Morgunblaðið - 24.01.1978, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 24. JANUAR 1978
35
Magnús L. Sveinsson:
Atvinnurekstur í Reykja-
vík og f járfestingarlán
Tryggja þarf þad atvinnuöryggi
sem ríkt hefur í Reykjavík
ATVINNUMÁL ber mjög á góma er fjárhagsáætlanir
borgarsjóðs og borgarstofnana fyrir árið 1978 voru af-
greiddar. Hér á eftir verður lauslega rakinn efnisþráður-
inn úr máli Magnúsar L. Sveinssonar borgarfulltrúa,
formanns atvinnumálanefndar borgarinnar.
að um þróun atvinnulífs í borg-
inni og á höfuðborgarsvæðinu á
næstu árum. Fljótlega kom i ljós
að samstarf við nágrannasveitar-
félög var nauðsynlegt í þessu
efni. Samstaða náðist um úttekt á
sjávarútvegi á þessu svæði. Þeirri
athugun lauk í maí 1976. En fram-
haldsathuganir hafa verið i gangi
æ siðan.
Meðal annars á grundvelli
þeirra gagna, sem úttekt á sjávar-
útvegi á höfuðborgarsvæðinu
leiddi í ljós, tilnefndi borgarstjóri
sérstakan vinnuhóp embættis-
manna, er gera skyldi úttekt á
atvinnuþróun í borginni. 1 fram-
haldi af þeirri úttekt lagði hann
siðan fram tillögu að atvinnu-
stefnu borgarstjórnar, sem fyrst
og fremst er ætlað að stuðla að
vexti frumatvinnugreina, einkum
I sjávarútvegi, útgerð og vinnslu,
sem og I iðnaði hvers konar.
ÍJttekt og tillögur
Borgarfulltrúar minnihluta-
flokka láta eins og allt sé á hverf-
anda hveli I atvinnumálum borg-
arinnar. Sá hefur verið málflutn-
ingur þeirra allar götur siðan
vinstri stjórnin sálaða leið. Sem
betur fer hafa þessir spádraumar
ekki rætzt. Þvert á móti hafa allar
vinnufærar hendur haft gnótt
verkefna. Ekki eru horfur á
snöggum breytingum I þvi efni.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur
hins vegar gert sér grein fyrir því
að nauðsynlegt er að fylgjast náið
með þróun atvinnumála I borg-
inni, m.a. til að tryggja atvinnuör-
yggi Reykvíkinga til frambúðar.
Minna má á I því sambandi að árið
1970 samþ. borgarstjórn tillögu
frá atvinnumálanefnd þess efnis,
að gerð yrði áætlun um atvinnu-
mál f Reykjavfk. Skyldi þar fjall-
Magnús L. Sveinsson borgarfull-
trúi, formaður atvinnumála-
nefndar Reykjavfkurborgar.
Lóðaúthlutun og
atvinnuhúsnæði
Þó betur megi að sjálfsögðu
gera, varðandi atvinnuhúsnæði i
borginni, eins og tillögur borgar-
stjóra um byggingu iðngarða bera
Aðalholræsi fyrir Reykjavík:
Mengunarvarnir í sjó í
nágrenni Reykjavíkur
PALL Gfslason borgarfulltrúi
gerði stuttlega grein fyrir gerð
væntanlegs aðalholræsis fyrir
Reykjavík, I umræðu um fjár-
hagsáætlun borgarsjððs f sl. viku.
Hér er um mjög þýðingarmikla
framkvæmd að ræða, sem m.a.
hefur áhrif á mengunarvarnir f
sjó í nágrenni höfuðborgarinnar
og snertir hugmyndir um Ifkleg-
an sjóbaðstað I Nauthólsvfk.
Páli fórust m.a. orð á þessa leið:
„Fyrir réttu ári eða 20. jan.
1977, samþykkti borgarstjórn til-
Iögu okkar borgarfulltrúa Sjálf-
stæðisflokksins, að gerð verði
hönnun og undirbúnar fram-
kvæmdir við aðalholræsi frá botni
Elliðaárvogs að Kringlumýrar-
ræsi, sem iðist við útrás frá
Laugarnesi. Voru veittar 10 millj.
kr. til þessa verks, sem hefur ver-
ið unnið á vegum embættis
borgarverkfræðings.
