Morgunblaðið - 30.08.1977, Side 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. AGUST 1977
nægðu ekkí til
Afrekskeppni Fl:
RAGNAR VANN UNGLINGA-
MEISTARANN í BRÁÐABANA
íslenzkum kylfingum er ekki
fisjað saman. Það sýndu þeir nú
um helgina. og sérstaklega á
laugardaginn, er þeir létu sig hafa
það að leika 18 holur I hinni svo-
nefndu Afrekskeppni Flugfélags
íslands á Nesvellinum á Sel-
tjamarnesi. þrátt fyrir að veður
væri þanníg að varla væri stætt
vegna hvassviðris. En eftir 18 hol-
ur var mönnum llka nóg boðið, og
þá var ákveðið að láta við svo búið
standa og blða betra veðurs á
sunnudag. Þar sem keppni þessi
er 72 hola keppni varð þvl að leika
54 holur á sunnudaginn, og var
það því strangur dagur hjá kepp-
endunum.
Eins og vænta mátti var um
mjög jafna og tvlsýna baráttu að
ræða frj upphafi til enda, en svo
fór að lokum að Ragnar Ólafsson
sigraði og hreppir hann því hin
eftirsóknarverðu verðlaun I
keppninni, ferð til Skotlands.
Þrettán golfmeistarar áttu
keppnisrétt I afrekskeppninni. en
einn þeirra, Haraldur Júllusson frá
Vestmannaeyjum. gat ekki mætt
til leiks. þar sem ófært var milli
lands og Eyja. Einn kylfinganna
sem hófu keppni, Magnús Hall
dórsson. GK, hætti eftir að hafa
leikið 18 holur, en þær hafði hann
leikið á 98 höggum og var slðast-
ur allra. Hinir 11 keppendurnir
luku allir keppni.
Þegar eftir var að leika 18 holur
á sunnudaginn höfðu enn sex
keppendanna góða möguleika á
sigri, en mismunurinn á þeim
fyrsta og sjötta voru þá aðeins 3
högg. Heldur dró I sundur á slð-
ustu nlu hotunum, og stóð þá
baráttan um sigurinn milli Ragn-
ars Ólafssonar, GR, og unglinga-
meistara fslands 1977, Sigurðar
Péturssonar, GR. Hafði þá Ragnar
leikið 9 holurnar á 35 höggum,
eða pari vallarins, en Sigurður
gerði hins vegar enn betur og lék
á 33 höggum.
Þegar ein hola var eftir var Sig-
urður einu höggi betri en Ragnar.
En hann fór slðustu holuna á 5
höggum, og Ragnar á 4 höggum.
þannig að I keppnislok stóðu þeir
uppi jafnir. Urðu þeir þvl að halda
aftur af stað með allan áhorfenda-
skarann á eftir sér og leika þar til
annar sigraði á einhverri holu, eða
leika „bráðabana" eins og það er
nefnt á golfmáli. Þeirri viðureign
lauk með sigri Ragnars, sem þar
með hlaut hin eftirsóknarverðu
verðlaun.
íslandsmeistaranum, Björgvini
Þorsteinssyni frá Akureyri, vegn-
aði ekki sérlega vel I þessari
keppni og varð að sætta sig við
sjötta sætið, lék á 238 höggum.
Urslit I keppninni urðu þessi:
Ragnar Ólafsson, GR 230
Sigurður Pétursson, GR 230
Þorbjöm Kjærbo, GS 234
Sveinn Sigurbergsson, GK 234
Óskar Sæmundsson. GR 237
Björgvin Þorsteinsson. GA 238
Jón H. Guðlaugsson, NK 243
Jóhann R. Kjærbo, GS 243
SigurðurThorarensen. GK 247
Hálfdan Þ. Karisson. GK 251
ÓmarÖ. Ragnarsson, GL_________254 ^
Ágúst I. Jónsson skrifar
frá Kaupmannahöfn:
íslenzka sundfólkið, sem um
helgina tók þátt í Norðurlanda-
mótinu i sundi í Kaupmannahöfn,
vann ekki til neinna verðlauna og
mátti í flestum keppnisgreinanna
sætta sig við eitt af síðustu sætun-
um. Nokkur Islandsmet voru þó
sett og flest átti sundfólkið sinn
bezta árangur — en það var ekki
nóg. Þó að okkar fólki fari fram
með hverju árinu fleygir hinum
þjöðunum enn meira fram og við
drögumst stöðugt meir aftur úr í
sundinu.
