Morgunblaðið - 28.01.1978, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 28.01.1978, Qupperneq 1
48 SIÐUR 23. tbl. 65. árg. LAUGARDAGUR 28. JANUAR 1978 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Muzorewa gekk út Salisbury 27. jan. AP. Reuter. Blökkumannaforinginn Abel Muzorewa biskup, for- svarsmaður Sameinaða afrfska þjóðarráðsins, UANC, gekk út f fússi af viðræðufundi í Salis- bury. Sagði hann að viðræð- urnar væru megnasti ðþverri, aðstoðarforsætisráðherrann, David Smith, hefði borið hon- um á brýn lygi og við sifkt gæti hann ekki unað. Ekki er vitað hvort þetta muni hafa þau áhrif að upp úr samningaviðræðum slitni milli aðila. Ríkisstjórn Smiths lét ekk- ert frá sér heyra um málið en Muzorewa sendi síðan frá sér yfirlýsingu þar sem hann fór hörðum orðum um óheilindi forystumanna landsins og taldi framkomu þeirra á viðræðu- fundinum i dag fyrir neðan allt velsæmi. Fréttabann á framvindu mannránsmáls París 27. jan. AP. Reuter. ALGERT fréttabann hefur nú verið sett á mannránsmál baróns- ins Edouard Jean Empain, sem var rænt f París fvrir nokkrum dögum. og segja fréttamenn það benda til að viðræður séu hafnar milli f jölskyldu Empains og ra'n- ingjanna. Hefur roskinn for- stjóri, Albert Buchalet, verið nefndur sem líklegur meðal- Framhald á bls. 28 „Mikill og afdráttar- laus vilji til að vinna að úrlausn mála” — sagði Kirsten Th. Sa Machado í símtali við MBL. „ÉG HELD að mér sé ðhætt að fullyrða að mikill og afdráttarlaus vilji er hjá flokkunum, sem nú hafa gengið til stjórnarsamstarfs, til að vinna að lausn mála, og því er vonandi hægt að búast við því að einhver árangur náist,“ sagði Kirsten Th. Sa Machado f Lissabon í símtali við Mbl. í gær, förstudag. Eins og frá hefur verið sagt er hún eiginkona nýskipaðs utanrikisráð- herra Portúgals, Vitors Sa Machado, en hann var kjörinn á þing fyrir miðdemókrata f Aveiro árið 1975 og sfðan aftur í kosningunum 1976. „Sjálfsagt þykir Framhald á bls. 28 Vitor Sa Machado Fundir hermálanefnd- Engin geisla- virkni fannst Ottawa 27. jan. Reuter. GEISLAVIRKT úrfelli yfir af- skekktum hluta Kanada sem talið var komið frá sovézkum gervi- hnetti sem hrapaði yfir Kanada, reyndist alls ekkert að því er yfir- maður herafla Kanada skýrði frá seint í gærkvöldi. Aður höfðu kanadiskir embættismenn og sér- fræðingar gefið í skyn og sumir sagt berum orðum að stórhættu- leg geislavirkni hefði mælzt nálægt Bakervatni i óbyggðum Norður-Kanada. 1 kvöld sagði svo Robert Falls aðmíráll að fréttirn- ar um geislavirknina sem átti að hafa mælzt væru að öllum líkind- um til komnar vegna misvfsunar og galla f mælitækjum sem hefðu verið um borð í leitarvélunum sem kembdu svæðið. Gífurleg leit var hafin og varn- araðgerðir voru i undirbúningi eftir að líkur bentu til að hlutar úr gervihnettinum hefðu ekki brunnið upp áður en þeir komu inn í gufuhvolfið. Aðmírállinn sagði í kvöld að sú sáralitla geisl- Framhald á bls. 28 Túnisborg 27. jan. AP. Reuter. I SÍÐUSTU fréttum frá Túnisborg i kvöld sagði að nú væri vitað um að minnsta kosti fjörutíu manns sem hefðu látið lffið og töluvert á fjórða hundrað manns sem slösuðust f grfðarlegum óeirðum um gervallt landið í kjölfar sólarhringsverkfalts er beindist gegn stjórn landsins. Mjög miklar skemmdir urðu á eignum. bflar voru brenndir og eldur lagður í hús og stolið úr verzlunum. Eru þetta alvarlegustu mótmælaaðgerðir f stjórnartfð Habib Borugiba forseta sem hefur nú verið við völd í tuttugu og tvö ár. I fréttum frá aðalstöðvum Al- þjóðasambands verkalýðsfélaga í Briissel var á hinn bóginn gefin