Morgunblaðið - 24.01.1978, Blaðsíða 45
45
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. JANUAR 1978
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
I0100KL. 10—11
, FRÁ MANUDEGI
‘fl' .V í/JrWnM''iIJ&,U II
finningalíf hennar er frábrugðið
tilfinningalífi nannsins og þvl
skyldi hún þá bera sig saman við
hann?
Maðurinn hefur einnig tapað á
þessu jafnrétti. Grafið er undan
hlutverki hans sem heimilisföður
enda er það ljóst út frá sögulegu
sjónarmiði, að hlutverk mannsins
er að vera höfuð fjölskyldunnar."
Hún er andvíg breytingum á
hlutverkum kynjanna og telur
sem sé að grundvallarmismunur
sé á manni og konu og konan sé
því enn sjálfkjörin til að bera
ábyrgð á barnauppeldi og hús-
verkum. Segir Afansjeva enn-
fremur að konur hafi tilfinningu
fyrir t.d. matargerð, umsjón með
börnum og þrifum, sem maðurinn
hafi ekki og þvi sé ekki hægt að
frelsa hana frá þeim hlutverkum,
hún eigi þvert á móti að fórna sér
fremur fyrir þau hlutverk en
þátttöku í atvinnulífi og áhuga-
málum. Margan skilnaðinn segir
hún að megi rekja til þess að
umsjón með heimilishaldi hafi
verið einfölduð svo að ábyrgð á
því starfi sé ekki fyrir hendi
lengur. Auðvitað eigi maðurinn
að hjálpa til við húsverkin og um-
önnun barnanna en hann getur
aldrei tekið alveg við af konunni
og endar Afansjeva grein sína á
að hvetja fólk til að virða hina
hefðbundnu skipan þessara mála.
Greinar Afansjevu hafa vakið
andsvör meðal kvenna, sem segja
að þjóðfélagið hafi sett fram of
miklar kröfur á hendur þeim.
Segir þannig í lesendabréfi:
„Þetta er orðið ómögulegt. Ég
eignaðist barn fyrir nokkru, en
maðurinn minn heldur samt
áfram að fara á sklði og hitta
kunningja sína. Ég sé um barnið
að öllu leyti og samt er talað um
að maðurinn eigi að fá að halda
áfram öllum slnum áhugamálum!
En hvað um mig? A kvöldin þegar
maðurinn minn kemur heim frá
vinnu er það fyrsta sem hann
gerir að spyrja um matinn. Sé
hann ekki tilbúinn verður hann
fúll.“
Frelsi konunnar var eitt að
aðalmálum bolsévikanna. 4 dag
myndi öll framleiðsla lamast ef
þátttöku kvenna nyti ekki lengur
við. I landbúnaði vinna konur
flest störf, mennirnir leita til
börganna eftir áhugaverðari
störfum og meira metnum. Um
leið Jækkar fæðingartala og er
kvenfrelsishreyfingum kennt um
og ekki I fyrsta sinn. Sama er að
segja um skilnaði, þeim fjölgar og
enn er konum kennt um. 1 stór-
borgunum endar næstum
helmingur hjónabanda með skiln-
aði.
A alþjóðlegum degi kvenna er
ekki talað um konuna I atvinnulff-
inu, heldur sem húsmóður og
móður. Rætt er um að konur fái
styttri vinnutíma, en varla vogar
sér nokkur að stinga upp á þvi að
karlmenn skuli taka meiri þátt í
barnauppeldi og heimilishaldinu.
andrauðsokki.“
• Ekkií
freistni...
Ölöf Jónsdóttir:
„Því þurfa þeir að greiða niður
smjörið enn meira? Þetta var svo
ágætt, smjörið var svo dýrt að það
mátti greiða fólki nokkuð fyrir að
kaupa það, og undanrennan enn á
sínum stað. Þetta kalla ég að leiða
fólkið i freistni, sömu freistni og
ef það er satt að bændur kaupi
mjólk i kaupfélaginu. Mér og
krökkunum minum finnst ógeril-
sneydd mjólk jafnvel betri, enda
fengum við hana sem börn.
