Morgunblaðið - 28.01.1978, Síða 12

Morgunblaðið - 28.01.1978, Síða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. JANUAR 1978 Störf okkar að allt- of miklu leyti tengd áfengismálum — segir Bjarki Elíasson yfirlögregluþjónn ■'i Hversu mikill tími lög-1 reglunnar fer í það að hafa afskipti af drukknu fólki? Hvaða fólk er það? Er það í heimahúsum eða á skemmtistöðum? Eru það börn, unglingar eða full- orðið fólk? Eða þeir sem nefndir eru „góðkunningj- ar“ lögreglunnar? Til að fá svör við þessum spurning- um var leitað til Bjarka Elíassonar yfirlögreglu- þións í Reykjavfk og gaf hann upp ýmsar tölur og svaraði spurningum. — Við tökum saman allar skýrslur og gefum í hverjum mán- uði upplýsingar til Áfengisvarna- ráðs um þá sem hafa verið teknir oftar en tvisvar í mánuði og alla sem teknir eru undir tvftugu. Þá höfum við fyrir okkur mánaðar- legt uppgjör um gistingar i fanga- geymslum lögreglunnar og þar er tekið fram af hvða ástæðum fólk hefur verið tekið, hvar og á hvaða tíma sólarhringsins. í skrám yfir handtökur vegna ölvunar er að finna ýmsar töluleg- ar upplýsingar og eru t.d. alls 10.145 gistingar í fangageymslum árið 1975 eða að meðaltali 27 á sólarhring. Karlar eru í miklum meirihluta eða 9.378, en konur eru 767. Flestir eru á aldrinum 40—50 ára, en á aldrinum 12—14 ára voru alls tekin 7. Margt fólk er tekið oftar en einu sinni og eru t.d. 23 tvitugir piltar teknir alls 44 sinnum, en oftast hefur einn piltur verið tek- inn 30 sinnum, en hann var þá sextán ára. Af stúlkum er oftast tekin 17 ára stúlka, alls 20 sinn- um. Ef litið er á heildarhandtökur árið 1974 kemur í ljós að 325 karlar hafa verið teknir oftar en einu sinni í mánuði, alls í 3.536 ‘áx . Wt' 4 I KRINGUM ÁFENGISGLASIÐ Fangaklefarnir voru allir fullskipaðir þrátt f.vrir rólegheitin, en auk þess að sinna ölvuðú fólki sagði Páll að mikið af tíma lögreglunnar færi í að sinna fólki sem hringir og ætti t.d. í einhvers konar erfiðleikum, en sérstaka þjónustu vantaði tilfinnanlega fyrir slíkt fólk. skipti, en konur eru 27 í 373 skipti. Þessar tölur leiða fram þá spurningu hvort hér sé alltaf um að ræða sama fólkið, sem lögregl- an er að fást við, e.t.v. svonefndir kunningjar lögreglunnar: — Margt af þessu fólki eru „góðkunningjar“ okkar, sagði Bjarki, en á síðustu árum hafa orðið nokkrar breytingar til batn- aðar á þessu hjá okkur og kemur þar margt til. Síðan á> árunum 1973—’74 hefur handtökum þess- um farið nokkuð fækkandi, þær voru yfir 10 þúsund bæði árin en eru 8.800 árið 1975 og 7.500 árið 1976. Skýringin er aðallega sú, að hægt hefur verið að hjálpa þessu fólki meira á siðustu árum, þvi hefur verið komið til meðferðar t.d. út á land í vis*”n ogvinnii: rj„tju~:~inn vjfl jblwr**qrrSstræti er nú opío atlán sólarhringinn, en ekki aðeins á nóttunni og við höf- um einnig reynt að breyta okkar starfsaðferðum á þann veg að af- greiða þessi mál sem mest á vett- vangi, þ.e. aka viðkomandi beint heim ef það er hægt. Um „góð- kunningjana” er það að segja að vissulega eru þeir margir, það koma alltaf nýir og nýir en þeir hafa líka margir breytt sínum lifnaðarháttum og tekið að vinna og ekki má gleyma því að margir eru líka farnir að líta öðrum