Morgunblaðið - 28.01.1978, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. JANUAR 1978
13
greinilegt er að þeim virðist fara
eitthvað fækkandi, • þótt það sé
annars mjög sveiflukennt, og
hvort hér er um að ræða logn á
undan stormi eða eitthvað annað
skal ég ekki segja um.
— Annasamasti timinn hjá
okkur er kringum miðnættið eða
allt frá kl. 10 á kvöldin til 2—3 að
nóttu og má segja að mestur tími
fari í það að sinna ölvuðu fólki á
einn eða annan hátt á þessum
tíma sólarhringsins. Það hefur
fjölgað í yfigri árgöngunum og
kemur það fyrir að við höfum
afskipti af 12 ára börnum. Stund-
um er hægt að aka þeim beint
heim, er stundum er ástandið
heima fyrir ekkert betra eða ekki
tekst að ná sambandi við heimil-
in. Fyrir um það bil 20 árum var
það algjör undantekning ef við
þurftum að hafa afskipti af fólki
undir tvítugu, en nú er það aftur
á mofi algengt. En það lagast ekki
meðan fólk telur það vera ein-
hvers konar heilaga skyldu að
unglingum sé útvegað áfengi.
— Um afbrot er það segja að
yfirgnæfandi meirihluti þeirra er
tengdur áfengi á einn eða annan
hátt, það vantar peninga til að
hægt sé að kaupa áfengi, ölvað
fólk lendir i slagsmálum, meiðsli,
árásir og nauðganir, oftast er
þetta i sambandi við ölvað fólk.
P’jársvikamál og slík afbrot eru
hins vegar oftast fyrirfram skipu-
lögö og unnin af yfirlögðu ráði.
— Við urðum mjög varir við
Hér má sjá yfirlit yfir
fjölda gistinga í fanga-
geymslu lögreglunnar í
Rvfk. sfðustu 10 árín.
1967 . 7.063
1968 . 6.444
1969 . 5.890
1970 . 6.898
1971 . 7.406
1972 . 8.453
1973 . 10.456
1974 . 10.145
1975 . 8.820
1976 . 7.525
Eitt kvöldið fengum við að lfta
inn í stöðvar iögreglunnar við
Hverfisgötu. Páll Eiriksson aðal-
varðstjóri sagði að aðalannatím-
inn væri milli kl. 10 og 2, en þetta
kvöld bar svo við að það var
rólegt, og sagði Páll það vera
mjög misjafnt frá einni helgi til
annarrar hversu mikil umsvif
væru hjá þeim. Ljósm. Rax.
það í verkfalli opinberra starfs-
manna í vetur, að það dró úr
hvers kyns klögumálum og var
t.d. tómt hús hér hjá okkur, og
það gerðist ennfremur um árið er
þjónar voru i löngu verkfalli.
Yfirleitt má segja að störf okkar
séu að alltof miklu leyti tengd
áfengisneyzlu, sagði Bjarki Elías-
son að lokum.
J.
Hérna má sjá hvernig skiptist niður á ýmsa staði hvar fólk
hefur verið, en tölurnar eru frá árinu 1976:
karlar konur alls
Af heimili sfnu 375 37 412
úr fbúðarhúsi 520 69 589
úr leigubifreið 155 19 174
frá veitingahúsi 648 68 716
Af almannafærj 4.093 230 4.334
óskað gistingar 685 49 734
ölvun við akstur 121 8 129
frá Kópavogi 146 13 209
7.018 507 7.525
Um það bil 13% af áfengisneyzlu Islendinga fer fram á vínveitinga-
stöðum og telja veitingamenn að hækki það hlutfall muni vínmenning
breytast til batnaðar.
Er ekki timabært að lengja dag-
legan vfnveitingatíma? Það gefur
heldur afkáralega mynd af ís-
lenzku þjóðskipulagi, að erlendur
ferðamaður á hóteli getur ekki
fengið afgreiddan einn drykk um
miðjan dag, en hinsvegar er allt í
lagi að, senda bil eftir heilli flösku
í ,,ríkið“ fyrir hann.
— Öheimilt er að veita áfengi
1. dag stórhátíða Þjóðkirkjunnar,
aðfangadag og föstudaginn langa.
Enn fremur skulu bannaðar allar
vínveitingar á miðvikudögum. —
Þetta gerir 57 daga ársins og ber
þar hæst hið fáránlega miðviku-
dagsbann. Hugmyndin að baki
þess er, að bindindismenn geti
þann dag vikunnar skemmt sér,
án þess að verða vitni að áfengis-
neyzlu annarra. Reyndin er bara
sú, að hvorki þeir né aðrir sækja
skemmtistaði á þessum degi með
þeirri afleiðingu, að þeir eru nú
almennt lokaðir. Þess má geta að
Normenn, sem til skamms tima
voru með svipaða reglu, hafa nú
afnumið hana. Ættu íslendingar
að fara eins að, sérstaklega þar
sem engan veginn er um að ræða
þurran dag hjá þjóðinni, enda út-
sölur ATVR opnar miðvikudaga
sem aðra daga.
