Morgunblaðið - 28.01.1978, Qupperneq 20
20
MORGUNBLAÐIÐ,.LAUGARDAGUR 28. JANÚAR 1978
Kaupmannahöfn. 27. jan. Reuler.
FRÖNSKU leikkonunni
Brigitte Bardot hefur verið
álasað fyrir að hafa minnkað
tekjur selaveiðara á Græn-
landi. A fundi Evrópuráðs í
Strassbourg á þriðjudag var
tekin sú ákvörðun að banna
kópaveiðar í Grænlandi en leik-
konan sat þingið sem gestur.
Bardot hefur árum saman bar-
izt gegn kópaveiðum og mætti á
þingið með loðkraga úr gervi-
efni.
Landstjórinn á Grænlandi,
Lars Chemitz, iýsti því yfir að
ákvörðun Evrópuráðsins um
bann á kópaveiðum væri út í
hött en sala á selskinnum frá
Grænlandi hefði minnkað að
mun síðastliðin ár og væri það
baráttu Bardot mikið að kenna.
Hann sagði að fjöldadráp á sei-
um tíðkuðust ekki í Grænlandi
eins og i Kanada, þangað sem
leikkonan hélt í mótmælaskyni
í fyrravetur. Sagði landstjórinn
að vísindamenn hefðu ráðlagt
auknar selaveiðar á Grænlandi,
þar sem engin hætta væri á því
að sú selategund sem mest væri
veidd yrði útdauð.
Dönsku blöðin tala um
ákvörðun Evrópuráðs um bann
á kópaveiðum sem pólitískan
sigur fyrir Bardot.
Mikillar reiði gætir víða út af
Bardot kennt um
tveggja ára bann
á selaveiðum
banninu og Otto Steenholdt,
grænlenskur þingmaður sagði
að Bardot væri boðið til Græn-
lands til að kanna aðstæður
selaveiðara og sjá með eigin
augum hvernig veiðunum væri
háttað. Sagði hann að selaveið-
ar væru eina lífsviðurværi
flestra á Norður-Grænlandi og
spurði síðan hvað Bardot ætlaði
selaveióurunum og fjölskyldum
þeirra í staðinn. Ennfremur
sagði þingmaðurinn að græn-
lenskir selaveiðarar dræpu
ekki kópa og nýttu kjöt og
skinn fullorðnu selanna ein-
göngu til heimilisnota. Sagði
þingmaðurinn að til þess að
Bardot yrði fullljóst fyrir
hverju hún væri að berjast yrði
hún endilega að koma til Græn-
lands og finna fyrir kuldanum í
norðrinu um leið og hún ferðað-
ist um á kajak eða í hundasleða.
Rádherra segir
af sér í Póllandi
Varsjá, 27. janúar. Reuter
MENNINGARMALARÁÐHERRA Póllands, Jozef Tejchma, sagði af
sér í gær, að þvf er talið er vegna deilna um pólska kvikmyndaiðnað-
inn. Tejchma mun þó halda áfram að gegna ábyrgðarstöðum í stjórn
landsins.
Tejchma var settur menningar-
málaráðherra 1974, en í fyrra
urðu miklar deilur að tjaldabaki
um menningarmál Póllands, en
Tejchma hefur verið talinn frek-
ar frjálslyndur í þeim efnum. Tal-
ið er að kvikmynd pólska leik-
stjórans Andrzej Wajda hafi veg-
ið þyngst á metunum, en myndin
sem fjallar um valdatímabil
Stalins, var harðlega gagnrýnd af
blöðum og trúum kommúnistum.
Þá urðu einnig miklar deilur um
bönn á myndum og i einu tilviki
voru gögn stjórnarinnar þar að
lútandi birt opinberlega á Vestur-
löndum.