Smjörið er að visu hollt börnum
og mögru fólki og hefði þá
kannski verið leiðin að gefa út
skömmtunarseðla?
Þessir hringdu . . .
0 Launahækkanir
bundnar?
Launþegi:
— Það er margt merkilegt
hægt að segja um kjaramálin hér
á Islandi og nýlega höfum við
verið frædd á því að á 12 mán-
uðum hafa laun okkar hækkað
um 60—80% eftir því hvort við
erum þingmenn, BSRB-menn eða
bara ASl-menn. Sennilega hafa
launahækkanir aldrei orðið meiri
á jafnstuttu timabili, og sennilega
hefur líka verðbólga sjaldan verið
meiri. Margir græða á henni en
aðrir tapa eða verða undir i lífs-
baráttunni eins og sagt er. En í
haust eða fyrir stuttu heyrðum
við einnig annars konar fréttir,
þær voru frá Bretlandi. Slökkvi-
liðsmenn hófu verkfall og gátu
þeir fljótlega samið um 10%
launahækkanir, en þeir höfnuðu
og vildu meira. Launahækkanir
þar í landi voru sem sé bundnar
við 10% að því er mér hefur
skilist af fréttum. Og við það var
staðið, ekki fengu slökkviliðs-
menn meiri hækkun þrátt fyrir
SKÁK
Umsjón:
Margeir Pétursson
Á skákmóti í Sovétrikjunum i
fyrra kom þessi staða upp í skák
þeirra Palatniks og Zingorns, sem
hafði svart og átti leik:
22. ... Rxf2! — 23. Hg3 (23. Kxf2
strandaði á 23. . . . Hb3!) Rhl! og
hvitur gafst upp, þvi að stórfellt
liðstap er fyrirsjáanlegt-
tveggja mánaða verkfall. Hefði
svona lagað gengið hér á landi?
Hræddur er ég um ekki. En
spyrja má: Eru þessar miklu
launahækkanir ekki einn þáttur
verðbólgunnar. Einn þáttur, en
ekki eini. Margt annað kemur
einnig líka til. Er þá ekki hluti
lausnarinnar fenginn með því að
setja ákveðið þak á launahækkan-
ir? Er ekki hægt að ráðast á alla
þætti verðbólgunnar samtimis og
gera ærlega tilraun til að kveða
hana niður endanlga og leyfa ekki
iaunahækkanir nema allt að 10%
rétt eins og gert var í Bretlandi?
Að sjálfsögðu myndu menn mót-
mæla og jafnvel fara í kröfugöng-
ur og hefja viðtæk verkföll. En er
ekki betra að takmarka launa-
hækkanir og kröfur um sinn en að
fá yfir sig stórfellt atvinnuleysi.
HÖGNI HREKKVÍSI
1 MeN«o*ht Synd., Ine.
Hann er bersýnilega ánægöur meö blálönguna á
tim.mtudögunum!
Minning:
Sigurður Þórðarson
frá Egg í
I dag verður jarðsunginn frá
Sauðárkrókskirkju Sigurður
Þórðarson fyrrum bóndi á Egg i
Hegranesi. Hann hefur átt
heimili á Sauðárkróki hin síðustu
ár. Þvi er kveðjuathöfn hans flutt
þar, en siðan verður jarðsett á Rip
I Hegranesi, þar sem eiginkona og
látnir synir hvila fyrir.
Þegar við Sigurður kynntumst,
stóð hann á áttræðu, en ég ennþá
innan við þritugt, nýkominn sem
sóknarprestur til Sauðárkróks
með annexíu á Rip, en þangað á
Eggjarheimilið kirkjusókn.
