Morgunblaðið - 05.04.1977, Síða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. APRlL «77
Með frumvarpi
Framhald af bls. 15
að forðast að eiga viðræður við
póstmenn, þar sem hann ber
ábyrgð á störfum hennar að því
leyti, að lokatillögur nefndarinn-
ar fara um hans l.’ndur til sam-
þykktar eða neitunar. Ráðherr-
ann hlýtur að hafa gert sér ljóst,
HÖGGDEYFAÚRVAL
FJAÐRIR
KÚPLINGSDISKAR
KÚPLINGSPRESSUR
SPINDILKÚLUR
STÝRISENDAR
VIFTUREIMAR
KVEIKJUHLUTIR
FLEST I RAFKERFIO
HELLA aðalluktir, lukta-
gler, luktaspeglar og
margs konar rafmagns-
vörur
BOSCH luktiro.fi.
S E.V. MARCHALL lukt
ir
CIBIE luktir.
LJÓSASAMLOKUR
BÍLAPERUR allar gerðir
RAFMAGNSVÍR
FLAUTUR 6—24 volt
ÞURRKUMÓTOR
6—24v
ÞURRKUBLÖÐ
ÞURRKUARMAR
BREMSUBORÐAR
BREMSUKLOSSAR
ÚTVARPSSTENGUR
HÁTALARAR
SPEGLAR í úrvali
MOTTUR
HJÓLKOPPAR
FELGUHRINGIR
AURHLÍFAR
MÆLAR alls konar
ÞÉTTIGÚMMÍ OG LÍM
HOSUR
HOSUKLEMMUR
RÚÐUSPRAUTUR
FELGULYKLAR
LOFTPUMPUR
STÝRISHLÍFAR
KRÓMLISTAR
BENSÍNLOK
TJAKKAR 1’/2—30T
VERKSTÆÐISTJAKKAR
FARANGURSGRINDUR
BÖGGLABÖND
ÞOKULJÓS
SMURSPRAUTUR
PÚSTRÖRAKLEMMUR
RAFKERTI
LOFTFLAUTUR
BENZÍNSÍUR
EIRRÖR+ FITTINGS
BRETTAKRÓM
VERKFÆRI
SLÍPIPAPPÍR
VATNSDÆLUR
ÞVOTTAKÚSTAR
BARNAÖRYGGIS
STÓLAR
BARNABÍ LBELTI
BÍLBELTI
HNAKKAPÚÐAR
ÖSKUBAKKAR
MÆLITÆKI f. rafgeyma
SWEBA sænskir úrvals
rafgeymar
ISOPON OG P 38 beztu
viðgerða- og fylliefnin
PLASTI-KOTE spray
lökkin til blettunar o.fl.
Athugið
allt úrvalið
snaust h.t
Siðumúla 7—9
Sími82722
að svo mikil og stór mál verða
ekki til lykta leidd af skynsemi
nema I samráði við starfsmenn
stofnunarinnar.
Ráðgjafafyrirtækið
lagði ekki til sama
rekstrarform og er
hjá póstinum í Noregi
Þá má geta þess, að það vakti
sérstaka athygli hvernig ráðgjafa-
fyrirtækið vann þetta mál frá
byrjun. Þess varð aldrei vart, að
frá þvi kæmu tillögur um sams-
konar rekstrarform og er hjá
póstþjónustunni í Noregi. Þar er
póstur og sími aðskilinn, en þó
starfa þessar tvær þjónustustofn-
anir í samvinnu á takmörkuðum
sviðum. —
Það er einna líkast því eins og
að lagt hafi verið fyrir ráðgjafa-
fyrirtækið, að á þann veg ætti
ekki að vinna að málum hér á
landi. Ekki skal þó fullyrt að slíkt
hafi skeð, en óneitanlega vekur
það grunsemd um að mistúlkun
hafi átt sér stað, að skipulags-
nefndin, öll með tölu, hefur hald-
ið því fram fram i bréfi, að alger
sameining pósts og síma hafi átt
sér stað árið 1935!
í 1. gr. laga um stjórn og starf-
rækslu pósts og sfmamála frá
1935 segir svo í lok greinarinnar:
„Sameining yfirstjórnar póst-
og símamála fer fram þegar sýnt
er að það hafi fjárhagslegan
sparnað í för með sér eða telst að
öðru leyti nauðsynlegt."
