Morgunblaðið - 24.01.1978, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. JANUAR 1978
25
„Vona aö næstu 50
íeikir verði jafn góðir"
— segir Gunnar Einarsson, sem hélt upp
á 50. leikinn á eftirminnilegan hátt
Frá Ágústi I. Jónssyni,
blm. Mbl. í Ösló.
— ÆTLI þetta sé ekki bezti
landsleikurinn minn, sagði Gunn-
ar Einarsson markvörður að lokn-
um leiknum við Norðmenn.
Gunnar hafði staðið f markinu
allan tfmann og varið eins og
berserkur. 17 sinnum f leiknum
varði hann hörkuskot Norðmanna
og batt enda á sóknarlotur þeirra.
Það er óhætt að taka undir það
með Gunnari en iíklega hefur
hann aldrei staðið sig betur í
landsleik en að þessu sinni. Þetta
var 50. landsleikur Gunnars og
svo sannarlega hélt hann upp á
áfangann á eftirminnilegan hátt.
— Við skulum bara vona að næstu
50 landsleikir verði jafn skemmti-
legir og þessi, sagðí Gunnar hinn
ánægðasti eftir leikinn.
— Það er ekki nema von að
fólkið sé óánægt með markvörzlu
okkar Kristjáns heima, hélt
Gunnar áfram. Við höfum ekkert
getað, hélt Gunnar áfram. Það er
eins og ég geti ekki varið tuðru í
landsleikjunum heima í Laugar-
dalshöllinni. Þar er meiri pressa á
manni frá fólkinu, það krefst svo
mikils af manni auk þess sem
alltaf er litið á okkur Kristján
sem markvörð númer tvö og þrjú
á eftir Óla Ben. Nú verðum við að
treysta á okkur sjálfa og vonandi
gengur þetta vel í Danmörku.
Gunnar sagði að lokum, að liðið
væri f mikilli framför, snerpan
væri sem óðast að koma í leik-
mennina og við það batnaði mark-
varzlan og varnarleikurinn. —
Menn hafa verið dauðþreyttir að
undanförnu og hreinlega á hæl-
unum allan leikinn. Ég geri mér
vissar vonir um að við sigrum
Dani og Spánverja og komust þar
með áfram.
„Sigurinn kemur á réttum tíma"
- SAGÐIAXEL AXELSSON, MARKAKÓNGUR LANDSLIÐSINS
varzla og
igurinn
Noreg 18:14 í Raufoss
Björgvin fyrirliði
Islenzka liðið var að þessu sinni
skipað þeim Gunnari Einarssyni,
Kristjáni Sigmundssyni, Björgvin
Björgvinssyni, Arna Indriðasyni,
Ólafi Einarssyni, Þorbirni Guð-
mundssyni, Bjarna Guðmunds-
syni, Geir Hallsteinssyni, Janusi
Guðlaugssyni, Axel Axelssyni,
Einari Magnússyni og Viggó Sig-
urðssyni. Þeir sem hvíldu voru
Jón H. Karlsson, Gunnar Einars-
son, Þorbergur Aðalsteinsson og
Þorlákur Kjartansson. Tók Björg-
vin við fyrirliðastöðunni af Jóni
og hvort sem það hafði áhrif eða
ekki voru honum óvenju mislagð-
ar hendur i sókninni. Axel Axels-
son tók við hlutverki Jóns sem
vitaskytta og brást ekki bogalistin
í eitt einasta skipti. Jón á við að
stríða lítils háttar meiðsli i læri
en hann er óðum að verða góður
af þeim.
Beztir í liði Norðmanna voru að
þessu sinni Terje Hallen ásamt
Morgan Juul markverði í fyrri
hálfleik. Við megum ekki gleyma
því að norska liðið er ekkert stór-
lið en Island hefur tvivegis tapað
fyrir því í vetur og einnig unnið
það.
Dómarar voru Axel Wester og
Ole Johannsson frá Svíþjóð og
dæmdu þeir leikinn mjög vel.
Þess má geta að tvívegis i leikn-
um var dæmd leiktöf á íslenzka
liðið og er það umhugsunarvert
fyrir landsliðið og stjórnendur
þess. Islenzku leikmönnunum var
vikið af velli i 10 mínútur sam-
tals, þeim Janusi, Einari, Geir og
Ólafi í 2 mínútur og Einari í 4
mínútur.
Mörk íslands: Axel Axelsson 9
(5 v), Geir Hallsteinsson 2, Janus
Guðlaugsson 2, Ólafur Einarsson,
Árni Indriðason, Bjarni Guð-
mundsson, Viggó Sigurðsson og
Einar Magnússon 1 mark hver.
Mörk Norðmanna: Grislingaas
4, Hallen 3, Gundem 3, Ingebrit-
sen 2, Hauger og Gjerde 1 mark
hvor.
Frá Ágústi I. Jónssyni, blm. Mbl. í Ósló.
