Morgunblaðið - 28.01.1978, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 28.01.1978, Qupperneq 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. JANUAR 1978 BLÚM VIKUNNAR UMSJÓN: ÁB. Hversvegna blómstra blómin? Vafalaust hafa flestir þeirra sem við blómaræktun fást einhvern tíma velt fyrir sér spurningu þeirri sem er fyrirsögn þáttarins i dag í garðyrkjuþætti i norsku timariti þót'ti spurningunni best svarað með þvi að birta eftirfarandi greinarkorn sem ekki er óliklegt að ræktunarfólki þyki nokkur fróðleikur i enda segir það sina sögu Greinin sem hér verður birt i tvennu lagi — niðurlagið á laugardaginn kemur — er á þessa leið ,,Það var árið 1973 að smárit var gefið út i Berlin sem bar heitið ..Uppgötvun leyndardómsins við uppbyggingu og frjóvgun blómanna” Höfundurinn var þýskur grasafræð- ingur Conrad Sprengel gð nafni Hann hafði greinilega spurt sjálfan sig þeirrar spurningar hvernig á þvi stæði að jurtirnar blómstruðu. Voru hin margvislegu fögru blóm og hinn höfgi blómailmur aðeins til vegna mannanna svo þeir gætu glaðst við fegurð þeirra og angan, eða var náttúran ef til vill að Blómaleikur dylja einhvern dýpri tilgang sem falinn var að baki fjölbreyti- legrar fegurðar blómanna? Þannig spurði Sprengel sjálfan sig og nú hófst hann handa og vann að því dag eftir dag og ár eftir ár að fylgjast með þroska og hegðun næstum þvi 500 mismunandi plöntuteg- unda Eftir margra ára athuganir úti i náttúrunni varð hann sannfærður um að hvert eitt og emasta blóm var undraverð og aðdáunarverð „uppgötvun", já bverju og einu einasta blómi i öllum hinum óendanlega margbreytileik og mismun i stærð, lögun, lit og angan var'ætlað ákveðið hlutverk Hann sá að heilbrigt blóm var aldrei i kyrrstöðu, krónublöðin beygðu sig og hneigðu af fullkomnum yndisþokka, breiddu úr sér eða lukust aftur Frjóhnapparnir breyttu um stellingar og frævan blikaði í sólinni. Anganin bylgjaðist frá þeim Sprengel komst að þeirri niðurstöðu að hinn duldi tilgangur sérstæða þessa ..blómaleiks" eins og hann orðaði það var ekki sá að gleðja mannsaugað, heldur .var að þvi stefnt að vekja athygli vissra skordýra, sem með eða mót vilja sinum, sáu um að frjó frá einni plöntunni væri fært yfir á frænu annarár plöntu sömu tegundar Sprengel komst einnig að því að viss blóm nota aðeins viss skordýr til þess að flytja frjó sin á hnilli plantna. Án þess að vita það sjálf ráku skordýrm áríðandi erindi milli blómanna og gerðu það sem hreínir sérfræðingar í sinni list, eftir þögulli en ákveðinni leiðsögn blómanna sjálfra (frh) sem bezt. Ping og fylgdarlið verða f Burma f séx daga og munu eiga viðræður við ráðamenn þar f landi um samskipti rfkjanna og málefni landanna f Suðaustur- Asfu almennt. Þetta er í fyrsta sinn sem Teng fer í ferðalag til annarra 1 :nda frá því hann var endurreistur til valda í annað sinn í júlí á fyrra ári. Þykir för þessi tiðindum sæta af þeim sökum en einnig vegna þess að enginn kfnverskur leið- togi hefur farið í opinbera heim- sókn til annarra ríkja frá þvi Teng sjálíur fór til Frakklands á árinu 1975, nfi 'fii*---,"’ u r Rf'fflCÍ t?