Unnið hefur verið að hönnun
aðalræsis i Elliðavogi frá núves-
andi enda aðalræsis norðan við
Nesti og út undir Laugarnes.
Endurskoðaðir voru útreikningar
á vatnsmagni í einstökum áföng-
um ræsisins og lega fastlögð i
aðalatriðum. Gert er ráð fyrir
sjálfrennsli frá núverandi enda
að Kleppsmýrarvegi, en þar er
ráðgerð dælustöð, sem lyftir vatn-
inu upp, þannig að sjálfrennsli
næst áfram út eftir strandlengj-
unni. Ekki hafa enn verið gerðir
uppdrættir að dælustöðinni við
Kleppsmýrarveg né hreinsistöð-
inni við Laugarnes. Hins vegar er
hönnum lagnarinnar það langt
komin að hægt er að bjóða út 1.
áfanga verksins nú fljótlega á
þessu ári, þegar fjármagn fæst.
Reiknað er með , að sá áfangi,
sem fyrst yrði boðinn út, næði frá
Kleppsmýrarvegi og norður fyrir
athafnasvæði S.I.S. við Holtaveg.
Er þetta um 1100 m. langt ræsi,
sem áætlað er að kosti 80 millj. kr.
Er þetta nokkuð frávik frá áætl-
un, sem kom fram í greinargerð i
fyrra um þetta mál, en þar var
reiknað með 900 m. löngu ræsi, en
þessi mismunur kemur fram, þar
sem þessi áfangi næði 200 m.
lengra norður og styttist þá 3
áfangi um þá vegalengd.
Mjög er mikilvægt að byrja á
þessum framkvæmdum á þessu
ári, því að aðalholræsið liggur
þarna um um hafnarsvæðið, sem
Reykjavíkurhöfn og S.l.S. verða
væntanlega með framkvæmdir að
hluta til innan skamms tima. Eru
þá nauðsynlegt að lögn þessa ræs-
is sé lokið.
Ætlunin er að hefja þessa fram-
kvæmd næsta haust, þar sem
þetta er mjög gott verkefni fyrir
vinnuflokka borgarinnar og gefur
möguleika á betri nýtingu starfs-
krafta, sem borgin þarf að hafa,
en getur verið erfitt að nýta til
fulls að vetrarlagi. Er þvi ætlaðar
40 millj. kr. til þessa verks á
þessu fjárhagsári, en 40 millj.
komi á árinu 1979. Við næstu ára-
mót þarf þvi að ákveða hvað
mikið meira yrði hægt að gera í
aðalholræsamálum og þá senni-
,lega innst við Elliðavog.
Eins og kunnugt er endar hið
stóra Fossvogsræsi við Shell-
stöðina i Skerjafirði. Þar þarf
nauðsynlega að gera endurbætur
á þvi, þó það sé ekki um endan-
lega lausn að ræða. Með þvi að
lengja ræsið út í stórstraumsborð,
myndi ástandið batna verulega,
en frekari framkvæmdir myndu
biða ákvarðana um framtíðar
skipulag aðalholræsis fyrir vest-
urbyggðina.
Rannsóknir hafa undanfarið
verið gerðar á mengun sjávarins i
Skerjafirði, sem sýna gifurlega
mengun i sjónum fyrir utan Shell-
stöðina og á svæðinu þar í kring.
Önnur svæði eru mjög litið meng-
uð, nema helst Arnarnesvogur-
inn. Þá er og nokkur mengun
kringum Kársnesið. Hefur þetta
haldist frá þvi rannsóknir voru
gerðar 1970. Enda eru þarna all-
mörg ræsi frá Kópavogi og Garða-
bæ, sem falla til sjávar. Sýnir
þetta nauðsyn þess að fá sam-
vinnu við hin ört vaxandi
nágranna-sveitarfélög um þessi
mál.
Það er áberandi að coligerða-
fjöldinn í Nauthólsvik hefur
lækkað stórlega siðan 1970.