— Það er ergiiegt að þrátt fyrir
framfarir íslenzka sundfólksins
skuli það stöðugt dragast aftur úr;
sagði Guðmundur Harðarson,
landsliðsþjálfi í sundi, að Norður-
landamótinu ioknu, og var greini-
lega ekki ánægður þrátt fyrir öll
Islandsmetin.
Bezti árangur Islendinga á mót-
inu var fjórða sæti Sonju Hreið-
arsdóttur í 200 metra bringu-
sundi. Fékk hún tímann 2:53,26
mín, og er það einni sekúndu iak-
ari timi en íslandsmetið í grein-
inni. Timi Sonju var 10 sekúndum
lakari en þeirrar sem varð í þriðja
sæti, þannig að töluvert vantaði
upp á verðlaunasæti.
Fyrsta Islandsmetið sem sett
var á Norðurlandamótinu setti
Sigurður Ólafsson í annarri
keppnisgreininni á föstudaginn,
400 metra skriðsundi. Fékk hann
tímann 4:17,24 mín., og bætti
eldra metið, sem hann átti sjálfur.
Var Sigurður elzti keppandinn á
mótinu, en hann er þó ekki nema
23 ára.
Sigurður tvíbætti síðan íslands-
metið i 200 metra skriðsundi,
fyrst synti hann á 2:00,99 min., og
í 4x200 metra skriðsundinu bætti
hann um betur. Synti hann fyrsta
sprett og fékk tímann 2:00,85
mín. Sigurður var síðan í boðs-
sundssveitunum sem settu met í
Ragnar Olafsson, sigurvegarinn i Afrekskeppni Fiugfélagsins
„púttar“ þarna af stuttu færi.
4x100 metra skriðsundi. Fékk
Ægissveitin, sem synti þetta sund
timann 3:50,33 min., og bætti þar
með met félagssveita um tæpar 5
sekúndur. I 4x100 metra fjór-
sundi fékk íslenzka sveitin tím-
ann 4:20,80 mín — eldra metið
var 4:22,6 min. Loks kom síðan
Islandsmet hjá piltunum f síðustu
greininni, 4x200 metra skrið-
sundi, en timi sveitarinnar var
8:18,61 mín.
Þórunn Alfreðsdóttir setti Is-
landsmet í 200 metra flugsundi,
fékk timann 2:24,85 mín., sem gaf
henni þó aðeins fimmta sætið i
greininni. Þetta sund var mjög
skemmtilegt og lengi vel átti Þór-
unn möguieika á þriðja sætinu,
en hún gaf eftir i Iokin. í rauninni
voru sett níu íslandsmet á mótinu
í Kaupmannahöfn, þar sem sum
metin eru einnig met á stuttri
braut.
I íslenzka sundliðinu sem
keppti á Norðurlandamótinu voru
Sigurður Ölafsson, Sonja Hreið-
arsdóttir, Þórunn Alfreðsdóttir,
Hermann Alfreðsson, Axel Al-
freðsson, Ölöf Eggertsdóttir,
Guðný Guðjónsdóttir, Hafliði
Halldórsson, Bjarni Björnsson,
Árni Eyþórsson, Vilborg Sverris-
dóttir og þjálfararnir þeir Guð-
mundur Harðarson og Ólafur
Gunnlagsson.
Flest er þetta fólk ungt að árum
ög reynslulítið og því miður er
greinilegt að gera þarf stórátak í
sundmálum á íslandi ef landinn á
að geta sent boðiegt lið á mót sem
þetta. Sem dæmi má nefna að
Árni Eyþórsson náði sfnum bezta
tíma í 100 metra flugsundi, en það
hefði þó aðeins dugað til fimmta
sætist hjá kvenfólkinu.