aug- um á þetta vandamál. AA- Bjarki Elfasson yfirlögreglu- þjónn. samtökin eru mjög sterk og þar eru margir menn sem hafa verið áfengissjúklingar og þeir geta bezt hjálpað áfengissjúklingum. Nýju samtökin, SÁÁ, eru þegar farin að starfa af krafti og árang- urinn af starfi allra þessara sam- taka kemur í ljós í okkar tölum. Þannig voru t.d. um 700 handtök- ur hvorn mánuð í október og nóv- ember 1976, en 520 í október 1977 og 559 í nóvember í fyrra, svo Enn hert að með boðum og bönnum segia veitingamenn Um það bil 13% af áfengis- neyzlu landsmanna mttnu eiga sér stað á veitingahúsum. Fyrir Alþingi liggur nú, frumvarp um nokkrar breytingar á áfengislög- unum nr. 47/1969 og eru flutn- ingsmenn þeir Helgi Seljan, Odd- ur Ölafssoti, Jón Helgason og Jón Armanjr Héðinsson. Samband veitinga- og gistihúsaeigenda, SVG, hefur sent frá sér athuga- semdir veitingamanna við frum- ,-varpið. Kemur þar m.a. fram það / álit þeirra að ekkert nýtt komi fram í frumvarpi þessu annað en herða skuli að veitingarekstri með boðum og bönnum. Til að heyra nánar skoðanir veitingamanna verða hér á eftir birtir nokkrir kaflar úr greinar- gerð þeirra. Meðal þess sem gagn- rýnt er við samningu frumvarps- ins er að ekki skuii hafa verið haft samráð við veitingamenn. Þá segir: Þótt horft sé burt frá sjón- armiði rekstursaðila skemmti- staða við athugun þessa frum- varps, þá er erfiðara að horfa fram hjá því hvaða áhrif það hef- ur á möguleika fólks til kvöld- skemmtana og afþreyingar. Fólk á aldrinum 18—20 ára hefur flest- um öðrum frekari þörf fyrir að sýna sig og sjá aðra. Það er ennþá tiltölulega frjálst af þeim bönd- Fólk leggur oft á sig harðræði f misjöfnum veðrum til að ná I „snabbann". um, er fylgja fullorðinsárunum, og þetta er sá aldur ævinnar, sém það hefur til þess að skvetta úr klaufunum og hlaupa af sér horn- in. Hver er hugmynd flutnings- manna frumvarpsins um skemmtistað fyrir þetta fólk? Á það að taka við Hallærisplaninu af þeim yngri, sem nú hafa á ný fengið inni í Tónabæ? Er ekki líka óeðlilegt að fólk, sem lögum samkvæmt má stofna til hjóna- bands og skal gjalda þjóðfélaginu skatta og skyldur, megi ekki sjálft ráða því hvers kyns skemmtanir það stundar, af þeim sem í boði eru? Síðan eru nefnd nokkur ákvæði áfengislaganna og um leið kemur fram hvað veitingamenn finna helzt að þeim ákvæðum. Skilyrði fyrir vínveitingaleyfi er að veit- ingastaður hafi á boðstólum mat, — hvort sem eftirspurn er eftir honum eða ekki. Af þessu leiðir, að ekki er hægt að selja vín án þess að á staðnum sé fullbúið eld- hús og iðnlærður matreiðslumað- ur. Veitingamenn skulu endur- greiða ríkissjóði kostnað vegna eftirlits. Mun það nánast eins- dæmi þegar um iöggæzlu er að ræða. Aður en sett er reglugerð um vínveitingar þar á meðal um veit- ingatíma, álagningu og lögreglu- eftirlit, skal leitað umsagnar áfengisvarnaráðs. Ekkert segir til um að umsagnar veitingamanna skuli leitað. Óheimilt er að selja áfengi þeim sem gerzt hafa sekir um óleyfi- lega sölu eða bruggun áfengis. Á að krefja menn um sakavottorð áður en þeir fá afgreiðslu á bar? — Afengi má aðeins veita frá kl. 12—14.30 og kl. 19—23.30. —

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.