Þá er nefnt að veitingamenn
hafa ýmislegt að athuga við opn-
unartíma veitingastaða, svo og við
einkasali eða félagsheimiti ýmissa
aðila, sem þeir telja að taki veru-
lega frá þeim viðskiptin.
„Innan við 13% af áfengis-
neyzlu Islendinga eiga sér stað á
vínveitingahúsum. Það yrði áreið-
anlega til þess að stuðla að bættri
vínmenningu og draga úr heildar-
neyzlu áfengra drykkja, ef þetta
hlutfall hækkaði. En það er borin
von að svo geti orðið án gagn-
gerðrar endurskoðunar á núgild-
andi lögum“.
Myntsöfnun fyrir byrjendur
Ég lofaði því i siðasta þætti
mínum um mynt, að leiðbeina
frekar byrjendum i myntsöfnun.
Ég tók þá fyrir einseyringa, fimm-
eyringa og tieyringa og nefndi ár-
tölin, sem þessi mynt var slegin
eftir 1946. Þetta er það sem
myntsafnarar nefna venjulega
,, lýðveldismynt". Ég vona að þeir,
sem hafa nú byrjað myntsöfnun
með þessum leiðbeiningum min-
um hafi komist sæmilega af stað,
og séu kannske farnir að reka sig
á það að sumir peningar, þ.e.a.s.
peningar með sumum ártölum eru
torfengnari en aðrir. Þarna má
kannske strax benda á 5 aura með
ártölunum 1958, en það ár voru
slegnir 400.000 fimmeyringar og
árið 1959 voru slegnir 600.000
stykki. Það mætti einnig nefna að
það eru til tvenns konar tiu aura
peningar frá árinu 1969. Þeir eru
eins að öllu leyti nema þvi að
kanturinn er mismunandi rifflum
Rifflurnar eru ýmist grófar eða
finar. Sumir myntsafnarar setja
þvi báða þessa peninga í safnið
sitt.
Sjálfsagt hafa menn tekið eftir
þvi að peningarnir eru misjafnlega
útlitandi. Myntsafnarar hér á landi
hafa tekið upp flokkun peninga
hina sömu og notuð er á Norður-
löndum. Flokkur O er ógengin
mynd, 01 er nær ónotað eintak,
1 + er mjög litið notað og gott
eintak. 1 er allmikið notað, en
sæmilegt eintak, 1 — er mikið not-
að og slitið eintak og flokkur 2 er
slæmt, flatslitið eintak. Það er
dálitíll vandi að flokka mynt eftir
þessu kerfi og fjandakornið að
nokkrir tveir myntsafnarar flokki
alveg eins, að minnsta kosti þegar
annar er að selja og hinn að
kaupa, en hvað um það, kerfið er
það bezta sem völ er á og með
nokkurri æfingu, er það vel brúk-
legt. Það er auðvitað draumur
hvers myntsafnara að eiga allt
safnið sitt i flokki 0, en það er
draumur sem liklega aldrei rætist
eftir RAGNAR
BORG
fullkomlega. Reynið samt að
halda eftir sem beztum peningum.
Það er lika spurning hvernig á að
geyma peningana. Helzt á hver
peningur að vera fyrir sig. Til að
byrja með má geyma þá i litlum
umslögum þar sem stendur utaná
hvaða peningur er, en liklega er
bezt að fara sem fyrst að huga að
góðri möppu fyrir myntina. Svona
möppur fást hjá myntsölum flest-
um og eru af nokkrum gerðum.
Svo við höldum áfram með
söfnunina skulum við taka til við
25 og 50 aura peninga. 25 aurar
voru slegnir árin 1946, 1951,
1954, 1957. 1958, 1959, 1960,
1961, 1962, 1963, 1965, 1966
og 1967.
50 aura peningarnir voru aðeins
slegnir fimm sinnum, árin 1969,
1970, 1971, 1973 og 1974.
Það er sama að segja um þessa
peninga og myntina, sem ég
nefndi í siðustu viku. að þessir
peningar hafa báðir verið innkall
aðir og fást þvi ekki lengur i bönk-
um og sparisjóðum. Það gildir það
sama um þessa mynt og hina aur-
ana, þetta eru ekki það verðmiklir
peningar, að óhætt er að skipta á
þeim pening fyrir pening, ártölin
skipta litlu máli, verðmætamunur
er sáralitill. Það skiptir þó máli
hvort verri peningur er fenginn
fyrir betri samanber flokkunina
hér að framan. Og munið svo, að
ekki má pússa peninga.
ARNARFLUG
hefur flutt skrifstofur sínar að
Skeggjagötu 1
(á horni Skeggjagötu og
Snorrabrautar)
Nýtt símanúmer:
29511
ARNARFLUG
Nýir snjóhjólbarðar
1100x20
1000x20
900x20
825x20
Mjög hagstætt verð
u§
Einnig ávallt fyrirliggjandi
flestar stærðir hjólbarða
sólaðir og nýir
Póstsendum
um land allt
fíjót og gód
þjónusta
GUMMI
VINNU
STOfAN
HF
Skipholt 35
105 REYKJAVÍK
sfmi 31055