Morgunblaðið - 05.04.1977, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. APRÍL 1977
7
Þjóðviljinn og
þjóðkirkjan
Svarthöf ði skrifar
athyglisverða grein í Vísi
sl. laugardag og hittir þar,
eins og oft endranær,
naglann á höfuðið.
MorgunblaSið þykir rétt
að lesendur þess llti þessi
skrif í heild og fara þau
hér á eftir:
„Nýlega er lokið við að
lagfæra Dómkirkjuna að
innan. mála hana og skýra
gyllingar og aðra skreyt-
ingu í guðshúsinu. Það
féll auðvitað í hlut sóknar-
nefndar að sjá um fram-
kvæmd verksins, en for-
maður hennar er Magnús
Þórðarson, lögf ræðingur.
Blöð birtu fréttir og mynd-
ir af sóknarnefndinni,
þegar verkinu var lokið
eins og gjarnan er gert,
þegar um meiriháttar
framkvæmdir er að ræða.
Dómkirkjan er ein af
þremur höfuðkirkjum
landsins, og mikilsvert að
byggingunni sé vel við
haldið. Það vakti þvieðli-
lega athygli þegar bygg-
ingunni var gert til góða
og vel heppnuðu viðhaldi
á henni lauk.
Eitt blað sá þó ekki
ástæðu til að samfagna
yfir þessum aðgerðum.
Þjóðviljinn birti vist litið
eða ekkert um málið,
enda er honum meir um-
hugað um ýmislegt annað
en þjóðkirkjuna, saman-
ber tiða langhunda um
Ananda Marga. indversk
trúarsamtök með einskon-
ar róttækni ivafi. sem sel-
ur brauð til að hamla gegn
meltingarstiflum. Þá hef-
ur Þjóðviljinn eflaust haft
spurnir af snilldar mönn-
um eins og Þórbergi
Þórðarsyni, sem var
skrimslafræðingur hennar
hátignar bretadrottningar,
og Brynjólfi Bjarnasyni
sem hefur um sinn kann-
að lifið eftir dauðann, eða
allt frá þvi dró úr umsvif-
um hans hvað snertir lífið
hérna megin. Þannig er
Þjóðviljinn kunnur ýms-
um átrúnaði, þótt hann
skipti sér ekki daglega af
kirkjum eða þjóðtrú.
Árás á formann
sóknarnefndar
dómkirkju
„Það fór þó aldrei svo,
að i málgagni Þórbergs og
Brynjólfs birtist ekki
mynd af Dómkirkjunni
eftir viðgerð ásamt
sóknarnefnd. Tilefnið var
þó ekki það, að geta
hinnar nauðsynlegu við-
Magnús Þórðarson
gerðar og þakkarverðs
framtaks sóknarnefndar,
heldur fylgdi myndin sem
árétting með tilskrifi þess
efnis. að sú ósvinna rikti
að formaður sóknarnefnd-
ar væri jafnframt fulltrúi
Atlantshafsbandalagsins,
og hefur ekki áður heyrst
að menn mættu ekki
gegna nema sérstökum
veraldlegum störfum til
að vera gjaldgengir sem
stjórnarmeðlimir safnaða.
Fer þá að verða örðugt að
lifa f landinu, og hvað um
Brynjólf sem lengi hefur
eytt tima sínum í rök, sem
varla geta talist af þess-
um heimi.
Yfirleitt hafa kommún-
istar á vesturlöndum valið
þann kost að sjá kirkjuna í
friði. Það er aðeins
austantjalds sem kardin-
álar verða að flýja á náðir
erlendra sendiráða til að
halda lífi. En nú virðist
Þjóðviljinn þess albúinn
að hafa afskipti af kirkju-
legum málefnum hvaðan
sem sá trúaráhugi er ann-
ars runninn. Að visu er
vitað um afturgöngur nóg-
ar i herbúðum blaðsins en
þeim bláa sveim verður
vonandi komið fyrir hol-
um hrossleggjurp fram-
vindunnar, og tappinn
rekinn í — og heyrir sú
aðgerð ekki kirkjunni til.
Það er staðreynd að
áróðursefni sitt sækja
kommúnistar sumpart til
kirkjulegra hugmynda.
