Morgunblaðið - 05.04.1977, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. APRIL 1977
23
1.DEILD KVENNA
Sólveig skorar fyrir FH gegn Ármanni.
ORUGGUR SIGUR FH-STULKNA
FH-STULKURNAR sýndu einn sinn bezta ieik á
keppnistfmabiiinu er þær unnu Ármann með 22
mörkum gegn 17 á sunnudagskvöldið. Hins vegar
var Ármannsiiðið nokkuð frá sfnu beztu, sérstak-
lega f seinni hálfleiknum, en að fyrri hálfleikn-
um loknum munaði aðeins einu marki á liðunum,
staðan var 8:7 fyrir FH.
Beztar f iiði FH voru Kristjana Áradóttir og
Margrét Brandsdóttir, en hjá Ármanni var
Guðrún Sverrisdóttir, f sérflokki.
MÖRK FH: Kristjana 8, Svanhvft 4, Margrét 4,
Katrfn 2, Sigrún 2, Sólveig 1, Pálfna 1.
MÖRK ÁRMÁNNS: Guðrún 7, Erna 3, Jórunn
3, Ánna 2, Sigrfður Brynjólfsdóttir 2.
ALDA SÚ EINA SEM FANN
LEIÐINA í VALSMARKIÐ
VALUR vann stórsigur yfir botnliðinu Breiðablik
í 1. deild kvenna i handknattleik, þegar liðin
mættust í Laugardalshöll á laugardaginn. Loka-
tölur leiksins urðu 25:12, eftir að staðan hafði
verið 11:6 í hálfleik. Valur er þvi örugglega í
toppsætinu og uppgjörið milli Vals og Fram i lok
mótsins verður vafalaust mjög spennandi.
Um þennan leik þarf ekki að fjölyrða, hann var
nánast einstefna. Gæðamunurinn á liðinu er
mjög mikill og Alda Helgadóttir var sú eina í liði
Breiðabliks, sem fann leiðina að marki Vals.
Skoraði hún 9 af 12 mörkum liðsins, þar af öll 6
mörk liðsins i seinni hálfleik. Var hún langbezt í
liðinu. Hjá Val áttu einna beztan leik Ragnheiður
Lárusdóttir, Björg Guðmundsdóttir og Oddný
Sigurðardóttir, en liðin var annars jafnt.
Mörk Vals: Ragnheiður Lárusdóttir 5 (2v),
Harpa Guðmundsdóttir 4, Oddný Sigurðardóttir 4
(lv), Björg Guðmundsdóttir 4 (2v), Ágústa Dúa
Jónsdóttir 3, Björg Jónsdóttir 3, Elín Kristins-
dóttir, Halldóra Magnúsdóttir eitt mark hvor.
Mörk Breiðabliks: Alda Helgadóttir 9 (3v),
Heiða Gunnarsdóttir, Hrefna Snæhólm og Sigur-
borg Daðadóttir eitt mark hver. — SS.
ÞRÍR ÁHORFENDUR BORGUÐU INN
KR tryggði sér sigur, 9:8 á móti FH úr aukakasti á
sfðustu sekúndum leiksins, þegar liðin mættust í
1. deild kvenna f islandsmótinu f handknattleik á
laugardaginn. Ekki komu margir áhorfendur f
Laugardalshöll til þess að fylgjast með þessum
ieik og þeim næsta á eftir, milli Vals og Breiða-
bliks. Aðeins þrfr áhorfendur greiddu aðgangs-
eyri að leikjunum!
Leikur KR og FH var jafn til að byrja með en
síðan seig KR fram úr og hafði t.d. yfir f hálfleik
6:4. En þegar leið á seinni hálfleikinn fóru FH-
stúlkurnar að saxa á forystuna og rétt fyrir leiks-
lok var staðan jöfn, 8:8. Á sfðustu sekúndum
leiksins fékk KR aukakast og gerði Sigrún
Sigtryggsdóttir sér lftið fyrir og skoraði beiní úr
aukakastinu og tryggði KR þar með bæði stigin f
þessum frekar slaka leik.
í liði KR bar mest á þeim Sigrúnu Sig-
tryggsdóttur, Hansfnu Melsted, Iljálmfrfði
Jóhannsdóttur og markverðinum, Helgu Bach-
man, en hjá FH var Kristjana Aradóttir atkvæða-
mest.