út frétt þess efnis að hundrað manns hefðu beðið bana í átökum verkamanna og öryggisvarða með- an á verkfallinu stóð. Þar var einnig sagt að formaður verka- lýðssambands Túnis hefði verið handtekinn svo og ýmsir forystu- menn þess og var krafizt að þeir yrðu látnir lausir. Fréttum frá Túnis um þessi miklu og alvarlegu átök ber ekki alls kostar saman. Þar segir þó að friður virðist kominn á og kyrrð riki, eftir að lögregla og öryggis- verðir tóku á sitt vald aðalstöðvar stærsta verkalýðsfélags höfuð- borgarinnar. Af hálfu lögreglu var sagt að verkfallsmenn hefðu hafið átökin með því að ráðast að lögreglumönnum og grýta þá og lemja með prikum. Hafi lögreglu- menn orðið að verja hendur sínar en von bráðar hafi allt logað í slagsmálum og sfðan hafi ólgan breiðzt út um landið. Átökin urðu mest í höfuðborg- inni Túnis, en einnig bárust frétt- ir af þvilíku í fjórum öðrum borg- um, en í kvöld var þar einnig friður og útgöngubann í gildi. Þessi gríðarlegu átök eru eins og áður segir þau alvarlegustu í landinu i há herrans tið. £n síðan á sl. hausti hafa hvað eftir annað brotizt út skærur og verkföll og krefjast verkamenn hærri launa og skella skuldinni á að kröfur Framhald á bls. 28 TUNIS — Miklir eldar loguðu í einu hverfi Tínusborgar i gær, eftir allsherjarverkfall sem stærstu verkalýðssamtök landsins höfðu boðað til. I kjölfar þessa verkfalls brutust svo út blóðugar óeirðir og létu margir lífið og hundruð manna slösuðust. Mikil skemmdarverk voru unnin viða í borginni og eldsvoðar urðu viða. anna að hefiast aftur Tel Aviv, Kafró, New York, Amman 27. jan. AP. Reuter t AP-frétt í kvöld frá Tel Aviv sagði að varnarmálaráðherrar tsraels og Egyptalands myndu koma saman á fund að nýju í Kairó f næstu viku og ræða um brottför tsraela frá Sinaiskaga. Var þetta haft eftir opinberum heimildum og þykir merki þess að það starf sem unnið hefur ver- ið að tjaldabaki undanfarið eftir að upp úr viðræðum stjórnmála- nefndarinnar slitnaði hafi borið árangur. I fréttum Reuterfréttastofunn- ar seint í kvöld sagði að Sadat Egyptalandsforseti myndi líklega tilkynna á morgun, laugardag, að hann væri í þann veginn að leggja upp í ferð til Bandaríkjanna til viðræðna við Jimmy Carter um friðarhorfur í Miðausturlöndum. Begin forsætisráðherra ísraels mun einnig hafa á prjónunum Bandaríkjaferð en ekki fyrr en síöari hluta marzmánaðar. Yassir Arafat, foringi Frelsis- samtaka Palestfnumanna, mun hafa sagt Carter Bandaríkjafor- seta frá því f persónulegri orð- sendingu að hann sé mjög sár og reiður vegna þeirra orða sem Carter hafi látið falla um PLO. Var orðsending Arafats afhent í Hvíta húsinu f gær. Arafat hefur einnig gefið út Framhald á bls. 28 V arnarmálaráðherr- ann gagnrýndur í Kína MJSM Peking 27. jan. Reufer. AP. VEGGSPJÖLD með gagnrýni á Chen Hsi-lien, aðstoðarforsætis- ráðherra og varnarmálaráðherra Kína, hafa verið sett upp f kín- versku borginni Shenyang í Lia- oninghéraði að þvf er ferðamann sem komu frá borginni sögðu f dag. A veggspjöldunum er Chen bor- inn-þeim sökum gð hafa verið í slagtogi með Lin Piao, fyrrver- andi varnamálaráðherra, svo og „bófunum fjórum frá Shanghai". Undir þessar ásakanir eru sagðir rita nokkrir verkamenn. Chen hefur áður fengið á bauk- inn með áþekku móti, en frétta- stofufregnum ber saman um að þetta kunni að vera undanfari þess að staða Chen verði endur- skoðuð. HNITEI STATES Túnis logaði í óeirðum og tugir manna látnir I gærkvöldi var komin kyrrd á en fréttir á reiki um manntjón og fjölda slasaðra

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.