Svfar voru í nokkrum sérflokki
á þessu móti og fengu þeir alls 16
gullverðlaun á mótinu. Norðmenn
hlutu 7 gullverðlaun og Danir 6.
Veittu þeir því Svíum minni
keppni en búizt hafði verið við.
Danska stúlkan Susanne Nilsson —
Var það athyglisvert hversu
margir af beztu sundmönnunum á
mótinu stunda háskólanám í
Bandaríkjunum og æfa sund und-
ir leiðsögn bandarískra þjálfara.
Mótið fór fram í nýrri og glæsi-
legri sundlaug í Gladsaxe í útborg
Kaupmannahafnar og var
Norðurlandamótið vígslumót
laugarinnar. Fór mótið hið bezta
fram og var slitið hér síðdegis á
sunnudag með lúðrablæstri og
ræðuhöldum. Gengu keppendur
síðan fylktu liði kringum sund-
laugina með fána þjóðanna i far-
arbroddi. Þrír fánaberanna kom-
ust þó ekki beint út, þar sem þeim
var kastað í laugina við mikil
fagnaðarlæti fjölmargra áhorf-
enda.
Helztu úrslit á Norðurlanda-
mótinu í sundi urðu þessi:
l»» MKTRA FLUGSUNI) KAKLA: sek.
1. Tommv Lindcll, Svfþjórt 56.91
2. Benl Bra.sk, Noregi 58.95
3. Kaarlo lleikkinen, Finnl. 59.63
9. Arni Eyþórsson, tsl. 1:05.48
200 IVIKTRA FJÓRSUND KVENNA:
1. Susanne Nilsen, Danm. 2:23.39
2. IVIonica Persmark, vSvíþjóö 2:25.83
3. Vibeke Olsen, Noregi 2:27.00
8. Guðný Guðjónsdóttir, Isl. 2:39.36
200 METRA FJÓRSUND KARLA:
1. Arne Borgström. Noregi 2:10.58
2. Tommy Lindell, Svíþjóð 2:14.73
3. Henrik Rasmussen, Danm. 2:16.04
7. Axel Alfreðsson, tsl. 2:22.41
4x100 IVIETRA SKRIÐSUNI) KVENNA:
1. Sveit Svíþjóðar 3:57.94
2. Sveit Noregs 3:58.44
3. Sveit Danmerkur 4:09.06
4. Sveit Finnlands 4:14.49
5. Sveit tslands 4:26.71
mesta afrekskona Norðurlandameistaramótsins í Gladsaxe.
4x100 METRA SKRIÐSUND KARLA:
Sveit Svfþjóðar 3:34.83
Sveit Noregs 3:39.71
Sveit Danmerkur 3:41.33
Sveit Finnlands 3:47.32
Sveit tslands 3:50.33
200 METRA SKRIÐSUND KVENNA:
Guri Kongstad, Noregi 2:06.45
Lene Jenssen, Noregi 2:08.55
Anette Löderström, Svfþj. 2:09.48
Guðný Guðjónsd. tsl. 2:29.38
200 METRA SKRIÐSUND KARLA:
Peter Petterson, Svfþjóð 2:56.10
Bent Brask, Noregi 1:56.67
Gar.v Anderson, Svfþjóð 1:58.84
Sigurður Ólafsson, tsl. 2:00.99
Arni E.vþórsson, tsl. 2:06.00
200 METRA BAKSUND KVENNA:
Tina Gustafsson, Svíþj. 2:24.03
Vigdfs Karlsen, Noregi 2:25.29
Björg Strand, Noregi 2:28.26
200 METRA BAKSUND KARLA:
Jan Thorell, Svfþjóð 2:08.80
Henrik Rasmussen, Danm. 2:16.23
Lasse Jaakola, Finnl. 2:16.34
Bjarni Björnsson, tslandi 2:24.00
200 METRA BRINGUSUND KVENNA:
Ingela Havaas, Svíþj. 2:40.88