Mannréttindahópar
austantjalds geta svo bor-
ið þvi vitni hvernig staðið
hefur verið við þau
áróðurslegu fyrirheit.
Kannski er það þess
vegna sem nú þykir
ástæða til að ympra á þvi,
að samkvæmt mati Þjóð-
viljans starfi óæskilegir
menn innan kirkjunnar.
Það er að minnsta kosti
vitað hverjir yrðu annars
flokks borgarar kæmist
sjálft dýrðarrikið inn fyrir
stafi á íslandi. Þá yrði
fljótlegt að setja einhvem
skrímslafræðinginn á trón
i sóknarnefndinni.
Annars liggur ekki í
augum uppi hvert þeir
Þjóðviljamenn eru að fara
með árás sinni á Magnús
Þórðarson. Kannski er
blaðið bara að hefna
harma sinna á honum af
þvi hann vildi. af sérstöku
tilefni, hafa húsfrið fyrir
loðnu og skeggjuðu and-
ófsliði, og hafði ekki uppi
neinar afsakanir af því til-
efni. Árásin á Magnús
Þórðarson sem formann
Dómkirkjusafnaðar er
svona álíka gáfuleg og
blaðaskrif, þar sem annar
ritstjóra Þjóðviljans væri
tilnefndur sem tengda-
sonur þjóðkirkjunnar.
Svarthöfði"
25% afsláttur
ÞUMALÍNA
KYNNING
Þriðjudaginn 5. apríl n.k. kl. 16.30 og 17.30 fer fram
kynning í Dómus Medica, Egilsgötu 3, á þýzku
WELEDA jurta snyrtivörunum, svissneska undratækinu
NOVAFON og danska afslöppunarstólnum RELAX
25% kynningarafsláttur
Kynnir Hulda Jensdóttir
Þumalínu er mikið úrval sængurgjafa á góðu verði og allt
fyrir ungbarnið m.a. landsins ódýrustu bleyjur.
Næg bílastæði við búðarvegginn.
Sendum í póstkröfu. Sími 121 36.
Bamafataverzlunin
Þumalína
(áður Mæðrabúðin) Domus Med.ica,
Egilsgötu 3.
POLYFONKORINN
20 ára
Hátíðaliljónileikar
Efnisskrá. A. Vivaldi: Gloria
J. Bach: Magnificat
F. Poulenc: Gloria
Flytjendur: pólýfónkórinn — Sinfóniuhljómsveit
Einsöngvarar: Ann-Marie Connors, sópran, Ellsabet
Erlingsdóttir, sópran, Sigriður E.
Magnúsdóttir, alto, Keith Lewis, tenór,
Hjálmar Kjartansson bassi.
Alls 200 flytjendur.
Stjórnandi: Ingólfur Guðbrandsson
Háskólabtó á skfrdag, föstud. langa og iaugard 7,8. og 9 april
Aðgöngumiðasalan hafin hjá FERÐASKRIFSTOFUNNI ÚTSÝN, BÓKA
VERZLUN SIGFÚSAR EYMUNDSSONAR og HLJÓÐFÆRAHÚSI
REYKJAVÍKUR. Lauqav 96
MISSIÐ EKKI AF ÞESSUM TÓNLISTARVIÐBURÐI.
Húseigendur
HÖFUM Á BOÐSTÓLUM VIÐARÞILJUR
ÚR GULLÁLMI, EIK, HNOTU OG TEAK,
í STÆRÐUNUM 122x244 CM.
AUÐVELDAR í UPPSETNINGU,
STERKAR OG ÁFERÐAFALLEGAR.
Timburverzlunin
VÖlundur hf.
KLAPPARSTÍG 1, SÍMI 18430 — SKEIFAN 19, SÍMI 85244
Skartgripa-
skrfn
Gott úrval.
Póstsendi
Magnús E. Baldvinsson,
Laugavegi 8> sími 22804.
rGarða!jæF
Frá 1. apríl verður
afgreiðsla
Morgunblaðsins
í Garðabæ hjá
frú Þuríði Jónsdóttur,
Aratúni 2, sími 42988.