Tejchma mun þó halda áfram
að gegna störfum varaforsætis-
ráðherra, en auk þess verður
hann gerður að sérfræðingi
stjórnarinnar I landbúnaðarmál-
um og matvælaframleiðslu, æsku-
lýðs- og kvennamálum og trúmál-
um. Gert er ráð fyrir að hann
verði jafnvel meira ráðandi í
þeim málefnum en viðkomandi
ráðherrar.
Viðræðum Videla
og Pinochet fram-
haldið í febrúar
Buenos Aires 27. januar. AP.
FORSETAR Argentínu og Chíle, Jorge Videla og
Augusto Pinochet munu eiga viðræður sjötta febrúar
næstkomandi vegna deilu landanna tveggja um eigna-
rétt á þremur eyjum við C Hornhöfða, að sögn talsmanns
argentínsku stjórnarinnar.
Þjóðirnar tvær vfsuðu deilu
sinni til brezku krúnunnar 1971
en Argentínumenn undu ekki
dómi hennar, sem féll á miðviku-
dag, um að eyjarnar tilheyrðu
Chíle.
Videla átti viðræður við Pin-
ochet fyrir viku og tilkynnti hon-
um afstöðu Argentínumanna í
þessum málum og urðu þá báðir
aðilar sammála um að reyna frek-
ari samningaumleitanir. En þegar
brezka krúnan tilkynnti úrskurð
sinn bökkuðu Chílemenn og
sögðu úrskurð hennar endanleg-
an.
A eyjunum búa átta chílenskir
sauðfjárbændur, en þær hafa
mikilvægu hlutverki að gegna í
landhelgismálum Argentinu og
Chíle. Eyjarnar eru Argentínu-
megin landamæranna, sem ákveð-
in voru á 19. öld, en æ síðan hafa
löndin staðið í stappi út af þeim.
Rtzkhiladze
handtekinn
Moskvu 27. janúar. AP.
ÁREIÐANLEGAR heimildir hermdu í
dag. að Viktor Rtzkhiladze, félagi i
mannréttindarnefnd Georgiu, hefði
verið handtekinn af sovézku leyni
lögreglunni KGB á miðvikudag
Rtzkhiladze. sem er starfsmaður
menningarmálaráðuneytis Georgiu,
var kallaður til yfirheyrslu hjá KGB á
miðvikudag og hefur ekkert til hans
spurzt siðan. Litlu eftir handtöku
hans var gerð húsleit i ibúð hans og
ættingjum hans var tilkynnt að hann
hefði verið settur i varðhald. Ekki er
enn vitað hvers vegna hann var
handtekinn.
Rtzkhiladze er sérfræðingur i
verndun sögufrægra staða. og hefur
gagnrýnt sovézk stjórnvöid fyrir að
eyðileggja klausturfrá miðöldum.
Hann var ásamt þeim Zviad
Gamsaljirdoa og Mera Kostava
stofnandi mannréttindanefndar
Georgiu, en þremenningarnir sitja nú
allir i fangelsi.
CONSTANTINE KARAMANLIS forsætisráðherra Grikklands hélt i gær föstudag, frá Brussel til
Parísar eftir viðræður við fulltrúa Efnahagsbandalagsins í Brussel. Lorenzo Natali fulltrúi EBE, sagðí
að viðræðunum loknum að Grikkland gæti verið orðið aðili að bandalaginu eftirþrjú ár. Natali sagði að
framhaldsviðræður myndu hefjast þann 10. febrúar n.k. og að hann byggist við að engar teljandi
hiiídranir væru i vegi fyrir því að Grikkir gerðust þá aðilar, aftur á móti myndi ekki takast að leysá öll
mál í sambandi við Spán fyrr en eftir mun lengri tima. Myndin var tekin á síðasta fundinum áður en
Karamanlis fór og sézt hann hér með Roy Jenkins.
Ræða Kennedys seld á 8000 dollara
New York 27. jan. AP.
Borgarstjórn Vestur-
Berlínar greiddi í gær
8.000 dollara eða jafnvirði
um 1.7 milljóna íslenzkra
króna fyrir frumhandrit
Johns F. Kennedys af ræð-
unni: „Ich bin ein Berlin-
er“ (Ég er Berlínarbúi),
sem hann hélt í Berlín árið
1963.
