Morgunblaðið - 28.01.1978, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. JÁNUAR 1978
15
Á tillögu þeirri um Grjótaþorp, sem nú er til meSferðar, er gert ráð fyrir
varðveizlusvæðum, sem merkt eru með punktaflötum Reiknað er með að flytja
megi að hús i sama stil á vissa staði, sem merktir eru með stórum punkti. En stór
punktur með hring táknar niðurrif og aðflutt hús. Gert er ráð fyrir nokkurri
uppbyggingu nýrra lágra húsa með risþökum og eru þeir reitir ómerktirþorpi.
Yfirlits-
mynd af
Grjóta-
þorpi.
TíUögur upp um vissa
verndun í Gr jótaþorpi
í FRÉTTUM i gær var skýrt frá þvi
að baráttumenn fyrir varðveizlu
Bernhöftstorfunnar ætluðu i dag
að boða til útifundar til varðveizlu
Grjótaþorps. Þar er gefið i skyn,
að fyrir liggi að rifa gömlu húsin i
Grjótaþorpi. Þar sem skipulag
Grjótaþorps er i vinnslu í nefndum
borgarstjórnar og hefur tekið allt
aðra stefnu, tel ég nauðsynlegt að
gera grein fyrir málinu. Sumum
þeirra, sem standa að fundinum,
er kunnugt um hvernig mál
standa, en ég tel að aðrir borgar-
búar eigi lika kröfu á að fá að vita
það.
Skipulagsnefnd borgarinnar og
umhverfismálaráð eru að fjalla um
tillögu til borgarstjórnar, sem gerir
ráð fyrir mikilli verndun húsa í
Grjótaþorpi, sem I aðalskipulagi er
skilgreint sem endurnýjunarsvæði
Umhverfismálaráð fjallaði sl mið-
vikudag um þá tillögu, sem skipu-
lagsnefndarmenn hafa komið sér
saman um, og þótti öllum hún góð
lausn, held ég að óhætt sé að segja,
þó að ekki hafi hún verið afgreidd
formlega Ráðið hafði fyrir tveimur
árum farið fram á það við Nönnu
Hermannsson minjavörð, að hún léti
gera úttekt á húsunum i Grjótaþorpi,
til þess að undirbyggja ákvarðana-
töku. Sú skýrsla er komin út og
hefur verið kynnt Ég held að flest-
um sé Ijóst af henni, hversu merki-
legur hluti af Reykjavíkurborg er
enn til þarna í brekkunni. Eftir það
sendi umhverfismálaráð borgarráði
og skipulagsnefnd tílmæli til þessar-
ar skýrslu, sem hefur verið gert
Hefur skipulagsnefnd að undan-
förnu verið að fjalla um málið og er
sem fyrr segir að bera tillögur sínar
undir umhverfismálaráð. Nanna
Hermannsson minjavörður sat fund-
in á miðvikudag og er sátt við þá
tillögu, sem var kynnt
Gert er ráð fyrir þvi I tillögunni að
skapað verði hlýlegt umhverfi í
Grjótaþorpi með blandaðri byggð
íbúða, verzlana, skrifstofa, þjónustu-
fyrirtækja og létts iðnaðar eða hand-
verks Því sé æskilegt að verulegar
umbætur á núverandi mannvirkjum
og umhverfi eigí sér stað á næsta
skipulagstímabili. Er stefnt að þvi að
gatnakerfið verði óbreytt í meginatr-
iðum. Einstök hús í hverfinu falli
undir hugtakið „verndun mann-
virkja", og eru þau hús tiltekin (með
smápunktum á korti) Eru þau i
samræmi við könnun þá sem gerð
var á Grjótaþorpi. Á auðar lóðir er
reiknað með að megi flytja gömul
hús og eru þær lóðir tilgreindar á
korti (stórir punktar). En menn gera
sér Ijóst, að til þess að fullmóta
Grjótaþorp þarf að eiga sér stað
nokkur uppbygging nýrra húsa á
ákveðnum svæðum og þar gert ráð
fyrir þéttri og lágri byggð á einni til
fjórum hæðum með risþökum. Verð-
ur að sjálfsögðu að vanda mjög til
þess að þau hús falli vel inn í.