I lok skýrslu sinnar segir Sig-
urður Pétursson gerlafræðingur:
„Mengun við Skerjafjörð vekur
nú aðeins eftirtekt, þar sem skolp-
ræsi ná ekki nógu Iangt út i
sjóinn. Þannig er t.d. ástatt við
Framhald á bls. 31
vott um, má sú staðhæfing ekki
standa ómótmælt, að litið sem
ekkert hafi verið gert á þessum
vettvangi á liðnum árum.
Sem dæmi má nefna að á árun-
um 1971—1977 hefur verið lokið
byggingu iðnaðar- og verksmiðju-
húsnæðis að rúmmáli 1154 þús-
und rúmmetrar. Hér er aðeins
talið fullgert húsnæði. Uthlutun
stórra landssvæða til byggingar
atvinnuhúsnæðis, þar sem bygg-
ingar eru ekki hafnar, eru heldur
ekki innifalin i framansögðu.
Samdráttur frumgreina at-
vinnulifs i Reykjavik á ekki rætur
í afskiptaleysi borgaryfirvalda,
eins og hér hefur verið slegið
fram, órökstutt. Hann á fyrst og
fremst rætur i mismunum láns-
fjárveitinga og bátaútgerð hefur
dregist saman vegna þess að
lengra er á mið að sækja eftir
lokun Faxaflóa.
Mismunur láns-
fjárdreifingar
Litum litillega á iánapólitik
varðandi útlán úr þremur opin-
berum fjársestingarsjóðum: Fisk-
veiðasjóði, byggðasjóði og iðn-
lánasjóði.
0 Fiskveiðasjóður lánaði 15.3
milljarða króna á árunum
1972—1976. Þar fór aðeins 1.3
milljarðar, eða innan við 10% til
Reykjavíkur, þar sem yfir 40%
þjóðarinnar búa.
0 Byggðasjóður: Höfuðstóll veð-
lána byggðasjóðs í árslok 1976 var
5.1 milljarður króna. Þar af var
hlutur Reykjavikur aðeins 207
m.kr. eða liðlega 4%. Ef tekið er
einstakt ár, 1974, þá voru veitt
441 lán, þar af 1 til Rvikur, eða 1
m.kr. af 661.8 m.kr., sem er langt
undir 1 %.
0 Iðnlánasjóður: Hann er lang
minnstur þessara þriggja sjóða. Á
árunum 1973—1976 var lánað
FRA
BORGAR-
STJÓRN
samtals 1.9 milljarða króna. Til
R-víkur fór um 1 milljarður kr.
eða góður helmingur.
0 Samtals var lánað úr þessum
þremur sjóðum á árunum
1973—1976 kr. 19.7 milljarðar til
atvinnuveganna. Af því fór til
Reykjavíkur, eða rúmlega 40%
þjóðarinnar, kr. 2.3 milljarðar
eða 11.9%. Þessar tölur tala sinu
máli, sem ekki verður véfengt.
Reykjavík hefur ekki setið við
sama borð um lánsfjárfyrir-
greiðslu til atvinnuvega.
Atvinnustefna
borgarstjórnar
M. L. Sv. rakti siðan i itarlegu
máli tillögur borgarstjóra að at-
vinnustefnu borgarstjórnar.
Lagði hann sérstaka áherzlu á, að
hagfræðideild borgarinnar væri
ætlað að greiða fyrir auknum
samskiptum stjórnenda borgar-
innar og fulltrúa atvinnulífsins i
þvi skyni að örva fyrirtæki á arð-
væniegum greinum til aukinna
umsvifa. Einnig á þann hátt að
hvetja til nýbreytni i atvinnu-
rekstri og veita styrki til rann-
sókna í þvi skyni. M. L. Sv. taldi
það meðal stærri verkefna að
bæta verulega aðstöðu til skipa-
viðgerða í Rvik. Hann vék og að
lóðaúthlutun og þýðingu þess, að
hún væri sem jöfnust milli ára,
svo að komið yrði i veg fyrir mikl-
ar sveiflur í byggingariðnaði.
Að lokum fór M. L. Sv. nokkr-
um orðum um frumgreinar at-
vinnulifs, nauðsyn eflingar
þeirra, sem m.a. hlyti að byggjast
á bættri aðstöðu fyrir sjávarút-
veg, veiðar og vinnslu i Reykja-
víkurhöfn, en Reykjavikurhöfn
væri eina fiskihöfnin á landinu
sem ekki fengi neinn stofnkostn-
aðarstyrk úr ríkissjóði. Aðrar
hafnir fengju stofnkostnað
greiddan að 75 hundraðshlutum.