í þessu sambandi má vitna til
bréfs Guðm. J. Hliðdals, dags. 8.
okt. 1934, en hann segir i lok þess:
„Þó hygg ég — að öliu athug-
uðu, að heppilegt væri að hraða
ekki um of fullkominni samein-
ingu pósts og sima, heldur undir-
búa málið rækilega og gefa þeim,
sem taka ætti við hinni sameigin-
legu forstjórn, tækifæri til að
kynna sér málið til hlítar og til að
athuga og undirbúa það í öllum
einstökum atriðum, til þess aó
komist verði hjá mistökum."
Sameiningin fór síðan fram um
landið, þó aðallega á seinni hluta
tímabilsins frá 1935, — nema hún
náði ekki yfir Reykjavík og Akur-
eyri.
Varðandi höfuðborgarsvæðið er
það m.a. að segja, að Póststofan í
Reykjavik er í fornri og nýrri
merkingu i raun höfuðstöðvar
póstsins, þar sem um 80% af pósti
landsins fer um, — og allur póstur
til og frá landinu. Þetta gerir það
að verkum, að póstmeistaraem-
bættið i Reykjavík er það mikil-
vægt fyrir póstþjónustu landsins í
heild, að óhjákvæmilegt er annað
en að það tilheyri aðalstjórn póst-
mála, svo sem verið hefur. Póst-
rekstrinum er það hagsmunamál
að eiga fulltrúa í æðstu stjórn
pósts og sima og það fleiri en
einn, eins og ég hefi lagt til f bréfi
til ráðherra, sem áður getur.
Hér er ekki um neina sam-
keppni að ræða við samstarfsaðil-
ann, símamenn og aðra starfs-
menn, heldur sanngjarnt og eðli-
legt atriði i góðum samskiptum
hinnar 200 ára ísl. póstþjónustu
og Landssíma Islands, sem nú á
70 ár að baki.
Samstarf póstmanna og síma-
manna hefur verið hið besta,
þrátt fyrir að hér er um tvenns-
konar fagmenn að ræða, skipu-
lagða i tveim stéttarfélögum. —
Það hefur aftur á hinn bóginn
orkað tvímælis, hvort æskilegt
hefur verið að póst- og símamála-
stjóri komi úr röðum annars aðil-
ans, en svo hefur verið frá upp-
hafi samstarfsins 1935, að 3 verk-
fræðingar frá símanum hafa hlot-
ið þennan starfa. —
Embætti póstmeistarans á
Akureyri hefur haft með höndum
póstrekstur þar á staðnum án
samstarfs við símann og ennfrem-
ur umdæmisstjórn af hálfu pósts-
ins norðanlands. Telja verður
eðlilegt frá sjónarmiði póstþjón-
ustunnar að svipað fyrirkomulag
haldist, enda er hér um mikils-
verðan hlekk að ræða, þjónustu-
lega séð, sem ekki má bresta. —
Bæjarstjórn Akureyrar hefur
samkvæmt lögum tiMögurétt um
framtíðarstöðu þessa mikilsvirta
embættis, sem hún ætti ekki að
láta fram hjá sér fara.
Þingmenn gerðu sér
Ijóst, að sameining
pósts og sfma
væri vandmeðfarin
Lögin um stjórn og starfrækslu
pósts- og síma frá 1935, sem enn
eru í gildi, bera þess vott að al-
þingismenn gerðu sér ljóst, að
vandi var á höndum með samein-
ingu pósts og síma. Ræður þing-
manna bera það og með sér að
þeim var umhugað að þessum
tveim þjónustustéttum, pósti og
síma, væri ekki mismunað á
kostnað annars aðilans. Lögin
voru gerð fram í tímann sem sést
m.a. á því, að gert er ráð fyrir
valddreifingu um landið með
stofnun póst og simaumdæma.
Það er þvf engin nýmæli sem nú
koma fram um stofnun umdæmis-
stjórastarfa, því fer víðsfjarri.
Þessi valddreifing hefur gert
mikið gagn, en ekki náð fullum
tilgangi vegna þess að yfirstjórn-
in stóð ekki heilshugar að fram-
kvæmd hennar.
