Morgunblaðið - 30.08.1977, Síða 38

Morgunblaðið - 30.08.1977, Síða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. ÁGUST 1977 Ræða Sigurðar Kristinssonar forseta Lands- sambands iðnað- armanna Við setn- ingu Iðnþings er ein og órofa heild Hæstvirtur iðnaðarráðherra og frú, bæjarstjóri, virðulegu gestir, góðir iðnþingsfulltrúar. Eg býð yður öll velkomin til setningar 37. Iðnþings Islend- inga. Sérstök ánægja er mér að bjóða hér velkomna vini vora og frændur frá Norðurlöndum, forystumenn samtaka iðnaðar, sem við á mörgum undanförn- um árum höfum átt góð við- skipti við og hafa miðlað okkur af fróðleik sínum og þekkingu. Verið hjartanlega velkomin. Frá síðasta Iðnþingi hafa lát- ist nokkrir menn, sem settu svip sinn á Iðnþing íslendinga og við söknum í dag. Adolf Björnsson, rafveitu- stjóri Sauðárkróki, fæddur 28. febrúar 1916 lést 3. febrúar 1976. Arni Guðmundsson, bakara- meistari Reykjavík, fæddur 2. nóvember 1916 lést 3. nóvem- ber 1976. Indriði Helgason, rafvirkja- meistari Akureyri, fæddur 7. október 1882 lést 25. mars 1976. Marsellíus Bernharðsson, skipasmiðameistari ísafirði, fæddur 16. ágúst 1897 lést 2. febrúar 1977. Olafur Guðmundsson, hús- gagnasmíðameistari Reykjavík, fæddur 1913 og lést 11. desem- ber 1976. Þessir menn áttu það allt sameiginlegt að vera góðir iðn- aðarmenn og miklir félagsmála- menn, voru valdir til forystu og voru verðugir þess trausts, sem þeim var sýnt. Þeir skiluðu miklu dagsverki hver og einn og við stöndum i þakkarskuld. Ég leyfi mér að biðja við- stadda að votta hinum látnu félögum vorum virðingu og þökk með því að rísa á fætur. ÓVISSAN í EFNAHAGSMÁLUM Þegar við gengum til siðasta Iðnþings, á árinu 1975, hafði nýlega skollið yfir meiri verð- bólgualda en nokkru sinni áður hér á landi. Það er raunar ekk- ert nýmæli, að við íslendingar þurfum að berjast við verð- bólgu, sem hefur verið fylgi- fiskur allt frá stríðslokum. En árið 1974 keyrði þó um þverbak og þessi gamli meinvættur komst upp í 55% á einu ári. Ennþá stöndum víð í þessarí, að því er virðist, stöðugu baráttu við að halda verðlagi í skefjum, þótt árangurinn hafi að undan- förnu verið all miklu skárri, en umrætt ár. A árinu 1975 og fyrri hluta ársins 1976 voru viðskiptakjör- in mjög bágborin og verðlag á útflutningsafurðum nægði ekki til að vega upp á móti háu kostnaðarhlutfalli innanlands. Þjóðin lifði um efni frant og greiðsluhalli gagnvart útlönd- um varð hvorki meira né minna an tæp 12% af þjóðartekjunumi eða yfir 23.000 milljónir króna á árinu 1976. Nokkuð dró úr þessu á árinu 1976, en engu að siður var vandinn mikill. Rikisstjórnin hefur brugðist við þessum vanda með ýmsum ráðstöfunum, sem mönnum hefur sýnst sitthvað um. Það tæki of langan tíma að brjóta til mergjar hverja einstaka ráð- stöfun sem gerð hefur verið. Ég vil þó benda á, eins og raunar kemur fram i þeim gögnum, sem lögð verða fyrir Iðnþingið, að svo virðist sem verðstöðvun- artilburðir verðlagsyfirvalda hafi haft takmörkuð áhrif, enda sýnist mér litlar vonir um að svo geli orðið. S:mræmd efnahagsstjórnun og varanlegur bati á viðskiptakjör- unum hafa orðið til þess að nú á miðju ári voru horfurnar í efnahagsmálunum all miklu betri en verið hefur um árabil. Nú bregður hins vegar svo við, að nú við upphaf