E.F. Baumann, háttsettur v-
þýzkur embættismaður, sagði að
handritið yrði að öllum líkindum
sýnt almenningi í Ráðhúsi Berlín-
ar, en Kennedy hélt ræðuna þar
fyrir utan. Baumann sagði, að
ræðaa væri mjög mikilvæg vegna
legu borgarinnar, en hún er inni í
miðju Austur-Þýzkalandi.
„Kennedy sagði í ræðunni: „Allt
sem kemur fyrir Vestur-Berlín,
kemur einnig fyrir mig,““ sagði
Baumann.
Handritið keypti Vestur-Berlín
á uppboði í New York í gær, en
þar seldust einnig handskrifuð
bréf Franklíns D. Roosevelts til
dóttur sinnar á 2.500 dollara
(562.000 íslenzkar krónur) og eig-
inhandaráritun Elvis Presleys á
250 dollara (56.000 krónur.).
VEÐUR
víða um heim
stig
Amsterdam 5 skýjað
Aþena 16 sól
Berlfn 3 skýjað
Briissel 4 skýjað
Chicago +4 snjókoma
Kaupmannah. 0 snjókoma
Frankfurt 4 rigning
Genf t 6 skýjað
Ilclsinki -1-12 bjart
Jóhannesarb. 24 skýjað
Lissabon 15 sól
I.ondon 8 rigning
Los Angeles 21 bjart
Madrid 12 bjart
Montreal 7 snjókoma
Moskva + 1 skýjað
New York 12 skýjað
Parfs 7 þungbúið
Rómaborg 11 sól
San Francisco 16 bjart
Stokkhólmi +3 skýjað
Tel Aviv 17 rigning
Tókíó 15 hálfskýjað
Vancouver 7 skýjað
Vfnarborg 5 skýjað
196.400
Finnar
atvinnu-
lausir
Helsinki 27. janúar AP
TALA atvinnulausra I Finnlandi
hækkaði um 32.700 frá 15. desem-
ber til 15. þessa mánaðar og eru
þá alls um 196.400 Finnar at-
vinnulausir, um 9% af vinnufær-
um mönnum. Að sögn atvinnu-
málaráðuneytisins er þetta mesta
atvinnuleysi í Finnlandi síðan í
kreppunni.
Arvo Aalto, atvinnumálaráð-
herra, sagði i dag að búast mætti
við að tala atvinnulausra næði
250.000 áður en ástandið i at-
vinnumálum landsins batnaði að
ráði, en fyrir ári voru 127.300
Finnar atvinnulausir.
Flestir voru atvinnulausir í
Lapplandi eða 16,6% af vinnu-
færum mönnum, en helmingur
hinna atvinnulausu er undir 25
ára aldri og hefur aldrei stundað
neina vinnu.
Búizt er við að stjórnvöld muni
leggja fram áætlun snemma í
næsta mánuði um leiðir til að
minnka atvinnuleysið meðal ungs
fólks.
Sleppt
Bonn 27. jan. AP.
VESTUR-Þýzkur blaðamaður
Werner Gengenbach, sem hef-
ur setið f fangelsi í Tékkó-
slóvakfu f þrjú ár, sakaður um
njósnir, var látinn laus f dag.
Vestur-þýzka utanrfkisráðu-
neyti.ð skýrði frá þessu og
sagði að Gengenbach væri á
leið heim. Talsmaðurinn sagði,
að blaðamaðurinn, sem var
dæmdur í tíu ára fangelsi,
hefði verið látinn laus vegna
skipunar frá Husak flokksleið-
toga, en aðrar skýringar ekki
gefnar á málinu.
Gengenbach sem starfaði í
Vfnarborg var handtekinn í
Bruno í Tékkóslóvakíu er
hann kom þangað á vöru-
sýningu.