Morgunblaðið - 28.01.1978, Blaðsíða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. JANUAR 1978
Bezti leikur Þórs
dugði ekki gegn ÍS
p#:
A FIMMTUDAGSKVÖLDIÐ léku
IS og Þór í 1. deild Islandsmóts-
ins í körfuknattleik og kom nokk-
uð á óvart, hve Þórsarar veittu IS
mikla mótspyrnu. Þegar 5 mínút-
ur voru til leiksloka var staðan
88:85 ÍS f vil og virtist allt geta
gerst. Þá fékk Jón B. Indriðason
sína 5. villu, en hann hafði átt
mjög góðan leik og verið drjúgur
við að skora í sfðarí hálfleiknum.
Við það að missa Jón út af virtist
sem allur kraftur væri úr Þórsur-
um og stúdentar skoruðu 15 stig
gegn 6 lokakaflann og sigruðu
103:91.
Það var aðeins í upphafi leiks-
ins sem Þór hafði forystu, en
munurinn varð þó aldrei mikill,
þetta 5—10 stig fyrir ÍS. í leikhléi
var staðan 51:42 ÍS í vil. Þórsarar
mættu ákveðnir til leiks i síðari
hálfleik og byrjuðu að saxa á for-
skot stúdenta og náðu nokkrum
sinnum að minnka það niður í 3
vild. Beztir hjá IS voru Dirk Dun-
bar og Bjarni Gunnar Sveinsson
sem átti góðan leik í sókninni. Þá
áttu Kolbeinn Kristinsson og
Steinn Sveinsson þokkalegan
leik.
Þórsarar sýndu nú sinn bezta
leik í mótinu, en það háir þeim
mikið, hve breiddin er lítil. Sömu
5l leikmennirnir léku allan leik-
inn þangað til Jón Indriðason
fékk sína 5. villu, er 5 mínútur
voru til leiksloka. Virtist það at-
vik skipta sköpum í leiknum.
Fjórir leikmenn voru beztir og
stig, síðast þegar staðan var 88:85. UMFN 8 7 1 726:617 14
Síðustu mínútunum er lýst hér að KR 8 6 2 683:554 12
framan og lokatölurnar urðu sem Valur 8 6 2 703:659 12
fyrr sagði 103:91 IS 1 vil is 8 6 2 722:689 12
ÍR 8 3 5 675:707 6
Fyrirfram hafði verið búizt við Fram 8 2 6 630:689 4
auðveldum sigri stúdenta, en þeir Þór 8 2 6 543:608 4
þurftu að taka á honum stóra sín- Ármann 8 0 8 639:810 0
um til þess að innbyrða sigurinn.
Hafði maður á tilfinningunni að
þeir legðu sig ekki alla fram, að
þeir teldu leikinn fyrirfram unn-
inn. Á köflum var nánast ekki um
vörn að ræða hjá stúdentum,
Þórsarar gátu labbað út og inn að
STAÐAN
STAÐAN 1 1. deild Islands-
mótsins f körfuknattleik:
Stigahæstu menn: stig
Dirk Dunbar IS 235
Rick Hockenos Val 218
Símon Ólafsson Fram 205
Erlendur Markúss. IR 203
Mark Christensen Þór 202
Ljósm. Friðþjófur.
Hart barizt í sveitaglímu Júdósambandsins á dögunum en þar bar
Júdófélag Reykjavíkur sigur úr býtum.
haldið í tilefni
5 ára afmælis JSÍ
AFMÆLISMÓT Júdósambands
tslands verður haldið í Iþrótta-
húsi Kennaraháskólans tvo næstu
sunnudaga.
N.k. sunnudag, 29. janúar,
verður keppt í öllum sjö þyngdar-
flokkum karla. Allir bestu júdó-
menn landsins keppa, og má bú-
ast við mjög tvísýnni og góðri
keppni. Júdómenn hafa æft betur
í vetur en nokkru sinni fyrr.
Drætti frestað
AKVEÐIÐ hefur verið að fresta
drætti í landshappdrætti Körfu-
knattleikssambands Islands til 15.
marz nk.
Keppnin á sunnudag hefst kl. 2
s.d.
Sunnudaginn 5. febrúar svo
seinni hluta afmælismótsins í
Iþróttahúsi Kennaraháskólans á
sama tíma. Verður þá keppt í opn-
um flokki karla (án þyngdartak-
markana) og einnig í unglinga-
flokkum og í kvennaflokki.
Afmælismót JSI er haldið ár-
lega um mánaðamótin jan-
úar—febrúar. Afmælisdagur JSÍ
er 28. janúar, og verður Júdósam-
bandið 5 ára á laugardaginn.-
skiptu stigunum bróðurlega á
milli sín, þeir Mark Christensen,
Jóhannes Magnússon, sem lék nú
sinn bezta leik f vetur, Jón B.
Indriðason og Eirikur Sigurðsson,
mjög efnilegur leikmaður. Reikna
má með, að Þórsarar verði erfiðir
heim að sækja, en þeir eiga nú
eftir 6 leiki í mótinu og þar af 5 á
heimavelli. Vægast sagt furðuleg
niðurröðun.
Stigin fyrir ÍS: Dirk Dunbar 39,
Bjarni G. Sveinsson 22, Kolbeinn
Kristinsson 14, Steinn Sveinsson
10, Jón Héðinsson 8, Guðni Kol-
beinsson og Gunnar Halldórsson 4
hvor og Ingi Stefánsson 2 stig.
