Morgunblaðið - 28.01.1978, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. JANUAR 1978
21
2 kærðir fyrir
Hálandamorðin
Edinhorg. 27. jan. Reuter. AP.
TVEIR MENN voru ákærðir f dag fyrir morðið á Walter Scott Elliot
fyrrverandi þingmanni sem fannst látinn í skozku Hálöndunum fyrr í
þessum mánuði.
Annar maðurinn, yfirþjónn
hins látna, var einnig ákærður
fyrir að hafa myrt fyrrverandi
veiðivörð Scott-Elliots. Lík hans
fannst eftir leit í Hálöndunum.
Archibald Hall yfirþjónn og vit-
orðsmaður hans, Michael Kitto,
voru ákærðir fyrir að kyrkja
Scott-Elliot til bana. Scott-Elliot
var 82 ára gamall og var þingmað-
ur Verkamannaflokksins á sínum
tíma. Lík hans fannst 17. janúar
sl. grafið undir runnagróðri um
45 km frá Inverness.
Lfk - eiginkonu Scott-Elliots,
Dorothy, fannst fimm dögum
seinna i skurði fullum af vatni
160 km suður af Inverness.
Hall yfirþjónn var jafnframt
ákærður fyrir að skjóta David
Wright veiðivörð til bana. Lík
hans fannst 21. janúar á landar-
eign i Suður-Skotlandi skammt
frá ensku landamærunum.
Báðir mennirnir voru ákærðir
fyrir þjófnað i íbúð Scott-Elliots í
London. Þegar lögreglan kom i
íbúðina höfðu öll verðmæti verið
fjarlægð úr henni og blóðblettir
voru á gólfteppinu. Forngripum
var stolið úr íbúðinni og þeir
komu seinna fram á Norð-
vestur-Englandi.
Lögreglan fann tvö önnur lík:
lík Donald Halls, bróður yfir-
þjónsins, í farangursgeymslu bif-
reiðar, og Mary Coggle, eiginkonu
Donald Halls, sem fannst á kafi í
skurði.
Nashyrningur bar
í dýragarðií Basel
Basel, Sviss 27. jan. AP.
INDVERSKUR nashyrningur bar I gær 67 kílóa kálfi í dýragarð-
inum í Basel, en þetta er 16. nashyrningskálfurinn sem fæðist þar
og fæddist sá fyrsti 1956. Burðurinn gekk vel fyrir sig, en enginn
var viðstaddur þegar kálfurinn kom i heiminn.
Samkvæmt venju mun nashyrningskálfurinn verða skirður
nafni sem byrjar á bókstafnum A, en á siðasta ári voru öll dýr sem
fæddust i dýragarðinum skírð nafni sem byrjaði á Z.
Amma hins nýborna kálfs er einnig kálffull þannig að viðkom-
an virðist vera i bezta lagi í fjölskyldunni. Nashyrningar ganga
með i 16 mánuði.
Þetta gerðist
28. janúar, AP.
1977 — Sovézki andófsmaður-
inn Andrei Sakharov hvetur
Carter Bandaríkjaforseta til
þess ,,að láta til sín heyra“ i
þágu þeirra, sem hanrt segir
ofsótta vegna stjórnmálalegra
eða trúarlegra skoðana sinna í
Sovétrikjunum og austan járn-
tjalds.
1976 — Bandariska öldunga-
deildin samþykkir tvö hundruð
mílna fiskveiðilögsögu.
1975 — Forsætisráðherra Dan-
merkur, Paul Hartling, lætur
að störfum.
1933 — Stjórn Kurt von
Schleichers fellur í Þýzkalandi.
1932 — Japanskar hersveitir
náyfirráðum i Shanghai.
1939 — Einræði Primo de Riv-
era lýkur á Spáni.
1918 — Verkföll í Berlín.
Rússneskir bolsévikar ná yfir-
ráðum 1 Helsinki.
1885 — Brezkar hersveitir ná
til Kartoum og halda siðan burt
frá Súdan.
1871 — París gefst upp fyrir
Þjóðverjum i Prússastríðinu.
1788 — Fyrstu brezku
hegningarnýlendunni er komið
á fót við Botony-flóa í Astralíu.
1 dag ciga afmæli: John Barcl-
ay, skozkt ádeilduskáld
(1582—1621), Giovanni
Alfonso Borelli, ítalskur líf-
eðlisfræðingur (1608—1679),
John Baskerville, enskur prent-
ari (1716—1775), Arthur
Rubenstein, pianósnillingur
(1899—).
Hugleiðing dagsins: „Gæfan að
hafa hæfileika nægir ekki —
maður verður einnig að hafa
hæfileika til að öðlast gæfuna."
Hector Berlioz, franskt tón-
skáld (1803—1869).
Orð krossins
Fagnaðarerindið verður boðað frá Trans World
Radio, Monte Carlo, á hverjum laugardags-
morgni kl 10.00—10.15.
Sent verður á stuttbylgju 31 metra, (9.5 MHZ.)
Orð krossins, pósh. 4187, REYKJAVÍK. _
Wallace neitaði
að styðja Nixon
New York 27. jan. AP.