þessa Iðnþings og rétt í kjölfar viða- mikilla kjarasamninga stönd- um við ennþá einu sinni frammi fyrir mikilli óvissu í efnahagsmálunum, eins og þær fréttir, sem nú berast um erfið- leika frystihúsanna bera vott um. Það sem hins vegar er enn- þá alvarlegra er að ekki má telja útilokað, að þetta séu að- eins fyrstu merki um erfiðleika atvinnuveganna, sem framund- an eru. Menn keppast nú við að koma sökinni hver á annan og deila um hvort hægt hafi verið að sjá þetta fyrir áður en kjarasamn- ingarnir voru gerðir. Landssamband iðnaðar- manna tekur ekki þátt í kjara- samningum. Það eru aðildar- félögin sjálf, sem hafa þennan málaflokk á sinni könnu, í sam- ráði við Vinnuveitendasam- band Islands. Kjaramál eru raunar eini málaflokkurinn, sem varðar atvinnurekstur, sem Landssambandið lætur sig ekki skipta. Ekki ætla ég að brjóta þá starfsreglu og taka þátt í fyrrnefndum deilum með því að lýsa sök á einhvern ein- stakan aðila. Ég hlýt hins vegar að harma að ennþá einu sinni skuli staðan vera þessi, rétt að loknum kjarasamningum. Þær sveiflur og óvissa, sem verið hafa í efnahagsmálunum hafa að sjálfsögðu haft áhrif á vöxt og viðgang iðnaðarins. Það hefur verið venjan að forseti Landssambandsins fjalli i upp- hafi Iðnþings um ástand og horfur í iðnaðarmálum. Ég ætla að bregða út af þeirri venju hér, enda er gerð itarleg grein fyrir þróun iðnaðarins og af- komu í skýrslu stjórnar Lands- sambandsins til Iðnþingsins. Þess i stað ætla ég að freistast til að ræða nokkuð um Lands- sambandíð sjálft og á hvern hátt það vill leitast við að hafa áhrif, til hagsbóta fyrir iðnað- inn, bæði út á við og inn á við. barAttu samtak- ANNAEKKI BEINT GEGNÖÐRUM ATVINNUGREINUM Landssamband iðnaðar- manna eru hagsmunasamtök f jölmargra aðila í ýmsum grein- um iðnaðar, bæði byggingariðn- aðar, framleiðsluiðnaðar og þjónustuiðnaðar. Þessar grein- ar eiga mörg sameiginleg hags- munamál og enn fleiri sérhags- munamál, sem snerta ytri að- búnað þeirra og lífsskilyrði í íslensku þjöðfélagi og efna- hagslífi. Það liggur í augum uppi að samtökin hljóta hverju sinni aó berjast fyrir þvi, að réttur aóildarfélaganna sé ekki fyrir borð borinn af löggjafar- og framkvæmdavaldinu í land- inu. Samtökin hljóta að berjast fyrir úrbótum í lánamálum, skattamálum, tollamálum, verð- lagsmálum og fræðslumálum, svo nokkuð sé nefnt af þeim aðstöðumálum, sem samtökin verða að leita til stjórnvalda um úrbætur á. I slíkum málum hlýtur ætíð að koma fram nokk- ur samanburður á aðbúnaði annarra atvinnuvega, annarra greina iðnaðar, og siðast en ekki síst iðnaðar i nágranna- löndum okkar, sem við nú eig- um i vaxandi samkeppni við. Eg skal ekki leggja neinn dóm á hversu vel hefur tekist til um málflutning Landssam- bands iðnaðarmanna, að því er varðar óskir um úrbætur á að- stöðumálum, iðnaði til handa. Þar eru eflaust skiptar skoðan- ir eins og gengur og kemur hvort tveggja til, að ýmsum hef- ur þar þótt of varlega farið i sakirnar, en á hinn bóginn hafa heyrst þær raddir, bæði innan iðnaðarins, en þó einkum frá aðilum í öðrum greinum, að of langt sé gengið í kröfugerðinni. Sigurður Kristinsson í þessu sambandi vil ég leggja á það áherslu að iðnaðurinn hef- ur á ýmsan hátt átt undir högg að sækja, sem vaxandi þáttur í íslenzku atvinnulífi