Aldursmunur var þvi mikill,
skoðanir lika skiptar á ýmsum
sviðum, ekki sist i trúmálum, en
þessi aldni bóndi tók okkur hjón-
um afar vel, og kærleikurinn varð
öllum málefnaágreiningi og
aldursmun yfirsterkari i sam-
skiptum okkar. Þar hefur e.t.v.
einhverju ráðið mikill skyldleiki
við konu mina, en hann var
ömmubróðir hennar og reyndar
fjarskyldur mér einnig, en hann
auðsýndi okkur þann kærleika,
sem „breiðir yfir allt“ og „umber
allt“. Við nutum því mikils góðs
af hans hendi árin, sem við störf-
uðum nyrðra, og þau bönd, sem
þá voru tengd, slitnuðu ekki þótt
lengra væri á milli síðustu árin.
Við hefðum kosið að vera við at-
höfnina í Sauðárkrókskirkju i
dag, en aðstæður leyfa það ekki.
Þvi eru þessi fátæklegu minning-
arorð rituð.
Sigurður fæddist 10. október
árið 1879 á Hnjúki i Skiðadal í
Svarfaðardalshreppi, sonur Þórð-
ar Jónssonar bónda þar og k.h.
Halldóru Jónsdóttur. Hann ólst
upp i stórum og mannvænlegum
hópi systkina, sem öll voru þannig
af Guði gerð, að þau gengu siður
en svo sporlaust yfir jörð, en hafa
mörg markað skýr spor i sögu sins
samfélags.
Sigurður fór til náms við
Bændaskólann á Hólum i Hjalta-
dal og varð búfræðingur þaðan
1901. Hann hafði áður fengist eitt-
hvað við kennslu og gerðist nú
barnakennari i Hegranesinu
veturna 1902—05. Þar lágu leiðir
þeirra saman, hans og frændkonu
hans Pálinu Jónsdóttur bónda á
Egg Guðmundssonar og k.h. Sig-
riðar Pálsdóttur. Þau giftust 7.
október 1905 og hófu búskap á
Hafsteinsstöðum i Skagafirði vor-
ið eftir. Þar voru þau i tvö ár,
siðan eitt ár á Syðri-Hofdölum, en
vorið 1909 fluttu þau i Hegranes-
ið. Þar bjuggu þau fyrstu tvö árin
á Rein, en vorið 1911 tóku þau við
búi á Egg, föðurleifð Pálínu, og
bjuggu þar siðan.
Þeim varð 7 barna auðið. Þrir
drengir létust i fæðingu eða
nýfæddir, en fjögur börn komust
upp. Elstur var Þórður, sem lést
1932, mikill efnismaður. Næst
honum var Sigriður, sem bjó ógift
á Egg og lést i mai s.I. Þá er
Halldóra. sem einnig hefur búið
ógift í föðurgarði og er nú
sjúklingur. Yngst er Jónina, hús-
freyja á Egg, gift Jóhannesi
Hannessyni bóndaþar.
Pálina lést i nóvember 1942.
Sigurður hafði ekki mikinn
búskap eftir það. Þau Jónína og
Jóhannes tóku fljótlega hálfa
jörðina, en Sigurður átti heimili
Hegranesi
með þeim Sigríði og Halldóru, er
nýttu hinn helming jarðarinnar.
A vegum Sigriðar ólst upp Unnur
Jóhannesdóttir frá Geirmundar-
hóli i Hrolllcifsdal. Hún kom að
Egg á öðru ári, var þar til fullorð-
insára og kallaði þau Sigurð og
Pálinu pabba og mömmu, enda
reyndust þau henni sem slík.
Árið 1970 flutti Sigurður til
Sauðárkróks ásamt þeim
Halldóru og Sigriði. Þar var byggt
fallegt og gott hús, og þar hefur
heimili þeirra staðið síðan. Unnur
flutti heimili sitt þangað frá Hris-
ey s.l. ár til að geta hlynnt betur
að þvi fólki, sem hún á mest að
þakka. Hún og eiginmaður
diennar Axel Júliusson hlynna þar
nú að Halldóru. Sigurður var á
Sjúkrahúsi Skagfirðinga siðustu 8
mánuðina. Hann lést þar 12. jan-
úar s.I. 98 ára gamall, elstur Skag-
firðinga.