MÖRK KR: Hansfna Melsted 4, Sigrún Sig-
tryggsdóttir 3, Hjálmfrfður Jóhannsdóttir 2.
MÖRK FH: Kristjana Aradóttir 4, Svanhvft
Magnúsdóttir 3.
Ovænt mótstaöa Blikastúlkna
MÓTSTAÐA Breiðabliksstúlknanna í
leiknum við Fram i Garðahreppi á
sunnudaginn var meiri en nokkur átti
von á. Það var ekki fyrr en á loka-
mínútum leiksins að Fram náði
afgerandi forystu í leiknum, en loka-
tölur urðu 21:17, Framliðinu í vil. í
leikhléi var staðan 8:7 fyrir Fram.
Breiðabliksliðið hefur tekið framför-
um að undanförnu og munar þar mestu
að Alda Helgadóttir er komin í sitt
gamla form. Gerði hún 7 af mörkum
Breiðabliks i leiknum og var áberandi
bezt í liðinu. Af Framstúlkunum stóð
Guðríður Guðjónsdóttir sig bezt og
„vínklaskot“ hennar i lok leiksins settu
Breiðablik út af laginu. Þá átti Oddný
Sigsteinsdóttir góðan leik.
Mörk Breiðabliks: Alda 6, Hrefna 4,
Sigurborg 3, Heiða 3, Ester 1.
Mörk Fram: Guðríður Guðjónsdóttir,
7, Oddný 6, Jóhanna 3, Kristín 2, Stein-
unn 1, Sylvia 1, Guðríður Halldórsdóttir
1- —áij
ÞROTTUR VEITTIVÍK-
INGUM HARÐA KEPPNI
ÞRÓTTARAR veittu Víkingum svo sannarlega mótspyrnu I leik liðanna f 1.
deildinni í gærkvöldi, en á sfSasta stundarfjórðungi leiksins gáfu Þróttarar
eftir og Vfkingar sigruðu örugglega með 24 mörkum gegn 18. Eru Vfkingar
því með forystuna f 1. deildinni, ásamt Val en bæði liðin eiga eftir tvo leiki í
1. deildinni Leika Vfkingar gegn FH annað kvöld f Hafnarfirði.
Það voru Þróttarar. sem höfðu for-
ystu er leið á fyrri hálfleikinn gegn
Víkihgum og í leikhléi var staðan 9 8
Þrótti í vil Víkingar náðu forystunni
hins vegar fljótlega í seinni hálfleikn-
um, en Þróttur hélt í við Víkingana, allt
þar til um 8 mínútur voru eftir af
leiknum Breyttist staðan þá úr 17 16
fyrir Víkingi í 24 1 7 á stuttum tíma, en
síðasta orðið i leiknum átti Konráð
Jónsson, sem var yfirburðamaður í liði
Þróttar að þessu sinni, 24 18 fyrir
Víkinga. sem þannig sluppu með
skrekkinn
Af fastaliði Þróttar í vetur vantaði nú
fjóra leikmehn og höfðu þeir Kristján
Sigmundsson og Sveinlaugur
Kristjánsson bætzt á forfallalistann frá
því sem var á laugardaginn Var þvi
sama lið Þróttar inn á mest allan leik-
inn og var ekki að undra þótt liðið
slakaði á í lokin, þar sem fæstir eru
Þróttararnir i mikilli þjálfun Auk Kon-
ráðs átti Sigurður Ragnarsson góðan
leik i markinu. en í heildina var þetta
leikur meðalmennskunnar
Af Víkingunum var Þorbergur einna
drýgstur, en Ólafur Einarsson gerði
góða hluti i seinni hálfleiknum Þá var
þáttur Rósmundar ekki lítill i seinni
hálfleiknum, en í þeim fyrri sá hann
varla knöttinn Björgvin Björgvinsson
nýttist Vikingum litið i leiknum og
aðeins örsjaldan var gefið á hann.
Verður það þó að segjast að i seinni
hálfleiknum var meiri hugsun i sóknar-
leik Vikinga en að undanförnu í þess-
um leik misnotuðu Þróttarar 4 vitaköst
og munar um minna í jöfnum leik
Víkingar nýttu hins vegar öll sin
vitaköst og heyri það til tiðmda i þeim
herbúðum
KR vann Víking
í 1. deild kvenna
KR sigraði Víking örugglega
í 1. deild kvenna í gærkvöldi.