Ég hygg, að flestir ef ekki allir
starfsmenn pósts og síma, sem
eitthvað þekkja til reksturs stofn-
unarinnar, séu sammála að breyt-
inga sé þörf i stjórnun á ýmsum
sviðum. Ekki skal þó nú gerð til-
raun til að tíunda þann þátt — né
á hvern hátt yfirbygging stofn-
unarinnar f heild er stödd, —
e.t.v. gefst tækifæri til þess síðar.
Það sem vel er gert ber að meta
að verðleikum. Á sama hátt ber að
gera sér grein fyrir því sem miður
fer hverju sinni. Flest ef ekki allt,
sem horfir til hins verra i störfum
skipulagsnefndarinnar var hægt
að forðast eða fyrirbyggja, hefði
vilji verið fyrir hendi. Það, sem
á vantaði var fyrst og fremst að
viðurkenna að rangt var að hlut-
unum staðið — manngildið brást.
Störf nefndarinnar voru dæmd til
að mistakast þegar það kom fram,
að hún ætlaði sér ekki að standa
við ákvarðanir um eðlileg vinnu-
brögð, sem sæmandi voru liðandi
stund.
Það voru mikil vonbrigði þegar
i ljós kom, að nefndin var ekki
betur i stakk búin en það, að
hún sá ástæðu til að vega að póst-
meistaraembættinu i Reykjavík
og leggur þar með áherslu á að
gera hlut póstþjónustunnar minni
í stjórn stofnunarinnar. Hér var
um grófa hlutdrægni að ræða og
óverðskuldaða árás á hina 200 ára
gömlu póstþjónustu.
Skipulagsnefndin
óskar umsagnar
starfsmannafélaga
eftir 3ja árastarf
Það kemur fram í framsögu-
ræðu samgönguráðherra, að
nefndin hefur óskað eftir áliti
starfsmannafélaga I ársbyrjun
1976 — þegar nefndin var við að
ljúka störfum. Um bréf þessara
félagssamtaka fara ráðherra orð á
þessaleið:
„... verður að telja að félögin
hafi tekið almennt jákvæða af-
stöðu til þeirrar stefnu sem mörk-
uð var í skipulags tillögum
nefndarinnar."
Ég er engan veginn viss um að
stjórnir viðkomandi félaga séu
sammála ráðherranum. Sam-
göngumálanefndir Alþingis hafa
þessi bréf undir höndum, eru þvf
hæg heimatök alþingismanna að
kynnast efni þeirra.
Póstmannafélag Islands er eitt
þessara félaga sem sendi svar.
Aðalinntak bréfs þess er á þessa
leið:
„Eins og yður er kunnugt sam-
kvæmt bréfum, er send hafa verið
30. des. 1974 og 28. febrúar 1975,
olli setning reglugerðar frá 20. —
12. ‘74 bæði reiði og undrun póst-
mannastéttarinnar, enda ekki
haft samráð við eða málið kynnt
Póstmannafélagi íslands. Fer
ekki á milli mála, að póstmeistara-
embættið f Reykjavík og þar með
pósthlið stofnunarinnar, er sett
skör lægra en áður.“
Formaður Póstmannafélags Is-
lands, sem skrifar undir bréfið til
nefndarinnar, segir í skýrslu
stjórnar póstmannafélagsins á
aðalfundi i maí 1975, birt f félags-
blaði:
„Reglugerðarmálið svonefnda
hefur tekið mikinn tíma hjá fram-
kvæmdastjórninni og langt mál
að tala um. Ég vænti þess að
menn geti fengið itarlegar upplýs-
ingar um það mál siðar á fundin-
um. Mörgum félögum okkar hef-
ur þótt mikið gert úr því máli, en
svarið tel ég sé fólgið f ummælum
fulltrúa norsku póststjórnarinn-
ar, sem var hér á ferð nýlega.
Hann sagði: Ef reynt hefði verið
að koma á jafn róttækum breyt-
ingum í Noregi, án viðræðna og
samráðs við félag póstmanna,
hefði það aðeins þýtt eitt og það
væri verkfall póstmanna."