og því ekki að undra þó aðilum innan hinna hefðbundnu höfuðat- vinnuvega þyki stundum nærri sér höggvið. A hinn bóginn tel ég að óskir okkar og ábending- ar hafi að undanförnu I vaxandi mæli verið studdar haldgóðum rökum og verið öfgalausar og ég vona að það komi skýrt fram í störfum okkar og tillögugerð, að baráttu samtakanna er ekki beint gegn öðrum atvinnu- greinum. Þvert á móti legg ég á það áherslu, að atvinnulifið er ein og órofa heild. En samtök okkar eru annað og meira en hópur félaga, fyrir- tækja og einstaklinga með þann tilgang einan að leiðarljósi, að herja á „kerfið“ margfræga um úrbætur á aðstöðumálum iðnað- arins. Á okkur hvílir jafnframt sú skylda, að vinna saman að uppbyggingarstarfi innan sam- takanna. Með öflugri fræðslu- starfsemi og ráðgjafarþjónustu fyrir stjórnendur fyrirtækj- anna er komið að öðru og e.t.v. enn veigameira hlutverki sam- taka okkar. Þar er mests árang- urs að vænta, en jafnframt reynir á því sviði mest á styrk samtakanna, innri styrk þeirra, sem felst i samtakamættinum. Við hljótum að gera okkur Ijóst, að þróun islensks iðnaðar á næstu árum krefst mjög auk- innar tæknivæðingar, stöðlunar í hönnun, sérhæfingar og siðast en ekki sist aukinnar samvinnu fyrirtækja á ýmsum sviðum. Hvergi er réttari og eðlilegri grundvöllur til að vinna að þessum málum, en einmitt inn- an frjálsra og stórra samtaka, eins og Landssambands iðnað- armanna. An virkrar þátttöku samtakanna á þessu sviði tel ég að þau standi vart undir nafni sem hagsmunasamtök iðnaðar- ins. Að þessu hefur verið unnið með eflingu Landssambandsins og fjölgun starfsfólks og mun ég beita mér fyrir að áfram verði haldið á þeirri braut. Ég tel að nú sé svo komið, að Landssambandið hafi aldrei staðið betur að vigi, bæði að því er varðar aðstöðu til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri við hið opinbera og almenning, og ennfremur til að hafa áhrif inn á við gagnvart ýmsu, sem lagfæra þarf í iðnfyrirtækjun- um sjálfum. Ég mun hér á eftir vikja að nokkrum þáttum í starfsemi Landssamandsins frá síðasta Iðnþingi tii þess að skýra þetta nánar. ATHUGANIR A EINSTÖKUM IÐNGREINUM Landssambandið hefur kom- ið sér upp safni upplýsinga um hvers konar atriði, er áhrif hafa á þróun efnahags- og atvinnu- mála all langt aftur í tímann. Sérstaklega hefur verið safnað upplýsingum um alla iðnaðar- starfsemi i landinu og aðra at- vinnustarfsemi, þannig að hægt sé að bera saman þróun iðnað- arins við þróun annarra at- vinnuvega. Má fullyrða að Landssambandið standi nú ekki verr, og jafnvel betur að vigi, en önnur hliðstæð samtök hér á landi hvað varðar nauðsynlegar upplýsingar, til að styðja kröf- ur sínar og stefnu i þeim mál- efnum, sem samtökin vilja hafa áhrif á. Má t.d. nefna að Lands- sambandið hefur látið tölvu- vinna fyrir sig sérstaka sundur- liðun á iðnaðarkafla Slysa- tryggingaskrárinnar, sem er að- al heimild Hagstofunnar og annarra.opinberra stofnana um mannafla hinna ýmsu atvinnu- greina. Hefur Landssambandið að þessu leyti betri upplýsingar um mannafla í iðnaði hér á landi en nokkur annar aðili hérlendis og hefur þráfaldlega látið opknberum stofnunum, samtökum og öðrum aðilum í té ýmsan fróðleik í þessu sam- bandi. Á undanförnum árum hefur verið gerð athugun á ýmsum