Morgunblaðið - 28.01.1978, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 28.01.1978, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. JANUAR 1978 Vinnuslys á Seleyri TVEIR menn liggja nú í sjúkra- húsinu á Akranesi eftir aö tveggja tonna endastykki af stöpli undir Borgarfjaröarhrúna slóst í þá. Báðir fengu mennignir höfuöhögg og annar skarst á höföi. 1 gær var líðan þeirra sögö góð eftir atvikum. Vinnuslysið varð um klukkan hálf átta í gærmorgun í húsi því á Seleyri, þar sem steypuvinna fer fram. Verið var að hífa enda- stykkið og stilla því í bitamót, þegar krókur bilaði og stykkið féll niður, en það var komið í 50—70 sm hæð frá gólfi. Stykkið vegur sem áður segir tvö tonn og er röskir tveir metrar á hæð. Þeg- ar stykkið lenti á gólfinu datt það á hliðina og slóst i mennina tvo. Ný ferðaskrifstofa Ný ferðaskrifstofa, Ferðaskrif- stofan Atlantik, hefur hafiö starf- semi að Hallveigarstíg 1 í Reykja- vík og er eigandi hennar og fram- kvæmdastjóri Böðvar Vaigeirs- MATTHtAS A. Mathiesen, fjár- málaráðherra, undirritaði í gær fyrir hönd ríkissjóðs samning við japanska fyrirtækið Nikko Securities um lántöku í Japan að upphæð 5 milljarðar yena (um 4,5 milljarðar króna). Seðlabanki Is- lands hefur annast undirbúning lántökunnar fyrir ríkissjóð, en fjárins er aflað með beinni skuldabréfasölu á innanlands- markaði í Japan. Lánið er fengið til 12 ára og vextir eru 7,3%. Fyrirhugað er að nota þetta fjármagn til framkvæmda á veg- um ríkisins samkvæmt lánsfjár- áætlun. Áttræðis- afmæli FRU Sólrún Þóra Kristjánsdóttir, Hverfisgötu 18 í Hafnarfirði, varð áttræð á fimmtudaginn var, 26. janúar. Sólrún hefur verió ekkja frá því á árinu 1943 er maður hennar, Konráð Þorsteinsson sjó- maður, lézt. VSltN^OÍ? 'bWmLb- wm \f£F0R 5t9 9/165/N5 /JÓ5 son, fyrrverandi framkvæmda- stjóri Samvinnuferða. Böðvar Valgeirsson sagði í sam- tali við Mbl. í gær, að Atlantik mundi bjóða hvers konar ferða- þjónustu og að ætlunin væri að leggja megináherzlu á nýja áfangastaði og smærri ferða- mannahópa. Skrifstofan mun einnig annast móttöku erlendra ferðamannahópa og hefur verið gerður samningur við v-þýzka ferðaskrifstofu, Neckermann, þar um, en einnig sagði Böðvar við- ræður í gangi við fleiri erlendar ferðaskrifstofur. 4 í gæzlu vegna fíkni- efnamáls FJÓRIR sitja nú í gæzluvarð- haldi vegna rannsóknar á fíkniefnamáli hjá ffkniefna- dómstólnum. Einn piltur var látinn laus í fyrradag. Að sögn Arnar Guðmundssonar, full- trúa, virðist hér um a11 vfðtækt mál að ræða en hann kvað öll kurl ekki enn vera komin til grafar í þeim efnum. Mjög mörg ungmenni hafa verið yf- irheyrð í tengslum við rann- sókn máls þessa. Lýst eftir ökumanni UMFERÐARDEILD lögreglunn- ar í Reykjavik hefur beðið Mbl. að ítreka áhuga starfsmanna deildar- innar á að ná tali af bifreiðastjóra sendibíls sem á að hafa ekið rétt á undan Mercury Comet fólksbíl milli kl. 15 og 16 fimmtudaginn 19. janúar sl. en fólksbíll þessi lenti á ljósastaur rétt austan við Elliðaárbrýrnar og fór síðan út af veginum. Telur lögreglan ekki útilokað að ökumaður sendiferða- bílsins kunni að hafa séð tildrög þessa óhapps, sem munu nokkuð óljós. Eldur á Njálsgötu 5 ELDUR kom upp á Njálsgötu 5 í gærmorgun en tjón varð ekki mikið og engan sakaði. Að sögn slökkviliðsins var það kl. 9.50 í gærmorgun sem tilkynnt var um eldinn sem kom upp i borði á bólstrunarverkstæði, sem er í kjallara á Njálsgötu 5 í Reykjavík. Þegar að var komið reyndist eldur lítill en reykur var mikill. Yfir kjallaranum er timburgólf og því var mikil hætta á ferðum þar sem eldtungur náðu til lofts. Slökkviliðinu tók,st þó að stöðva eldinn áður en hann náði að læsa sig í loftið. Skemmdir uróu einhverjar á verkstæðinu, að mestu vegna reyks. Samningurinn við Nikko Securities undirritaður Beðið eftir vori Lítil loðnuveiði þrátt fyrir gott veður í gær Heildaraflinn 48 þús. lestir ÞRÁTT fyrir gott veður á loðnumiðunum í fyrrinótt var veiði ekki mikil. Engu að síður mun nokkuð af loðnu hafa fundizt, en hún stóð djúpt og kenna menn um miklu tunglskini. í gærmorgun tilkynntu sex bátar um afla, samtals 2020 lestir, og fóru með aflann til Siglufjarðar, Raufar- hafnar, Krossaness og Vopnafjarðar. Heildarloðnuaflinn í vet- ur var orðinn 42 þúsund lestir í gær, en á sama tíma í fyrra var heildaraflinn 103 þús. lestir. Til saman- burðar má geta þess, að þann 27. janúar 1976 var loðnuaflinn orðinn 28 þús. lestir og 27. janúar 1975 21 þúsund lestir. Loðnuskipin, sem til- kynntu um afla í gær, eru þessi: Fífill GK 300 lestir, Breki VE 300, Húnaröst ÁR 300, Skírnir AK 280, Harpa RE 540 og Hrafn GK 300. Flugfélag Austurlands fær sérleyfi til áætlunarfiugs Samgönguráðuneytið hefur nú veitt Flugfélagi Austurlands h.f. á Egilsstöðum sérleyfi til reglu- bundins áætlunarflugs með far- þega, vörur og póst á Austurlandi næstu fimm árin eða frá 1. janúar s.l. til 31. desember 1982. Sérleyfi Flugfélags Austur- lands er á milli Egilsstaða og eftirtalinna staða: Bakkafjarðar, Borgarfjarðar eystri, Vopnafjarð- ar, Neskaupstaðar, Djúpavogs og Hafnar i Hornafirði. V erð j öf nun ars j óður: Engar ákvarðanir iteknar FUNDUR í stjórn Verðjöfnunar- sjóðs fiskiðnaðarins var haldinn í gær og var rætt um viðmiðunar- verð vegna nýákveðins fiskverðs, en eins og áður hefur verið skýrt frá, þá verður verð á hinum ýmsu tegundum af flokkum ekki gefið upp fyrr en stjórn Verðjöfnunar- sjóðs hefur fjallað um málið. Davíð Ólafsson, formaður stjórn- ar Verðjöfnunarsjóðs, sagði í sam- tali við Morgunblaðið í gær, að á þessum fundi hefðu engar ákvarðanir verið teknar, en gert væri ráð fyrir öðrum fundi i byrjun næstu viku.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.