Einkennileg en
þó eftirtektarverð
atriði f umsögn
nefndarinnar um
frumvarpið
I umsögn nefndarinnar um
frumvarpið eru nokkur atriði,
sem vert væri að gera að umtals-
efni, ,en þar sem þau skipta ekki
verulegu máli, verður ekki farið
ofan í þau, enda er ljóst að þau
byggjast á ókunnugleika á mál-
efnum stofnunarinnar og er það
ekki nema það sem búast mátti
við.
Sérstaka athygli vekja þó um-
sagnir um 5. gr. og 7. gr.
Um 5. gr. segir m.a.:
„I heild eru nýmæli að binda tölu
og verkefni aðaldeilda og fjölda
umdæma i lögum, en miklu skipt-
ir að hér verði um fast fyrirkomu-
lag að ræða, en ekki unnt að
breyta því í reglugerð eins og nú
án rækilegrar athugunar."
Er nefndin ekki hér að stað-
festa að útgáfa reglugerðar, sem
brýtur í bága vð lög standist ekki,
— eða hefur hún hér ruglast í
riminu óafvitandi eftir að hafa
staðið í því að rífa niður önnur
föst lagaákvæði, ekki ómerkari.
— Er annars nokkuð samræmi i
þessum málflutningi?
Um 7. gr. segir:
„I umdæmi I er umfang starfsem-
innar orðið það mikið í aðalkjarn-
anum á Stór-
Reykjavikursvæðinu, að eðlilegt
er talið að skilja að póstrekstur og
simarekstur í hvorri undir-
deildinni. Svipuðu máli gegnir
með Akureyri i umdæmi III...“
Hér er þvi beinlínis slegió fram
sem nýmælum, að póstrekstur og
simarekstur verði aðskilinn í
áðurnefndum tilvikum, — sem
sagt að nefndin telur að þetta
þurfi að vera svona samkvæmt
hennar athugun á rekstrarform-
inu. — Þessi aðskilnaður, sem
skipulagsnefndin er hér að ræða
um, hefur verið við líði allar göt-
ur frá árinu 1935 þegar samstarf
pósts og síma hófst á þessum stöð-
um. Er þetta hlutlaus og fram-
bærilegur skýringarmáti á máli,
sem verið er að leggja fyrir Al-
þingi?
Það sem hér er að bögglast fyrir
brjóstum nefndarmanna hefur
verið þannig í framkvæmd:
1.
Póststofan i Reykjavik hefur
alla tið starfað sem sjálfstæður
rekstraraðili án sérstaks sam-
starfs við simareksturinn. Hún
var i fyrri reglugerðum kölluð
SÉRDEILD og stjórnandi hennar,
póstmeistarinn, átti sæti I póst- og
simamálastjórninni og heyrði
beint undir póst- og símamála-
stjóra samkv. lögum. — Nú er
póststofan kölluð UNDIRDEILD í
hinum nýju reglugerðum, enda
heyrir stjórnandinn ekki til
„helstu burðarása" stofnunarinn-
ar eins og komist er að orði i
umsögn nefndarinnar um 8. gr.
frumvarpsins.
Umdæmi Póststofunnar í
Reykjavík var áður töluvert
stærra en nú, náði m.a. yfir Kópa-
vog, Garðahrepp og viðar, en
hæstráðendur á hverjum tíma,
voru si og æ að skerða umdæmið.
2.
Simareksturinn var undir
stjórn bæjarsímastjóra og ritsíma-
stjóra, og var hvor um sig stjórn-
andi sjálfstæðra rekstrardeilda.
Þeir heyrðu beint undir póst- og
símamálastjóra og áttu sæti i póst-
og símamálastjórninni. Sam-
gönguráðherra lagði þessi lög-
skipuðu embætti niður með til-
skipun, svo sem áður er fram
komið.
3.
Póstreksturinn í höfuðstað
Norðurlands hefur verið undir
stjórn póstmeistarans á Akureyri,
eins og áður er tekið fram. Sá
rekstur hefur verið óháður síma-
rekstrinum. Auk þessa hefur
póstmeistarinn gegnt umdæmis-
stjórn á vegum póstsins á Norður-
landi.