Susanne Nielsen, Danm. 2:41.01
Vibeke Olsen, Noregi 2:43.98
Sonja Hreiðarsdóttir. tsl. 2:53.26
200 METRA BRINGUSUND KARLA:
Glen Cristiansen, Svfþj. 2:25.21
Torkel Sanner, Noregi 2:31.17
Kerola Tuomo, Finnlandi 2:31.25
Hermann Alfreðsson ísl. 2:38.30
100 METRA SKRIÐSUND KVENNA:
1. Lena Jensen, Noregi 58.61
2. Guri Kogstad, Noregi 58.66
3. Anette Ljödtrom, Svfþjóð 1:00.36
8. Þórunn Alfreðsdóttir, tsl. 1:03.66
10. Vilborg Sverrisdóttir, tsl. 1:04.49
100 METRA SKRIÐSUND KARLA:
1. Dan Larsson. Svfþjóð 52.95
2. Bent Brask, Noregi 54.44
3. Svante Rasmussen, Svfþjóð 54.94
6. Sigurður Ólafsson, tsl. 55.93
10. Hafliði Halldórss. tsl. 58.63
400 METRA FJÓRSUND KVENNA:
1. Susanne Nielsson, Danm. 5:02.33
2. Marita Karlsen, Noregi 5:06.01
3. Monica Parsmark, Svfþjóð 5:09.73
400 METRA FJÓRSUND KARLA:
1. Arne Borgström, Noregi 4:34.66
2. Gary Anderson, Svfþjóð 4:45.26
3. Kallio Kari, Finnlandi 4:53.51
4x100 METRA FJÓRSUND KVENNA:
1. Sveit Noregs 4:28.44
2. Sveit Svfþjóðar 4:28.87
3. Sveit Danmerkur 4:36.42
4. Sveit Finnlands 4:43.06
5. Sveit tslands 4:54.96
4x100 METRA FJÓRSUND KARLA:
1. Sveit Svfþjóðar 3:57.10
2. Sveit Noregs 4:04.33
3. Sveit Finnlands 4:07.14
4. Sveit Danmerkur 4:10.32
5. Sveit tslands 4:20.80
1500 METRA SKRIÐSUND KARLA:
1. Gary Anderson, Svfþj. 15:59.45
2. Arne Borgström, Noregi 16:21.56
3. Pelle Holmetz, Svíþjóð 16:31.63
8. Bjarni Björnsson, Islandi 17:41.55
800 METRA SKRIÐSUND KVENNA:
1. Elisabeth Brudvig, Noregi 9:10.18
2. Kicki Pettersson, Svfþjóð 9:19.74
3. Marit Hollakleiv, Svfþj. 9:20.00
7. Ólöf Eggertsdóttir. tsl. 10:42.51
100 METRA BRINGUSUND KARLA:
1. Gle Christiansen, Svfþj. 1:07.19
2. Kerola Tuomo, Finnl. 1:09.32
3. Torkel Sanner, Noregi 1:09.96
6. Hermann Alfreðsson, tsl. 1:11.51
100 METRA BRINGUSUND KVENNA:
1. Susanne Nielsson, Danm. 1:14.40
2. Ingela Havaas, Svfþjóð 1; 14.90
3. Vibeke Olsen, Noregi 1:19.15
6. Sonja Hreiðarsdóttir, tsl. 1:22.49
100 METRA BAKSUND KVENNA:
1. TinaGustafson, Svfþjóð 1:07.39
2. Bente Eriksen, Noregi 1:08.15
3. Vigdis Karlsen, Noregi 1:08.52
7. Guðný Guðjónsdóttir, tsl. 1:16.42
200 METRA FLUGSUND KVENNA:
1. Susanne Nielsson, Danm. 2:E9.44
2. Lene de Val, Svfþjóð 2:22.71
3. Vibeke Olsen, Noregi 2:23.49
6. Þórunn Alfreðsdóttir, ísl. 2:24.85
4x200 METRA SKRIÐSUNI) KARLA:
1. Sveit Svíþjóðar 7:47.06
2. Sveit Noregs 7:59.61
3. Sveit Danmerkur 8:02.94
4. Sveit Finnlands 8:10.12
5. Sveit tslands 8:18.61
verðlaunasætis
N íu Islandsmet