Stigin fyrir Þór: Mark Christen-
sen 25, Jóhannes Magnússon 24,
Eiríkur Sigurðsson 20, Jón B.
Indriðason 18, Þröstur Guðjóns-
son 4 stig.
Dómarar voru Jón Otti Ölafsson
og Eiríkur Jóhannesson og
dæmdu þeir mjög vel.
AG
Mark Christensen Þór og Gunnar Halldórsson IS f harðri baráttu undir
körfu stúdenta. Kolbeinn Kristinsson og Bjarni Gunnar Sveinsson
fylgjast með. (Ljósm. AG).
Tveir enskir keppa á
badmintonmóti TBR
TROPICANAMÓTIÐ í badminton
fer fram f TBR-húsinu við
Gnoðarvog f dag og á morgun og
hefst keppnin klukkan 15 báða
dagana.
Keppt verður í einliðaleik
kvenna og karla og einnig í tví-
liðaleik. Það setur sinn svip á
mótið, að tveir enskir badminton-
Sveitaglíma
íslands fer
fram í dag
SVEITAGLÍMA íslands fer fram !
dag i hinu nýja iþróttahúsi að
Varmá i Mosfellssveit og hefst
keppnin klukkan 14.
Sveitagliman verður nú með
nokkru öðru sniði en áður. Hver
sveit verður skipuð þremur þátt-
takendum i mismunandi þyngdar-
flokkum og glima saman menn i
sömu flokkum. Með þessu fyrir-
komulagi var talið að þátttaka
yrði meiri en áður og sú hefur
orðið raunin, þvi að þessu sinni
munu 6—7 sveitir taka þátt f
glimunni en i fyrra voru þær að-
eins tvær. HSÞ sendir tvær sveit-
ir til keppninnar og Vikverji 1 — 2
sveitir. ÚÍA. Ármann og KR tefla
fram einni sveit.
HSÞ er núverandi fslands-
meistari i sveitaglimu. Unnu
Þingeyingarnir sveit Vikverja
örugglega i úrslitunum. sem fram
fóru á Húsavik i fyrrasumar.
Þess skal að lokum getið að
flestir beztu glímumenn landsins
verða meðal þátttakenda i
Sveitaglimunni að þessu sinni.
menn koma hingað og taka þátt í
mótinu. Þeir heita Brian Wall-
work, 25 ára, og Duncan Bridge,
19 ára. Báðir hafa þeir náð langt í
íþróttinni. Allt bezta badminton-
fólk Islands mun taka þátt í mót-
inu og verður fróðlegt að sjá ís-
landsmeistarana í tviliðaleik, Sig-
urð Haraldsson og Jóhann Kjart-
ansson, leika gegn ensku spilur-
unum.
Mót þetta er á vegum TBR,
Tennis- og badmintonfélags
Reykjavíkur. Er mótið nýtt af nál-
inni en þess er vænzt að það verði
framvegis haldið árlega.
IS OG Þróttur
leika um helgina
UM HELGINA verður stórleikur i fyrstu
deild karla Leika þar ÍS og Þróttur og
er þar um úrslitaleik að ræða Það lið
sem vinnur gerist mjög sigurstranglegt
en hitt missir að likindum af lestinni.
Fyrir leikinn verður að telja ÍS sigur-
stranglegra þar eð það hefur tapað
mun færri hrinum en Þróttur En í liði
Þróttar eru sterkir menn um þessar
mundir og eru til alls liklegir Leikurinn
verður á sunnudaginn í Hagaskólanum
og hefst kl 1 6 00
í fyrstu deild kvenna leika Víkingur
og Þróttur i Hagaskóla kl 13.30
Verður hér einnig um spennandi leik
að ræða
í annarri deild karla leika síðan ÍS og
Þróttur-b á sama stað kl 1 4.40.
þs/kpe
Tveir leikir í körfunni
TVEIR leikir fara fram f Islands-
mótinu í körfuknattleik f fþrótta-
húsi Hagaskóla f dag og eru það
einu leikirnir um þessa helgi.
Klukkan 14.00 leika Valur og Ar-
mann og verður að gera ráð fyrir
öruggum Valssigri f þessum leik.
Ármenningar hafa varla verið
nálægt þvf að vinna leik í vetur,
en Valsmenn hafa ekki átt betra
lið í körfuknattleik en það lið,
sem nú berst fyrir Islands-
meistaratitlinum.
Að leik Vals og Armanns lokn-
um, eða um klukkan 15.30 leika
KR og Fram og gæti það orðið
spennandi viðureign. Framarar
eru gersamlega óútreiknanlegir,
en virðast alltaf ná sér best upp á
móti sterkum liðum eins og leikur
liðsins gegn UMFN bar með sér.
KR-ingar ætla sér þó vafalaust
ekkert minna en sigur því að
baráttan á toppinum hefur sjald-
an verið jafn spennandi og hver
leikur er úrslitaleikur.
Nesklúbburinn
AÐALFUNDUR Nesklúbbsins —
Golfklúbbs Ness — verður hald-
inn f Haga við Hofsvallagötu laug-
ardaginn 28. janúar n.k. og hefst
hann kl. 14.00.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
T tue’iio Lei^A FeACMe- uud'ue.
ST06B.M ETOttLt <|NM>TO»l
otr haulj 6rsoeaes
veee'ifcsr s'i>jV*. lok:a<,kip-oio
Le'lKOlz.i[ÖM eie--PeA^ALeiOC»c>oeL bBitAB
K\swva.e,ocz\>oVo Sz'HAL.L ?
'^eAe. ur-\öéu-T