Morgunblaðið - 05.04.1977, Side 18
18
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. APRIL 1»77
I
Með Pólýfónkórnum á œfingu:
Hér einbeita kórfélagar sér við Gloria eftir Poulenc.
„ Ofsaleg vinna...
en höfum tnikla
ánœgju afhenni*f
—segja kórfélagar
— ÞAÐ heyrist bara ekkert I ykk-
ur. IngólfurGuðbrandsson,
stjórnandi Pólýfónkórsins og 50
manna hljómsveitar, hafði orðið
og var ekki alveg nógu ánægður
með hvað Htið heyrðist f kórnum.
Blaðamaður heyrði hins vegar
alveg, en það var hægt að gera
betur. Þegar við Morgunblaðs-
menn litum inn I Háskólabfó á
sunnudagsmorgni var æfing f
fullum gangi og viðfangsefnið var
verk eftir franska tónskáldið
Francis Poulenc.
— Ég held ég verði að fá að
heyra þetta einu sinni ennþá, það
vantar meiri gleði f þetta, sagði
Ingólfur og beindi enn orðum sfn-
um til kórsins. Þannig var haldið
áfram unz allir smágallar höfðu
verið sniðnir af. Þó var ekki allt
búið, þegar æfingunni f Háskóla-
bfói var lokið, um eittleytið, hald-
ið var áfram sfðdegis í Vogaskól-
anum, þ.e. kórinn eingöngu.
Frðrik Einarsson, formaður
kórsins, sagði er við náðum tali af
honum í hléi, að æft hefði verið
allan laugardaginn, um morgun-
inn með hljómsveitinni og síðdeg-
is kórinn og sami háttur yrði hafð-
ur á með sunnudaginn, einnig
væri fyrirhugað að æfa á mánu-
dags- þriðjudags- og miðvikudags-
morgni og á kvöldin líka. Sagði
Friðrik að mjög mikið hefði verið
æft undanfarna daga, enda ekki
langt í það að fyrstu hljóm-
leikarnir verði, á skirdag.
Er að prófa
alla kóra
I hléinu sáum við hvar sátu á
einum bekknum þrjú saman og
voru að spjalla saman. Við feng-
um að trufla samtalið og beina
nokkrum spurningum til þeirra.
„Tríóið“ var: Signý Sæmunds-
dóttir, Berglind Lieder og Rúnar
Matthíasson.
— Ég er bara byrjandi, sagði
Signý, en hún syngur sópran og
jafnframt því að syngja í Pólýfón
leggur hún stund á fiðlunám í
Tónlistarskólanum og söngnám
einnig.
Berglind: Ég tók þátt i flutningi
á Messías, en í fyrra var ég ekki
með, og Berglind syngur einnig
sópran, lærir á pianó, söng og
vinnur hálfa vinnu.
Þá komum við að Rúnari: Ég er
að prófa alla kóra á Islandi og
byrjaði i Pólýfónkórnum um ára-
mótin, þegar æfingar á þessari
efnisskrá hófust. Siðan voru þau
spurð um vistina i kórnum, hvort
hún væri skemmtileg:
— Þetta er ofsaleg vinna, sagði
Berglind, og kemur niður á
námi. . . það hlýtur að gera það,
bætti Rúnar við, bæði hjá fjöl-
skyldufólki og öðru . . . og við höf-
um mikla ánægju af þessu, botn-
aði Signý. Um það voru þau öll
sammála, þetta væri virkilega
gaman, erfitt á köflum, en mest
gaman á konsertdegi, þegar vinn-
unni væri skilað.
— Það setur í mann kraft þegar
unnið er að svo erfiðri efnisskrá
sagði Rúnar, enda er þetta talið
ein erfiðasta og jafnframt glæsi-
legasta efnisskrá, sem Pólýfón-
kórinn hefur flutt.
Að Iokum voru þau spurð hvað
tæki við eftir þessa hljómleika og
svaraði Rúnar fyrir þau öll:
— Við náum sennilega að draga
tvo andardrætti fram að siðari
hálfleik, áður en farið verður að
æfa fyrir Ítalíuferðina, en þá á að
æfa Messias, sem kórinn hefur
áður flult, en farið verður með
tvær efnisskrár til Italíu.
Vissi varla um
þessa tónlist
Sigríður Óskarsdóttir er ritari
kórsins og jafnframt raddfor-
maður í altrödd. Hvað gerir radd-
formaður?
— Við sjáum um að láta alla
vita af æfingum, hringjum i fólk,
ef á þarf að halda, merkjum við
og höfum eftirlit með mætingum
hjá kórfélögum. Kórnum hefur
verið skipt niður i hópa — 10
manna hópa og er einn „oddviti"
fyrir hverjum hópi og höfum við
samband við þá til að þeir hafi
siðan áfram samband við kór-
félaga, ef á þarf að halda, því áður
gat verið að maður þyrfti að
hringja í allt að 40 manns. Okkur
finnst mikilvægt að hafa samband
við fólkið i kórnum á þennan hátt,
þá kynnist það frekar og því
finnst það skipta verulegu máli í
hópnum, það hverfur ekki í fjöld-
ann.
Þurfið þið ekki á fríi að halda
frá vinnu þegar æft er svona mik-
ið og hvernig gengur að fá það?
— Það gengur sérstaklega vel
þar sem ég vinn og mikill skiln-
ingur er hjá minum atvinnuveit-
anda i sambandi við kórstarfið og
við höfum líka leitað til atvinnu-
veitendanna með fjárstuðning og
því hefur verið mjög vel tekið.
Hvernig stóð á þvi að þú byrj-
aðir að syngja með kórnum?
— Ég byrjaði í kórskólanum og
hafði ég eiginlega alls ekki kynnzt
svona vcrkum áður, ég tók þetta
upp hjá sjálfri mér og ég á ekki
orð yfir hvað þetta er stórkostlegt
— t.d. Bach-verkið, Magnificat.
Ég hafði varla tekið eftir svona
tónlist fyrr og mér finnst hún
alveg stórkostleg. Það er líka
mjög gaman í kórnum og mér
finnst það aðdáunarvert hvað
fjölskyldufólk getur staðið I
þessu, svona margar og miklar
a?fingar, mér finnst það allt í laga
þar sem ég er einhleyp, en það
hlýtur að vera erfiðara þar sem
fjölskyldufólk á í hlut.
Ingvar Jónasson, vfóluleikari. Aftan við hann sitja tveir fyrrverandi nemenda hans, Sesselfa Halldórs-
dóttir, t.v. og H