Morgunblaðið - 30.08.1977, Side 17

Morgunblaðið - 30.08.1977, Side 17
17 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. AGÚST 1977 - ATA-þing Sir Frank Roberts: ATA fyrst og fremst skoðana- mótandi félags- skapur Sir Frank Roberts frá Bretlandi er einn þeirra sem sátu ársfund ATA hér á landi nú um helgina og formaður brezku nefndarinnar sem fundinn sótti. Hann á að baki langan og merkilegan feril innan brezku utanríkisþjónustunnar, var um tima sendiherra lands síns i Moskvu, einnig fulltrúi Bret- lands hjá Atlantshafsbandalaginu og um tíma formaður ATA- samtakanna. „Auðvitað er það nauðsynlegt fyrir stöfnun eins og Atlantshafs- bandalagið að hafa á bak við sig áhugamannasamtök almennra borgara í aðildarlöndunum til að styðja við starfsemi þess,“ sagði sir Frank í stuttu samtali við Morgunblaðið. „Og það er ekki síður nauðsynlegt fyrir fulltrúa þessara áhugamannasamtaka að koma saman reglulega til að kynnast vandamálum og viðhorf- um hverra annarra I hinum ýmsu löndum sem eru í NATO og vera í tengslum við yfirstjórn sjálfs bandalagsins. Sá er tilgangur árs- fundanna og þaðan komum við heim birgir af upplýsingum og vitneskju um stöðu bandalagsins, sem okkur síðan ber að kynna samborgurum okkar, því að ATA er fyrst og fremst skoðanamót- andi félagsskapur, sem ætlað er að þjappa aðildarþjóðunum að NATO saman unt starfsemi þess. En þótt ársfundir ATA og ráð- stefnur séu vissulega gagnlegar þá skipa þær'ekki sköpum heldur það slarf sent landsamböndin vinna hvert i sínu heimalandi milli fundanna, þvf að á þvl starfi veltur hinn stjórnmálalegi grund- völlur sem er brjóstvörn banda- lagsins." Máludu húsgafl kaupfélagsins Nemendur 12 ára bekkjar við Hvolsskóla á Hvolsvelli tóku að sér í vor að mála húsgafl á húsi Kaupfélags Rangæinga. Aður en nemendur tóku verkið að sér, fóru þeir I skoðunarferð um þorp- ið og leituðu eftir heppilegu við- fangsefni. Að því loknu settust þeir niður og hófu undirbúnings- vinnu í teiknitímum og að því loknu gerðu þeir samning við Kaupfélag Rangæinga um verkið. Meðfylgjandi mynd af húsgaflin- um tók Ottó Eyjörð. BALDWIN 132 2ja borða orgel með innibyggðum skemmtara, „Fantonfinger lí“ sjálfvirkui undirleikurum (píanó, gítar, hörpu, banj og harpcichord) og trommuheila með gítar og popgítar sem undirleikara. ALGERT UNDRATÆKI. Á sviði eða í stofu — Baldwin píanó svara ströngustu kröfum um hljómgæði. Hvert Baldwin píanó er listagripur og völundarsmíð sem hinir færustu iðnaðarmenn, listamenn í sinni iðn, hafa farið höndum um og gert að kjörgrip með heimsþekktum hljómgæðum. 5 ÁRA ÁBYRGÐ Stuttur afgreiðslufrestur. Hljóðfæraversun Pólmars Árna er eina sórverslun sinnar tegundar hér á landi. Höfum umboð fyrir heimsþekkt gæðamerki í hljóðfærum. Útvegum píanó og ftygla með stuttum fyrirvara. Notuð píanó tekin upp í ný. Veitum alla viðgerðarþjónustu á píanóum og orgelum. jf Baldwin píanó er fjárfesting í ■ hljómgæðum. Hljóðfæraverslun PÍILMkRS idRHÞ Borgartúni 29 Sími 32845 Tveggja borða skemmtari . . . Heil hljómsveit i einu hljómborði Tveggja böróa orgel með innibyggðum skemmtara. BALDWIN 121F Tveggja borða orgel með trommuheila og pedal Skemmtarinn, hljóðfærið sem allir geta spilað á BALDWIN 953 BALDWIN 806 130DE Pianó með bekk i hnotu, Píanó með bekk í hnotu, Tveggja borða orgel með mattpóleruð áferð hæð 90 cm mattpóleruð áferð hæð 106 cm „Fantonfinger I" sjálfvirkum undirleikurum ATH: Hinn frábæri orgelsnillingur Howard Beaumont leikur i standi Hljóðfæraverslunar Pálmars Árna i Heimilissýningunni í Laugardalshöll.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.