Morgunblaðið - 05.04.1977, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. APRIL 1977
19
að hann vonaði það bezta, það
hefði verið sagt að rrva<5ur kæmi í
manns stað, en það væri sjálfsagt
erfitt i þessu tilviki, og fólkið fer
sjálfsagt í aðra kóra.
Gamalt samstarf
endurnýjað
Að síðustu var rætt við einn af
hljóðfæraleikurunum, Ingvar
Jónasson víóluleikara, en hann er
hingað kominn frá Svíþjóð til að
taka þátt í þessum hljómleikum:
— Ingólfur hringdi I mig fyrr i
vetur og bauð mér upp á að koma
hingað og vera með, en við störf-
uðum saman hér fyrr á árum þeg-
ar Pólýfónkórinn hóf að flytja
verk með hljómsveit. Þá var ég
Ingólfur Guðbrandsson, stjórnar 200
manns á sviði Háskólabiós, 150 söngvur-
um og 50 hljóðfæraleikurum.
„Trlóið, frá vinstri Signý Sæmundsdóttir, Rúnar Matthfasson og Berg-
lind Lieder. Ljósm. RAX.
Tenór alla ævi
Fólkið dreifðist um salinn i hlé-
inu og fékk sér kaffisopa af brús-
um sínum og brauðbita með og
aftur í miðjum sal fundum við
einn af tenórunum, Hjálmtýr
Hjálmtýsson kvaðst maðurinn
heita:
— Ég hef verið tenór alla ævi
— byrjaði á að skæla í tenór og ég
vona bara að ég endi ekki i bass-
anum, — og sjálfsagt vonar bass-
inn það lfka.
Hjálmtýr er ekki alveg nýr i
sönglistinni, hann hefur verið í
kórnum í yfir 20 ár og komið víða
við:
Já, ég hef m.a. sungið í Karla-
kór Reykjavljjur og farið i söng-
ferð með honum, einnig hef ég
sungið með Þjóðleikhúskórnum,
svo og Frikirkjukórnum. 1 Pólý-
fónkórnum hef ég sungið i þrjá
vetur, er þetta þriðja verkefnið
sem ég tek þátt f, áður hef ég
verið með í Massíasi og H-moll
messunni. Við hefjum æfingar á
Mcssiasi eftir þessa hljómleika
fyrir Italiuferðina og verður það
án efá skemmtileg ferð og ég held
að fólkið sé þegar farið að hlakka
til.
Varðandi framtið kórsins þegar
Ingólfur hættir, sagði Hjálmtýr,
konsertmeistari hjá honum og að-
stoðaði hann við að ráða hljóm-
sveatarfólk og mér þykir mjög
vænfum að hann skyldi hafa
munað eftir mér nú. Við Ingólfur
höfum alltaf átt góða samvinnu og
hef ég ailtaf dáðst að dugnaði
hans.
— Annars átti ég að vera i
plötuupptöRu þessa daga fyrir
páska ásamt Einari G. Svein-
björnssyni fiðluleikara, og Guido
Vecchi, sem leikur á selló, en við
gátum fengið tima okkar í stúdíói
breytt, svo að af þessari ferð
minni gæti orðið.
Síðan var Ingvar spurður hvað
framundan væri hjá honum:
— Ég verð mest að spila
kammermúsik og förum við til
Noregs í haust i tónleikaferð og
einnig fer ég með trióið Per-OIof
Johnsons í ferð um Sviþjóð.
Nú var hléið búið og Ingólfur
og aðrir farnir að koma sér fyrir á
sviðanu til að hefja störf að nýju.
Nú átti að æfa Magnificat eftir
Bach og virtist það ætla að ganga
mjög vel, Það ætti þvi alveg að
vera óhætt að leggja leið sína í
Háskólabíó nú þegar þessir síð-
ustu hljómleikar Pólýfónkórsins
verða undir stjórn Ingólfs
Guðbrandssonar.
Ingólfs Apótek, sem um mörg undanfarin ár hefur verið f Fischerssundi hefur nú
flutzt á jarðhæð f gamla Mjólkurfélagshúsinu á horni Hafnarstrætis og Naustanna,
þar sem Ferðaskrifstofa Zoega var áður til húsa. t myndinni er Werner Rasmusson.
lyfsali, ásamt nokkru af starfsfólki sfnu f hinum nýja afgreiðslusal apóteksins.
Hvalfjard-
arduflið
hluti úr
kafbáta-
legufærum
HLUTURINN, sem varð-
skipið Óðinn kom með til
hafnar í Reykjavík fyrir
nokkru og virðist vera af
einhvers konar dufli, er nú
kominn á land og geymdur
hjá Landhelgisgæzlunni.
Frekari rannsókn á honum
hefur ekki farið fram, en
að sögn starfsmanna Land-
helgisgæzlunnar er mjög
trúlegt að hann sé rúss-
neskur. Virðist hluturinn
vera neðri hluti af stærra
dufli, sem hefur verið
skrúfaður ofan á þennan
hluta. í þessum neðri hluta
er einnig rými þar sem raf-
geymar virðast hafa verið
geymdir.
Duflið, sem sást á reki í
Hvalfirði fyrir helgina,
liggur nú á Hvaleyri. Við
rannsókn kom í ljós, að
þetta er gamalt kafbáta-
dufl úr kafbátalegu frá
striðsárunum og algjörlega
hættulaust. Það hefur leg-
ið á botninum og þegar
þunginn ofan á því hefur
skyndilega minnkað hefur
það farið upp á yfirborðið.
/
Isinn hef-
ur rekið
frá landi
FLUGVÉL Landhelgisgæzlunnar
TF-Syn fór í iskönnunarflug I
gærmorgun. Kom þá í ljós, að
siglingaleið á grunnleið var vel
fær öllum skipum, enda hefur ís-
inn, sem kominn var upp undir
landið, rekið út aftur i SV-áttinni.
Hins vegar var spáð norðanátt úti
fyrir Norðurlandi í gær og áttu
menn von á að isinn myndi þá
aftur reka upp að landinu.
í iskönnunarflugi SYN var
helzt að sjá staka jaka á svæðingu
frá Langanesi að Hraunhafnar-
tanga, og svæðið frá Eyjafirði að
Horni var svo til islaust.
ENN BREYTUM
VIÐ TIL BATNAÐAR..
Viö höfum bætt viö 2 færibandaafqreiösluboröum þannig aö
þau eru nú oröin 4. Er þetta gert í þeim tilgangi aö veita
viöskiptavinum vorum betri þjónustu.
Fljótari afgreiösla, minni biö.
Komiö og- sannfærist. Einnig höfum viö sett upp nýjar
og glæsilegar hillur undir brauövörur, suitur, matarolíur og fl.
Komiö og kaupiö heilsuvörurnar úr nýjum laglegum hillum.
Kaupgaróur
..a leiðinni heim
Smiöjuvegi 9 Kópavogi