmyndum f Bogasal Þjóð-
minjasafnsins á laugardaginn
kemur. Svavar hefur Iftið sýnt
síðasta áratuginn eða allt frá
þvf að hann hélt síðast sjálf-
stæða málverkasýningu í Casa
Nova fyrir 8—9 árum.
„Þetta verða aðallega vatns-
litamyndir sem ég sýni hér,“
sagði Svavar i samtali við
Morgunblaðið í gær, „en einn-
ig verða nokkrar krítarmyndir
— í lit. Hérna verður nýtt og
gamalt í bland — elztu
myndirnar eru frá 1936 eða
Framhald á bls. 26
Kaup heimilud á þremur skuttogurum:
ar og Akraness
STJÓRN fiskveiðasjóðs mun hafa
samþykkt á fundi sfnum í fyrra-
dag að heimila kaup á þremur
skuttogurum erlendis frá, tveir
togaranna eru smíðaðir í Noregi
og hinn þriðji f Frakklandi.
Endanlegt kaupverð þessa
þriggja skuttogara er um 1500
milljónir króna.
Togararnir, sem keyptir verða
frá Noregi, eru báðir byggðir hjá
Storvik mekaniske verksted i
Kristiansand og kosta um 600
millj. kr. Fer annar togarinn til
Hafnarfjarðar og verður hann af-
hentur í næsta mánuði. Er það
mjög svipað skip og hinn nýji
skuttogari Seyðfirðinga, Gull-
berg. Kaupandi skipsins er
Bæjarútgerð Hafnarfjarðar o.fl.
og á togarinn að koma í stað síðu-
Framhald á bls. 26
mest á Vestfjörðum: Sker sig úr annað
árið í röð með 41% meðal-
brúttótekjuaukningu milli ára
SAMKVÆMT athugun
sem Þjóðhagsstofnunin
hefur látið gera á hækkun
meðalbrúttótekna einstakl-
inga í nokkrum landshlut-
um á síðastliðnu ári miðað
við árið á undan kemur í
ljós að tekjuaukningin er
mest á Vestfjörðum og
sker sá landshluti sig úr
annað árið í röð. Á síðasta
ári hefur einnig orðið tölu-
vert meiri tekjuaukning á
Norðurlandi heldur en á
höfuðborgarsvæðinu eftir
þessari athugun Þjóðhags-
stofnunar að dæma.
Að því er Ólafur Davíðsson,
aðstoðarforstjóri Þjóðhagsstofn-
unar, tjáði Morgunblaðinu í gær
var á vegum stofnunarinnar gerð
könnun á hækkun meðalbrúttó-
tekna einstaklinga, bæði á ísa-
firði og Akureyri á sl. ári miðað
við árið á undan. Ólafur sagði, að
samkvæmt þessari könnun virtust
meðalbrúttótekjurnar hafa
hækkað um 41% á ísafirði frá
fyrra ári, en um 38% á Akureyri
miðað við árið á undan.
Áður hafa komið fram upplýs-
ingar um að hækkun meðalbrúttó-
tekna einstaklinga í Reykjavík og
Hafnarfirði á sama timabili var
rösklega 30%. Ólafur sagði, að
þessar tölur bentu þvi til þess að
bæði á Vestfjörðum og Norður-
landi hefði tekjuaukningin i fyrra
orðið talsvert meiri heldur en á
Suðvesturlandi.
Ólafur kvaðst einnig hafa
fengið tölur um meðalbrúttó-
tekjuaukninguna á Suðurnesjum,
en þær væru ekki taldar nógu
áreiðanlegar. Hins vegar bentu
þær einnig til þess að tekjuaukn-
ingin þar væri meiri en á höfuð-
borgarsvæðinu. Að sögn hefur
ekki verið ráðist í athugun af
þessu tagi á Austurlandi og
Suðurlandi enn sem komið er.
Ólafur sagði ennfremur varð-
andi þessar athuganir, að ef litið
væri á útkomuna í samsvarandi
athugun á síðasta ári þá hafi
tekjuaukningin á ísafirði verið
37 % milli 1974 og 1975 en á Akur-
eyri um 31 % meðan hún var rétt
um 30% i Reykjavik. ísafjörður
skæri sig þannig úr annað árið í
röð en Akureyri einnig síðara árið
þótt ekki væri það i líkingu við
það sem gerðist á ísafirði. Ljóst
væri því, að mikill uppgangur
væri nú á Vestfjörðum, er ætti
rætur sinar að rekja til blómlegr-
ar útgerðar fyrst og fremst.
