Morgunblaðið - 30.08.1977, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. AGtJST 1977
47
Aðalfundur NAUST:
Vill FRH3LAND á
Kverkfjallasvæðinu
AÐALFUNDUR Náttúruverndar-
samtaka Austurlands — NAUST
— var haldinn f Sigurðarskála við
Kverkfjöll dagana 20.—21. ágúst
og sóttu hann um 80 manns. Voru
þátttakendur úr mörgum
byggðarlögum f jórðungsins.
Það kom fram í skýrslu stjórnar
að helzta nýmæli hjá samtökun-
um á árinu var aðild að
kynningarviku Sambands
íslenzkra náttúruverndarfélaga
(SÍN) í Norræna húsinu um
sumarmál og gerð sýningar um
verkefni samtakanna og náttúru-
verndarmál á Austurlandi, en
sýning þessi hefur í sumar verið
uppi í sumarhótelinu á Hallorms-
stað og verður m.a. boðin skólum
á Austurlandi til afnota í vetur.
Þess utan var unnið áfram að
margháttuðum náttúruverndar-
málum í samvinnu við náttúru-
verndarráð, sveitarstjórnir, land-
eigendur og ýmsar opinberar
stofnanir. Gefið var út fréttabréf
eins og árið áður og sent félags-
mönnum og ýmsum fleiri aðilum.
í fréttatilkynningu sem
Morgunblaðinu hefur borist frá
aðalfundi NAUST segir, að frið-
lýsingarmál séu mörg á dagskrá
samtakanna, en á síðasta starfsári
Úganda:
Nöfn Bandaríkja-
mannanna 3ja
ekki á skrá í
Washington
Washington, 29. ágúst. — Reut-
er.
BANDARlSKA utanrikisráðu-
neytið sagði í kvöld að það hefði
hvergi á skrá hjá sér nöfn þriggja
Bandarikjamanna, sem fregnir
um helgina hermdu að öryggislög-
regla Idi Amins Ugandaforseta
hefði hálshöggvið á hóteli i
Kampala. Við athugun á vega-
bréfaskrá i Washington hefði
nöfn mannanna þriggja hvergi
verið að finna. Sagði talsmaður
ráðuneytisins að bandarisk sendi-
ráð i nágrannalöndum Uganda
hefðu verið beðin að kanna málið.
hafi komist i höfn með tilstyrk
náttúruverndarráðs friðlýsing á
stóru svæði á Lónsöræfum, sem
rómað er fyrir náttúrufegurð og
fjölbreytni. Einnig lögðu samtök-
in lið stofnun friðlands við Salt-
höfða hjá Fagurhólsmýri og
unnið var að undirbúningi að
stóru votlendisfriðlandi í Hjalta-
staðaþinghá á Ut-Héraði. — A
fundinum var ályktað sérstaklega
um stofnun friðlands í Kverkfjöll-
um og Krepputungu og stjórn
NAUST falið að vinna að fram-
gangi þess máls við náttúru-
verndarráð og hlutaðeigandi
aðila.
I fréttatilkynningunni segir
ennfremur, að framkvæmdir og
undirbúningur vegna vatnsafla-
virkjana hafi um árabil verið á
dagskrá hjá NAUST og þannig
hafi samtökin átt frumkvæði að
stofnun Lagarfljótsnefndar. I
fyrrahaust hafi iðnaðarráðuneyt-
ið gefið út rekstrarleyfi til
RARIK vegna vatnsmiðlunar í
Lagarfljóti, þar sem tekið sé tillit
til meginviðhorfa Lagarfljóts-
nefndar. Þá segir að nú liggi fyrir
óskir frá RARIK um aukna
miðlun á næsta vetri á meðan
samtenging sé ekki komin við
aðra landshluta og sé það mál nú í
athugun milli aðila.
Upplýst var á fundinum, að
nýlega hefði verið samið um
náttúruverndarkönnun á svæði
svonefndrar Austurlandsvirkjun-
ar og feli sú könnun í sér allítar-
lega úttekt á landi og lffríki á
þeim svæðum sem mannvirki og
þá einkum miðlunarlón myndu
raska. Hefur náttúrugripasafnið í
Neskaupstað umsjón með þessu
verki og hafa staðið yfir gróður-
rannsóknir á Eyjabakkasvæóinú
siðustu vikur i framhaldi af frum-
athugunum sumarið 1975. Verður
þannig unnið að úttekt á svæðinu
frá Hraunum vestur fyrir Jökulsá
á Brú næstu þrjú árin, en
virkjunarrannsóknir eru hafnar
að nýju vegna „Austurlands-
virkjunar" eftir nokkurt hlé.
Hjörleifur Guttormsson,
Neskaupstað, var endurkjörinn
formaður samtakanna, en með
honum í stjórn eru Páll Sig-
björnsson, Skriðuklaustri, Egill
Guðlaugsson og Ari Guðjónsson.