|i/ Teng Hsiao- Ping í Burma Rangoon, Burma, 26. jan. AP. Reuter. KlNVERSKI leiðtoginn og aðstoðarforsætisráðherrann Teng Hsiao-Ping kom f dag í opinbera heimsókn til Burma með 25 manna fylgdarliði. Var tekið á móti kínversku gestunum á flug- vellinum f Rangoon með meiri viðhöfn en áður hefur sézt f Burma, að því er fréttir herma, og hafa yfirvöld þar í landi gert sitt bezta til að heimsóknin takist Jón Börkur / Akason stýrimaður: Ætla þeir að biðjast afsökunar? Ég skrifaði grein haustið 1976, þar sem ég ræddi og deildi á siðleysi og vinnubrögð ákveðinna manna í þjóðfélag- inu, manna sem þekkja mátti af lýsingu minni, enda hef ég grun um, að einhver þeirra hafi kannast við sjálfan sig af þeirri lýsingu og látið það í ljós með háttalagi, sem óþarft er að fjöl- yrða um. Ég hef f hyggju að taka upp þráðinn og halda áfram þaðan, sem frá var horfið og máli mínu beini ég nú sem fyrr beint til þeirra, sem hafa svipaða af- stöðu og ég, og vilja reyna að halda niðri óábyrgum öflum í þjóðfélaginu og gera fólki ljóst hvert stefnir, ef slík öfl ná of miklum tökum á þjóðinni. Vera má, að við ramman reip sé að draga og að það verði allt annað en auðvelt að fylgja þessu markmiði eftir, en víð ættum þó að geta fyrirbyggt að fjórða flokks vara verði seld sem gæðavara og þannig tryggt, að áiitið verði í samræmi við manngerðirnar. Það má telja öruggt, undan- tekningar finnast þó, að róg- burður, þörfin til þess að gera aðra óheiðarlega í augum al- mennings, er sprottin af hvöt- um, sem rekja má til ófara eða óhamingju þeirra sem rógburð- inn ástunda. Öll höfum við mis- stigið okkur og sum okkar meira en góðu hófi gegnir. Ein- mitt af þeim sökum mætum við takmörkunum okkar fyrr en ella. Ekki er það alltaf vegna þess að aðrir bregða fyrir okkur fæti, heldur oft vegna okkar eigin samvisku, sem hvíslar að okkur í tíma og ótíma viðvörun- um og fær okkur til að viður- kenna staðreyndir, sem ekki verða umflúnar. Ég hygg, að flestir, sem finna sig að nokkru eða miklu leyti í þessum pistli, reyni að betrum- bæta sig og greiða þá skuld, sem þeir stofnuðu til með breytni sinni, af vangá og barnaskap oft á tíðum. Þetta er oft erfitt, stundum jafnvel ómögulegt, en þeir sem reyna til þrautar sigra að lokum. Sú kynslóð, sem nú er nýorðin myndug, eftirstríðskynslóðin, er fyrsta kynslóðin í sögu þjóð- arinnar, sem þekkir ekkert annað en velmegun og þá þau vandamál sem henni fylgja. Nægur matur, nægur fatnaður, upthitað húsnæði, frjálst náms- val, tjáningarfrelsi, athafna- frelsi, frelsi og aftur frelsi. Það má því segja, að erfitt sé að finna leiðsögumenn fyrir þessa kynslóð, þar sem eldri kynn- slóðin þekkir ekki vandamál, sem sprottin eru af velmegun og ofeldi. Það er líka að koma í ljós, að Islendingar hafa meiri tilhneigingu nú en áður til að beita öðrum og oft varasömum aðferðum við lausn vandamála, aðferðum, sem hafa verið reyndar áður með ömurlegum afleiðingum. Að mínu áliti get- ur þetta vart stafað af öðru en því, að þekking þjóðarinnar á sinni eigin fortíð og þekkingin á aðferðunum, sem beitt var með þeim árangri, að þjóðin endurheimti fornt frelsi sitt, fer því miður minnkandi, hún er ekki nægileg, til þess að við getum varast þá, sem forfeður okkar kunnu að varast. Það er ljóst, að sú kynslóð, sem nú er að taka við og að sumu leyti hefur tekið við, hef- ur innan sinna vébanda af- sprengi, ógæfusama og ofmetn- aðargjarna einstaklinga, sem Dr. Magni Guðmundsson: Meira um verðtrygg- ingu sparifjár Verðtrygging sparifjár var gerð að umtalsefni í Morgun- blaðsgrein minni 12. nóv. s.l. Þessi þáttur má skoðast eins konar framhald þeirrar grein- ar. Ríki Suður-Ameríku, sem búið