Veturinn loksins
að ganga í garð
Hægir á gróðrinum,segirgarðyrkjustjórihinn kátasti
„ÞAÐ ER engu Ifkara en að
veturinn sé að ganga f garð þó
að seint sé,“ sagði veðurfræð-
ingurinn á Veðurstofunni f
gærkvöldi, „þvf aö mér sýnist á
öllu að það muni verða áfram-
haldandi norðanátt."
Þetta var nóg til þ'ess að
Morgunblaðið hafði samband
við Hafliða Jónsson, garðyrkju-
stjóra Reykjavíkurborgar, og
spurði hann um áhrif þessa
kuldakasts á gróðurinn, en
hann var hinn ánægðasti —
kuldinn gerói bara gróðrinum
gott, það hægði á honum, þvi að
hann hefði verið kominn vel á
veg í allri blíðunni undanfarið
en þó ekki svo að frostið ylli
neinum spjöllum. Það væri
helzt að frostið hefði einhver
áhrif á laukplöntur og ráðlagði
mönnum sem rækta slíkar urtir
að skýla þeim með einhverjum
hætti — jafnvel að hylja þær
með pappírspokum.
Framhald á bls. 26
Hjúkrunarfræðing-
arnir fresta fram-
kvæmd uppsagna
HJtJKRUNARFRÆÐINGAR á
Borgarspftala, Landakotsspftala
og Vífilsstaðaspftala, sem sagt
höfðu sagt upp störfum og til stóð
að gengju út af þessum spftölum
1. og 15 aprfl, hafa nú tekið þá
ákvörðun að beiðni stjórnar
Hjúkrunarfélags íslands að
fresta framkvæmd uppsagna
fram yfir gildistöku sérkjara-
samnings H júkrunarfélags ís-
lands annars vegar og fjármála-
ráðuneytis og Reykjavíkurborgar
hin.s vegar og til að sjá hverjar
efndir verða á loforðum, sem
hjúkrunarfræðingar segjast hafa
fengið skriflega frá fjármálaráð-
herra og borgarstjóra um að mál
þeirra hljóti sérstaka meðferð f
komandi samningum, eins og seg-
ir í fréttatilkynningu hjúkrunar-
fræðinganna sem hér fer á eftir:
„Fyrirsjáanlegt er algert neyð-
arástand á sjúkrahúsum á höfuð-
Framhald á bls. 26
Fara til Ólafsvík-
ur, Hafnarfjard-
Friðrik
vann
FRIÐRIK sigraði svissneska
skákmanninn Hug f fjórðu um-
ferð skákmótsins í Genf, en
Guðmundur á biðskák á móti
Liberzon, sem Friðrik kvaðst
ekkert geta sagt um f samtali við
Morgunblaðið, þar sem hann
hefði ekki haft aðstöðu til að
kynna sér hana.
Önnur úrslit urðu þau í gær að
Larsen og Timman gerðu jafn-
tefli, svo og Anderson og Dzind-
zichashvili, Westerinen og Pack-
man, Ivkov og Sosonko og Byrne
og Torré. Friðrik tapaði í gær
biðskák sinni við Torré úr þriðju
umferð og Larsen og Liberzon
gerðu jafntefli.
Nú eru þeir efstir á mótinu
Dzindzichashvili og Packman með
2 og '/i vinning, en f 3.—5. sæti
eru þeir Guðmundur, Larsen og
Liberzon með 2 vinninga og bið-
skáka (þ.e. Larsen á eina skák
óteflda), en síðan koma þeir Frið-
rik, Anderson, Byrne, Ivkov og
Toré allir með 2 vinninga.
Fiskisaga
af sjónum
ENN er mikill þorskafli hjá tog-
urunum út af Vestfjörðum, og
eina fiskisögu fréttum við í gær,
sem ástæða er til að láta fljóta
með. Varðskip sigldi framhjá
hópi togara á veiðum á einni
fiskislóðinni fyrir vestan og
kallarnir voru að fá þetta 20 tonn
í hali. Hins vegar heyrðu varð-
skipsmenn að kallarnir ætluðu að
fara að kippa upp því að þeir
hefðu heyrt að einhverjir aðrir
væru að fá upp f 40 tonn f hali
ekki ýkja fjarri. Varðskips-
mönnum þótti það af sem áður
var — að 20 tonna hal væri ekki
lengur fullgott.