Morgunblaðið - 28.01.1978, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 28.01.1978, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. JANUAR 1978 23 Leiðbeiningar þessar um út- reikning þeirra opinberu gjalda sem birtast í skatt- og útsvars- skrá, svo og um ákvörðun ónýtts persónuafsláttar og barnabóta, eru fyrst og fremst miðaðar við launþega, þó svo að framteljendur með sjálf- stæðan atvinnurekstur geti haft þar nokkur not af. Þvi aðeins koma þessar leiðbeiningar að notum að framteljandi hafi fyllt út framtal sitt fyrir árið 1978 og lagt saman alla liði þess. Með leiðbeiningunum er eyðublað sem framteljandi getur skrifað þær upphæðir á sem um er að ræða við út- reikning hvers gjalds. Til hag- ræðis fyrir framteljendur fylgir texti leiðbeininganna stafliðum eyðublaðsins. Jafnframt fylgja tvö dæmi um útreikning á opinberum gjölduriri á eyðublaðinu og eru tekin sem dæmi barnlaus hjón í Reykjavík sem búa í eigin ibúð og einstætt foreldri með þrjú börn, yngri en 1 6 ára, 3 1 . des. 1977. Einstæða foreldrið á ekki íbúð Með dæmunum fylgja nokkr- ar tölulegar skýringar: A. Tekjuskattur eða ónýttur persónu- afsláttur. 1. Hreinar tekjur til skatts eru mismunur tekjukafla fram- talsins, III, á bls. 2 og beggja frádráttarkaflanna. Leiðbeiningar við útreikn- ing tekjuskatts, útsvars og fleiri opinberragjalda ’78 IV og V, á 2. bls. framtals- ins. 2. Ef framteljandi telur sig eiga rétt til ivilnunar skv. 52. gr. skattalaganna (sjá nánar i Leiðbeiningum um útfyllingu skattframtals 1978) skal hann draga þá upphæð frá hreinum tekj- um. (Skattstjóri úrskurðar fjárhæð ívilnunar.). 3. Skattgjaldstekjur eru annaðhvort sama upphæð og hreinar tekjur til skatts (þ.e. í heilum hundruðum) eða hreinar tekjur til skatts að frádreginni ivilnun skv. 52. gr. Skattgjaldstekjur eru þvi þær tekjur sem skattur er reiknaður af. 4. Þegar skattgjaldstekjur hafa verið reiknaðar út skal reikna skatt af þeim á eftir- farandi hátt: a) Hjá einstaklingum og hjónum telji þau fram hvort i sinu lagi: Af fyrstu 1.310.700 kr. skattgjaldstekjum reiknast 20% skattur. Af næstu 524 300 kr reiknast 30% skattur. Af þvi sem Jmfram er reikn- ast 40% skattur b) Hjá hjónum sem sam- sköttuð eru og hjá sam- býlisfólki sem átt hefur barn saman og óskað hefur eftir að sameina skattgjaldstekj- ur sinar og skattgjaldseign: Af fyrstu 1 835.000 kr. skattgjaldstekjum reiknast 20% skattur. Af næstu 786.500 kr. reiknast 30% skattur. Af því sem umfram er reikn- ast 40% skattur. Færið siðan reiknaðan skatt i samtalsreit. Færíð inn Viðeigandi persónuafslátt en persónu- afsláttur er: a) 206.610 kr. fyrir ein- stakling og hjón sem telja fram hvort í sinu lagi. b) 308.850 kr. fyrir hjón sem samsköttuð eru, ein- stætt foreldri með barn, yngra en 16 ára á heimili og á framfæri 31 des 1977, og sambýlisfólk sem átt hefur barn saman og óskar eftir að sameina skatt- gjaldstekjur sinar og skatt- gjaldseign Reiknið út mismun reiknaðs skatts og persónuafsláttar. Ef persónuafsláttur er hærri en reiknaður skattur myndast ónýttur persónuafsláttur (sjá síðar hvernig má nota ónýttan persónuafslátt til greiðslu út- svars). Ef reiknaður skattur er hærri en persónuafsláttur kemur fram sá tekjuskattur sem fram- teljanda bér að greiða. Þó þarf að bæta þar við 1 % álagi til Byggingarsjóðs rikisins er greiðist með tekjuskatti. B. Eignarskattur. Eignir alls i I kafla framtals- ins á bls. 1, eins og framtelj- andi á að ganga frá þvi, fela i sér gildandi fasteignamat húss og lóðar sem tók gildi 31. des. 1977, sbr. Leiðbeiningar um útfyllingu