En málið er ekki alveg einfalt Þó
ar og fasteignir i Grjótaþorpi og
myndi sjóð, sem gegna myndi
þessu hlutverki
^ Upphaf Reykjavíkur
í hnotskurn
Það hefur haft sína galla, að svo
lengi hefur dregist að ákvarða örlög
Grjótaþorps, m a. að húsum hefur
ekki verið við haldið En það hefur
líka haft þá kosti, að eyðilegging
þess hefur dregist og fjöldamörg
húsanna eru þar enn til í uppruna-
legu útliti og merkilega heil, eins og
fram kemur i skýrslunni um Grjóta-
þorp, þar sem hvert hús um sig var
tekið fyrir, rakin saga þess, ástandi
lýst, sagt frá breytingum síðari ára
og reynt að meta gildi húsanna. En
húsin eru þar flokkuð eftir því hve
mikla endurnýjun þau þyrftu Að
sjálfsögðu er þar gert ráð fyrir að þar
inni eigi svo mikið af sinum uppruna
á litlu svæði Og ég er hrædd um að
eftirkomendur okkar mundu ekki
þakka okkur fyrir að farga þvi nú, og
skilja eftir eintómar „nýtizku bygg-
ingar" frá 7. áratugnum. Að blanda
Grjótaþorpi með svo heillegum
minjum í húsagerð saman við öll
önnur hverfi með gömlum húsum er
ekki málefninu til gagns, eins og nú
er reynt að gera. Það hefur sérstöðu
I aðalskipulagi er Grjótaþorp sam-
þykkt sem endurnýjunarhverfi, þar
sem gert er ráð fyrir vissri verndun
en líka að byggja megi upp í eyður
eða flytja önnur hús þangað, sem
þar eiga heima. En Miðbærinn, frá
Aðalstræti að Lækjargötu, er upp-
byggihgarsvæði Rökin fyrir þvi eru
þau, að bankar, skrifstofur og þing,
sem starfa ekki nema hluta úr degi,
hafa lagt undir sig bæinn (búar eru
þar varla lengur og verzlanir að
hverfa á eftir ibúunum, svo að þar er
Eftir Elínu Pálmadóttur borgarfulltrúa
Reykjavikurborg eigi margar eignir í
Grjótaþorpi, þá eru þar lika stórar
eignir i einkaeigu Með þá eigendur
hefur verið illa farið, þar sem dregið
hefur verið árum saman : ð taka
ákvörðun um uppbyggingu á staðn-
um, en þeir á meðan greitt fast-
eignagjöld af dýrum lóðum. Og þó
öll byggingasamþykktin hafi í raun
ákvæði sem ákvarða hvernig byggð
skuli vera á ýmsum svæðum í borg-
inni til samrærhingar og heilla fyrir
heildina, þá er þarna að vissu leyti
um að ræða sérstætt mál
Þvl er i tillögunni gert ráð fyrir
þvl, að eigendum I Grjótaþorpi verði
veittur stuðningur frá Reykjavíkur-
borg til viðhalds og endurbóta á
húseignum, gegn þvi að eigendur
húsanna gangist þá undir þinglýstar
kvaðir á eignum sinum um þau
ákvæði verndunar er sett kunna að
verða Og til að fá fé til þessa er lagt
til að Reykjavikurborg selji lóðir sin-
þurfi að koma fyrir baðherbergjum
og öðru því sem tilheyrir nútíma
lifnaðarháttum
Af þessum gögnum má sjá, að i
Grjótaþorpi er upphaf Reykjavikur-
kaupstaðar í hnotskurn með iðnaði
sínum og verzlun Við Aðalstræti,
framhlið hverfisins, risu upp verzlan-
ir og meiri háttar hibýli kaupmanna,
en i brekkunni byggðu tómthús-
ménn og iðnaðarmenn. Norðurhlið
snýr að sjó og mótaði atvinna,
bryggjur og pakkhús þá hlið og er
þáttur í athafnasögu hverfisins og
Reykjavikur Merki þessa sést í
byggingunum En i Grjótaþorpi er
einnig upphaf steinsteypualdar í
góðu eintaki Og sögulegar minjar
eru i hverju húsi. Þarna voru fyrstu
skólarnir, iðnskóli, barnaskóli og
kvennaskóli, þarna bjuggu okkar
mestu sjálfstæðishetjur og fyrstu
listamenn o.s.frv.