Úrslit leiksins urðu 12:6 fyrir
KR, en í leikhléi var staðan
8:2. t kvöld leika KR-
stúlkurnar gegn Val í bikar-
keppninni.
Dómarar i leiknum voru Karl
Jóhannsson og Gunnar Kjartansson og
dæmdu vel
IS/lörk Víkings: Ólafur Einarsson 9.
Þorbergur Aðalsteinsson 5. Páll
Björvinsson 2. Björgvin Björgvinsson
3. Viggó Sigurðsson 3, Jón Sigurðs-
son 1. Ólafur Jónsson 1
Mörk Þróttar: Konráð Jónsson 9,
Halldór Bragason 2. Gunnar Gunnars-
son 2. Bjarm Jónsson 1. Jóhann
Frimannsson 2. Sigurður Svemsson 1
Rósnuindur Jónsson varði 2 vitaköst
frá Halldóri Bragasyni og eitt frá Kon-
ráð Jónssyni, auk þess átti Halldór
vitakast i stöng
Ólafi Jónssyni og Halldón Bragasyni
var vikið af velli i 2 mínútur hvorum
—áij.
Ólafur Einarsson
VtKINGUR: Rósmundur Jónsson 3, Björgvin Björgvinsson 2,
Páll Björgvinsson 2, Erlendur Hermannsson 2, Ólafur Jónsson 1,
Þorbergur Aðalsteinsson 3, Ólafur Einarsson, 3, Jón G. Sigurðs-
son 1, Viggó Sigurðsson 2.
ÞRÓTTUR: Sigurður Ragnarson 3, Halldór Bragason 2, Gunnar
Gunnarsson 2, Jóhann Frfmannsson 1, Konráð Jónsson 3, Bjarni
Jónsson 2, Sigurður Sveinsson 1, Haraldur Jónsson 1, Arni
Svavarsson I.
YFIRBURÐIR HJÁ ÍS-
LENZKU LIÐUNUM í
SENDIHERRAKffPNINNI
Á laugardaginn voru sfðustu leikirnir í sendiherrabikarkeppninni
leiknir og fóru leikar svo að bæði kvenna- og karlalið okkar unnu
vallarliðin með miklum mun. Reykjavfkurúrval stúlknanna var alltaf
betri aðilinn gegn vallarstúlkunum og það var aðeins spurning um það
hve sigurinn yrði mikill og lauk leiknum með yfirburða sigri, 46 — 27
okkur f vil. Það voru þær Emelia Sigurðardðttir og Guðrún Bachmann
sem voru atkvæðamestar f liði Reykjavfkurúrvalsins og skoruðu þær
um heiming stiga liðsins.
I.okaúrslit f kvennaflokknum urðu þvf þau að Reykjavfkurúrvalið
vann 2 leiki en vallarstúlkurnar 1.
Karlalandsliðið átti I dálitlum
brösum með vallarliðið i fyrri
hálfleik, sem var afar slakur, og
virtist sem þreytu eða áhugaleysis
væri farið að gæta hjá leikmönn-
um, sem gerðu sig seka um margs
konar mistök. Landsliðið hafði þó
9 stiga forystu i leikhléi, 34 — 25.
Seinni hálfleikur bar svo af þeim
fyrri eins og gull af eir og voru
yfirburðir landsliðsins með ólik-
indum og gekk allt upp sem reynt
var og í lokin fengu þeir Torfi
Magnússon og Bjarni Gunnar
Sveinsson að leika í stöðu bak-
varða og skiluðu þeir því hlut-
verki með sóma enda hefur það
lengi verið þeirra æðsti draumur
að leika i þeirri stöðu. Lokatölur
leiksins urðu svo 96 — 42, lands-
liðinu í vil og vann það því seinni
hálfleikinn með 62 stigum gegn
17 og eru það sjaldséðir yfirburð-
ir. Með þessum yrirburðasigri
lauk sendiherrabikarkeppninni
með 5 — 0 vinningi landsliðinu i
vil í karlaflokki.
HG