Sigurður á Egg vérður flestum
eftirminnilegur, þeim er höfðu af
honum náin kynni. Ég nefndi hér
fyrr, að börn þeirra Halldóru og
Þórðar á Hnjúki hefðu siður en
svo gengið sporlaust yfir jörö.
Hnúksætt hefur sterk einkenni
hvað snertir dugnað og atorku.
Þar hafa skipað bekk margir
menn framsæknir og framsýnir.
Þeir hafa löngum verið á undan
sinni samtíð með ýmsa hluti.
Margir þeírra hafa og verið prýði-
lega greindir, einnig hagleiks-
menn ágætir. Viljastyrkur og
skapriki hafa jafnframt verið
ættarfylgjur, en einnig gott og
hjálpfúst hjartalag og drengskap-
ur mikill.
Sigurður Þórðarson bar mörg
og glögg einkenni þessarar ættar.
Dugnað og atorku bóndans á Egg
þekktu allir, einnig greind hans
og framfarahug. Hann mun fyrst-
ur skagfirskra bænda hafa sléttað
tún með nútima aðferðum, þ.e. án
þess að rista ofan af, heldur er
plægður óhreyfður grassvörður-
inn. Fyrsta útvarpstækið i Skaga-
firði var sett upp á Egg og fyrsta
sláttuvélin kom þangað. Það var
þvi af eðlilegum ástæðum, að Sig-
urði voru falin ýmis trúnaðarstörf
heima fyrir. Hann var i sýslu-
nefnd eitt kjörtimabil, i hrepps-
nefnd i 20 ár, formaður skóla-
nefndar i 16 ár og mjög lengi i
stjórn Búnaðarfélags Ripur-
hrepps.
Sigurður á Egg var skaprikur
maður, og það var ekki allra að
deila við hann um menn eða
málefni eða fá hann til að hvika
frá sinni skoðun. Slíkir menn eru
oft óþjálir i samvinnu nema til
komi aðrir eiginleikar, er vega
upp á móti. Þá átti Sigurður í
næmri réttlætiskennd og einlæg-
um vilja til að láta gott af sér
leiða. Drengskapur og einlægur
kærleikur voru lika sterkir þættir
í fari hans. Ég kynntist þeim hlut-
um mjög vel, bæði í eigin skiptum
við Sigurð á Egg og sem áhorf-
andi að skiptum hans við min
börn. sem og barnabörn hans á
Egg.
Það má með -sanni segja, aö
^Sigurður væri höfðingi í lund og
ekkert smátt sem hann gerði. öft
var hann stórtækur við vini sina.
Ég kynntist ekki Pálinu konu
hans, en ég hef heyrt margt gott
um hana sagt og einnig það, hve
Sigurður hafi verið henni Ijúfur
og eftirlátur. Sjálfur mun hann
sagt hafa, að ætið hafi hann metið
orð hennar mikils, því hann hafi
fundið svo vel, að það sem hún
lagði til málanna stefndi allt að
þvi að snúa þeim á betra veg.
Sigurður mun hafa verið trú-
hneigður stax sem barn. Móðir
hans innrætti honum margt i
þeim efnum. Á miðjum aldri
kynntist hann svo Arthur Gook,
hinum þekkta trúboða frá Sjónar-
hæð á Akureyri. Eignaðist Sigurð-
ur þá það sem nefnt er endurfæð-
ing eða trúarlegt afturhvarf, og
trúmál skipuðu eftir það mjög
stórt rúm i lifi hans. Eftir að hann
hætti búsumsýslu ferðaðist hann
mikið um nyrðra til að boða sina
trú og sparaði þá ekkert til. En
Framhald á bls. 41