— íþróttir
Framhald af bls. 23
fékk í kvennakeppninni, og
raunverulega meira, ef þáttur
hennar í boðhlaupinu er tekinn
með i reikninginn. Munar gíf-
urlega miklu fyrir félög að eiga
slíkt afreksfólk i sínum röðum.
Sem fyrr greinir var IR alltaf
hinn öruggi sigurvegari i
keppninni en baráttan um ann-
að sætið var hins vegar lengst
af mjög hörð. Voru KR-ingar
um tíma í þvi sæti, en þegar
leið að lokum keppninnar
komst UMSK-fólkið, sem allt er
reyndar úr Kópavogsfélaginu
Breiðabliki i það, en Armenn-
ingar nældu sér síðan í það með
góðri frammistöðu i siðustu
keppnisgreinunum. Er greini-
legt að Ármanni vantar ekki
mikið í að koma fram með það
gott keppnislið að það geti veitt
ÍR nokkra keppni.
— Krónan
Framhald af bls. 48
því sem gengisskráning yrði birt
að nýju. Davið kvað þó ekki verða
um neina verulega breytingu á
skráningu islenzku krónunnar að
ræða, enga gengisfellingu i þeim
skilningi heldur gengissig til sam-
ræmis við gengisbreytingu norska
og danska gjaldmiðilsins.
Davið var spurður um bein
áhrif gengisbreytingar norrænu
gjaldmiðlanna og kvað hann hana
snerta íslenzkt efnahagslif með
tvennum hætti, annars vegna
beinna viðskipta okkar vió þessi
lönd og hins vegar vegna sam-
keppni okkar við norska og
danska aðila á fiskmörkuðunum.
Ennfremur sagði Davið að portú-
gölsk stjórnvöld hefði ákveðið sig
gjaldmiðilsins þar i landi, sem
einnig gæti haft áhrif á söluað-
stöðu okkar á saltfiski þar.
— Gjaldeyris-
mál
Framhald af bls. 1
Sænska stjórnin sagði í tilkynn-
ingu um gengislækkunina, að Sví-
ar myndu aftur taka þátt i snáka-
samstarfinu, er tekizt hefði að
rétta viðskiptahallann við útlönd
við, en erlendir fjármálasérfræð-
ingar telja litlar likur á að svo
verði. Gjaldmiðlar þeirra þjóða,
sem aðild eiga að þessu snáks-
kerfi fá aðeins að fljóta innan
mjög þröngra marka gagnvart
hver öðrum. Kerfi þessu var kom-
ið á 1972 af EBE-löndunum, en
Bretar og Irar hættu fljótlega
þátttöku, Frakkar 1974, ætluðu að
koma aftur eftir 18 mánuði, en
hættu endanlega i marz 1976.
Svenska Dagbladet sagði í
morgun að gjaldeyrisvarasjóður
Svía hefði snarminnkað á undan-
förnum mánuði og siðustu vikurn-
ar hefði minnkunin numið um 90
milljón sterlingspundum á viku.
Er því einkum kennt um að vegna
hækkandi launa á timum minnk-
andi útflutnit:gs hafi sænska
stjórnin staðið undir miklum
niðurgreiðslum og styrkveiting-
um til að halda framleiðslu gang-
andi og atvinnuleysi í skefjum.
Segja hagfræðingar að á sl. 5 ár-
um hafi laun i Svíþjóð hækkað
þrisvar sinnum meira en laun í
V-Þýzkalandi, sem er helzti keppi-
nautur Svia á útflutningsmörkuð-
um Evrópu.
Fjármálasérfræðingar segja að
þróunin á gjaldeyrismörkuðum
muni á næstu dögum gefa vís-
bendingu um áhrif þessara
aðgerða, en fremur er talið líklegt
að staða marksins muni aðeins
veikjast en dollarinn styrkjast.
Dollar lækkaði verulega á gjald-
eyrismörkuðum i Sviss í dag, en
hækkaði aftur fyrir lokun nokkuð
umfram skráningu hans á föstu-
dag.
Stjórnmálafréttaritarar í Svi-
þjóð segja að stjórn Thorbjörns
Fálldins' forsætisráðherra eigi
fyrir höndum erfiðar samninga-
viðræður við verkalýðsfélög í
landinu um samkomulag um tak-
markanir á launahækkunum.
Verkalýðsleiðtogar og stjórnar-
andstaðan gagnrýndi ákvörðun
stjórnarinnar harðlega í dag og
sagði Olof Palme, fyrrum for-
sætisráðherra, að gengisfellingin
hefði verið illa skipulögð, næstum
eins og ofsahræðsluaðgerð.
Óþarfi hefði verið fyrir Svía að
segja sig úr snákssamstarfinu.
Verkalýðsleiðtoginn Harry
Fjellstrom sagði að ef verðlag
hækkaði verulega á næstunni
myndi það hafa i för með sér
mikla óánægju meðal verkafólks.