hafa við óðaverðbólgu, hafa mesta reynslu í verðtrygg- ingu sparifjár. Slík verðtrygg- ing er þó ekki óþekkt í Norður- Ameríku, sem nýtur einhverrar styrkustu efnahagsstjórnar i heiminum. í Kanada var farið inn á þessa braut fyrir liðlega þrem árum, þegar verðbólgan þar náði um stundarsakir tveggja talna stærðinni. Stærsti viðskiptabankinn, The Royal Bank of Canada, reið á vaðið og hóf að verðtryggja spari-innlán þeirra, sem komnir voru ýfir sextugt. Það sjónarmið rtiun hafa ráðið þessu formi vísitþlu- uppbóta, að verðbólga keipur hvað verst niður á eldra fölk- inu, sem sparað hefir til elliár- anna. Þetta sama fólk vill geyma fé sitt á bankareikningi — án áhættu og fyrirhafnar. Með verðtryggingu á spari- innlánum sextugra og eldri var bankinn því öðrum þræði að laða þá viðskiptamenn til sin. Aðrir bankar fylgdu í kjölfarið, enda er samkeppni öflugur þáttur í kanadískri bankastarf- semi. Þannig byrjuðu sumir við- skiptabankanna nýlega að bæta vöxtum við innstæður í hverj- um mánuði, og a.m.k. einn þeirra reiknar vexti daglega (Bank of British Columbia). Það er sagt mjög vinsælt og hefir raunar viðgengizt hjá samvinnusparisjóðunum (cred- it unions) um nokkurt skeið. Samkeppni er hörð um alla bankaþjónustu og um spari- innlán sérstaklega bæði milli viðskiptabankanna innbyrðis og milli þeirra og annarra lána- stofnana. I Morgunblaðsgrein, sem til er vitnað að ofan, var bent á eina leið af mörgum til að fjár- magna verðtryggingu spari- innlána í bönkum. Það skal við- urkennt, að kunnáttu og leikni þarf til lánagtarfsemi með þeim hætti. Én vaxtaskrúfa hefir sjna annmarka líka. Hún felur að vísu í sér eirls konar vélraént skömmtuharkerfi f jármagns, en aðeiris á takmörkuðu sviði lánveitinga. Öhjákvæmilegt er talið að undanskilja útflutn- ingsatvinnuvegina, sem keppa á erlendum mörkuðum og gefa hartnær helming þjóðartekn- anna. Þannig hafa vextir af- urðalána verið ákveðnir mun lægri en gildandi útlánsvextir á hverjum tima, síðan vaxta- skrúfan hófst. Þeir hafa jafnvel verið untlir innlánsvöxtum al- mennra sparisjóðsbóka. Hall- ann af afurðalánunum hafa við- skiptabankar ríkisins orðið að taka á sig beint og óbeint. Það hefir spillt afkomu þeirra og gert þeim erfitt eða ókleift að mæta þörfum iðnaðar og verzl- unar. Þessum atvinnugreinum er í auknum mæli vísað á „vaxtaaukalán“ með 30% vöxt- um. Liggur í augum uppi, hvaða áhrif slíkt hefir á rekstr- arkostnað þeirra og verðmynd- unina. Vaxtaskrúfa er í eðli sínu vítahringur. Þegar vextir eru látnir fylgja verðbólgu, gerist æ örðugra að brúa bilið milli gildandi víxil- vaxta og vaxta afurðalánanna. Innlánsvextir, sem hækka sam- hliða útlánsvöxtum, setja vöxt- um afurðalána ákveðin tak- mörk. Við vaxtahækkunina á miðju sl. ári reyndist ekki leng- úf mögulegt að halda vöxtum afurðalána öbreyttum. Vextirn- ir höfðu vértð 8, 9 01(30^6 éftfr tegundurn afurða, en vorú hækkaðir upp i 15% fyrir allar afurðir. Hækkun vaxta í einu stökki úr 8 í 15% fyrir sjávaraf- urðir til útflutnings er mikið áfall útvégi og fiskvinnslu. Það á drjúgan þátt í erfiðleikum þessara greina i dag, sem eru um það bil að knýja fram geng- isfeHingu með kunnum afleið- ingum fyrir verðlagsþróunina. Þetta mál allt þarfnast ræki- legrar könnunar, og því verður að gera ítarleg skil. Hér hafa verið dregin fram fáein atriði

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.