Ég hygg að engin borg í veröld-
litið líf og umferð lengur, nema
hluta úr sólarhringnum, og æskilegt
að lífga „bæjarlifið" aftur við Á
þessum reit er ekki orðið mikið eftir
af gömlum byggingum, þó þær séu
að vísu til
Þar sem sýnilegt er, að Alþingi
muni halda áfram að koma sér fyrir i
miðbænum, og að æskilegt er að
heilleg gömul byggð haldist við
Tjörnina, i brekkunni austan megin
(Bernhöftstorfan, Menntaskólinn
o.s.frv.), svo og vestan megin í
Grjótaþorpi, þá virðist annar reitur
varla betri til að auka llf I Miðbæn-
um en auðu lóðirnar við Aðalstræti
austanvert. þar sem Hótel ísland
sáluga stóð Þar má koma fyrir ibúð-
um fyrir 300 manns, smáverslun-
um, innitorgi fyrir þá sem vilja fara i
miðbæinn að skoða i búðarglugga
og fá sér kaffisopa, eins og gert var
áður, smáverzlunum, og með bíla-
stæðum, sem svo mjög vantar, í
kjallara. Bílastæði yrðu aftur á móti
ekki inni i Grjótaþorpi, þó að þau
mætti gera á hornlóðunum við
Garðastræti Sá valkostur, að byggja
helzt upp á Hótel íslandslóðinni til
að auka lif i miðborginni held ég að
sé ekki svo slæmur. En það verður
vandaverk að teikna það hús svo að
vel fari i umhverfinu Kubburinn á
likani, sem birtar hafa verið myndir
af, gefur mjög villandi hugmyndir,
þar eð hann sýnir bara umfang
byggingarinnar, en hún á að vera
með mjög inndregnum efri hæðum
Húsið sjálft á eftir að teikna. Nú er
nánast eingöngu verið að samþykkja
að eigendur megi gera tillögur um
hús af þessari stærð og með vissum
•forsendum, en siðan kemur aftur til
skipulagsnefndar teikning af húsinu,
ef þeir koma sér saman um ákveðna
tillögu.
Þarna er um að ræða viljayfirlýs-
ingu um að bygging, sem gegni
'fyrrgreindum markmiðum, megi risa
þarna Mun ég ekki fjölyrða meira
um það Þarna eru að visu til hús,
sem fengur er að standi, og væri
e.t.v hugsanlegt að flytja einhver
þeirra ef til kemur i Grjótaþorp eða
annað
Þar sem verið er að draga Grjóta-
þorp og skipulagshugmyndir um
það fram nú, tel ég rétt að gera
borgarbum grein fyrir þeim hug-
myndum, sem uppi eru um það i
skipulagsnefnd og umhverfismála-
ráði Ég held að þær hugmyndir séu
nokkuð gófr lausn Og er raunar
sannfærð um að eftirkomendur okk-
ar eiga eftir að þakka fyrir, ef þeir
eignast Grjótaþorp, uppgert og vel
við haldið Og að ekki megi láta ráða
alfarið stundarhagsmuni eða sam-
viskubit yfir þvi að hingað til hefur
verið farið illa með ákveðna aðila,
með því að draga of. lengi að
ákvarða skipulag staðarins Heldu
að reyna að finna lausn, sem léttir á
þeim og bætir þeim sem gert er að
halda húsunum við, eins og þarna
er gert
L