Sem fyrr segir tekur finnska
stjórnin ekki ákvörðun um
aðgerðir fyrr en á morgun, en i
samningum verkalýðsfélaga þar í
landi er kveðið á um sjálfkrafa
launahækkanir ef veruleg breyt-
ing verði á gengi finnsku krón-
unnar.
— Danmörk
Framhald af bls. 1
eitthvað meðan stjórnmálaleið-
togarnir leita að grundvelli
breiðara stjórnarsamstarfs.
Stjórnmálafréttaritarar i
Kaupmannahöfn telja vist að
gengisfellingin i dag hafi opnað
augu stjórnmálaleiðtoganna
um nauðsyn þess að gripa til
efnahagsaðgerða hið fyrsta, en
bæði leiðtogar verkalýðsfélag-
anna og atvinnurekenda hafa
gagnrýnt gengislækkunina.
— Umm 200
manns
Framhald af bls. 2.
þessu móti yrði unnt að gera upp
við sjómennina og útgerðin ætti
fyrir olíu á togarann, þvi að ella
hefði þurft að leggja honum. „Við
treystum á að til komi einhverjaF
aðgerðir sem leysi þennan hnút,
því að eins og nú háttar hrökkva
afurðirnar ekki fyrir fiskverðinu
og vinnulaunum," sagði Páll.
Þór Hagalín, sveitarstjóri á Eyr-
arbakka, tók i sama streng, og
kvað öllu starfsfólki þar að heita
mætti hafa verið sagt upp störf-
um, alls um 80 manns, og væru
vart nema 5—6 menn enn við
störf, verkstjórar, vélgæzlumenn
og bilstjórar. Astandið væri
áþekkt á Stokkseyri en þó kvaðst
hann ekki viss um hvort stöðvun-
in þar væri jafn algjör. Þór sagði
einnig, að aðeins væri timaspurs-
mál hvenær bátaflotinn stöðvað-
ist og bættust þar við um 50 menn
á atvinnuleysiskrá. Tvær saltfisk-
verkunarstöðvar væru á staðnum
og ráðgert væri að reyna að vinna
eitthvað af aflanum þar og einnig
hefði verið þreifað fyrir sér um
löndun í öðrum höfnum, en útlitið
væri ekki of bjart.
I ályktun verkalýðsfélaganna í
Arnessýslu kemur fram, að þau
telja það alvarlegan hlut að frysti-
húsin á félagssvæðinu skuli hafa
sagt upp öllu verkafólki og að
togararnir, sem keyptir voru sem
atvinnuleg bjargráðatæki, selji —
með samþykki stjórnvalda — afl-
ann óunninn úr landi og er þvi
mótmælt sérstaklega i ályktun-
inni. Er íhaldsstefna núverandi
ríkisstjórnar talin höfuðorsök i
rekstrar- og afkomumálum frysti-
húsanna.
1 ályktun Verkalýðsfélags
Hveragerðis kemur fram að fund-
ur, sem þar var haldinn, harmar
ákvörðun forráðamanna Meitils-
ins að láta togarann Jón Vídalin
fara i söluferð á sama tima og
starfsfólki er sagt upp störfum og
litur stjórn félagsins þannig á að
með þessum vinnubrögðum sé
brostið það gagnkvæma traust er
rikt hafi milli Meitilsins og
Verkalýðsfélagsins, eins og segir i
fréttatilkynningunni.
V
rv"
Tískusýnlngar
semtalaðerum
Til þess að setja upp afbragðs tískusýn-
ingu, þarf í fyrsta lagi frábært sýningarfólk,
öðru lagi fallegan og skemmtilegan fatnað
og í þriðja lagi huggulegt umhverfi, tónlist
og Ijósagang.
Allt þetta er til staðar á tískusýningum
okkar. Nýjasta hausttiskan í kven- og karl-
mannafatnaði. (Barnaföt einnig.)
Umhverfið skreytt — nýr tískusýningar-
pallur á áhorfendasvæði Laugardalshallar,
tónlistin og Ijósakerfið betra en nokkru
sinni fyrr.
Og síðast en ekki síst höfum við úrval
tískusýningarfólks úr Modelsamtökunum
og Karon sem hefur tekið höndum saman
um að gera þessar tiskusýningar glæsilegar
og eftirminnilegar.
34 tiskusýningar meðan á sýningunni
stendur.
Dagskrá á tiskusýninga- og skemmti-
palli:
Þriðjudagur 30. ágúst
kl. 1 8.00 tískusýning
kl 20.45 Ríó
Miðvikudagur 31. ágúst
kl. 1 6.00 tískusýning barnafatne
kl. 18 00 Ríó
kl. 20.45 tiskusýning.
Fimmtudagur 1 . september.
kl. 1 8 tískusýning
kl. 20:45 tiskusýning
kl 22 Ríó.
Vinningar í gestahappdrætti:
17 Sharp litsjónvarpstæki frá Karna-
bæ og fjölskylduferð til Flórida á
vegum Útsýnar.
Dregið daglega.
Heimilið'77 ersýningarviðburður ársins
HEIHILIÐ77 &