skattframtals 1 978. Skv. gildandi lagaákvæðum, þ.e. 26. gr. laga nr. 68/1971, sbr. 2. gr laga nr. 63/1977, greiðist enginn eignarskattur af 8 000 000 kr. skattgjaldseign hjá einstaklingi og 12.000.000 kr. hjá hjónum. Af þeirri skattgjaldseign sem þar er umfram greiðist 0,8%. Við útreiknaðan eignarskatt skv. framansögðu bætist 1 % álag til Byggingarsjóðs ríkisins. C. Útreikningur útsvars. Útsvarsskyldar teljur eru reiknaðar út á eftirfarandi hátt: Dragið samtölu IV. kafla framtalsins á bls. 2, „Breyting- ar til lækkunar á framtöldum tekjum skv. III.", frá samtölu III. kafla framtalsins á bls. 2, „Tekjur árið 1977" Mismunur sá sem fram kemur er nefndur„Vergar tekjur til skatts". Útsvarsskyldar tekjur ög vérgar tekjur til skatts eru sama upphæðin hjá þeim sem eru eingöngu launþegar og eiga ekki eigin ibúð Frá „Vergum tekjum til skatts" skal draga reiknaða leigu af íbúðarhúsnæði sem framteljandi notar sjálfur og fram kemur i a-lið 3. töluliðar III. kafla framtalsins á bls. 2. Framteljandi, sem er eingöngu launþegi og býr í eigin ibúð, hefur nú reiknað út útsvars- skyldar tekjur sinar. Þeir framteljendur sem hafa tekjur af eignaleigu eða útleigu ibúðarhúsnæðis, eiga að skila rekstraryfirliti þar sem fram koma leigutekjur og gjöld. Við framtalsgerð á framteljandi að færa hreinar tekjur skv. sliku rekstraryfirliti í tekjulið 2 i III. kafla framtalsins eða, ef tap hefur orðið, að færa tap í frá- dráttarlið 1 2 i V. kafla framtals- ins. Vaxtagjöld og fyrningar á gjaldahlið áður getins rekstrar- yfirlits má ekki draga frá leigutekjum þegar útsvars- skyldar tekjur eru ákvarðaðar þó að leyfilegt sé að draga þessa gjaldaliði frá við ákvörðun hreinna tekna til tekjuskattsálagningar. Þessa tvo gjaldaliði þarf þvi að draga út úr rekstraryfirlitinu við ákvörðun útsvarsskyldra tekna. Samsvarandi leiðréttingu þurfa þeir aðilar að gera sem láta öðrum i té ibúðarhúsnæði, án eðlilegs endurgjalds, sbr. b-lið 3. töluliðar III. kafla framtals- ins, og hafa fært þessa gjalda- liði i 1. tölulið V. kafla framtals- ins. Ekki þykir ástæða tíl þess að lýsa hér heimildum sveitarfé- laga til hækkunar tekna til út- svars enda gilda þær heimildir eingöngu gagnvart fram- teljendum með sjálfstæðan at- vinnurekstur og auk þess not- færa mörg sveitarfélög sér alls ekki þessa heimild. Verður þvi sérhver, sem þessi heimildar- ákvæði gætu tekið til, að áætla sjálfur um þetta atriði en getur við þá áætlun haft útsvars- álagningu sina frá fyrri árum til hliðsjónar. Þegar framteljandi hefur reiknað út útsvarsskyldar tekjur skv. framansögðu færir hann þá upphæð i 1. tölulið C á eyðublaðinu og reiknar út út- svarið með þeirri prósenttölu sem hann telur að verði notuð við álagningu árið 1978. (Lik- legt má telja að flest sveitarfé- lög noti sömu prósenttölu og á árinu 1 977 þó að ekki sé óhætt að fullyrða það. Ijf útsvör voru reiknuð i skýrsluvélum 1977 má finna prósenttöluna á . álagningarseðli 1977.) Þeir framteljendur sem telja sig eiga möguleika á ivilnun skv. 27 gr útsvarslaganna, verða að ákvarða sjálfir þá upp- hæð sem til greina gæti komið þvi að vonlaust er að gefa nokkrar leiðbeiningar um þetta atriði, aðrár en þær að reikna skal 1 0% af þeirri upphæð sem framteljandi ákvarðar og færa þannig fengna upphæð i 2. tölulið C á eyðublaðinu. (Ein- hverja hliðsjón gæti fólk haft af ívilnun fyrri ára þó að um það gildi engin föst regla.) Að lokum skal lækka útsvar- ið með hliðsjón af fjölskyldu- stærð á eftirfarandi hátt og Sjá nœstu I síðu ^gj

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.