Markús Örn Antonsson:
10% Reykvíkinga
67 ára eða eldri
Vaxandi öldrunarþjónusta borgarinnar
Markús Örn Antonsson, for-
maður félagsmálaráðs, drap m.a.
á öldrunarþjónusfu f borginni, f
umræðu borgarfulltrúa um fjár-
hagsáætlun komandi árs. Um það
efni fórust hont orð sem hér seg-
ir:
Ibúðir
fyrir aldraða
1 þeim umræðum um atvinnu-
mál Reykvikinga, sem fram hafa
farið að undanförnu hefur gjarn-
an verið bent á, hve ýmiskonar
félagsleg aðstoð og sjúkrahús-
þjónusta hefði aukizt i borginni
og tekið til sín sifellt meira vinnu-
afl. Ein orsök þessarar þróunar er
aldursskiptingin i borginni, þar
sem um 10% ibúa eru nú 67 ára
eóa eldri. Er þetta óvenjuhátt
hlutfall miðað við önnur byggðar-
lög hér á landi.
Á siðustu árum hefur verið gert
stórátak i málefnum aldraðra i
Reykjavík og ber þar hæst bygg-
ingu hentugra ibúða fyrir elztu
borgarana, aukna heimilisþjón-
ustu á vegum félagsmálastofnun-
ar, eflingu tómstundastarfs og
nýja sjúkraþjónustu i Hafnarbúð-
um.
Senn verður lokið framkvæmd-
um við fjölbýlishús aldraðra i
Furugerði og siðar á þessu ári
verða íbúðir aldraðra við Löngu-
hlíð og Dalbraut tilbúnar. A fimm
árum verður þá samtais búið að
verja um 1700 milljónum til 194
ibúða fyrir aldrað fólk og hjúkr-
unarheimilis 25 langlegusjúkl-
inga i Hafnarbúðum. Borgin lagði
þegar á árinu 1974 20 milijónir
króna af framlagi til aldraðra til
húsbyggingar öryrkjabandalags
Islands við Hátún og fékk borgin í
staðinn 22 einstaklingsibúðir og 2
hjónaíbúðir að Hátúni lOb til ráð-
stöfunar i 15 ár. Þessum ibúðum
var öllum úthlutað snemma árs
1975 og koma til viðbótar 170
íbúðir við Furugerði, Lönguhlíð
og Dalbraut. tbúðirnar i Furu-
gerði, 60 einstaklingsibúðir og 14
hjónaíbúðir voru auglýstartil um-
sóknar fyrir nokkru. Umsóknar-
frestur er liðinn og tillagna fé-
lagsmáiastofnunar um úthiutun
er að vænta innan skamms. 30
einstaklingsibúðir við Lönguhlíð
verða auglýstar siðar og ennfrem-
ur 46 einstaklingsibúðir og 18
hjónaibúðir við Dalbraut.
Hjúkrunarheimili
og dagspítali
fyrir aldraða
Nauðsynlegum breytingum
vegna reksturs hjúkrunarheimilis
var lokið í Hafnarbúðum i árs-
byrjun.1977 en innbú og tæki
bárust fram eftir árinu. Skortur á
starfsfólki seinkaði þvi að húsið
yrði tekið i notkun en i október sl.
var farið að taka á móti sjúkling-
um.
Samkvæmt ákvörðun stjórnar
sjúkrastofnana eru Hafnarbúðir
reknar til reynslu sem hluti af
skurðlækningadeild Borgarspital-
ans og læknisþjónusta veitt af
læknum þeirrar deildar. Á þess-
um fundi borgarstjórnar hefur
verið tekin ákvörðun um starf-
semi dagspítala í Hafnarbúðum,
sem heilbrigðismálaráð hafði fyr-
ir sitt leyti áður samþykkt. 1
greinargerð yfirlæknis Hafnar-
búða og borgarlæknis segir, að
slík stofnun sé vel til þess fallin
að leysa margháttuð félagsleg
vandkvæði lífeyrisþega auk þess
Framhald á bls. 31