iðngreinum hér á landi. Iðnþró- unarsjóður hefur átt frum- kvæðið að flestum þessum at- hugunum, sem gerðar hafa ver- ið i samráði við iðnaðarráðu- neytið. Landssambandið hefur jafnan átt fulltrúa i nefndum, sem ýmist hafa fylgst með at- hugununum eða unnið að fram- kvæmd tillagna þeirra í þeim greinum, sem eru á hagsmuna- sviði Landssambandsins. Hins vegar hefur sambandið ekki fyrr en nú haft starfskraft til þess að taka átt í slikum iðn- greinaathugunum og þess vegna ekki getað haft þau áhrif á sjálfa vinnuna, sem skyldi. Þetta framtak Iðnþróunar- sjóðs er mjög lofsvert og ber að þakka, en af eðlilegum ástæð- um nær það aðeins til tiltölu- lega takmarkaðs hluta iðnaðar- ins. Þar sem litlir tilburðir hafa verið uppi um það að opinberir aðilar létu framkvæma slíkar athuganir á breiðum grund- velli, hyggst Landssambandið bæta þarna úr. Auk þess hyggst það leggja skerf til, eða fylgjast vel með slíku framtaki hjá öðr- um, sé þess óskað. Starfsmenn Landssambands- ins hafa i samræmi við þetta hafið þetta starf og gert athug- un á iðngreininni brauð- og kökugerð, þar sem settar hafa verið fram tillögur um hvað gera þurfi I þessari grein til þess að hún haldi velli í sífellt aukinni samkeppni. Einnig tók Landssambandið ásamt Iðnþróunarstofnun ís- lands, Rannsóknastofnun iðn- aðarins og Sambandi málm- og skipasmiðja, þátt i athugun þeirri á skipasmíða- og skipa- viðgerðaiðnaðinum, sem unnið hefur verið að áundanförnum mánuðum. I kjölfar athugana á einstök- um iðngreinum eða i tengslum við almennar iðnþróunaráætl- anir, sem gerðar hafa verið hér á landi á undanförnum árum, hafa ekki ósjaldan fylgt aðgerð- ir, sem hafa haft að markmiði hagræðingu innan fyrirtækja eða í viðkomandi iðngreinum. Aðgerðir þessar hafa oftast ver- ið studdar af sjóðum þeim, sem veita styrki i skipulögð hagræð- ingarverkefni í fyrirtækjahóp- um eða iðngreinum, og ber Iðn- þróunarsjóð þar hæst. Hafa þau verið skipulögð og þeim stýrt af hagsmunaaðilum (oft samtök- um) og sjóðum og gjarnan hafa aðkeyptir ráðgjafar verið fengnir til að leysa af hendi ájálfa vinnuna. Landssambandið hafði til skamms tíma lítil sem engin afskipti af verkefnum af þessu tagi, önnur en aðild að nefnda- starfi. Með ráðningu vel mennt- aðra starfskrafta hafa nú skap- ast góðir möguleikar á þátttöku i slfku starfi, auk þess sem Landssambandið mun smám saman geta unnið algerlega sjálfstætt á þessu sviði og ef það þykir æskilegt veitt beina ráðgjöf og tækniaðstoð sjálft. Landssambandið hefur skipulagt og haft frumkvæði að einu hagræðingarverkefni og átt meðaðild að fleirum. Mörg verkefni af þessu tagi eru framundan. Meðal annars hefur verið undirbúið þróunar- verkefni í byggingariðnaði, er hafi það að markmiði að taka til athugunar hvernig megi auka afköst byggingariðnaðarins og hvaða aðferðir til þess muni falla best að þörfum byggingar- iðnaðarins og byggjendanna. Mikil vinna hefur verið lögð í undirbúning og skipulagningu fræðslufunda og hefur starfið miðast að því að reyna að finna hvar þörfin fyrir fræðslu er mest og á hvaða sviðum. Öllum fyrirtækjum innan Landssam- bandsins hefur verið boðið að fá til sín fræðslufundi um ýmsa þætti fyrirtækjareksturs, svo sem áætlanagerð, bókhald,

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.