RICHARD Nixon ákvað
að segja af sér forseta-
embættinu þegar fylkis-
stjórinn f Alabamha,
George Wallace, neitaði
að beita áhrifum sínum
til að fá þingmenn til að
styðja hinn hrjáða for-
seta. Svo segir í bók, sem
David Frost hefur skrif-
að um Nixon og kemur út
innan skamms í Banda-
ríkjunum.
Nixon segir, að hann
hafi verið ákveðinn í að
segja af sér tveimur vik-
um fyrr en raun varð á
og að það hafi verið
vegna þess, að Wallace
vildi ekki telja um fyrir
Walter Flowers og fá
hann til að mæla gegn
tillögu þingnefndar um
að sækja ætti Nixon til
saka vegna Watergate-
málsins.
Skrifstofa fylkisstjórans hef-
ur staðfest að Nixon hafi átt
símtal við Wallace 23. júlí 1974
og að Wallace hafi sagt for-
setanum, að það væri „óviðeig-
andi“ að hann bæði Flowers um
að greiða ekki atkvæði með til-
lögunni. Flowers er demókrati
og var einn af þingmönnum
Alabamba. Nixon segir, að
Alexander Haig „hafi verið í
herberginu þegar ég var að tala
við Wallace og ég sagði, ég man
þetta mjög vel, ég sagði jæja Al,
þarna fór forsetaembættið".
Bókin sem er 390 blaðsiður er
unnin upp úr samtölum Frosts
við Nixon í sjónvarpi.
Frost hefur eftir Nixon að
hann hafi hringt til Wallace 23.
júlí 1974 til að biðja hann að
tala við Flowers. „En Wallace,"
segir Nixon „virtist ekki skilja
af hverju ég hringdi." Nixop
heldur áfram: „Hann sagði.
„Þetta er það fyrsta sem ég
heyri um málið, ég held það sé
ekkert sem ég get gert til að
hjálpa þér.“ Hann var mjög vin-
gjarnlegur og sagði: „Ég bið
fyrir þér, ég vildi óska að þetta
hefði ekki komið fyrir þig,- en
ég held að ef ég talaði við Flow-
ers, gæti það misskilizt."
í bókinni ræðir Frost einnig
um upphæð þá sem Nixon fékk
fyrir að koma fram í þáttum
Frosts, álit Nixons á Henry
Kissinger og þau mistök forset-
ans fyrrverandi að eyðileggja
ekki segulbandsspólur með
samtölum hans við aðra menn
um Watergate-málið. Þá kemur
fram í bókinni hvers vegna Nix-
on valdi Kissinger í embætti
utanrikisráðherra, en ekki
John Connally, sem var eitt
sinn fylkisstjóri Texas.
Nixon fékk greiddar 600.000
dollara fyrir að koma fram i
sjónvarpsþáttum Frosts og auk
þess fékk hann 20% af hagnaði.
Vel kann svo að vera að Nixon
hafi þvi fengið greiddar þrjár
milljónir dollarafyrir að koma
fram en ekki kemur fram i bók-
inni hvað gróði Nixons var mik-
ill.
12 fórust
í blindbyl
Chicaso 27. jan. Rcuter.
BLINDBYLUR gekk í dag yfir
miðvestur fylki Bandarikjanna
og að minnsta kosti tólf manns
létu lífið. Lögregla óttast þó að sú
tala geti orðið mun hærri, þvi
margir eru tepptir í bílum sínum
á vegum víðs vegar um fylkin.
Vindhraðinn komst upp í 132
kólómetra og snjókoman lamaði
allar samgöngur og atvinnulif.
Skólum var lokað og flest við-
skipta- og þjónustufyrirtæki voru
einnig lokuð. Tugir þúsunda
heimila voru án rafmagns í þess-
um mesta byl sem gengið hefur
yfir í tíu ár.
Lögregla vann i nótt við að
grafa farþega bifreiða út úr snjó-
sköflum en nær allir vegir á svæð-
inu hafa lokazt vegna fannkom-
unnar.
NATO
svarar
Brezhnev
Brússel, 27. jan. Reuter.
NATO ákvað í dag að senda
Brezhnev, leiðtoga sovézka
kommúnistaflokksins, svar
við bréfi hans til NATO,
þar sem hann varar banda-
íagið við að nevtrónu-
sprengjan verði höfð til
taks í Vestur-Evrópu.
Areiðanlegar heimildir herma
að sendiherrar NATO-ríkjanna
hafi hitzt i morgun til að fjalla um
bréf Brezhnevs sem barst NATO
og ríkisstjórnum aðildarrikja
bandalagsins fyrir mánuði.
Fregnir herma einnig, að þar
sem bréfin hafi verið send hverri
ríkisstjórn fyrir sig og væru mis-
munandi að efni myndu aðildar-
ríkin svara hvert fyrir sig.
Frakkland, sem tekur ekki þátt
í hernaðarsamvinnu NATO,
komst að því samkomulagi að
franska stjórnin svaraði bréfi
Brezhnevs áður en sendiherrar
aðildarrikja NATO komu til fund-
ar um málið í morgun.
Stór
Gólfteppi — teppabútar —
bílateppi — áklæði —
fatnaður — værðarvoðir —
allskonar prjónaband o.m.fl.
Opið í dag frá kl. 13 til kl. 19
og á morgun frá kl. 10 til 19.
Álafoss,
Mosfellssveit