— ÞETTA var mjög ánægjulegur sigur og hann kemur á nákvæm-
lega réttum tíma til að þjappa mannskapnum saman fyrir átökin í
Danmörku, sagði Axel Axelsson að loknum landsleiknum við Norð-
menn á sunnudaginn. Axel hafði átt mjög góðan leik og skorað 9 af
mörkum íslenzka liðsins. ísi*
— Það jákvæðasta við leikinn
var vörnin. Það er segin saga að
þegar við náum upp baráttuanda
kemur þetta allt saman og mark-
varzlan verður allt önnur, sagði
Axel. Liðið er nýkomið úr mjög
erfiðu æfingaprógrammi svo það
er ekkert skrýtið að leikir liðsins
skuli hafa verið slakir að undan-
förnu. Nú er þetta allt á uppleið
og maður finnur mikla breytingu
á sér. Snerpan er t.d. miklu meiri
hjá hverjum einasta leikmanni.
— Við erum í erfiðum riðli í
Danmörku, hélt Axel áfram. Ég
tel persónulega að Sovétmennirn-
ir séu líklegir til að sigra i heims-
meistarakeppninni. Danir eru
alltaf seigir, svo að ekki sé talað
um að nú leika þeir á heimavelli
og leggja því allt i sölurnar. Spán-
verjarnir hafa kostað gifurlega
miklu til undirbúnin^s sins liðs
og þeir ætla sér stóra hluti. Við
þekkjum þá frá í fyrra og vitum
að þeir eru engir byrjendur.
— Ég hef þá trú að við vinnum
Danina og Spánverjana og kom-
umst i 8-liða úrslitin. Það verður
þó erfitt og tekst ekki nema með
mikilli baráttu og nema við náum
toppleikjum. Ég hef trú á liðinu
og vona að við náum takmarkinu i
Danmörku.
Axel lék báða leikina gegn
Norðmönnum í Reykjavik milli
jóla og nýárs og eru það ásamt
leiknum á sunnudaginn einu
landsleikir Axels síðan i Austur-
ríki í fyrravetur. I leikjunum
heima skoraði Axel 2 og 3 mörk
en nú urðu mörkin 9 talsins svo
að framfarir Axels fara ekki milli
mála.
— Þetta gekk upp hjá mér í dag
en í leikjunum heima var leikið
eftir kerfum, sem ég þekki ekki
nógu vel og auk þess er maður
alltaf undir vissri pressu þegar
maður kemur heim til að keppa. I
dag var ég afslappaður og auk
• þess búinn að vera með strákun-
um á stanzlausum æfingum í heil-
an mánuð og kominn inn í leik
liðsins, sagði Axel.
Við spurðum hann að lokum
hve lengi hann ætlaði að leika
með v-þýzka liðinu Dankersen og
kvaðst hann reikna með að verða
eitt keppnistímabil iil viðbótar.
„Islenzka liðið í framfiir"
- SEGIR ÖSTERRO ÞJÁLFARINORÐMANNA
— ÍSLENZKA liðinu hef-
ur farið mikið fram í síð-
asta mánuði og það var
miklu erfiðara að leika
Sóknarnýtingin yfir 50% í seinni hálfleik
gegn því núna en þegar við
vorum í Reykjavík milli
jóla og nýárs, sagði Rolf
Österbo, þjálfari norska
landsliðsins, að leik lokn-
um.
NVTING íslenzka liðsins f
sóknarleiknum var allgóð f
seinni hálfleik f leiknum gegn
Noregi á sunnudaginn. Þá átti
liðið 25 sóknarlotur og voru
skoruð úr þeim 13 mörk, svo
nýtingin er aðeins yfir 50%
sem er góð nýting. Fyrri hálf-
ieikurinn var ekki Ifkt þvf eíns
góður. Þá átti fslenzka liðið 18
sóknarlotur og skoraði aðeins 5
mörk svo að nýtingin hefur ver-
ið rétt innan við 30%.
Af einstökum leikmönnum
íslenzka liðsins átti Axel Axels-
son flest skot að marki f leikn-
um eða 13 og skoraði 9 mörk.
Hins vegar tapaði hann knettin-
um tvisvar. Björgvin átti 2 skot
að marki en skoraði ekki og
auk þess tapaði hann knettin-
um einu sinni. Geir átti 5 skot
að marki og skoraði 2 mörk og
einu sinni tapaði hann knettin-
um. Þorbjörn skaut einu sinni
án árangurs. Arni skaut tvisvar
og skoraði eitt mark og hann
tapaði boltaoum einu sinni.
Bjarni skaut einu sinni og skor-
aði og hann tapaði boltanum
einu sinni. Einar átti sömuleið-
is eitt skot að marki og skoraði
úr þvf og hann tapaði boltanum
einu sinni. Olafur Einarsson
skaut tvisvar, skoraði einu
sinni og tvisvar missti hann
boltann. Viggó skaut þrisvar og
skoraði 1 mark og Janus skor-
aði tvö mörk úr tveimur skot-
um.
Gunnar Einarsson var f
markinu allan tfmann og varði
17 skot, 9 f fyrri hálfleik og 8 f
þeim sfðari. áij/SS.
— Það er erfitt að segja til um
hvernig ykkur gengur i Dan-
mörku. Ef þið náið upp aðeins
meiri baráttuanda í liðinu gætuð
þið unnið alla andstæðinga ykkar
í riðlakeppninni. Þið getið lfka
tapað öllum leikjunum éf baráttu-
andinn verður ekki fyrir hendi.
— Um mína menn er það að
segja að þeir ollu mér vonbrigð-
um í fyrsta skipti í vetur. Ég hef
ekki fyrr krafizt.sigurs af þeim og
þá tapa þeir með meiri mun en
áður á keppnistimabilinu, sagði
österbo.