Samgönguráðherra
gefur út tvær
tilraunareglugerðir
Frumvarp til laga um stjórn og
starfrækslu póst- og símamála er i
höfuðatriðum byggt upp á hinum
tveim reglugerðum frá 20. des.
1974 og 3. júni 1976.
Samgönguráðherra gaf þessa
skýringu i framsöguræðu sinni á
Alþingi:
„Þýðingarmikið skref var stigið í
átt til nýs skipulags þegar 13. júni
1976, en sú reglugerð var sett að
tillögu nefndarinnar. Var það álit
mitt og nefndarmanna, að mál
það sem fjallað var um væri svo
margþætt og flókið að rétt væri að
byggja á reglugerð fyrst, og biða
með nýja lagasetningu, þar til
nokkur reynsla hefði fengist af
hinum nýju skipulagshugmynd-
um.“
Þó hér sé um óvenjulega yfir-
lýsingu að ræða er þetta táknræn
skilgreining á þeim vinnubrögð-
um, sem frá byrjun hafa einkennt
störf skipulagsnefndarinnar.
Verkefni hennar, sem voru skýrt
afmörkuð i ráðherrabréfi, hafa
stöðugt orðið flóknari í höndum
nefndarinnar frá 19. mars 1973,
sem verður svo til þess að ráð-
herra samþykkir að gefa út tvær
tilraunareglugerðir með 17 mán-
aða millibili.
Átta mánuðum eftir útgáfu sið-
ari reglugerðarinnar er svo Al-
þingi sent málið til meðferðar — í
þvi skyni að það setji lög reglu-
gerðunum til halds og trausts. —
Getur samgönguráðherra boðið
Alþingi upp á svona vinnubrögð?
Væntanlega skýrist það fljótlega
eftir páska, hvað alþingismenn
hafa um þetta að segja.
Niðurlagsorð
Þessi grein er skrifuð til að
skýra lítillega gang þess máls,
sem nú liggur fyrir Alþingi og
varðar póst- og simaþjónustu
landsins og alla þjóðina.
Hér er ekki um einkamál einn-
ar stjórnskipaðrar nefndar að
ræða, sem hefur þá ákvörðun efst
í huga þegar hún gengur til
starfs, að leita beri til erlends
aðila um tillögur og úrlausn á
innlendu rekstrarmáli á sama
tíma og hún sniðgengur að mestu
samstarf við innlenda aðila, er
gjörþekkja málavexti og búa yfir
margþættri reynslu i þeim mál-
um, sem verið er að fjalla um.
Þetta er eigi heldur einkamál
ráðherra, sem teflir fram valdi
sínu i tvísýnu gegn lögum lands-
ins, algerlega að óþörfu, þar sem
„hin leiðin" lá beint við, að leita
fyrst úrskurðar Alþingis um
hvort völd hans væru það mikil —
sem hann sjálfur álitur.
Ég tel, að honum hafi borið
siðferðileg skylda til að láta til sin
taka sem oddamaður þess máls,
sem hér var I deiglunni, kynna
sér ágreiningsmál aðila, ræða við
þá og hvetja til skynsamlegrar
samstöðu.
Embættisleg tilskipan getur átt
rétt á sér að undangenginni ítar-
legri og réttlátri málsmeðferð, en
sé kastað til hennar höndunum
getur hún leitt af sér valdniðslu,
svo sem þingmaðurinn vék að á
Alþingi. —
Alþingi ætti ekki að flýta þessu
máli um of, því hér er mikið og
vandmeðfarið mál á döfinni, sem
varðar alla landsmenn.
Póstur og simi er ein stærsta
stofnun landsins i þjónustulegu
tilliti og fjárhagslegu. — Föst og
ákveóin stjórn hennar getur skipt
hundruðum milljóna króna á ári
fyrir íslenskt þjóðfélag. Stjórn
slikrar stofnunar verður því að
vera traust og rammbyggð, — en
ekki veik og skjálfandi. —
Þar sem þetta mál ber nú að
öðru sinni I sölum Alþingis — hið
fyrra skipti var 1934, væri vel við
hæfi, að Alþingi kjósi sérstaka
þingnefnd til frekari athugunar á
máli þessu, svo ekki verði rasað
um ráð fram, frekar en orðið er, i
svo þýðingarmiklu máli.